Tíminn - 03.03.1956, Síða 6

Tíminn - 03.03.1956, Síða 6
6 T í MIN N, laugardaginn 3. marz 1956. 1$ .. . <? Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofiu: í Edduhúsi við Lindargötu. Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. Kanpfélög efla atvimmlíf I' BLAÐINU í GÆR var skýrt frá starfi ! .auyiélagsins í Stöðvarfirði við tð bjarga verðmœtum undan >jó. Fyrir nokkru var skýrt frá iamstarfi kaupfélagsins í Sauð- irkróki og fleiri aðila um efl- íngu fiskiðnaðar og atvinnu- lífs. Þar á undan frá marg- þættu starfi Kaupfélags Eyfirð- inga, er miðar að því að auka verðmæti framleiðslunnar og efla hagsæld almennings^ Þetta eru aðeins örfá dæmi. Á und- anförnum árum hafa slíkar fregnir verið algengt lesefni í blöðum. Ef þær væru dregnar sarnan í stutt yfirlit mundi koma í Ijós, að kaupfélögin um land allt hafa að undanförnu verið athafnasamasti þátttak- andinn í því starfi, að efla at- vinnulíf landsbyggðarinnar. ÞESSI ÞRÓUN er einkar at- hygiisverð fyrir þá, sem í raun og sannleika bera aukið jafn- vægi í byggð landsins fyrir brjósti. Á sama tírna, sem fjár- magn flytzt burt úr héruðun- um með fólki, sem brott hverf- ur, eru kaupfélögin að spyrna :í móti með framkvæmdum, sem miða að aukinni framleiðslu og bættri þjónustu. Og þótt þessi starfsemi sé oft á tiðum studd af almannavaldi og bönk- um, er undirstaða hennar eigi að síður það fjármagn, sem fólkið heima fyrir skapar og fel ur kaupfélögunum til ávöxtun- ar. Á SÍÐUSTU áratugum hefir orðið sú meginbreyting í mörg- um héruðum, með auknu starfi kaupfélaganna, að það fjár- magn, 'sem vinna fólksins og framleiðsla skapar, er nú kyrrt heima, og gengur til þess að efla hagsæld og menningu byggðarlagsins. Fyrr á árum var þetta fjármagn flóttafé, sem oft fylgdi hverflyndum einstaklingum, og staðnæmdist ekki þar sem þess var mest þörf. Á þessum vettvangi hafa kaupfélögin unnið stórvirki fyr- ir landsbyggðina og þjóðfélag- :ið í heild. ÞAÐ ER LÍKA minnisverð staðrevnd, að ýmsar fram- kvæmdir kaupfélaganna í at- vinnumálum eru gerðar fyrst og fremst vegna þess að þörf- in var rík heirna fyrir og yfir- skyggði vandkvæðin, sem eru samfara fjárfestingu í frysti- húsum, fiskvinnslustöðvum og ýmsum framkvæmdum, sem eru tengdar landbúnaði eða iðnaði heima fyrir. Félögin hafa oftlega hætt á tæpt vað til þess að hrinda framkvæmda málum áleiðis. Það er ljóst, að verulega hefir á skort, að þessi starfsemi fengi allan þann al- menna íjárhagslega stuðning, einkum í sambandi við lánsfé, sem hún verðskuldar. En mið- að við þær aðstæður, sem ríkt hafa, hefir framlag kaupfélag- anna verið stórmyndarlegt, og hefir enn einu sinni sannað gildi samvinnustarfsins fyrir þjóðarbúskapinn í heild. ÞVÍ ER STUNDUM haldið fram í blöðum Sjálfstæðis- flokksins, að réttlætanlegt sé að skattleggja sérstaklega þann árangur, sem verður af því að menn taka höndum saman um verzlun og framleiðslu í sam- vinnufélögum. Með slíkri skatt heimtu væri í rauninni kippt fótum undan félagsfrelsi lands- manna. Og um leið brotin nið- ur sá stíflugarður, sem nú varn ar því helzt, að allt fjármagn þjóðarinnar safnist