Tíminn - 03.03.1956, Blaðsíða 8
8
í siendingajpætúr
S jötug:
Guðlaug Hjörleifsdóttir
1
Guðlaug er fædd að Undirfelli I
í Vatnsdal 3. marz 1886. Voru for-1
eldrar hennar séra Hjörleifur Ein- i
arsson prófastur á Undirfelli og'
seinni kona hans Björg Einars- J
dóttir. Fæddust þeim hjónum 5 j
börn, en aðeins 2 komust til full- i
orðinsára, Guðlaug og séra Tryggvi ]
Kvaran á Mælifelli. Með fyrri konu |
sinni átti séra Hjörleifur syni,
meðal þeirra var hinn þjóðkunni
rithöfundur og mannvinur Einar
Kvaran.
í glöðum hópi æskufólks á mann
mörgu heimili, þar sem fjöldi
ungra manna sótti fræðslu og
menntun, ólst Guðlaug upp. Guð-
rún Björnsdóttir frá Kornsá segir
í bókinni „íslenzkar kvenhetjur“
um Guðlaugu: „Okkur kemur sam
an um það, æskuvinkonu minni,
Guðlaugu Hjörleifsdóttur prófasts
á Undirfelli, að enginn unglingur
nú á tímum muni eiga eins
skemmtilega æsku og við áttum.
Teljum við hægt að færa að því
nokkur rök. Dalurinn er fagur og
frjósamur og veðurblíða þar meiri
en í flestum nærsveitum. Þar var
þéttbýli og heimilin mannmörg og
félagslíf óvenju mikið, enda var
fólkið vel mannað. Þar var líka
um alllangt skeið, að mörgu leyti
menningarmiðstöð sýslunnar. Og
um Guðlaugu segir hún: Ég held
Guðlaugu hafi verið skáldeðlið í
blóð borið. Hana dreymdi fagra
drauma um ferðir til fjarlægra
landa, um ást og unað og ævin-
týraprins. Henni lágu orðin létt
á tungu, og var leikur einn að
bregða upp litríkum myndum.
Þegar Guðlaug var um þrítugt,
varð séra Hjörleifur fyrir því slysi,
að lærbrotna, þá nær hálfáttræður.
Var það ákaflega illt beinbrot. Lá
hann heilt ár rúmfastur, oft með
miklum þrautum. Upp frá því varð
hann að staulast við staf og hækju.
Árið 1907 flutti séra Hjörleifur
með fjölskyldu sína til Reykja-
víkur. Keypti hann hér liús, mátti
heita að allar eignir hans gengju
í þau húsakaup. Hér lifði hann í
þrjú ár. Þegar fjölskyldan flutti
suður, fór Guðlaug til Noregs til
mennta. Dvaldi hún þar um tíma,
og heldur hún enn vináttu við
konu þá, sem hún var hjá. Þegar
lieirn kom, fékkst Guðlaug við
sauma og kennslu. Unnu þær
mæðgur mikið, enda var séra
Tryggvi í skóla, og honum vildu
þær báðar hjálpa sem þær máttu.
Það segir sig sjálft, að mikil
viðbrigði hafa það verið fyrir fjöl-
skyldu séra Hjörleifs að búa við
þröngan kost hér í Reykjavík, eftir
allsnægtir á mannmörgu prests-
setrinu á Undirfelli. En með æðru
leysi tóku þau umskiptunum.
í Vatnsdal hafði Einar Kvaran
bróðir Guðlaugar stofnað stúku.
Fundir voru haldnir á Undirfelli.
enda voru þau séra Hjörleifur og
kona hans óþreytandi að vinna
fyrir bindindismálið. í því starfi
tók Guðlaug snemma þátt. Átroðn-
ingur hefir það verið á heimilinu,
en það var ekki eftir talið. Að
vinna fyrir gott málefni þjóðinni
til heilla voru þau einu laun, sem
goldin voru og með þau var þetta
fólk ánægt.
Þegar Guðlaug kom til Reykja-
víkur, gekk hún í stúkuna Ein-
ingu, og þegar stúkan Mínerva
var stofnuð, var hún ein af stofn-
endunum. í hópi templara segist
hún hafa kynnzt *mörgu ágætu
fólki, körlum og konum, sem sér
þyki alltaf vænt um. Þótt Guðlaug
sé ekki í stúku, er hún einlæg
bindindiskona.
Annað áhugamál Guðlaugar eru
trúmál. Hún er einlæg trúkona,
víðsýn og frjálslynd og sannleiks-
leitandi. Kirkjan er henni helgur
staður og þangað sækir hún svöl-
un trú sinni.
Ung að árum komst Guðlaug í
kynni við sálarrannsóknir. Einar
Kvaran bróðir hennar og séra Har-
aldur Níelsson voru forgöngumenn
um þær hér, eins og kunnugt er.
