Tíminn - 05.10.1956, Qupperneq 2

Tíminn - 05.10.1956, Qupperneq 2
2 TÍMI N N, föstudaginn 5. október 1956, Menn óítast, að fé hafi fenet í Svarfaðardal StórhríSin, sem gekk yfir Norð- jirland í fyrradag náði ekki að snarki austar en í Suður-Þingeyjar- sýslu. Að vísu var allillt veður í j Norður-Þingeyjarsýslu, en ekki mikil snjókoma, og munu ekki hafa orðið skaðar þar á fé eða munum. Kjöthílarnir, sem voru á leið frá Húsavík til Akureyrar, komust þangað með hjálp ýtu kl. 4 í fyrri- nótt eftir 30 klukkustunda ferð frá Húsavík. Vaðlaheiði mun óíær að kalla. Vel fært er hins vegar fram um Bárðardal og upp í Mývatns-; sveit. Fréttaritari blaðsins á Dalvík! símaði í gær til viðbátar fregnum! þeim, sem birtust í blaðinu í gær. .— Fannkoma var mikil hér ogj -iærð erfið. Mjólkurbíll var níu Mukkustundir frá Akureyri til Dal- víkur. Rafmagnslaust var annað slagið. Flest fé mun hafa náðst í hús í fyrrakvöld hér í sveitum, enn vantar þó allmargt á nokkrum bæjum, og jafnvel óttast að það hafi fenht. Erfiðleikar eru á að hýsa allt féð vegna þess að enn er margt sláturfé heima á bæjum. í dag er bjartara en þó snjókoma öðru hverju. PJ- Malbikun Mikíubraut ar brýn nauðsyn „Bæjarstjórn samþykkir að láta malbika Miklubraut milli Rauðar- árstígs og Lönguhlíðar á næsta ári og felur bæjarverkfræðingi undirbúning og framkvæmdir verksins," Þessa tillögu flutti Þórður Björnsson á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær. Benti hann á, að Miklabraut væri þegar orðin ein fjölfarnasta gata bæjarins og oft illfær. Að vísu væru talin vand- kvæði á að malbika hana á venju- legan hátt vegna undirstöðunnar, en þar sem gatan hefði einu sinni verið lögð þarna, yrði að malbika hana, án þess að „púkka“ undir hana ef ekki væri hægt öðruvísi, en reynslan yrði svo að skera úr, hvort gatan yrði nothæf þannig. Tillögunni var vísað til umferða- málanefndar. Nýtt vopn gegn kafbátum Washington, 4. okt. Bandaríkja- menn hafa fundið upp nýtt og mjög áhrifaríkt vopn gegn kafbát- um, að því er fregnir herma. Tals- maður vestra lét svo ummælt, að vopn þetta myndi afar mikilvægt, ef til styrjaldar kæmi milli Rússa og Bandaríkjanmanna, en þeir fyrr nefndu eiga sem kunnugt er mjög stóran kafbátaflota. Ársþing iþróttabanda !ags í Ssglufirði fþróttabandalag Siglufjarðar hé'lt ársþing sitt s. 1. sunnud. 30. sept. Þingið setti Helgi Sveinsson. Þórir Konráðsson var kjörinn þing forseti og þingritarar: Ófeigur Eiríksson og Bragi Magnússon. í stjórn voru kjörnir: Ófeigur Eiríksson formaður, Baldur Ólafsson og Jóhann Vil- bergsson frá Skíðafélagi Siglu- fjarðar. Þórir Konráðsson og Helgi Sveínsson frá Knattspyrnufélagi Siglufjarðar. Varamenn voru kjörn ir: Gunnar Finnsson, Jóhannes Jónsson, Agnar Jónsson og Jóhann Möller. Endurskoðendur voru kjörnir: Jóhannn Möller og Bragi Magnús son. í hérmaðsdóm voru kjörnir: Helgi Sveinsson, Bragi Magnús son og Jónas Ásgeirsson. Vara- menn : Skarphéðinn Guðmunds- son, Baldur Ólafsson og Jóhann Möller. Ákveðið var að halda framhalds þingfund 14. okt. n. k. Á þinginu mætti Hermann Guð mundsson framkvæmdastjóri ÍSÍ. í fyrrakvöld sýndi Boishoi-balleífinn rússneski í fyrsta sinn í Covenf <5ar- den Opera House i London. Var sýnt Romeo og Julie effir Prokofiv. Frasgasta dansmær Rússa, Calina liianova, dansaði þar við íeikna hrifningu áhorfenda, var klappað fyrir hsnni í 10 mínútur samfellt. Brezku blöðin segia/ aa slíkur ball- etf-dans hafi ekki séif í Bretlnndi síSustu S0 árin. Á