Tíminn - 02.09.1956, Side 7

Tíminn - 02.09.1956, Side 7
~ r 7 BINOAR ÍO ARAs yrðu að taka á sig mikil útgjöld, ef tap yrði á rekstri félagsins! Þetta andóf hinna félaganna reyndist þó gagnslítið. FólJcig í landinu fann, að hér voru menn á ferð, sem hugðust lífga tryggingastarfið við og velcja það af þyrnirósarsvefni, enda hefur vöxtur og viðgangur Samvinnutrygginga verið með eindœmum. Þegar á fimm ára afmœli sínu var félagið orðið annað stærsta tryggingafélag landsins og aðeins 10 ára gamalt er það eJcJci aðeins stœrsta trygg- ingafélag landsins, heldur tvimælalaust forustufélag um Jwers konar nýfungar, hettbrigt og frjálst tryggingastarf. Baráttan gegn afsláttarkerfi bifreiða- trygginganna endaði einnig í heríilegasta ósigri hinna eldri félaga og annara and- stæðinga Samvinnutrygginga. Með at- kvæðagreiðslu hjá bifreiðaeigendum vann þetta nýja kerfi glæsilegan sigur, og uif- reiðatryggingar félagsins hafa vaxið svó, að' nú er helmingur allra bifreiða í land- inu tryggður hjá félaginu. Hagsýni og tækni í rekstri Það varð brátt augljóst öllum þeim, sem fylgdust með vexti Samvinnutrygginga, að stofnunin var rekin af mestu hagsýni og tókst að nýta bæði nýjustu tækni og hina ágætustu starfskrafta til ágæts árangurs. Reksturskostnaðnr félagsins var og er mjög lágur, jafnvel þótt boríð sé saman við bezt-u erlend félög, og Samvinnutryggingar hafa verið mikið gæfufélag í tryggingastarfsemi sinni. Arangur starfsins Jcom þegar i Ijós 1949, þegar félagið endurgreiddi teJcju- afgang til eigenda. sinna, hínna tryggðu, og var það alger nýjung hér á landi, enda þótt eitt gagnkvæmt iryggíngafélag vœri til í landinu áður. Þessar endurgreiðslur, sem Jcalla má aðalsmerki Samvinnu- tr-ygginga, hafa síðan numið 9,6 milljón- um króna og eru þá ótaldar mílljónir, sem félagið hefur sparað landsfólkinu með lœgri iðgjöldum og betri þjónustu en áður hafði þekfczt. Tryggingafélag má 1 raun réttri reka á tvennan hátt í landi eins og íslandi. Treysta má fyrst og fremst á miklar end- urtryggingar erlendis, og er félag þá í raun réttri lítið meira en umboðsfélag hinna er- lendu endurtryggjenda, eða byggja má upp sjóði félagsins, nota þá sem bakhjarl til að draga úr hinum erlendu endurtryggingum og gera félagið þannig að sjálfstæðu, ís- lenzku tryggingafélagi. Samvinnutryggingar hafa gengið lengra eftir seinni leiðinni en nokkurt annað félag hér á landi og urihið þar þjóðhagslegt starf með því að draga úr gjaldeyrisútgjöldum til trygginga, jafn- framt sem félagið hefur tekið enductrygg- ingar frá öðrum löndum í vaxandi mæli til að jafna metin gjaldeyrislega. Þessi stefna hefur borið þann árangur, að félagið hefur skapað sér tekj.ur af vöxtum sjóða og ágóða af endurtryggingum utanlandsfrá, sem hafa stórbætt al’komu þess og átt mikinn þátt í því, hve miklu félagið hefur getað skilað aftur. Breyttir og bættir tryggingahættir Samvinnutryggingar hafa. á ýmsum svíð- um trygginga hafið baráttu fyrir breytt- um og bœttum tryggingaiiáttum. ÁJirifa- ríkust slíkra herferða var án