Tíminn - 05.10.1956, Blaðsíða 2
2
TÍMI N N, föstudaginn 5. október 1956,
Menn óítast, að fé
hafi fenet
í Svarfaðardal
StórhríSin, sem gekk yfir Norð-
jirland í fyrradag náði ekki að
snarki austar en í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Að vísu var allillt veður í j
Norður-Þingeyjarsýslu, en ekki
mikil snjókoma, og munu ekki hafa
orðið skaðar þar á fé eða munum.
Kjöthílarnir, sem voru á leið frá
Húsavík til Akureyrar, komust
þangað með hjálp ýtu kl. 4 í fyrri-
nótt eftir 30 klukkustunda ferð frá
Húsavík. Vaðlaheiði mun óíær að
kalla. Vel fært er hins vegar fram
um Bárðardal og upp í Mývatns-;
sveit.
Fréttaritari blaðsins á Dalvík!
símaði í gær til viðbátar fregnum!
þeim, sem birtust í blaðinu í gær.
.— Fannkoma var mikil hér ogj
-iærð erfið. Mjólkurbíll var níu
Mukkustundir frá Akureyri til Dal-
víkur. Rafmagnslaust var annað
slagið. Flest fé mun hafa náðst í
hús í fyrrakvöld hér í sveitum, enn
vantar þó allmargt á nokkrum
bæjum, og jafnvel óttast að það
hafi fenht. Erfiðleikar eru á að
hýsa allt féð vegna þess að enn
er margt sláturfé heima á bæjum.
í dag er bjartara en þó snjókoma
öðru hverju. PJ-
Malbikun Mikíubraut
ar brýn nauðsyn
„Bæjarstjórn samþykkir að láta
malbika Miklubraut milli Rauðar-
árstígs og Lönguhlíðar á næsta
ári og felur bæjarverkfræðingi
undirbúning og framkvæmdir
verksins,"
Þessa tillögu flutti Þórður
Björnsson á fundi bæjarstjórnar
Reykjavíkur í gær. Benti hann á,
að Miklabraut væri þegar orðin ein
fjölfarnasta gata bæjarins og oft
illfær. Að vísu væru talin vand-
kvæði á að malbika hana á venju-
legan hátt vegna undirstöðunnar,
en þar sem gatan hefði einu sinni
verið lögð þarna, yrði að malbika
hana, án þess að „púkka“ undir
hana ef ekki væri hægt öðruvísi,
en reynslan yrði svo að skera úr,
hvort gatan yrði nothæf þannig.
Tillögunni var vísað til umferða-
málanefndar.
Nýtt vopn
gegn kafbátum
Washington, 4. okt. Bandaríkja-
menn hafa fundið upp nýtt og
mjög áhrifaríkt vopn gegn kafbát-
um, að því er fregnir herma. Tals-
maður vestra lét svo ummælt, að
vopn þetta myndi afar mikilvægt,
ef til styrjaldar kæmi milli Rússa
og Bandaríkjanmanna, en þeir fyrr
nefndu eiga sem kunnugt er mjög
stóran kafbátaflota.
Ársþing iþróttabanda
!ags í Ssglufirði
fþróttabandalag Siglufjarðar
hé'lt ársþing sitt s. 1. sunnud. 30.
sept. Þingið setti Helgi Sveinsson.
Þórir Konráðsson var kjörinn þing
forseti og þingritarar: Ófeigur
Eiríksson og Bragi Magnússon.
í stjórn voru kjörnir:
Ófeigur Eiríksson formaður,
Baldur Ólafsson og Jóhann Vil-
bergsson frá Skíðafélagi Siglu-
fjarðar. Þórir Konráðsson og Helgi
Sveínsson frá Knattspyrnufélagi
Siglufjarðar. Varamenn voru kjörn
ir: Gunnar Finnsson, Jóhannes
Jónsson, Agnar Jónsson og Jóhann
Möller.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Jóhannn Möller og Bragi Magnús
son.
í hérmaðsdóm voru kjörnir:
Helgi Sveinsson, Bragi Magnús
son og Jónas Ásgeirsson. Vara-
menn : Skarphéðinn Guðmunds-
son, Baldur Ólafsson og Jóhann
Möller.
Ákveðið var að halda framhalds
þingfund 14. okt. n. k.
Á þinginu mætti Hermann Guð
mundsson framkvæmdastjóri ÍSÍ.
í fyrrakvöld sýndi Boishoi-balleífinn
rússneski í fyrsta sinn í Covenf <5ar-
den Opera House i London. Var
sýnt Romeo og Julie effir Prokofiv.
Frasgasta dansmær Rússa, Calina
liianova, dansaði þar við íeikna
hrifningu áhorfenda, var klappað
fyrir hsnni í 10 mínútur samfellt.
Brezku blöðin segia/ aa slíkur ball-
etf-dans hafi ekki séif í Bretlnndi
síSustu S0 árin. Á myndinni sézt Ula-
nóva, er hún var á leið á fyrstu
æfinguna í London.
Aðeisis fimm kindur
r
eftir \ Ogöíigufjalfi
Fosshóli í gær. — Kindurnár,
sem eru í sjálfheldu og svelti í
Ógöngufjalli, eru nú aðeins orðnar
fimm, en voru fyrst 13. Hafa 7
þeirra komizt upp fyrir fjallsegg-
ina aftur yfir Bakrangann. Óger-
legt er að komast að kindunum,
sem eftir eru, og þær eru alveg í
svelti. Hljóta þær að svelta þarna
í hel bráðlega, því að þær eru bún
ar að vera þarna að minnsta kosti
hálfan mánuð, eða þá að þær fara
í slóð hinna upp yfir Bakrangann, j
en til þess eru heldur litlar líkur í
héðan af. SLV.
Geysimikill sejór
komimi i ÓMsfirði
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsfirði í gær.
Hér brast á iðulaus sórhríð í
fyrrinótt og stóð hún í gær og í
dag var snjókoma af og til. Kom-
inn er feikilegur snjór, bæði í kaup
staðnum og frammi í sveitinni.
Óttast menn að fé hafi fennt, því
að fé vantar á ýmsum bæjum.
Mjólkurbíllinn komstækki til bæj-
arins í gær. Hins vegar var ekki
stórfellt brim, þar sem veðuráttin
var hánorðan, og varð ekkert að
bátnum hér á legunni. BS.
Fordæma stefim
brezku stjórrsarinnar
Borgarlæknirinn í Reykjavík, f.
h. bæjarsjóðs, hefir sótt um leyfi
til að byggja náðhús úr steinsteypu
á lóð í Hljómskálagarðinum við
Sóleyjargötu. Á bygging þessi að
vera að mestu neðanjarðar, og á
að vera að flatarmáli tæpir 100
fermetrar. Bygging þessi hefir nú
verið samþykkt.
í framhaldi af þessu flutti Þórð-
ur Björnsson eftirfarandi tillögu
á fundi bæjarstjórnar í gær:
„f framhaldi af ákvÖrðun bæjar
yfirvalda að byggja náðhús í
Hljómskálagarðinum og með tilvís-
un til 25. gr. 2. mgr. heilbrigðis-
samþykktar fyrir Reykjavík nr. 11,
20. janúar 1950, samþykkir bæjar-
stjórn að fela bæjarráði og heil-
brigðisnefnd að gera nú þegar til-
lögur um staðsetningu og byggingu
fleiri almenningsnáðhúsa í bænum,
m. a. við Hlemmtorg.“
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
rr---------—-----------------
Óve$nS
(Framhald af 1. síðu.)
hafi alls staðar verið úti, þegar
veðrið skall á. Fannkyngi er mik
ið í Fram-Skagafirði og margra
metra skaflar komnir í lægðum.
„Ekki er vitað um tjón, en ég tel
vafalaust að það hafi orðið eitt
hvað“, sagði fréttaritari, og er tal
ið víst að eitthavð af fé hafi fennt
þótt það sé ekki komið í ljós enn.
Þegar veðrið skall á fóru menn að
reyna að ná inn fé sínu, en það
gekk að vonum erfiðlega, þótt mik
ið hafi komizt í hús.
Líkt ástand í Svartárdal.
Fréttaritari Tímans á Bergsstöð
um í Svarfárdal, A-Hún, símar að
þar hafi hríðað fram eftir degi í
gær, en var heldur að létta til með
kvöldinu. Bændur smöluðu fé sínu
í fyrradag og gekk það vonum fram
ar. Ekki er enn vitað hvort mikið
fé hefur fennt.
Ófært vegna snjóa aS og frá
Hofsósi.
Eftir óveðrið og stórhríðina er
með öllu ófært bílum og öðrum
ökutækjum að og frá Hofsósi, en í
gær var byrjað að ryðja snjó af
þjóðveginum inn til Skagafjarðar.
Fé var almennt úti hjá bændum
þar um slóðir og er ekki búið að
heimta það allt í hús. Óttast menn
að eitthvað kunni að hafa orðið
úti í hríðinni, þó ekki sé enn útséð
um heimtur.
á Kýpur
Blackpool, 4. okt. Flokksþing
Verkamannaflokksins, sem haldið
er í Blaekpool, hefir samþykkt að
fordæma meðferð brezku stjórnar-
innar á Kýpurmálinu. Segir í á-
lyktun að semja eigi á grundvelli
sj álfsákvörðunarréttar eyj askeggj a
um framtíð eyjarinarn. Þá var og
fordæmd í ályktun stefna Suður-
Afríku-stjórnar í kynþáttamálum
og kröfur komu fram á þinginu
um að Suður-Afríku yrði vikið úr
brezka samveldinu.
Litil sejókoma á Aust
uríandi o g eðfifeg um
ferð um fjallvegi
Engir skaðar svo vitað sé urðu
í fárviðrinu á Austurlandi og
náði snjókoina þangað ekki að
ráði. Snjókoma varð þó talsverð
á Fljótsdalshéraði, en ekki svo,
að til umfcrðartruflunar kænii.
í fyrradag fór bíll yfir Oddskarð
milli Eskifjarðar og Norðfjarðar
og gekk ferðin vel. Kjötflutning-
ar og aðrir þungavöruflutningar
eru miklir milli Reyðarf jarðar og
Egiisstaða á Héraði og er vegur-
inn yfir Fagradal góður yfirferð-
ar og enginn snjór þar, sem tef-
ur umferð.
Bandaríkjameon af-
henda uppfýsingar
um geisiaverkanir
f gær afhenti Henry Cabot Lodge
þeirri nefnd Sameinuðu þjóðanna,
sem fjallar um geislaáhrif vegna
kjarnorkusprenginga skýrslu banda
rísku nefndarinnar í kjarnorkumál-
efnum, um það efni. Skýrslan er
mikið rit, eða níu bindi alls. Fjög-
ur þau fyrstu eru um reynslu rann
sóknarstöðva víðsvegar í Banda-
ríkjunum, en fimm þau síðari eru
skýrslur hinna sextíu og tveggja
rannsóknarstöðva, sem staðsettar
eru annars staðar á hnettinum og
þar sem daglegar athuganir fara
fram.
Það var tilkynnt að vísindamenn
í þeim löndu.m, sem rannsóknar-
stöðvarnar eru staðsettar í, fái í
bókarformi niðurstöður rannsókna
í sínu landi.
Samsæti til heiðurs
Sigurhorgu Kristjáns
S. í. E. S.
Gamlir nemendur frk. Sigur- ‘
borgar Kristjánsöóttur, fyrrum;
forstöðukonu Staðarfellsskólans,;
liafa ákveðið að efna til samsætis ;
í tilefni af sjötugsafmælis hennar;
11. okt. Samsætið verður haldið í
Tjarnarkaffi 11. okt. og hefst kl 7. |
Nemendur fyrr og síðar, sem vilja
taka þátt í samkvæmi þessu, til-
kynni þátttöku sína í síma S0759
og í Regnhlífabúðinni, Laugaveg
19. — Nokkrir nemendur.