saman á einum stað. Jafnvægi í byggð landsins er orðtak margra stjórnmálamanna í dag. Það hljómar nokkuð vel, en athafn- ir eru orðum betri á þeim vett- vangi. Efling samvinnufélags- skapar, og aukinn stuðningur við þau framkvæmdamál, sem kaupfélögin um land allt hafa á oddinum, er raunhæfur stuðn- ingur við nýja jafnvægispóli- tík í atvinnu- og efnahagsmál- um. Blekkingaskrif í sambandi við skattamál samvinnufélaga er hættuleg niðurrifsstarfsemi, og í algeru ósamræmi við yf- irlýsingar um almenna framför. Marxismi og Moskvutrú Nehru hinn ind- verski hefir oft deilt harðlega á indverska kommúnista að undanförnu. Hann hefir Iýst flokki þeirra sem hreinum íhaldsflokki, þar sem hann haldi dauðahaldi í senningar, sem séu orðnar úreltar fyrir löngu. Jafnhliða 3ví færu þeir svo mikið eftir ýmsum erlendum fyrirmynd- am, að þeir gleymdu alveg að iaka tillit til staðhátta og að- stöðu heima fyrir. ÞAÐ, SEM NEHRU segir um ndverska kommúnistaflokkinn, gildir vissulega ekki síður um aðra kommúnistaflokka vestan jalds. Þeir hampa kenning- am, sem eru miðaðar við þjóð- 'élagshætti á fyrrihluta 19. ald- ar og eru því orðnar úreltar 'yrir löngu. Jafnframt miða þeir svo flesta hluti við þróun- na í Rússlandi, þótt ástand ojóðfélagsmála hafi verið þar ::rá öndverðu allt annað en í Vestur-Evrópu og öll slík við- miðun sé því meira og minna út í bláinn. ÞETTA GERIR ekki mikið til, þar sem kommúnistaflokkarnir eru litlir og hafa því lítil áhrif á gang þjóðmálanna. Öðru máli skiptir þetta hins vegar þar sem þeir eru svo stórir, að þeir geta haft meiri og minni áhrif á þróunina. Þar eru þeir eins og tröll, sem hafa dagað uppi og standa í vegi nauðsyn- legra framfara. Þannig er þessu farið með íslenzku kommúnistana. Þeir halda enn dauðahaldi í marx- ismann. Þeir vilja fylgja for- dæmi Rússa í einu og öllu. Þess vegna skortir þá allt sjálfstætt viðhorf til íslenzkra mála. Þess vegna hefir það orðið hlut- skipti þeirra að hindra það um nær 20 ára skeið, að hægt væri að mynda hér ríkisstjórn, án þátttöku íhaldsins. Þess vegna hafa þeir skapað milliliðum ó- eðlileg völd og auð. VAFALAUST hefir þetta ekki verið tilgangur margra forustu manna kommúnista. Þeir hafa haft annað og betra í huga. En marxisminn og Moskvutrúin hefir villt þeim sýn. Þess vegna hefir starfsemi þeirra leitt til þessarar ömurlegu niðurstöðu. Þetta gildir þó áreiðanlega enn frekar um hina óbreyttu liðsmenn kommúnista en for- ingjana. Þeir hafa fylgt komm- unistum í þeirri trú, að með því væru þeir að styðja vinstri ERLENT YFIRLIT: Vafasöm ákvörðun Eisenhowers Ný vi<$horf í aljijóíamálum munu leggja aukna vinnu og ábyrg^ á heriSar íor- seta Bandaríkjanna á komandi árum SÍÐASTLIÐINN miðvikudag hélt1 Eisenhower forseti blaðamanna- fund, sem var fjölsóttari en nokk ur annar slíkur fundur, er hann hefir haldið. Ástæðan var sú, að forsetinn hafði látið það vitnast fyrir fundinn, að hann myndi birta á honum ákvörðun sína um það, hvort hann gæfi kost á sér sem frambjóðandi republikana við for- setakosningarnar í haust. Þessarar ákvörðunar Eisenhow- ers hefir verið beðið með mik- illi