Tíminn - 03.05.1955, Qupperneq 3
98. blað.
3,
TÍMINN, þriðjudaginn 3. maí 1955.
Dánarmiiining: Bjarni
Hann var fæddur 21. júlí
1884 að Prest'oakka á Síðu,
sonur hjónanna. Páls Jónsson
ar frá Segíbúðum í Landbroti,
og Þórunnar Bjarnadóttur frá
Steinsmýri í MeSallandi, sem
síðar bjuggu í Hrifunesi í
Skaftártungu, og ólst Bjarni
þar upp í foreldrahúsum.
Rúmlega tvítugur að aldri
fór hann í búnaðarskólann á
Hvanneyri og útskrifaðist það
an haustið 1909.
Var hann síðan á ýmsum;
stöðum á sinum heimaslóðum
næstu 10 árin.
Árið 1819 kvæntist hann eft
irlifandi konu sinni, Elínu Sig
urbergsdóttur, og hófu þau bú
skap sama vor, og bjuggu
lengst af á Leiðvslli í Meðal-
landi, en fiuttu baðan vorið
1933 út í Árnessýsiu, að Litla-
Saurbæ í Ölfusi,
Sú jörð var þá mjög illa far
in að húsum, og var hvort
tveggja, að Bjarni gat ekki
fengið hana keyþta og hitt, að
jarðeigandi vildi ekki taka
þátt í endurbyggingu hús-
anna, svo að hann fiuttist það
an að Eollastöðum í Hraun-
gerðishreppi. En þar festi
liann ekki vndi og fluttist aft
ur að Nethömrum i Ölfusi, og
bjó þar til 1941 að hann brá
búi og settist að í Hveragerði,
þar sem hann bjó til dauða-
dags.
Þau hjónin Bjarni og Elín
eignuðust tvö börn, son og dótt
ur.
í Hveragerði vann Bjarni að
ýmsum störfum, meðal annars
var hann ullarmatsmaður við
ullarþvottastöðina í Hvera-
gerði, þangað til hún hætti
störfum.
Bjarni Pálsson átti ekki
góðra kosta völ um jarðnæði,
eftir að hann fluttist út í Ár-
nessýslu, hann naut sín því
ekki sem bóndi, eins og hæfi-
leikar hans gáfu efni til. En
búskapur hans mun hafa bor
ið vitni um góða meðferð á
öllum fénaði og snyrti-
mennsku í umgengni, enda
góður bjargálnabóndi, þrátt
fyrir jarðnæðishrakninga
sína.
Pálsson, Hverageröi
Vegna starfshæfni sinnar
gegndi hann ýmsum trúnaðar
störfum, en hann var maður
hlédrægur, og hafði sig lítið
í frammi.
Fyrir rúmu ári síðan bar
fundum okkar saman, er hann
hóf starf í steypuverksmiðj-
unni hér í Hveragerði. Hann
var þá á sjötugasta aldursári,
en beinn í baki, hár og karl-
mannlegur, og hafði vinnu-
þrek eins og miðaldra maður,
verklaginn og vandvirkur í
starfi.
Bjarni Pálsson var vel
greindur maður, orðheppinn
og gamansamur ef því var að
skipta, sjálfstæður í skoðun-
um um menn og málefni.
Hann var vel að sér og bar
þess glögg merki, að honum
hafði enzt vel það veganesti,
er hann sótti sér í Hvanneyrar
skóla fyrir nær hálfri öld.
Um miðjan janúar s. 1.
kenndi hann lasleika, og fór
að læknisráði til Reykjavíkur
til ýtarlegrar rannsóknar, sem
leiddi i ljós, að eina, sem hægt
var að gera, var vonlítill upp
skurður.
Hann hafnaði þeirri tilraun,
hvarf heim aftur og tók með
karlmannlegri ró þeim örlaga
dómi, sem ekki var umflúinn,
og aldrei heyrðist æðruorð í
þungbærri sjúkdómslegu.
Hann naut umhyggjusam-
legrar hjúkrunar dóttur sinn
ar og eiginkonu, sem með óbif
anlegri trúfesti léttu honum
stríðið, þar til yfir lauk.
Hann lézt 22. apríl s. 1. og
verður jarðsunginn að Kot-
strönd í dag.
