Tíminn - 26.07.1956, Síða 1
ifjlgist me<5 tímanam og lesiB
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjel-
breyttast almennt lesefni.
fO. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 26. júlí 1956.
í blaðinu í dag: 'r^1
Hallur Símonarson skrifar frá ' i
Rotterdam á bls. 5.
Umræður um hervarnarmál í I
Danmörk, bls. 4.
Norðmenn herða á fiskmatinu,
bls. 5.
Leiðari fjallar um yfirlýsingu
st j órnarf lokkanna.
168. blað.
Heimsókn Rússanna efni í pólitískt simskeyti
Rússneski knattspyrnuflokkurinn er á leið til Kanada og kemur
hér við í leiðinni. Mun það allt hafa verið ákveðið löngu fyrir
stjórnarskiptin. En íhaldsmenn á íslandi síma nú út um lönd,
að hér sé allt „yfirfullt“ af gestum að austan og gefa erlendum
blöðum tilefni til að fullyrða að það sé „afleiðing“ stjórnar-
myndunarinnar. Myndin sýnir Rússana og úrval Reykjavíkur-
félaganna ganga til leiks.
Vítaverður fréttaflutningur íhaldsblaða til útlanda:
Segja landið „yfirfulit” af gestum
að austan, vegna stjórnarskiptanna
Nota löngu ákveðna heimsókn tékk-
nesks ráSherra og pólsks píanóleik-
ara og rássnesks knattspyrnuliðs til
a§ reyna að villa vestrænum þjóðum
sýn á merkingu stjórnarsamstarfsins
í vor birtust greinar í mörgum blöðum í ýmsum löndum
byggðar á þeim upplýsingum, að hér hefðu orðið stjórnarslit
út af varnarmálunum og kommúnistísk og andamerísk öfl
hefðu ráðið úrslitum. Upplýsingarnar, sem blöðin byggðu á,
voru héðan að heiman, frá íslenzkum aðilum, sem gegna
fréttaritarastarfi fyrir stórar erlendar fréttastofnanir. Upp-
tökin voru á skrifstofum Morgunblaðsins og Vísis.
Aðalfundur útgeríarfélagsins Meitils:
Sex bátar gerSir út frá Þorlákshöfn
árið 1955
Fjórar milljónir króna greiddar í vinnulaun
Aðalfundur útgerðarfélagsins Meitils í Þorlákshöfn var
haldinn 19. þ. m. Á vertíðinni 1955 voru gerðir út sex bátar
frá Þorlákshöfn og var afli þeirra frá 550 og upp í 875 lestir
af fiski upp úr sjó, eða samtals um 4400 lestir. Greidd vinnu-
laun á árinu námu 4 milljónum króna.
Rekstur félagsins gekk fremur; s. 1. ári gerðist SÍS hluthafi í fé-
erfiðlega á árinu, einkum vegna ■ laginu. Af hálfu SÍS mættu á fund-
skemmda á skreiðarframleiðslu af inum Erlendur Einarsson, forstjóri
völdum votviðranna um vorið. A
Svíi særður
í Palesínu
Jerúsalem, 15. júlí. — Phal-
in liðþjálfi í sænska hernum, sem
er einn af starfsmönnum í eftir-
litsnefnd S. þ. í Palestínu, særð
ist hættulega í dag, ásamt nokkr
um öðrum mönnum, er þeir voru
á eftirliðsferð inn yfir landamæri
Jórdaníu. Urðu þeir fyrir skot-
hríð frá hermönnum Jórdaníu. —
Atburður þessi átti sér stað um
8 km norðaustan við Jerúsalem.
íbúðarhús breunur
á Eyrarbakka
Síðastliðna mánudagsnótt brann
íbúðarhúsið Sölkuholt á Eyra-r
bakka til kaldra kola. Ilúsið var
steinhús en allt brann innan úr
því. Húsbóndinn var einn lieima,
og vaknaði hann er húsið var orð-
ið fullt af reyk. Slökkvilið Stokks-
eyrar og Eyrarbakka kom á vett-
vang, en gat ekki bjargað húsinu.
Húsið og innbú var vátryggt. Elds
upptökin eru ókunn.
Flotiim í landvari
Engin veiði var í gær vegna
brælu á miðunum. Skipin lágu í
höfn, eða í landvari. f fyrrakvöld
sá síldveiðibáturinn Fákur mikla
síld út af Sléttu. Óð þar torfa við
torfu, en ekki hægt að athafna
sig vegna veðurs.
og Helgi Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri útflutningsdeildar.
Góð skilyrði.
Skilyrði til útgerðar eru að
ýmsu leyti mjög góð í Þorlákshöfn,
en það hefir háð undanfarin ár,
að ekkert hraðfrystihús er til á
staðnum til að vinna úr aflanum.
Á aðalfitndinum var samþykkt að
koma upp fullkomnu hraðfrysti-
húsi í Þorlákshöfn hið fyrsta.
Stjórn Meitilsins skipa: Egill
Thorarensen, kaupfélagsstjóri, Sel
fossi, formaður, Erlendur Einars-
son, forstjóri SÍS, Reykjavík, Helgi
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri,
Reykjavík, Ágúst Þorvaldsson,
alþm., Brúnastöðum, og Ásgeir
Eyvindsson, kaupm., Stokkseyri.
Framkvæmdastjóri er Benedikt
Thorarensen, Þorlákshöfn.
HoMand 111 stig
ísland 103, frásögn
á bls. 5
Landskeppni Hollendinga og
íslendinga í frjálsum íþróttum,
sem fram fór í grennd við Rott-
erdam nú í vikunni, lauk með
sigri Hollands: 111 stig, ísland
103. Á bls. 5 ritar Hallur Sím-
onarson um keppnina, en hann
var þar áhorfandi að keppninni.
Stórrigning á Austur-
landi í gær
Egilsstöðum í gær.
Hér hefir verið sólskin og þurrka
tíð að undanförnu, en nú er komin
norðaustan rigning. Bændur eru
búnir að ná inn eða í sæti megin-
hluta af töðu sinni og er hún með
ágætri verkun. Spretta er orðin á-
gæt.
Ilér hefir verið mikið um ferða-
fólk og það hefir notið sólskins-
ins í ríkum mæli, en nú er margt
að tygja sig brott, þar sem skipt
hefir um veður.
Ekki var flogið hingað í dag, en
annars er allt af flogið hingað dag
lega og stundum tvær ferðir á dag,
þar sem farþegar hingað og héðan
eru margir. ES.
Með þessu athæfi, að síma póli-
tískt litaðar fréttir og blekkingar
til útlanda — til þess að geta
notað erlendar fyrirsagnir úr blöð
um í áróðursskyni hér heima —
var málstað íslands unnið hið
mesta ógagn. Rangar fregnir, sem
stórar fréttastofur láta hundruð-
um blaða og útvarpsstöðva í té,
er ógerlegt að leiðrétta svo að
gagni komi. Það var álit sumra
hinna beztu erlendu ffðttaTiTahná,
sem hingað komu og kynntu séP
málin' af eigin reynd, að þessi
vinnubrögð hefðu þegar gert mik-
ið tjón og villt mönnum sýn á því,
sem hér var raunverulega að ger-
ast.
W5T
REYKJAVIK
Islatids ho\ædstad vil
bogstftvelig talt Va?re <3
af gæster Jjca jr ------
.-.1 Reykjavik 1
11 . polak kultr
dislav Kedran.
tereiReykj-
,1 nttit- -
Krajcia og fe
bedsmænid
De iedsages af"eh!|
og en íiimíotograJ. ’
Dertil kommer, at |
>Lokomotif, fra M
leder et gæstespil- i
ier en uge. 1 fy*-*
— „Og afleiðingarnar", segir Dagens
Nyheder í undirfyrirsögn og byggir
á fréttaskeyti frá Reykjavík. Landið
er „yfirfullt" af austanvérum. Sýnis-
horn af fréttamennsku íhaldsmanna
um þessar mundir.
Dönsk blöS ræSa um, aS Danir veiii fslendingum hjálp
viS gæzlu herstöðvar á Keflavíkurflugvelli
Einkaskeyti til Tímans
frá Kaupmannaliöfn
Dönsk blöð ræða nú töluvert
þessa dagana í forystugreinum
um ýmis vandamál varðandi
Keflavíkurflugvöll. f dag segir í
forustugrein Infonnation á for-
síðu rneðal annars, að Danmörk
liafi öll skilyrði til þess að veita
íslandi aðstoð á margvíslegan
hátt til þess að halda við herstöð
inni á Keflavíkurflugvelli, þann
ig að lierstöðin og flugvöllur-
inn geti verið til reiðu fyrir flug-
vélar með stuttum fyrirvara.