myndinni sézt Ula- nóva, er hún var á leið á fyrstu æfinguna í London. Aðeisis fimm kindur r eftir \ Ogöíigufjalfi Fosshóli í gær. — Kindurnár, sem eru í sjálfheldu og svelti í Ógöngufjalli, eru nú aðeins orðnar fimm, en voru fyrst 13. Hafa 7 þeirra komizt upp fyrir fjallsegg- ina aftur yfir Bakrangann. Óger- legt er að komast að kindunum, sem eftir eru, og þær eru alveg í svelti. Hljóta þær að svelta þarna í hel bráðlega, því að þær eru bún ar að vera þarna að minnsta kosti hálfan mánuð, eða þá að þær fara í slóð hinna upp yfir Bakrangann, j en til þess eru heldur litlar líkur í héðan af. SLV. Geysimikill sejór komimi i ÓMsfirði Frá fréttaritara Tímans í Ólafsfirði í gær. Hér brast á iðulaus sórhríð í fyrrinótt og stóð hún í gær og í dag var snjókoma af og til. Kom- inn er feikilegur snjór, bæði í kaup staðnum og frammi í sveitinni. Óttast menn að fé hafi fennt, því að fé vantar á ýmsum bæjum. Mjólkurbíllinn komstækki til bæj- arins í gær. Hins vegar var ekki stórfellt brim, þar sem veðuráttin var hánorðan, og varð ekkert að bátnum hér á legunni. BS. Fordæma stefim brezku stjórrsarinnar Borgarlæknirinn í Reykjavík, f. h. bæjarsjóðs, hefir sótt um leyfi til að byggja náðhús úr steinsteypu á lóð í Hljómskálagarðinum við Sóleyjargötu. Á bygging þessi að vera að mestu neðanjarðar, og á að vera að flatarmáli tæpir 100 fermetrar. Bygging þessi hefir nú verið samþykkt. í framhaldi af þessu flutti Þórð- ur Björnsson eftirfarandi tillögu á fundi bæjarstjórnar í gær: „f framhaldi af ákvÖrðun bæjar yfirvalda að byggja náðhús í Hljómskálagarðinum og með tilvís- un til 25. gr. 2. mgr. heilbrigðis- samþykktar fyrir Reykjavík nr. 11, 20. janúar 1950, samþykkir bæjar- stjórn að fela bæjarráði og heil- brigðisnefnd að gera nú þegar til- lögur um staðsetningu og byggingu fleiri almenningsnáðhúsa í bænum, m. a. við Hlemmtorg.“ Tillagan var samþykkt sam- hljóða. rr---------—----------------- Óve$nS (Framhald af 1. síðu.) hafi alls staðar verið úti, þegar veðrið skall á. Fannkyngi er mik ið í Fram-Skagafirði og margra metra skaflar komnir í lægðum. „Ekki er vitað um tjón, en ég tel vafalaust að það hafi orðið eitt hvað“, sagði fréttaritari, og er tal ið víst að eitthavð af fé hafi fennt þótt það sé ekki komið í ljós enn. Þegar veðrið skall á fóru menn að reyna að ná inn fé sínu, en það gekk að vonum erfiðlega, þótt mik ið hafi komizt í hús. Líkt ástand í Svartárdal. Fréttaritari Tímans á Bergsstöð um í Svarfárdal, A-Hún, símar að þar hafi hríðað fram eftir degi í gær, en var heldur að létta til með kvöldinu. Bændur smöluðu fé sínu í fyrradag og gekk það vonum fram ar. Ekki er enn vitað hvort mikið fé hefur fennt. Ófært vegna snjóa aS og frá Hofsósi. Eftir óveðrið og stórhríðina er með öllu ófært bílum og öðrum ökutækjum að og frá Hofsósi, en í gær var byrjað að ryðja snjó af þjóðveginum inn til Skagafjarðar. Fé var almennt úti hjá bændum þar um slóðir og er ekki búið að heimta það allt í hús. Óttast menn að eitthvað kunni að hafa orðið úti í hríðinni, þó ekki sé enn útséð um heimtur. á Kýpur Blackpool, 4. okt. Flokksþing Verkamannaflokksins, sem haldið er í Blaekpool, hefir samþykkt að fordæma meðferð brezku stjórnar- innar á Kýpurmálinu. Segir í á- lyktun að semja eigi á grundvelli sj álfsákvörðunarréttar eyj askeggj a um framtíð eyjarinarn. Þá var og fordæmd í ályktun stefna Suður- Afríku-stjórnar í kynþáttamálum og kröfur komu fram á þinginu um að Suður-Afríku yrði vikið úr brezka samveldinu. Litil