eftirvæntingu. Þangað til Eis- enhower veiktist á síðastliðnu hausti, var það talið fullvíst, að ! hann myndi verða í framboði í haust og myndi að líkindum sigra i enn glæsilegar en 1952. Eftir að j hann veiktist þótti það hins veg- j ar jafnvíst um alllangt skeið, að j hann myndi draga sig í hlé að nú-! verandi kjörtímabili loknu. Það þótti þó víst, að flokksbræður hans myndu leggja fast að honum, þar sem flest benti til, að þeir myndu tapa í kosningunum, að honum frá gengnum. Eftir að heilsa hans tók að baína aftur, hefir þessi áróður að sjálfsögðu færst í aukana. Um miðjan seinasta mánuð, felldu læknar Eisenhovers þann úrskurð, að hann hefði náð svo góðri heilsu aftur, að ekkert ætti að vera því til hindrunar, að hann gegndi for- setaembætti áfram um 10 ára skeið. Eftir þennan úrskurð, hafa DE WE Y flokksbræður Eisenhowers vaía- laust lagt enn fastar að honum en áður um að gefa kost á sér til framboðs. Yfirlýsingin, sem Eisenhower birti á blaðamannafundinum, var á þá leið, að hann myndi gefa kost á sér til framboðs að nýju. Niðurstaðan hefir því orðið sú, að hann hefir látið undan áróðri flokksbræðra sinna. Kunnugir telja það fullvíst, að persónulega hafi Eisenhower helst kosið að draga sig í hlé. Hið sama gildi um fjöl- skyldu hans. EF BANDARÍKJAmenn hefðu treyst því, að heilsa Eisenhowers væri í góðu lagi, myndi mikill meirihluti þeirra vafalaust hafa fagnað þessari ákvörðun hans. Eisenhover er nú óumdeilanlega sá stjórnmálamaður, sem nýtur í leyti má því segja um utanríkis- stefnu Bandaríkjanna seinustu mánuðina að hún hafi „frosið inni“ eða „dagað uppi“, eins og það er nú orðað meira og meira í ýmsum amerískum blöðum. Sú stefna, sem Bandaríkin fylgja, var heppileg eins og tímarnir voru áð- ur, en samrýmist ekki lengur breyttum viðhorfum, nema að tak- mörkuðu leyti. j Hið nýja viðhorf í alþjöðamál- um, gerir það óhjákvæmilegt að j utanríkisstefna Bandaríkjanna sé j samrýmd henni. Eins og st.jórn- skipun Bandaríkjanna er, hlýtur þetta fyrst og fremst að verða verk forsetans. Er maður með tví- sýna heilsu fær um að vinna þetta verk og taka á sig alla þá áreynslu er því fylgir? Þannig ar að sjálf- sögðu spurt og svörin eru yfirleitt ekki hagstæð Eisenhower. UNDIR ÞESSUM kringum- stæðum mun það skipta mjög miklu máíi hver verður varafor- setaefni republikana. Hingað til hefir verið talið, að Eisenhower væri því fylgjandi, að Nixon héldi stöðu sinni áfram. Hann hefir reynst Eisenhower vel og er ótví- rætt vaxandi maður. Hann á hins- vegar umdeilda fortíð og hefir enn ekki sýnt það nægilega, að hann sé forsetastarfinu vaxinn. Gagn- rýni demókrata hefir líka mjög beinzt gegn honum að undanförnu. Flest bendir því til, að eins og málin liggja nú fyrir, verði ó- heppilegt fyrir republikana að tefla Nixon fram sem varaforseta- efni. Sterkasta varaforsetaefni republikana er sennilega Thom- as Dewey, sem tvívegis hefir verið forsetaefni þeirra. Þá kemur og Harold Stassen einnig til greina. Báðir þessir menn gætu reynst vel en hvorugur þeirra nýtur þó álits og trausts út á við til jafns við Adlai Stevenson. Út á við væri það tvímælalaust