„Aldrei deyr, þótt allt um
brotni
endurminningin þess sem var“
T. Eyj.
Námskeið á vegum Norrænu
félaganna í sumar
í Danmörku. Norrænt verzl
unar- og bankamannanám-
skeið verður haldið í Dan-
mörku dagana 13.—21. maí n.
k. Námskeið þetta hefst í
Kaupmannahöfn, en þaðan
verður farið 15. maí til Hinds
gavlhallarinnar, sem er félags |
heimili Norræna félagsins
danska. Þar verður dvalið í
þrjá daga, en farið í kynnis-
ferðir um Fjón og Suður-Jót
land og svo loks í þriggja daga
ferð um Norður-Jótland. Nám
skeiðinu lýkur í Álaborg.
Beinn kostnaður verður 100
danskar krónur.
Norrænt æskulýðsmót verð
ur á Hindsgavl vikuna 3.—10.
júlí. Það er aðallega ætlað
fólki á aldrinum 17—25 ára.
Markmið mótsins er að gefa
ungu norrænu fólki tækifæri
til að kynnast og njóta sumars
ins í Danmörku. Farið verður
í kynnisferðir um nágranna-
byggðir Hindsgavlhallarinnar.
Kostnaðurinn mun verða 80
danskar krónur.
Námskeið, sem fjallar um
stjórn sveitamála á Norður-
löndum, verður á Hindsgavl
vikuna 17.—23. júlí. Undanfar
in sumur hafa slík námskeið
verið haldin til skiptis í nor-
rænum löndum til kynningar
og yfirlits um hvernig þessi
mál eru skipulögð og rekin í
hverju landi fyrir sig. Kostn-
aðurinn verður 135 danskar
krónur.
í Noregi. Norrænt myndlist
arnámskeið verður haldið í
Osló dagana 12.—16. júni.
Námskeið þetta er ætlað lista
mönnum á sviði myndlistar,
teiknikennurum og öðrum,
sem áhuga hafa á myndlist.
Allur kostnaður vegna náms-
skeiðsins, þar með fæði og hús
næði, verður 150 norskar kr.
Þátttakendur munu búa á
Studentbyens Sommarhotell í
Sogn Hagaeby.
Norrænt verzlunarmanna-
mót verður dagana 19.—25.
júní á Sjusjö Röyfjellshotell.
Hótel þetta er í fjallabyggð í
nánd við Lillehammer. Dvalar
kostnaður ásamt ferðunum til
og frá Osló verður um 200
norskar krónur.
Norrænt blaðamannanám-
skeið verður haldið í Noregi
dagana 22—31. ágúst. Það
hefst í Osló 22. ágúst og stend
ur þar fyrst í þrjá daga, en
síðan verður farið í þriggja
daga ferð til Bergen og loks
aftur til Oslóar. Þar lýkur nám
skeiðinu.
í Svíþjóð. Norrænt nám-
skeið um náttúruvernd og
verndun þjóðminja verður
haldið dagana 5.—11. júní á
Bohusgárden við Uddevalla á
vesturströnd Svíþjóðar, en það
er félagsheimili Norræna fé-
lagsins sænska. Þetta mun
vera fyrsta norræna námskeið
ið, sem haldið hefir verið um
þetta efni. Markmið þess er
að miðla þeirri reynslu, sem
fengin er á þessu sviði og at-
huga möguleika til samstarfs.
Kostnaðurinn verður 95 sænsk
ar krónur
Námskeið fyrir norrænt
æskufólk á aldrinum 16—25
ára verður dagana 26. júní til
3. júlí á Bohusgárden. Aðaltil-
gangur þessa námskeiðs er að
gefa ungu fólki frá öllum Norð
(Framh. á 6. síðu.)
Orlon-blússur
Dacron-blússur
Rayon-blússur
Bómullar-blússur
Fallcgir sumarlitir, allar stærðir.
Heildverzlun ÁRNA JÓNSSONAR h.f.
Aðalstrœti 7. Símar 5805, 5524 ou 5508.
Eigum mjöfj fallegt úrval af
Dömublússum
fyrir sumarið
NYLOlV-BLÚSSrR, marg’ar gerðir, mcð stuttum crmum, og
með víðum, löugum ermum.