Telur Guðlaug það mikið lán, að
hafa átt kost á að kynnast séra
Haraldi og þeim boðskap, sem
hann flutti þjóð sinni.
Árið 1921 giftist Guðlaug Sig-
urði Kristinssyni, sem þa var kaup
félagsstjóri á Akureyri. Hafði
hann tekið við því starfi af Hall-
grími bróður sínum, þegar hann
tók við framkvæmdastjórastarfi
hjá Sambandi íslenzkra samvinnu-
félaga. Þegar Hallgrímur féll frá
á bezta aldri, var það að ráði hjá
ráðamönnum S. í. S. að fá Sig-
urð til að taka við starfi hins
ástsæla foringja síns. Fluttu þau
hjónin þá hingað til Reykjavíkur
og var Sigurður framkvæmdastjóri
Sambandsins þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir, en enn
er hann formaður sambandsstjórn-
ar.
Þau Guðlaug og Sigurður eign-
uðust 4 börn. Tveir drengir eru
á lífi, Hjörleifur listmálari og
Hallgrímur lögfræðingur, auk þess
ólu þau upp stúlku, Valgerði að
nafni, og gengu henni í foreldra
stað. Hjónaband Guðlaugar og Sig
urðar hefir verið mjög hamingju-
samt, enda telur hún það sitt
mesta lán í lífinu að hafa kynnzt
svo góðum manni sem Sigurður er.
Þegar Eyjólfur móðurbróðir
Guðlaugar dó frá þrem litlum
drengjum á aldrinum 14 til 6 ára,
sóttu þau séra Hjörleifur og Björg
alla drengina og ólu þá upp. Einn
þeirra er Þormóður Eyjólfsson á
Siglufirði. Þau vildu ekki aðskilja
munaðarleysingjana, og bættu
þeim við, þótt margt væri fyrir
á heimilinu. Þetta sýnir kannske
betur en nokkuð annað hjarta-
gæzku og stórhug þeirra hjóna.
En ég minnist á þetta, því mér
finnst Guðlaug hafa fengið þenn-
an góða arf frá foreldrunum. Hlý
og yfirlætislaus réttir hún hjálp-
arhönd alls staðar, þar sem hún
getur og finnst þörf. Hún þolir
ekki að neinum sé rangt gert, og
vill rétta hlut þeirra, sem undir
verða i lífinu.
Ég minnist umhyggju hennar
fyrir einstæðingsstúlku, sem hún
þekkti og henni fannst verða hart
úti, og hvé glöð hún varð, þegar
búið var að gera það sem hægt
var fyrir stúlkuna. Átti Guðlaug
sinn þátt í því.
Ég kynntist Gúðlaugu ekki fyrr
en á fullorðinsárunum í kvenfé-
laginu okkar. Finnst mér ég miklu
ríkari fyrir. Hún hefir setið í
stjórn hjá okkur og verið formað-
ur bazarnefndar frá stofnun fé-
lagsins, þar til í haust, að hún
baðst undan kosningu. Hefir hún
unnið ötullega fyrir félagið og á
það henni mikið að þakka. Veit
ég að ég mæli fyrir munn allra
kvennanna í félagi Framsóknar-
kvenna, þegar ég óska henni til
hamingju á þessum merkisdegi og
þakka henni fyrir öll hennar störf
í þágu félagsins.
Guðlaug ber aldurinn vel, svo ó-
trúlegt er, að hún hafi svo mörg
ár að baki. Það er ósk mín, að
Elli kerling verði jafn mjúkhent
á henni áfram, og að hún megi
búa við góða heilsu mörg ár enn
og njóti þess yls og birtu, sem
hún sjálf hefir fært öðrum, þeg-
ar aldurinn færist yfir.
Guðlaug Narfadóttir.
Erlent yfirlit
(Framhald af 6. siðu.)
Eisenhowers á sínum tíma, hefðu
reynt að fá forsetaefni úr sínum
hópi, og hægri mennirnir hið gagn
stæða. Framhjá þessum átökum
hefir verið komist með framboði
Eisenhowers, en með því er hins
vegar ekki útilokað, að deila verði
um varaforsetaefnið. Sennilega
reyna hægri menn að koma Know
land í það sæti, en takist það ekki
munu þeir sennilega styðja Nix-
on. Dewey verður hins vegar vara
forsetaefni hinna frjálslyndu, en
að honum frágengnum hefir verið
talað um Herster ríkisstjóra í
Boston, en hann nýtur mikils á-
lits og hefir sem þingmaður aflað
sér mikillar þekkingar um utan-
ríkismál. Ef Eisenhower vill getur
hann afstýrt þessum deilum með
því að segja það ákveðið, hvaða
varaforsetaefni hann óskar eftir.