Bæjarstjórnin
(Framhald af 12. BÍðu.)
þessari tillögu borgarstjóra svo og
játningu hans um það, að hér væri
ýmsu ábótavant og ekki hefði ver-
ið unnið eins og vera bæri á und-
anförnum árum. Hann og fleiri
minnihlutafulltrúar hefðu áður
flutt tillögur um úrbætur og heild
aráætlun, en þeim itllögum verið
í engu sinnt. Kvaðst hann nú bíða
þess og vona, að borgarstjóri sæi
ástæðu til að gera hliðstæðar játn
ingar um fleiri greinar bæjar-
rekstrarins, sem sætt hefðu rök-
studdri gagnrýni.
Ingi R. Helgason tók í sama
streng og kvaðst fagna þessari at-
hyglisverðu játningu borgarstjóra.
Jóliann túlkar ræðu Gunnars.
Þegar hér var komið var Jóliann
Hafstein orðinn ókyrr mjög og
þótti ekki lengur sætt. Reis hann
úr sæti og tók að túlka ræðu borg-
arstjóra og benda á, að eiginlega
hefði ekki átt að taka orð hans
eins og þau væru töluð, hér væri
raunar ekki um neitt nýtt að ræða,
heldur haldið fram sömu stefnu
og íhaldið hefði áður haft í þess
um málum.
Ofanígjöf, sem ekki fékkst.
Þórður Björnsson kvað það
harla undarlegt tiltæki af Jóhanni
að fara að „túlka“ ræðu borgar-
stjóra og bera til baka orð hans.
Kvaðst hann vona, að borgarstjóri
veitti Jóhanni hæfilega ofanígjöf
fyrir slíkt. Sannleikurinn væri sá,
að í ræðu borgarstjóra hefði ver-
ið nýtt hljóð í strokknum, en hins
vegar sama gamla íhaldshljóðið í
ræðu Jóhanns.
En nú brá svo við, að borgar-
stjóri tók að draga í land og bera
af sér að um nokkra játningu eða
breytingu væri að ræða hjá sér,
veitti Jóhanni engar ávítur en
beygði sig undir hirtingu hans.
Kímdu bæjarfulltrúar að þessum
viðskiptum. Tillaga borgarstjóra
var samþykkt samhljóða.
(Framhald af 1 slðu.)
Reykjalundi, ságði að heilsufar vist
manna væri nú mjög miklu betra
en þá er vinnuhælið tók til starfa.
Fyrstu árin hefði veri'ð meira af
fóiki er þjáðst hafði af berldaveiki
en nú væri það, sem kæmi flest
yngra fólk.
Ekki taldi Oddur að rúmum vist
manna yrði fjölga'ð úr því sem nú
er. Vinnuheimilið væri fullskipað,
en enginn þvrfti að bíða eftir áð
komast þangað. Fóikið sem kemur
að Reykjalundi er þar yfirleitt eitt
og liálft ár.
Vistmenn eru nú 85 og vinnu
stundir þeirra um 100 þús á ári.
Það væri athyglisvert að þetta fólk
að jafnaöi væru 75% öryrkjar þeg
ar það kæmi út af heilsuhælunum,
afkastaði slíkri vinnu, að seldar
vörur vinnuheimilisins yrðu um 7
millj. króna á yfirstandandi ári.
Oddur sagði að tólf ára reynsla
hefði sýnt að við hæfileg skilyrði
væri hægt að nýta starfsorku þessa
fólks ,sem að öðrum kosti gæti
ekki séð sjálfu sér farborða fyrst
um sinn .
Fjársöfnunixi gengur til upp-
byggingar.
Þórður Benediktsson sagðist
hafa orðið var við þann misskiln
ing að fé það er safnast á merkja
söludögum og með öðrum söfnun
um, rynni til daglegs reksturs heim
ilisins.