Þjálfun starfsmanna
Þá- segir blaðið ennfremur, að
Danir geti hæglega hjálpað ís-
lendingum við þjálfun og mennt
un starfsmanna og sérfræðinga
til þessarar starfrækslu, eða með
því að senda þeini sérþjálfaða
menn til starfa um tíma.
í forustugrein Berlingske Aft
enavís segir, að staða íslands
sé nú til athugunar í Danmörk
og ef til vill verði um að rreða
inn sé farinn. Af danskri hálfu
séu menn reiðubúnir að veita
íslandi slíka hjálp að vissu marki.
Blaðið segir, að menn bíði og
fylgist með því, hver þróunin
verði í þessum málum, og búist
jafnvel við beinni málaleitun frá
íslenzku ríkisstjórninni um þessi
efni. Aðils.
Kynlegur hugarburður.
Þessi skrif hinna dönsku blaða
munu koma íslenzkum Iesendum
kynlega fyrir sjónir. Ekkert hef-
ir gerzt hér, sem gefið gæti til-
efni til þeirra skrifa, og þarf
varla að taka fram, að hér er um
hugarburð einn að ræða, Menn
eru nú að verða ýmsu vanir um
skrif erlcndra blaða um íslenzk
mál, en því miður hefir komið í
Ijós ærið oft, að missagnirnar
eiga að einhverju leyti rætur að
rekja til íslenzkra fréttaritara,
sem vanda fréttaflutning sinn
ekki sem skyldi. Hér virðist ein.
vörðungu vera um heimabrugg
hinna dönsku blaða að ræða.
Sagan endurtekur sig
En pólitísk óvild og von um áróð
ursaðstöðu er enn þyngri á metun-
um en tillit til íslenzks málstaðar
hjá sumum þeim aðilum, sem
írakkastir hafa verið að senda
blekkingar og getgátur um íslenzk
stjórnmál til erlendra blaða og
fréttastofnana.
Dæmi um það er frétt, sem
United Press fréttastofan birtir
samkvæmt fréttaskeyti frá
Reykjavík (undan rifjum Vísis)
þegar ^eftir stjórnarmyndunina.
Þar er gefið tilefni til að tengja
saman í eina heild stjórnarmynd
unina, þátttöku Alþýðubanda-
lagsins í stjórn og heimsókn
tékknesks ráðherra, pólsks píanó
leikara og rússnesks knattspyrnu
liðs.
Danska íhaldsblaðið „Dagens
Nyheder" hendir þetta skeyti. á
lofti og birtir í einni allsherjar
fyrirsögn frásögn af myndun ríkis-
stjórnarinnar, — sem það kallar
„folkefrontsregering", samkvæmt
heimildum Reuters fréttaritara í
Reykjavík (Mbl.) — og „Island
oversvömmes allerede af gæster
fra jerntæppe-lande“.
Löngu ákveðin heimsókn
Þetta eru athyglisverð vinnu-
brögð. Hljómlistarmenn og aðrir
gestir að austan hafa komið hér
á hverju ári mörg undanfarin ár,
en þá ekki þótt ástæða til að síma
fregnir af því út um heim.
Ferð tékkneska ráðherrans t.
d. mun hafa verið ákveðin fyrir
kosningar, meðan Ólafur Thors
sat enn á veldisstóli, rússneska
knattspyrnuliðið er hér á leið
til Kanada. Og listamenn frá
mörgum þjóðum koma hér, án
þess að það þyki pólitísk tíðindi.
Alið á tortryggni
Auðskilið er, hvað þarna er ver-
ið að gera: Ætlunin er að koma
þeim blæ á stjórnarmyndunina og
ástandið hér í augum útlendinga,
að það veki sem mesta tortryggni.
Þannig ástunda fréttaritarar starf-
semi, sem getur orðið landinu til
tjóns. Með þessu athæfi er verið
að gera íslenzku þjóðinni og ís-
íFramhaid á 2. síðu).
Lókómótíí vann
13:2
í gærkvöldi fór fram knattspyrnu
kappleikur milli rússneska liðsins
Lókómótíf og KR. Leikar fóru svo
að Lókómótif gerði 13 mörk á móti
2 hjá KR.