sejókoma á Aust uríandi o g eðfifeg um ferð um fjallvegi Engir skaðar svo vitað sé urðu í fárviðrinu á Austurlandi og náði snjókoina þangað ekki að ráði. Snjókoma varð þó talsverð á Fljótsdalshéraði, en ekki svo, að til umfcrðartruflunar kænii. í fyrradag fór bíll yfir Oddskarð milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og gekk ferðin vel. Kjötflutning- ar og aðrir þungavöruflutningar eru miklir milli Reyðarf jarðar og Egiisstaða á Héraði og er vegur- inn yfir Fagradal góður yfirferð- ar og enginn snjór þar, sem tef- ur umferð. Bandaríkjameon af- henda uppfýsingar um geisiaverkanir f gær afhenti Henry Cabot Lodge þeirri nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um geislaáhrif vegna kjarnorkusprenginga skýrslu banda rísku nefndarinnar í kjarnorkumál- efnum, um það efni. Skýrslan er mikið rit, eða níu bindi alls. Fjög- ur þau fyrstu eru um reynslu rann sóknarstöðva víðsvegar í Banda- ríkjunum, en fimm þau síðari eru skýrslur hinna sextíu og tveggja rannsóknarstöðva, sem staðsettar eru annars staðar á hnettinum og þar sem daglegar athuganir fara fram. Það var tilkynnt að vísindamenn í þeim löndu.m, sem rannsóknar- stöðvarnar eru staðsettar í, fái í bókarformi niðurstöður rannsókna í sínu landi. Samsæti til heiðurs Sigurhorgu Kristjáns S. í. E. S. Gamlir nemendur frk. Sigur- ‘ borgar Kristjánsöóttur, fyrrum; forstöðukonu Staðarfellsskólans,; liafa ákveðið að efna til samsætis ; í tilefni af sjötugsafmælis hennar; 11. okt. Samsætið verður haldið í Tjarnarkaffi 11. okt. og hefst kl 7. | Nemendur fyrr og síðar, sem vilja taka þátt í samkvæmi þessu, til- kynni þátttöku sína í síma S0759 og í Regnhlífabúðinni, Laugaveg 19. — Nokkrir nemendur. Bæjarstjórnin (Framhald af 12. BÍðu.) þessari tillögu borgarstjóra svo og játningu hans um það, að hér væri ýmsu ábótavant og ekki hefði ver- ið unnið eins og vera bæri á und- anförnum árum. Hann og fleiri minnihlutafulltrúar hefðu áður flutt tillögur um úrbætur og heild aráætlun, en þeim itllögum verið í engu sinnt. Kvaðst hann nú bíða þess og vona, að borgarstjóri sæi ástæðu til að gera hliðstæðar játn ingar um fleiri greinar bæjar- rekstrarins, sem sætt hefðu rök- studdri gagnrýni. Ingi R. Helgason tók í sama streng og kvaðst fagna þessari at- hyglisverðu játningu borgarstjóra. Jóliann túlkar ræðu Gunnars. Þegar hér var komið var Jóliann Hafstein orðinn ókyrr mjög og þótti ekki lengur sætt. Reis hann úr sæti og tók að túlka ræðu borg- arstjóra og benda á, að eiginlega hefði ekki átt að taka orð hans eins og þau væru töluð, hér væri raunar ekki um neitt nýtt að ræða, heldur haldið fram sömu stefnu og íhaldið hefði áður haft í þess um málum. Ofanígjöf, sem ekki fékkst. Þórður Björnsson kvað það harla undarlegt tiltæki af Jóhanni að fara að „túlka“ ræðu borgar- stjóra og bera til baka orð hans. Kvaðst hann vona, að borgarstjóri veitti Jóhanni hæfilega ofanígjöf fyrir slíkt. Sannleikurinn væri sá, að í ræðu borgarstjóra hefði ver- ið nýtt hljóð í strokknum, en hins vegar sama gamla íhaldshljóðið í ræðu Jóhanns. En nú brá svo við, að borgar- stjóri tók að draga í land og bera af sér að um nokkra játningu eða breytingu væri að ræða hjá sér, veitti Jóhanni engar ávítur en beygði sig undir hirtingu hans. Kímdu bæjarfulltrúar að þessum viðskiptum. Tillaga borgarstjóra var samþykkt samhljóða. (Framhald af 1 slðu.) Reykjalundi, ságði að heilsufar vist manna væri nú mjög miklu betra en þá er vinnuhælið tók til starfa. