Tíminn - 02.09.1956, Page 6

Tíminn - 02.09.1956, Page 6
6 iÍiSss&iaM Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur í Edduhúsi við Lindargötu. Efsaar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðameun), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. ArSnr vinmi og verzlunar í MEIRA en 100 ár hef- r það verið stefna kaupfé- laga um heim allan að selja vörur á gangverði og endur- greiða félagsmönnum síðan tekjuafgang eftir árið. Þess- ari stefnu hafa íslenzku kaup Eélögin fylgt síðan 1906. Þetta vita flestir landsmenn. Samt feyfa Morgunblaðsmenn sér að halda því fram, að eng- inn munur sé á einkaverzl- un og samvinnuverzlun af því að verð kaupfélaganna sé ekki lægra í kaupfélags- búðinni en hjá kaupmann- inum. Á tímabilinu 1946— 1954 endurgreiddu kaupfé- lögin félagsmönnum sínum 39 millj. króna. Munurinn er nú ekki meiri en það! En hvað endurgreiddu einkafyr- irtækin? Það stendur á Morg unblaðinu að svara. isverzlunar og annarrar fyr- irgreiðslu, sem þarf að sækja til Reykjavíkur, oft með ærn um kostnaði. Þetta eru stað- reyndir um gildi kaupfélags- verzlunar fyrir afkomu al- mennings. Þær eru staðfest- ar af langri reynslu þúsunda 'heimila í landinu og þeim verður ekki breytt með bjána legum fullyrðingum í Morg- unblaðinu. En viðleitnin er söm fyrir því. Þeir eru alltaf við sama heygarðshornið, Morgunblaðsmennirnir. ,; r VITASKULD segja töl- ur þessar ekki alla söguna. Víðs vegar úti um land, þar sem kaupfélögin eru stærsti aðilinn í verzluninni og mestu ráðandi um almennt verðlag i Jjyggðarlaginu, er vöruverð hágstæðara en gerist hér í Reykjavík þar sem kaupfé- lagsverzlun hefir ekki náð slíkri útbreiðslu. Þetta er beinlínis staðfest af verð- lagsyfirvöldunum. Verðgæzlu stjóri birtir mánaðarlega skýrslu um hæsta og lægsta smásöluverð nauðsynjavara t Reykjavík. Á grundvelli þess arar skýrslu hafa ýmis kaup- .i'élög auglýst og sannað að verðlag þeirra á helztu nauð- synjavörum almennings er lægra en lægsta skráð smá- söluverð í verzlunum í Reykja vík. Þannig hefir Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri t. d. hvað eftir annað birt verð- skrá sína til sama/nburðar við lægsta smásöluverð hér 1 Reykjavík og sýnt fram á, að þar er verulegur munur. Þess er þó að gæta, að á ýmsan hátt er aðstaða verzl- unarinnar í Reykjavík hag- stæðari en verzlunar úti um byggðir landsins vegna fyrir- komulags siglinga, gjaldeyr- VEGNA atvinnuhátta I og aðstæðna hefir þróun ! kaupfélaganna hér á landi orðið með nokkuð öðrum hætti en í nágrannalöndun- um að því leyti, að þau hafa gerzt æ stórvirkari þátttak- endur i uppbyggingu at- vinnulífsins. Það fjármagn, sem fólkið hefir falið þeim til ávöxtunar hefir veriö fest í atvinnufyrirtækjum í byggð unum. Kaupfélögin hafa nú á skömmu tímabili skapað landsfólkinu menningarlega verzlunaraðstöðu með bygg- ingu nýtízku verzlunarhúsa, og þau hafa jafnframt treyst undirstöður atvinnulífsins með byggingu frystihúsa og sláturhúsa, mjólkurvinnslu- stöðva og annarra iðnaðar- fyrirtækja víðs vegar um land. Frá því var nýlega skýrt, að á s. 1. ári hefðu fé- lögin byggt frysti- og slátur- hús fyrir meira en milljóna- tug af því fé, sem fólkið hef- ir falið þeim til varðveizlu. Arðurinn af vinnu og verzl- un staðnæmist því heimafyr- ir, en flytzt ekki á