Þetía væri ekki rétt, því að
vinnuheimilið stæði algjörlega und
ir rekstrinum.
Fé það sem safnaðist með
merkjasölu og vöruhappdrættinu
væri eingöngu varið til uppbygg
ingar og væri því hreinlega stofn
kostnaður.
Merkjasala næstkomandi sunnu-
dag.
Eins og fyrr er sagt er hinn ár
legi merkjasöludagur SÍBS næst-
komandi sunnudag og verða þá
merkin þannig útbúin að aftan á
þeim er lítið umslag, sem kaup
andinn opnar. Innan í sumum
þeirra eru tölustafir. Þeir eru núm
er í happdrætti í sambandi við
merkjasöluna. Fyrsti vinningúrinn
er fjögurra manna fólksbifreið.
Dregið verður hjá borgarfógeta að
merkjasölunni lokinni.
Merkjasölustaðir verða 120—130
úti á landi og í Reykjavík verða
merkin seld á 40 stöðum.
TRICHL0RHRE1NSUN
(■ÞUBRHVWS'J.M >
':í-. SDlV*ÍL'AEOTlJ 7« ■ StMI 3237
BARMAHLÍO G
Fréttir frá landsbyggðmni
F« með vænna móti í
VopnafirSi
Vopnafirði í gær. — Stórhríðin,
sem gekk yfir Norðurland í fyrra-
dag, náði ekki hingað. Veður var
nokkuð hvasst og hryssingslegt,
en snjókoma ekki meiri en svo, að
gránaði í rót. í dag er betra veð-
ur. Slátrun stendur nú yfir hér.
Fé virðist vera heldur með vænna
móti hér og betra en í fyrra. KB.
Dilkar á Hólsfjöllum
reyndust vel
Grímsstöðum í gær. — Hér var
norðan stormur og nokkur snjó-
koma í gær og fyrrinótt, og er
raunar enn. Allmiklir skaflar eru
komnir en rifið á milli. Fé er úti
og ekki talin ástæða til að taka
það í hús að sinni. Fjallabændur
hafa nú lokið slátrun og reyndust
dilkar allvel, töluvert betur en í
fyrra. Lokatölur um meðalvigt eru
þó ekki fyrir hendi enn. KS.
Tvær tófur í skoti
Þórshöfn í gær. — Það bar við
hér á dögunum, er Þórarinn Þor-
valdsson á Völlum var á gangi á
víðavangi með byssu, að hann sá
tófur tvær vera að leika sér eða
fljúgast á. Virtust þær ekkert taka
eftir ferðum hans, og gekk hann
hiklaust allnærri þeim og skaut
þær síðan báðar í einu skoti.
Þriðja tófan var unnin hér fyrir
nokkrum dögum með barefli. Var
það Pétur Björgvinsson, sem vann
á henni. Hljóp hún undan hundi
inn í holu, en Pétur gróf niður á
hana frá öðrum stað og drap hana
með barefli.
Dilkar me'S betra móti á
Langanesi
Þórshöfn í gær. — Slátrun hófst
hér 20. sept. og mun henni ljúka
11. okt. Slátrað er rúmum 9 þús.
fjár. ilkar reynast heldur betri en
í fyrra. JJ.
Slátrun lokið í Ólafsfirði
Ólafsfirði í gær. — Slátrun er
nýlokið hér, og var slátrað rúm-
lega 1500 fjár. Dilkar voru yfirleitt
rýrir, meðalvigt á sláturhúsinu
14,4 kg. Mesta meðalvigt dilka
hafði Hartmann Guðmundsson,
Þrasastöðum í Stíflu, 16,04 kg.
Lagði hann inn 102 dilka. Þyngsta
dilk á sláturhúsinu átti Magnús
Guðmundsson bóndi á Þverá, 25
kg. Þyngsta dilka í Ólafsfirði átti
Steinn Jónasson á Bakka 15,7 kg.
og lagði hann inn 37 dilka. BS.