Tíminn - 07.04.1955, Blaðsíða 13
TÍMINN. fímmtudaginn 7. anríl 1955.
W. F. George vill
stórveldafund
sem fyrst
Útlitsteikning af hinni nýju og fyrirhuguðu sjálfsafgreiðslubúð í Hlíðarhverfi í Kópavogi.
Kaupfélag Kópavogs undirbýr byggingu vand-
aðrar sjálfsafgreiðslubúðar í Hlíðarhverfi
143 íbúar Iiverfisiias, langflestir heimilis-
feður. hafa skorað á oddvita hreppsins,
hygginganefnd og fjárhagsráð að veita
félaginu nauðsynleg Ievfi.
En engar óeðlilegar hömlur
verða settar á framkvæmdir,
standa vonir til, að hafin verði
bygging nýtízku sjálfaf-
greiðslubúðar í hinu nýja
Hlíðarhverfi í Kópavogi. Það
er hið unga og ötula Kaupfé-
lag Kópavogs, sem þar er að
verki og drengilega stutt af
íbúum þessa hverfis, því að
143 íbúar, þar af langflestir
heimilisfeður í hverfinu, hafa
sent oddvita Kópavogshrepps,
bygginganefnd hreppsins og
fjárhagsráði ágkorun um að
veita nauðsynleg leyfi til
byggingarinnar.
Hlíðarhverfið hefir þanizt
út á síðustu missirum, og þar
eru nú að rísa tugir nýrra
húsa, sem fólk er aö flytja í.
Á þessu svæði eða í hlíðinni
ofan Hafnarfjarðarvegar
sunnan í Digraneshálsinum,
er engin góð verzlun. Kaup-
félag Kópavogs hefir hins veg
ar verzlun uppi á hálsinum,
og sækja margir þangað, en
íbúar hverfisins hafa leitað til
félagsins um að setja upp búð
í hverfinu sjálfu. Málið er nú
komið á góðan rekspöl að því
er Hannes Jónsson, formaður
félagsins skýrði blaðinu frá.
Nýtízku sjálfafgreiðslubúð.
Á s.l. aðalfundi félagsins
var samþykkt að hefjast
handa um framkvæmdir í
þessu máli, og þegar sérfræö-
ingur um sjálfafgreiðslubúðir
frá sænsku samvinnufélögun-
um var hér á ferð í sumar. i
Fékk félagið hann til að gera
teikningu af íbúðinni á lóð
þeirri, sem félagið hefir feng-
ið til þess og í samræmi við
skipulagsuppdrátt skipulags-
stjóra. Er þarna gert ráð fyrir
fullkominni sjálfafgreiðslu-
verzlun í deildum með nauð-
synlegustu vörutegundir. Mál
ið er að öllu leyti undirbúið af
félagsins hálfu. Fé hefir verið
tryggt til framkvæmda og
teikningar fullgerðar. Aðeins
vantar byggingarleyfi og fjár
festingarleyfi.
Með undirskriftunum og á-
skorunum til þeirra aðila, sem
leyfin eiga að veita, hafa íbú-
arnir sýnt að hugur fylgir
máli um að fá kaupfélagsbúð-
ina upp þarna. — Þess er og
að vænta, sagði Hannes Jóns-
son að lokum, að öll nauðsyn
leg leyfi fáist og hægt verði að
hefja framkvæmdir, þegar
frost leysir ’úr jörð í vor.
Heimboð kaupfélagsins.
Kaupfélagið hefir haft þá
venju að bjóða viðskiptavin-
um sínum til skemmtunar
einu sinni á vetri. Þessi
skemmtun er nýbúin að þessu
sinni og var hún haldin í
barnaskólahúsinu. Hófst hún
með kaffidrykkju og var ým-
islegt til skemmtunar. Þor-
geir Guðmundsson setti hóf-
ið og stjórnaði því. Síðan
flutti Hannes Jónsson, for-
maður félagsins erindi um
samvinnumál. Karl Guð-
mundsson, leikari, skemmti
og að síðustu var spiluð fram
sóknarvist. Einnig var almenn
ur söngur undir stjórn Magn-
úsar Bærings Kristjánssonar,
kennara. Var saihkoman fjöl-
sótt og hin ánægjulegasta.
iiiiiiiiiuiiiiKiiiiiiiiiMMmMMiiiiimiMiiiiiMniiiiiimm*
jÖxlar með hjólum |
| fyrir aftanívagna og kerr. |
1 ur. Bæði vörubíla- og fólks I
fbílahjól á öxlunum. — [
| Til sölu hjá Kristjáni |
| Júlíussyni, Vesturgötu 22, |
ÍReykjavík e. u.