efa baráttaft um brunatryggingar Jiúsa, sem voru nær alger einokun um land allt. Hafa þcer nú ekki aðeins vetið gefnar frjálsar alls staðar utan ReyJcjavíkur (þ. e. a. s. frjálsar fyrir stjórnir sveitafélaga, ekki einstaklinga), heldur hefur orðið mikil lœkkun á bruna- ERLENDUR EINARSSON - ,yggingaiðgjöldum húsa utan höfuðstað- arins. Eiga landsmenn það eingöngu að þakka árvekni og dugnaði þeirra manna, sem stýra máium Samvinnutrygginga. Er það athyglisvert, aö ekkert tryggingafélag hefur tekið þátt í þessum tryggingum ann- að en Samvinnutryggingar, utan Bruna- bótafélag íslands, sem einokunaraðstöðuna hafði áður og hefur tekið karlmannlega á móti samkeppni Samvinnutrygginga. Tryggingastarfsemi á að vera annað og meira en töluvisindi með krónur og aura. Hún er ekki aðeins til vegna beins fjár- hagslegs öryggis, sem hún skapar, heldur og vegna hinnar djúpu, sálrænu þarfar mannsins fyrir öryggi og vissu. Trygginga- félag á að vera lifandi kraftur, sem greiðir ekki aðeins tryggt tjón, heldur tekur já- kvæðan þátt í lifi og starfi þjóðfélagsins, með því að beina hinu sparaða fé í sjóðum sínum til uppbyggingar og athafna, halda uppi fræðslu um hvers konar öryggi og slysavarnir og reyna þannig að fyrirbyggja tjónin, sem tryggt er fyrir. Mikill fjöldi slysa eða óhappa eru þess eðlis, að fjár- hagsleg greiðsla getur aðeins bætt nokk- urn hluta þess, sem farið hefur forgörðum. Þetta hafa Samvinnutryggingar skilið frá öndverðu cg þvi hafa þær lagt mikla áherzlu á hvers konar fræðslu- og upplýs- ingastarfsemi í þeim tilgangi að fyrir- byggja slys og tjón. Þetta hefur félagið gert með útgáfu blaða, bóka og bæklinga, fyr- irlestrum, verðlaunaveitingum, samkeppn- um, auglýsingum og á margan annan hátt. Mikið gæfu- félag Samvinnutryggingar hafa verið mikið gæfufélag og eitt hið gæfulegasta við fé- lagiö hefur frá byrjun verið starfslið þess. Erlendur Einarsson stýrði félaginu til árs- loka 1955, er hann tók við annari og. meiri ábyrgðarstöðu, en þá varð framkvæmda- stjóri Jón Ólafsson, sem í aldarfj órðung hafði stýrt Líftryggingafélaginu Andvöku og er einn reyndasti og farsælasti trygg- ingamaður landsins. Við hlið hans eru í framkvæmdastjórn Björn Vilmundarson, sem stýrir brunatryggingadeild, og Jón Rafn Guðmundsson, sem stjómar sjódeild og endurtryggingum. Bifreiðadeild hefur frá byrjun verið undir forstöðu Ólafs Kristj ánssonar. — Fastráðið starfsfólk Samvinnutrygginga eru nú 29 manns. Fyrsti áratugurinn er ekki aðeins góð héldur glœsileg byrjun fyrir Samvinnu- tryggingar. Fólkíð i landinu hefur skilið það hlutverk, sem þessu félagi var ætlað, og það hefur fagnað því, hversu giftusam- lega félagið Jiefur starfað og Jiversu trútt það Jiefur verið þeirri hugsjón, sem á bak við býr. Um verðgildi peninga f ÖLLUM landshlutum eru til menn, sem græða íé. Þó að atvinnuvegir gangi ýmis- lega, er alls staðar fólk, sem get- ur lagt fyrir og leggur fyrir. Dug- legir menn og ráðdeildarsamir með létt heimili afla meira en þeir þurfa til daglegrar framfærslu, ef