Tíminn - 26.07.1956, Qupperneq 4
■wr •'
T í M I N N, fimnitudagiixn."3g. júlí 1958.
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Ritstjórar: Haukur Snorrason
Þórarinn Þórarínsson (áb.).
Skrifstofur í Edduhúsi við Lindargötu.
Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðameun),
auglýsingar 82523. afgreiðsla 2323.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Stefna nýju stjórnarmnar
STEFNU SKRÁ hinnar
nýju ríkisstjórnar ber þess
merki, að hún setur markið
hátt. Fyrst og efst setur hún
það að skapa atvinnuvegum
þjóðarinnar traustan grund-
völl með því að kom efnhags
málunum í viðunandi horf.
í beihu framhaldi af því, set-
ur hún svo að efla og auka at
. vinnuvegina með öflun nýrra
atvinnutækja og aukinni
ræktun. Með þessu tvennu
er stefnt að því að tryggja
laridsmönnum næga atvinnu
og batnandi lífskjör, en því
'takmárki verður að sjálf-
Sögðu ekki náð, nema með
aukriingu og eflingu fram-
leiðslunnar og traustum
rekstrargrundvelli hennar.
■ VANDASAMASTA verk-
efni stj órnarinnar er endur-
reisri efnahagsmálanna. Á-
reiðánlega öllum, nema
strandmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, er ljóst ,að þar er
mikill vandi á höndum. At-
vinnuvegirnir eru komnir að
stöðvun, gjaldeyrisskortur
er''sívaxandi, höftin aukast
etöðugt. Þessi vandamál
hyggst stjórnin að leysa í
nánu samstarfi við stéttasam
,t<ikin og eftir ráðum og leið-
beiningum færustu sérfræð-
ingá.
í beinu sambandi við þetta
verkefni eru þær ráðstafan-
ir, er stjórnin fyrirhugar í
því augnamiði að draga úr
hverskonar óeðlilegum milli-
liðagróða og bæta þannig
hlut framleiðslunnar.
í FRAMHALDI af þessu
kemur svo öflun nýrra at-
vinnutækja. Þar setur stjórn-
in sér m. a. það takmark að
aflá 15 nýrra togara, sem
yrði skipt milli útgerðarstaða
með jafnvægi í byggð lands-
ins fyrir augum. Þá er og tak
mark stjórnarinnar að afla
iandbúnaðinum aukins starfs
fjár. fá aukið fjármagn til
raforkuvera o. s. frv.
Framsóknarmenn hafa á
undanförnum þingum flutt
tillögur um, að auknir yrðu
möguleikar fyrir togaraút-
gerð út um land, en þær hafa
ekki náð fram að ganga. Af-
kórpa margra sjávarþorpa
veltur á því, að þau fái stuðn-
ing af togaraútgerð. Af hálfu
Framsóknarmanna er því sér
stök ástæða til að fagna á-
kvæði stjórnarsamningsins
um eflingu togaraflotans.
Af sömu ástæðum er sér-
stök ástæða fyrir Framsókn-
armenn að fagna þeirri yf-
irlýsingu stjórnarinnar, að
hún muni leggja sérstaka
áherzlu á eflingu atvinnu-
veganna í þeim þremur lands
fjórðungum, sem hafa að
ýmsu leyti dregist aftur úr að
undanförnu. Það er í sam-
ræmi við þá stefnu, sem
Framsóknarmenn hafa jafn-
an beitt sér fyrir, að tryggja
jafnvægi í byggð landsins.
ÞEGAR efnahagsmálun-
um og atvinnumálunum
sleppir, koma utanríkis- og
varnarmálin tvímælalaust í
fremstu röð.
í þeim málum lýsir stjórn-
in sig fylgjandi ályktun Al-
þingis frá 28. marz síðastl.
Samkvæmt henni ber að
kappkosta gott samsta,rf við
allar þjóðir, halda áfram sam
starfi um varnarmálin við
þjóðir Atlantshafsbandalags
ins og vinna að brottflutn-
ingi hersins í samræmi við
batriándi horfur 1 alþjóðamál
um og þær yfirlýsingar, sem
voru ge.fp.ar við^inngönguria í
Atlantshafsbandaiagið, : að
hér ýrði ekki íeyfð herseta
á friðartímum.