FRAMBOÐ Eisenhowers er
líklegt til að draga úr átökum um
það hjá republikönum, hver verði
forsetaeíni þeirra. Áður benti flest
til þess, að þeir væru vissir um
sigur, og jók það eðlilega keppn-
ina um útnefninguna. Nú eru sig-
urvonir orönar litlar, þótt vafa-
laust dragi það eitthvert fylgi frá
Eisenhower, að menn treysti ekki
heilsu hans og finnist því, að með
því að kjósa hann, séu þeir að
kjósa einhvern annan.
Eftir þetta má því telja líklegt,
að demókratar sameinist enn bet-
ur um Stevenson en áður, þar sem
hann er vafalaust sigurvænlegast-
ur í keppninni við Eisenhower.
Hann er líklegastur af forustu-
mönnum demókrata til að ná fylgi
þeirra óháðu kjósenda, er kusu
Eisenhower í seinustu kosningum.
Talsvert hefir verið rætt um
það, hvernig demokratar muni
haga áróðri sínum, eftir að kunn-
ugt er um framboð Eisenhowers.
Hingað til hafa þeir deilt lítið á
hann persónulega. Sennilegt er, að
þeir haldi því áfram, en beini á-
róðri sínum þeim mun meira gegn
samstarfsmönnum hans og vara-
TÍMINN, laugardaginn 3. marz 1956.
forsetaefni republikana. Þeir munu
vafalaust leggja á það mikla á-
herzlu, að óheppilegt sé, að van-
heill ma*ður gegni forsetaembætti
á því samkeppnistímabili milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna,
sem nú virðast framundan.
EINS OG horfum og spádóm
um er nú háttað, virðist Eisenhow
er viss um sigur, þrátt fyrir van-
heilsuna. En margt getur breyzt
þangað til í haust. Ef því heldur
áfram, að Bandaríkin mæti ekki
stjórnmálasókn Sovétríkjanna með
breyttum vinnuaðferðum og Rúss
um tekur því að veita betur í
kalda stríðinu, mun það vafalaust
geta haft mikil áhrif á úrslit kosn-
inganna. Frá sjónarhól þeirra, sem
álengdar eru, myndi það að öllum
líkindum reynast heppilegra fyrir
Bandaríkin og lýðræðisþjóðirnar
í heild, ef demókratar ynnu í
næstu kosningum, því að þeir eru
yfirleitt viðsýnni og frjálslyndari
í utanríkismálum en republikanar.
Endanlega verður þó ekki hægt að
dæma um þetta fyrr en séð er,
hvert varaforsetaefni republíkana
verður, því að valið á því mun
gefa mikla vísbendingu um það,
hver utanríkisstefna republíkana
verður. Ef það verða menn eins
og Dewey, Stassen og Herter,
skiptir það sennilega ekki miklu
fyrir utanríkisstefnu Bandaríkj-
anna hvor flokkurinn sigrar. Þessir
menn hafa svipuð viðhorf til al-
þjóðamála og forustumenn demó-
krata. Öðru máli gegnir um Know
land og nokkur óvissa ríkir um
afstöðu Nixons. Þ. Þ.
Grænlandsjökull j
(Framhald af 4. síðu.)
brotizt frá einni bækistöðinni til
annarrar unz áfangastaðnum var
að lokum náð. Árið 1951 kom
slæmt slys fyrir. SJeði rheð tveim
mönnum hvarf í jökulsprungu og
biðu báðir bana.
Nú dvelst þessi ötuli vísinda-
maður í Osló. Hann kom fyrir
nokkrum dögum til Parísar með
flugvél beint frá suðurpólnum,
þar sem liann stjórnaði leiðangri
Frakka þar um slóðir. Þeir eru
sannarlega ekki margir, sem búa
til skiptis á norður- og suðurpóln-
um, en það liefir þessi duglegl
franski vísindamaður gert og
með góðum árangri.
'iiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiirnn
miðstöðvarkatlar
fyrir sjálfvirk kynditæki 1
og sjálftrekks brennara með 1
| eða án hitavatnsspírals. f
[ Einnig fyrirliggjandi spírals- |
hitavatnsgeymar.
5
VÉLVIRKJUN,
Sigtúni 57 sími 3606. |
5
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiMiiimiimuMMMMMiimiBfl
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
Sigríðar Ólafsdóttur,
Skíðbakka, Landeyium.
Árni Erlendsson, Erlendur Árnason,
Guðbjörg Jónasdóttir.
Cal. 22/5.5 x 36 R No/.Lengd 1050 mm, þyngd 2.8 kg. Skot-
lengd 1000—1200 m., þrílaufasigti, breytanlegt sigti. Mauser
skipti, öryggisloka bæöi á gikknum og pinnanum. Fimm
skota magasin, valhnotuskepti.
KOVO
Praha, Czechoslovakia,