bezt fyrir Banda ríkin að Stevenson yrði forseti þeirra, að Eisenhower frágengnum og er þá átt við að hann hefði fulla heilsu. . } YFIRLEITT ER það álitið, að Eisenhower hafi gert það fyrir þrábeiðni flokksbræðra sinna að gefa kost á sér aftur. Þeir hafi haldið því fram við hann, að hann gæti ekki dregið sig til baka með þeim afleiðingum, að flokkurinn ætti ósigur vísan framundan. Þá munu þeir og hafa alið á því, að það væri skylda Eisenhowers við þjóðina vegna þess trausts, sem hún hefði sýnt honum, að veita henni þjónustu sína eins lengi og hann gæti og hún óskaði þess. Góður hermaður spyrði ekki um lifshættuna, heldur hvaða gagn hann gæti gert. Það er talið nokkurn veginn víst, að mikill klofningur hefði risið í flokki republíkana, ef Eisenhower hefði dregið sig til baka. Frjáls- lyndu mennirnir, sem réðu vali (Framhald á 8. síðu.) EISENHOWER mests trausts þjóðar sinnar. Þetta byggist m. a. á því, að honum er sérstaklega treyst til farsællar xor ustu út á við. Meðal annarra þjóða hefir Eisenhower unnið sér þá til- trú, að hann vilji stuðla að friði og bættri sambúð þjóða í heim- inum. Hann hefir ekki aðeins unn ið sér þessa tiltrú lýðræðisþjóð- anna, heldur einnig hinna óháðu þjóða, t. d. Indverja. Víst er það líka, að forustumenn kommúnista taka meira tillit til hans en nokk- urs vestræns stjórnmálamanns ann ars. Þ2-átt fyrir þetta, hefir framboðs yfirlýsingu Eisenhowers verið mis- jafnlega tekið bæði í Bandaríkj- unum og í löndum bandamanna þeirra. Ástæðan er sú, að menn treysta ekki á heilsu hans, þrátt fyrir úrskurð læknanna. Menn ótt ast í fyrsta lagi, að hann geti ekki gegnt embættinu með fullum starfsþrótti, þótt hann sitji í því, og í öðru lagi er óttast, að honum muni ekki endast heilsa eða aldur til að gegna því út næsta kjörtíma bil. Þess vegna geti fylgt því mikil óvissa og áhættusöm, ef hann verð ur forseti áfram. VISSULEGA hefir þessi ótti við reynslu að styðjast. Það álit styrkist nú óðum, að Eisenhower hafi verið óheppinn með valið á utani'íkisráðherra sínuin. Dulles liefir gert hverja skyssuna á fæt- ur annari. Þetta lcom minna að sök meðan Eisenhower var heill heilsu, því að hann gat þá bætt úr axarsköftum Dulles í tæka tið. Þetta hefir hins vegar stórum versnað eftir að heilsan hefir neytt Eisenhower til að slá slöku við. Á sama tíma hefir það svo gerst, að Rússar hafa breytt um starfsað- ferðir í alþjóðamálum með góðum árangri, án þess að nokkur tilsvar andi breyting hafi orðið á starfs- aðferðum Bandaríkjanna. Að vissu stefnu og umbætur. Reynslan ætti nú vissulega að vera farin að sýna þessu fólki, hvílík hjá- trú það hefir verið. EF KOMMÚNISTAR vilja ekki halda áfram að daga uppi og verða öllum öðrum til óþurftar en íhaldinu, eiga þeir að losa sig undan oki marxismans og Moskvutrúarinnar, eins og Nehru ráðleggur flokksbræör- um þeirra austur þar. Vilji for- kólfar kommúnista hins vegar ekki hlýta þessu ráði, eiga þeir kjósendur, sem hafa fylgt þeim, að gera það. Við það myndi margt breytast til batnaðar í ís- lenzkum stjórnmálum. NIXON KNOWLAND

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.