Það er trú íslendinga, að
erlendir aðilar skilji og meti
þetta sjónarmið, þótt í hópi
íslendinga sjálfra séu til
þeir ólánsmenn, sem nú
reyna að rangtúlka og af-
flytja þá stefnu, sem þeir
sjálfir áttu þátt í að móta
fyrir sjö árum síðan, og kalli
meira að segja á erlenda í-
hlutun til að torvelda hana.
Hinir erlendu aðilar láta von-
andi ekki slíkt vandræðafólk
hafa áhrif á gerðir sínar.
f STUTTU máli má segja,
að stefna stjórnarinnar mark
ist af trú og vilja til að byggja
upp heilbrigt og gróandi at-
vinnulíf, svo að öllum geti lið
ið vel og þjóðin búið ein og
óháð í landi sínu. Þetta er
stórt og glæsilegt takmark,
en vissulega ekki vandalaust.
Það krefst skilnings og stuðn-
ings alþýðustéttanna, ef það
á að nást. Þessvegna þurfa
þær að veita stjórninni traust
brautargengi. Þá mun starf
hennar vissulega heppnast.
Umræður um hervarnarmál í Danmörku:
Sterk andstaða gegn staðsetningu
erlendra flugsveita á danskri grund
íhaldsflokkurinn danski hefir nýlega hréyft við hervarna-
málunum dönsku, einkum staðsetningu erlendra hersveita í
landinu, en það mál hefir legið í láginni um hríð. Er nú hafin
1 dönskum blöðum umræða um þetta mál og er enn sem fyrr
mjög sterk andspyrna gegn því að Danir láti af yfirlýstri stefnu
sinni, sem er að engar erlendar hersveitir fái aðstöðu í Dan-
mörku.
Virðist danski íhaldsflokkurinn
einangraðui' í málinu.
„Það má ekki koma fyrir"
í ritstjórnargrein í „Politiken“
í fyrradag er rætt um þessi mál.
Heitir greinin: „Það má ekki koma
fyrir“. Segir þar m. a.: „Nú er
aftur farið að ræða, hvort staðsetja
skuli sveitir frá Atlantshafsríkjum
á dönskum flugvöllum. Það eru
auðvitað íhaldsmenn, sem hreyfa
málinu á ný, og röksemdin er nú,
að þar sem draga eigi úr hervarna-
útgjöldum á fjárlögum þjóðarinn-
ar, muni nauðsynlegt að staðsetja
erlenda flugheri í landinu, ef varn
1 irnar eigi ekki að vera þýðingar-
lausar".
Heimsástandið batnar
Síðan er rifjað upp, að þrjú ár
eru liðin síðan þáv. ríkisstjórn
ókvað stefnuna í málinu, á þá lund,
að á þeim tíma væri ekki ástæða
til að taka tilboði NATO um stað-
setningu flugsveita í landinu. Það
vissu allir, segir blaðið, að undan-
skilið var að ef heimsástandið versn
aði, mundi liægt að taka málið upp
að nýju.
Síðan segir: „En sem betur fer
hefir sambúðin í milli Austurs og
Vesturs ekki versnað á þeim árum,
sem síðan eru liðin. Þvert á móti
hefir, þrátt fyrir öll vonbrigði, orð
ið breyting til batnaðar. Það eru
átök í veröldinni, og maður þarf
að gæta sín að treysta ekki um of
á það mildara loftslag í austri en
það er þó staðreynd, að ástandið
í dag er minna ógnandi en það
var áður óg það er skylda allra
landa, að stíga erigin skref, sem
geta aukið á „spennuna". . . .
Það er ákveðið álit okkar, að
staðsetning amerískra flugherja á
danskri grund á friðartíma væri
gróflegt brot á þessari skyldu,
og við teljum ástæðu til að vara
við því að skapa nú pólitíska
ókyrrð í kriiig um þetta mál . .
AísfaSa Norðmarma hin sama
Blaðið rekur afstöðu Norðmanna
til málsins frá upphafi og segir
hana vera þá sömti og Dana og
þar sé engin breyting. Blaðið tel-
ur, að neitun Norðmanna að taka
þátt í miklum NATO-heræfingum
í haust, stafi af viðhorfi sem sé
mjög svipað því, er hér hefir verið
lýst.