þeir hafa fasta atvinnu eða heppni er með. Þess vegna eru í öllum héruðum einhverjir menn, sem efnast og safna fé. Slíkir menn eru líka á Vfestfjörð- um. Þar eru í fremstu röð fastir launamenn, sem fara vel með, en raunar líka menn í flestum stétt- um. Hvað gera svo þessir menn við það fé, sem þeim græðist? VITANLEGA er slíkri spurn- ingu ekki svarað eins fyrir alla. En margir þessara manna vilja ; geyma fé sitt svo, að það haldi ! gildi sínu og verði trygg eign. ; Þeim jjykir eðlilega ekki sem i tryggast að geyma það í peninga- stofnunum. Þeir eru að vísu ; óhræddir um krónur sínar þar og i treysta því, að sér verði taldar i þær út aftur, þegar þeir óska, með i vöxtum þeim, sem um er samið. i En þeir hafa séð peningana rýrna. : Þeir hafa vitað menn lána kýr- ii verð og fá það greitt að fullu eftir i fáein misseri með einu lambsverði. i Og þeim þykir það slæm meðferð á fé sínu, að kýrverð breytist í ; lambsverð, enda þótt krónum i þeirra fari fjölgandi. Eitt er það ráð, sem eignamenn i kunna til að bjarga fé sínu, hvar i á landinu sem þeir eiga heima. I Það er að koma því í fasteign í 1 Iieykjavík. Það „getur hver einn | skyggnzt um sína sveit“ og tekið | eftir því hvað verður um gróða | þann, sem þar er dreginn saman. | Peningamennirnir kaupa ekki jarð | eignir í næstu sveit eða húseign ! í næsta þorpi. Þeir kaupa ógjarnan | fasteignir í sínum eigin kaupstað | eða sinni eigin sveit. Þetta á sér ósköp eðlilega skýr- ! ingu. Menn trúa ekki á framtíð ! héraðs síns. Menn efast um að ! hægt verði að selja hús í sínum § kaupstað eða jörð í sinni sveit. Það kynni að verða einskisverð ,. eign eftir nokkur ár, jafnvel minni : eign en ríkistryggð innstæða í op- B inberri ‘peningastofnun. En hinu ! treysta þeir, að húseign í Reykja- :; vík verði alltaf hægt að selja. Og | þeim hefir sannarlega orðið að ; þeirri trú sinni til þcssa dags. Þetta er vitanlega allt annað en 1 heppilegt fyrir þau héruð, sem ; ; peningarnir eru íluttir úr. því að þau verða með þessum hætti skatt ;! skyld höfuðstaðnum. Við því verð I! ur ekki gert með neinu valdboði § eða lagaókvæðum. Maður, sem með ráðdeild og manndómi hefir ! safnað sér fé til elliáranna, er fyllilega frjáls að því að ráðstafa : i því og vel að því kominn að vera ; ] fjár síns ráðandi. En það er samt y sem áður jafnmikil blóðtaka fyrir K; það hérað, sem skapaö hefir éign | hans, að missa af henni. ÞAÐ ER AÐ ÝMSU leyti allt . annað en heppilegt fyrir þá, sem í Reykjavík búa, aö menn út ura allt land sækist eftir að eignast þar hús. Það styður að hækkuðu húsaverði og þar með meiri dýr- tíð, en er jafnframt hlutarbót fýr- ir þá, sem hús vilja selja. Og vit- anlega eykur það fjármagn höfuð- staðarins og fjölgar þannig úrræð- um þar að sama skapi og það dreg ur úr lífsskilyrðunum í liéruðum landsins. Meðan þetta ástand varir er þeim, sem við það búa, eðlilega rík í huga nýlendustjórn, þar sem heimalandið sendir menn til að safna fé í nýlendunum og flytja það síðan heim til gamla landsins, þar sem yfirþjóðin