brott með reikulum einstaklingum. ÞETTA ERU nokkur atriði úr þróun verzlunar- og atvinnumála á síðari ára- tugum. Þau minna á, að ekk- ert hefir fremur lyft þjóð- inni til efnalegs sjálfstæðis og bættra lífskjara á þeim tíma en samvinna. Sú reynsla er rík í huga þeirrar kyn- slóðar, sem nú hefir tekið við forustu á sviði efnahags- og þjóðmála. er sá trú ÞJÓÐVILJINN birtir langa ferðasögu frá Rúss- iandi og ber sanntrúaðan sálufélaga fyrir. í greinni sr.u ýmsar upplýsingar i prós- mtum, en eins og oftast áð- ir, þegar blöð kommúnista :æða efnahagsmál fyrir aust m. En lesandinn er jafhnær. Hlutfallstölur án samanburð irupplýsinga eru markleysa. ril dæmis um þetta og jafn- •éttið er þessi frásögn: „Eft- r að hafnarverkamaður hef- ír starfað i 5 ár hækka laun- in hans um 15%. Síöan fara laun hans hæklcandi þar til eftir 30 ára hafnarvinnu að þau hafa hækkað um 30%. Konur vinna hafnarvinnu engu síður en karlmenn, en að sjálfsögðu fýrir sama kaup.. Það er því ekki að P spyrja að jafnrétti kynjanna. Konur fá að losa skip. Mundi þaö ekki þykja mikil réttar- bót hér? £ frásögninni kem- ur hvergi fram, hvert er hiö raunverulega kaup hafnar- verkamannsins, og lesandinn veit því ekkert um raunveru- leg kjör hans. FURÐULEGAST er þó að þessir útsendarar skulv reyna að telja fólki hér trú um að í Rússlandi sé „þjóð- félag hins vinnandi manns“. Hefir það skapast nú í valda- tíð þeirra Krustjovs og Búlg- anins, eða halda kommúnist- ar því enn fram, að hryðju- verk og harðstjórn af þeirri tegund, sem Stalín ástund- aði, sé sprottið úr „þjóðfé- lagi hins vinnandi manns“? Mikil er sú trú. VILHJÁLMUR ÞÓR Fyrir réttum áratug, 1. september 1946, sat ungur maður á skrifstofu í Sambands- húsinu í Reykjavík og lét hug.ann reika til vörubirgða kaupfélaganna um land aUt í þeirri von, að hvergi kæmi upp eldur, hvergi skemmdist svo mikið sem einn sekkur eða kassi í rauöum logum. Þennan sama dag hafði brunatrygging á vörubirgðum félag- anna veriö fengin í hendur nýju tryggr ingafélagi, Samvinnutryggingum. sem: hófu starfsemi sína með þessu verkefni. Ungi maðurinn var Erlendur Einarsson, sem hafði 24 ára gamall tekizt’ á. hendur það hlutverk að stýra þessu nýja félagi. Enda þótt hann hafi vafalaust’ haft eðll- legar áhyggjur aí fyrstu skrefum hins nýja félags, var engan veginn hætta á þvi, að eldsvoði í vöruskemmu einhvere kaupfé- lagsins gæti grandað félaginu í fæðingu. Það hafði verið vel um hnútana búið og frumkvöðull félagsins, Vilhjálmur Þór, sem þessa sömu síðsumarsdaga var að undir- búa skipakaup, húsa- og verksmiðjubygg- ingar, stofnun olíufélags og sitthvað fleira, hafði leitað til samvinnumanna í Svíþjóð og fengið hjá þeim bæði tæknilegar leið- beiningar og- hina hagkvæmustu endur- tryggingasamninga, sem reyndust góð kjöl- festa fyrstu ár félagsins. Unílirbúnmgur tryggringfanna leð slofnun tryggmgaiéla! tímabil í tryggingamákm hagkvæman endurtryggingasamning við Folksam, hið sænska samvinnutryggingafé- lag, jafnframt því sem Svíar sendu einn af færustu tryggingamönnum sínum, Bengt Frænkel. til íslands til að kanna þá áhættu, sem tekin var, og veita um leið mikla og margvíslega aðstoð við stofnun Samvinnu- trygginga. Meðal samvinnufélaga hafa tryggingafé- lögin um marga hluti sérstöðu. Auðséð er, að þau geta ekki verið félög, sem