Stórfelldur niðurskurSur
herútgjalda
f greininni kemur fram, að
dönsku flokkarnir hafa komið sér
saman um að skera niður herút-
gjöldin um 5.0 millj. kr. á þessu
ári, „og er vonandi ekki lokið þar
með“, segir blaðið. Sitpr nefnd að
störfum í málinq. Gerir blaðið ráð
fyrir, að störf hennar leiði til enn
stóraukins niðurskurðar, sem
mundi létta mjög yfirstandandi
efnahagsörðúgíeika í landinu.
Bág lífskjör verkamanna í PóIIandi
Bréf frá verkamanni í pólsku bíaði varpa
Ijósi á miskimnarleysi efnhagsmála-
stefnu kommúnista
Tekjurnar hrökkva ekki íyrir brýnustu
lífsnauÖsynjum fjölskyldunnar
Eftir Poznan uppþotið hafa efnahagsmál Póllands verið
mjög á dagskrá í blöðum. Heima fyrir er játað, að efnahags-
málastefna kommúnista — miskunnarlaus iðnvæðing án tillits
til lífskjara fólksins — hafi leitt út í ófæru. Viðhorf alþýðu
manna kemur glöggt í ljós í bréfi, sem verkamaður ritar blað-
inu „Glos Szczecinski“ 6. þ. m.
Mbl. pantar erlenda íhlutun
FORKÓLFAR Sjálfstæð-
lsflokksins eru enn við það
heygarðshornið að kalla á
erlenda íhlutun málstað sín-
um til framdráttar.
í kosningabaráttunni
byggðu þeir stefnu sína í
varnarmálinu á því, að biðj a
ætti um álit erlendra aðila
og byggja síðan afstöðu ís-
lands á því.
f Morgunblaðinu í gær
er því haldið fram, að við
dæmum okkur úr samstarfi
frjálsra þjóða, með því að
taka fulltrúa frá Alþýðu-
bandalaginu í ríkisstjórnina.
Það hefur hvergi komið'
fram í samstarfi hinna
frjálsu þjóða, að þær vildu
hlutast til um heimamál
hverrar annarrar. Ájstæðu-
laust er því að vænta ein-
hvers slíks í þessu sambandi.
Afstaða Mbl. er söm fyrir
því. Með þessum skrifum sín
um er það að gefa undir fót-
inn með það, að slík afskipti,
ef til þeirra kæmi, yrði ekki
illa séð af vissum íslending-
um. Hér er m. ö. o. verið að
panta erlenda íhlutun.
Ótrúlegt er, að nokkur er-
lendur aðili verði við pönt-
Þar kemur á daginn, að pólskir
verkamenn búa við ákaflega þröng
kjör. Afnám frelsis hefir ekki
fært þeim brauð og öryggi, held-
ur skort og örvæntingu. En bréfið,
sem er birt í „Manchester Guard-
ian“ s. 1. föstudag, er á þessa leið:
„Við hælumst yfir framleiðslu-
aukningu, en hvað er þá að segja
um manninn sjálfan? Ellefu ár
eru liðin síðan stríðinu lauk og
manni virðist, að nú sé loksins
kominn tími til þess að lífskjör
fólksins fari að batna. Til þess að
eyða ekki orðum að óþörfu, skal
ég hér nefna dæmi af minni fjöl-
skyldu. Við erum hjónin með
þrjú börn, hið yngsta 11 ára. Ég
hefi starfað í járnbrennslu í 6
ár, en fæ ekki meira en 2 daga
frí í mánuði. Mánaðarlaun mín
eru rétt um 1400 zloty, en þar af
fara 100 zloty í skuidir. Ég fæ
því í hendur 1300 eða 1350 zloty.
Konan vinnur ekki úti. Hve mik-
ið þarf maður til *að draga fram
lífið? Hér fer á eftir stutt yfirlit
um verðlagið:
Brauð, 60 kg. á mánuði 210 zloty
Mjólk, 2 lítrar á dag 150
Sykur, 5 kg. á mánuði 60
un Morgunblaðsins. En kynni
að koma til hennar, er auð-
séð undan hvaða rótum hún
er runnin og hverjum bæri
þá að þakka hana, svo sem
verðugt væri.