býr. Sömuleiðis minnir þetta á einokunartímana á íslandi, þegar reistar voru stór- byggingar í öðru landi fyrir gróða frá íslandi meðan þjóðin hér varð stöðugt fátækari og fátækari. HVAÐ ER ÞÁ hér íil ráða? Það eina, sem fyllilega dugar til að mynda jafnvægi í þessum efnum er að skapa trú á framtíð landsbyggðarinnar. Að því er nú unnið með ýmsum ráðum og því marki verður að ná. Það er engin ástæða til að örvænta eða halda að það sé ómögulegt, ef vilji er til. En þeir, sem nú standa höllum fæti og búa við skarðan hlút, verða fyrst og fremst að skilja það sjálfir, hver nauðsyn þeim er á leiðréttingu þessara mála. Því verða þeir að standa vel saman um allt það, sem þar horfir íil bóta. ÞESSI árin er mikið gert til að jafna aðstöðu héraðanna. Þar er fyrst að nefna rækluri lands og rafvæðingu og margs konar upp- byggingu. Jafnframt vferður svo að beina lánsfénu út um land til- að vega upp á móti því hvernig. fjármagn í einstaklingseigu sog- ast til Reykjavíkur. Það er tómt mál að tala um jafnvægi í þessm sambandi, ef ekki er gáð að slíku. Meðan svo er ástatt, að straumur- inn liggur sjálfkrafa á einn stað þarf opinberar aðgerðir og stjórn á fjármálum þjóðarinnar til jafn- vægis. EIN STETT manna hefir nokkra sérstöðu um meðferð aflafjár síns. Það eru bændur. Þeir leggja yfir- leitt allt sitt í ræktun cg aðra uppbyggingu jarða sinna. Sömu sögu er að segja um smáútvegs- menn. Þeir keppast líka við að koma fótum undir bjargræðisveg sinn. Hitt má íelja undantekningu, ef launamenn leggja fé í fram- leiðslu. Við því væri ekki neitt að segja, ef þeir geymdu fé sitt í lánsstofnun, svo að það yrði lánað framleiðslunni. En meðan svo er ekki, er ástandið sjúkt og hefir með ýmsum hætti lamandi áhrif á búskap þjóðarinnar. En þar er komið að hinu mikla vandarnáli (Framhald á 8. síðu). ÞaS voru þrír f ullorSnir og f imm böm sem fónssi hjá Holsteinsborg á Græaí. Nánari frégnir hafa nú borizt af hörmulegu slysi, sem varS hjá Holsteinsborg á Vestur-Grænlandi í s. 1. viku og i:; lauslega var skýrt fra her x I frá Kaupmannahöfn. |! Það var vélbátur, sem fórst, og i| drukknuðu 3 fullorðnir og 5 börn. . Strandaði á skeri. Vélbóturinn átti að flytja fólk frá Holsteinsborg til árósa Akorn- | gaárinnar, þar sem menn voru að 1! laxveiðum. Um borð voru Ole Ravn trésmiður og kona hans, | ungur sonur þeirra og dóttir, Else i;i Olsen kennslukona og ársgömul i i dóttir hennar, 10 ára telpa, 14 . ára piltur og 9 ára piltur. Auk !,"l þeirra 19 ára trésmíðalærlingur, samkvæmt frettaskeyti sem bjargaðist. Báturinn fór af stað í blíðskaparveðri. Hann rakst á sker, sem maraði í kafi og hvolfdi honum. Kennslukonan reyndi að synda með barn sitt í land, en bæði drukknuðu á leið- inni. Vegalengdin var 300—400 metrar, en kuldinn í sjónum mik- ill. Unglingarnir munu einnig hafa reynt að synda, en enginn náði landi nema þessi 19 ára piltur, sem hafði náð í ár til að fleyta sér á. Þetta er eitt hörmulegasta slys á Grænlandi um langan aldur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.