*«iiM<MMMiMiiiiMiMiiiiiiiiiMmimiiMiMiimiMmmiiiiiii
Sauðfjárræktarfé-
lag stofnað í Dal-
víkurhreppi
Washington, 4. apríl. —
Öldungadeildairþingmaðurinn
V/. F. George, fo.rmaður utan
ríkismálanefndar deildarinn-
ar hvatti enn mjög eindregið
| til þess í viðtali við blaða-
i mern sl. sunnudag, að æðstu
menn stórþjóðanna með eða
án þátttöku Rússa kæmu
caman til fundar hið allra
bráðasta. Kvað hann það trú
sina, að á slíkum fundi myndi
unnt að íinna einhvern þann
sameiginlegan grundvöll, er
'eitt gæti til þess að stórþjóð
’rnar gætu unnið að því að
traga úr deilum f, heiminuun.
23. marz s. 1. var stofnað á
Dalvík sauðfjárræktarfélag
fyrir Dalvíkurhrepp og hlaut
það nafnið „Vikingur.“ Voru
stofnendur 15 og fleiri eru
væntanlegir. Ingi Garðar Sig
urðsson ráðunautur Búnaðar
sambands Eyjafjarðar aðstoð
aði við stofnunina og valdi,
ásamt nefnd frá félaginu, ær
þær, er skýrslur verða haldn
ar um. Verður hann leiðbein
andi hjá félaginu framvegis.
í stjórn voru kosnir: Jón-
mundur Zóphóníasson, Hrafn
stöðum, formaður, Baldvin!
Magnússon, Hrafnstaðakoti,1
féhirðir og Þorvaldur Þor-
steinsson, Hálsi, ritari.
Auk þeirra bænda í Dalvík
urhreppi, er hafa búskap að
aðalatvinnu, stunda margir
borpsbúar smábúskap[
Samkoma barna-
skélans í Dalvík
Frá fréttaritara Tímans
í Dalvík.
Síðastl. laugardag hafði
barn'askólinn á Dalvík
skemmtisamkomu til ágóða
fyrir ferðasjóð sinn. Þar
sungu skólabörnin nokkur
lög undir stjórn Stefáns
Bjarman kennara, lítil stúlka
las þulu, talkór barna flutti
kvæðið „Rís þú unga íslands
merki,“ fluttur var af segul-
bandi þáttur úr skólanum,
Steingrímur Bernharðsson
flutti erindi um H. C. Ander-
sen og þrjú börn lásu upp úr
ævintýrum hans. Að lokum
sýndu börnin leikinn „Dreng
urinn með ráðagerðirnar.“
Skemmtunin var endurtekin
um kvcldið og var aðsókn
góð i bæði skiptin.PJ.
Garðaleiðkeiniiigar I.
Leiðbeiningar um vetr-
arúðun trjágróðurs
Þar sem vetrarúðun trjá-
gróðursins er hafin þykir mér
rétt að vekja athygli fólks á
því, að lyfið Oviside, sem not-
að er til eyðingar skordýra-
eggja, er tjöruolíublanda, er
getur stórskemmt eða jafnvel
drepið laufgaðan gróður. Það
má því ekki úða lyfinu á barr-
tré.
Blöndun lyfsins er: 1 lítri
Oviside í 15 lítra vatns.
Úða skal í þurru frostlausu
veðri. Ekki má úða með Ovi-
side eftir að brum taka að
þrútna og því síður er þau
fara að springa út.
Sumarúðun er eftir sem áð-
ur nauðsynleg, ef vart verður
við trjámaðk eða blaðlús.
Bifreiðaeigendur! Mjög erf
itt er að hreinsa bletti af
k '
lakki, ef lyfið úðast yfir bif-
reiðar. Látið því bíla ekki
standa náicégt görðum, sem
verið er að úða.
Húsmæður! Lokið gluggum
meðan úðun stendur yfir í
garðinum, þar sem hvimleitt
er að fá iyfið í gluggatjöld.
Garðyrkjumenn! Gætið var
úðar, ef fólk er á gangi fram-
hjá görðumv sem þið eruð að
úða.
Munið á<f sótthreinsa trjá-
klippur og sagir eftir að lok-
ið er klippingu á sjúku tré.
Nemið burtu trjágreinar, er
vaxa útyfir gangstéttir, ef þær
valda gáhgándi fólki óþæg-
indum.
GarSyrkj uráðunautur
Reykjavíkur.
x-h&biita*
y5ur:minna
Með því að nota Rinso fáið þér glæstast-
an árangur. Það er ekki aðeins ódýrara
en önnur þvottaefni, heldur þarf minna
af því og einnig er það skaðlaust hönd-
um yðar og fer vel með þvottinn, því að
hið freyðandi sápulöður hreinsar án þess
að nudd? burfi þvottinn til skemmda.
VERNDID HENDUR 06 ÞVOTT