Vissulega er þetta ný sönn
un um óþjóðhollustu og ut-
anstefnur Sjálfstæðisflokks-
ins. Slíkur flokkur verðskuld
ar það sannarlega, að hann
sé dæmdur til áhrifaleysis
í málum þjóðarinnar.
Hveiti, 6 kg. á mán. 42
Feiti 4,5 kg. á mán. 178
Sápa og hreinlætisv. 50
Bacon, 3 kg. 110
Kjöt, 3 kg. 90
Pylsur 50
Baunir, salt, eldsp. o. fl. 50
Kál, grjón 20
Smjör bí kg. á mánuði
fyrir 5 manns 27
Brauð fyrir börn 15
Rafmagn, gas ■ -45
Leiga i- :r.r$.: •* • 25
Egg, 6 stk; á mán. 10
Félagsgjöld, .póstgjöld,
blöð og fleira 19
Ýmislegt 15
Samtals 1166 zloty
En það eru lilutir, sem maður
þarf að káupa, og' þeir eru fleiri
en það, sejh kalla má algerlega
nauðsynlegt fyrir fólk 'til þess að
það geti úníiið. Ilvað um sokka
fyrir börn og konu, nærföt, skó,
viðgerðir, fatnað fyrir börnin?
Svo að maður tali ekki um sjálf-
an sig. Hvað um ávexti og sæl-
gæti fyrir börnin, svo maður
nefni nú ekki kartöflur á vetrin-
um? Hvað um kvikmyndir,
skemmtanir, jafnvel flösku af
víni? Ég vildi gjarnan eignast
flösku einú sinni, én tekst það
aldrei. Hvað eigum við að gera,
hvernig eigii’m við að lifa? Það
sem ég skrifa, er vandamál
margra verkamanna. Við tölum
oft um það“.
Þetta er bréf pólska verkamanns
ins og þarfnast ekki skýringa. Það
talar glöggt um lífskjörin.
Lindin er tær
Kunnur pólskur píanósnilling-
ur, Wladyslaw Kedra, hélt tón-
leika hér í Austurbæjarbíói á
þriðjudagskvöltlið á vegum Tón-
listarfélagsins. Aðsókn var ágæt,
viðtökur líka. Áheyrendur klöpp-
uðu listamanninum ákaft lof í
lófa.
Chopin var fyrirferðarmestur á
efnisskránni, en auk hans aðrir
pólskir höfundar, og svo Frans
Liszt. Kedra túlkar Chopin naum-
ast af þeirri tilfinningasemi, sem
maður er vanastur að heyra. Hljóm
arnir streymdu um salinn, tærir
eins og fjallalind sem er sannarlega
fögur, en köld. En hér lék sá, sem
valdið hafði yfir hljóðfærinu.
Kedra er vissulega í hópi „virtous-
anna“. Snillingshendur hans eru
hraðar og þróttmiklar, og þó verð-
ur þess aldrei vart, að hann leggi
að sér. Leikurinn er ákaflega lát-
laus og eðlilegur og maðurinn
sjálfur laus við alla skrítna takta,
sem stundum fylgja meisturunum.
En þegar lengi er hlustað á svo
snurðulausa tækni, fer e. t. v. svo,
að manni finnst fullmikið til um,
eins og væri óskeikul vél að verki.
AF CHOPIN verkunum vakti
Bolero einna mesta hrifningu, enda
naut framúrskarandi leikni lista-
mannsins þar einna bezt. Fjóra
mazúrka lék hann með miklum
hraða og léttleika, og scherzo op.
31 af tilþrifum, þótt þar væri farn
ar eigin götur. Eftir hlé var h-moll
sónata Liszts veigamesta verkið,
flutt af miklum þrótti og krafti.
Af pólskri músík mun síðasta verk
efnisskrárinnar Danse vive eftir
Kisieiewski hafa vakið mesta at-
hygli, enda sérkennilegt og
skemmtilegt, og flutt af framúr-
skarandi leikni. Aukalag var
Nocturne fyrir vinstri hendi, eft-
ir Alexander Scriabin. Þar náðu
geislar tilfinningasemi og hlýju
loksins að verma andrúmsloftið. f
brjósti listamanns eru margir
strengir og þannig leika ekki aðrir
en snillingar. —Ac.