trygginga- takar eru meðlimir í eins og neytendur og framleiðendur eru meðlimir kaupfélaga. Þetta stafar meðal annars af því, að trygg- ingatakar eru ekki síður félög og fyrirtækl en einstaklingar. Þess vegna hefur verið farin su leið, hæði hér heíma og erlendis, að láta alla tryggingataka vera eigendur félaganna án frekari formsatriða og láta þá alla njóta arðsins af starfseminni og fá þannig tryggingar sínar fyrir sannvirði. Hinn vandinn, að koma samvínnusniði d stjórn tryggingafélaganna, var leystur ö þann snjalla hátt að tengja þau sjálfrl samvinnuhreyfingunni, sem félögin eru svrottin út: úr. Með þvl að láta hina kjnrnu fulltrúa samvinnufólksins ráða stjórn Sam- vinnutrygginga og slðar Andvöku, er ovn- uð leið fyrir allt landsfólk. sem vill láta sig stjórn félaganna og málefni skipta. tll áhrifa í þeim. Þannig er þessi grein tvngd við' lýðrœðisstofn samvinnustarfsins l land- inn. í fyrstu. stjórn Samvinnutrygginga völd- ust þeir Vilhjálmur Þór, formaðúr, Jakob Frímannsson, ísleifur Högnason, Kjartan Glafsson og Karvei Ögmundsson, og hefur þessi stjóm verið óbreytt fyrsta áratueinn, nema hvað Erlendur Einarsson tók við for- mennskunni af Vilhjáiml jafnframt þvi sem hann tók við forstjórastarfi SÍS. Starfið hófst med nýjung Samvinnutnjggingar voru eitt af fjöl- mörgum stórvirkjum, sem Vílhjálmur hratt af stað, er liann tók við forstjóra- starfi hjá Sanibandi íslenzkra samvimiu- félaga í ársbyrjun 1946; Tryggingastarf- semi hajði þá um 80 .ára skcið verið merkur og vaxandi þáttur i starfi sam- vinnumanna erlendis, og Vilhjálmur liafði séð og skilið, ekki aðeins það hlut- verk, sem samvinnuhugsjónarinnar beið á tryggingasviðinu, heldur og þann styrk, sem öflugt tryggingafélag hlyti að vera öðru samvinnustarji. Slik félög höfðu fyrst tekið til starfa i Englandi og náð mikium árangri. Þau voru stór og voldug í landum eins og Svíþjóð, Belgiu og Bandríkjunum. Ekki leið á löngu unz gusta tók af hinu unga tryggingafélagi. Starfsemin hófst 1. september 1946 með tveim deildum, bruna- deild og sjódeild, en um næstu áramót á eftir hóf þriðja deildin, bifreiðadeild, starf- semi sína. Innleiddi deildin von bráöar nýjung, þar sem var afsláttarkerfi fyrir þá, sem ekki ollu tjónum ákveðinn tíma. Þess- ari nýjung var mjög illa tekið af hinum cldri tryggingafélögum, sem svöruðu hennl með auglýsingaherferð, er jafnframt var beint gegn kjarna Samvinnutrygginga. Var sýnilega ætlunin að hræða menn frá því að skipta við félagið með þeim fullyrðing- um, að svo gæti farið, að hinir tryggðu Vilhjálmur hóf undirbúning Samvinnu- trygginga & tvennan hátt. Hann valdi Er- lend Einarsson til að taka að sér stjórn hins nýja félags og fór Erlendur snemma á árinu 1946 til Englands til að kynna sér starfsemi samvinnutryggingafélaganna miklu i Manchester og jafnframt til að kynna sér hina víðfrægu sjótryggingamið- stöð Lloyd’s í London og leggja þar drög að samböndum til endurtryggingn á skip- um og vörum i flutningi hér heima og milli íslands og annara landa. Jafnframt fór Vilhjálmur til Svía og naut nú gamalia og góðra kynna við forustumenn sænsku sam- vinnuhreyfingarinnar. Fékk hann þar hin- ar beztu undirtektir sem oftar og gerði mjög JÓN ÓLAFSSON í t.ií...<.ftfi./St/. ..

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.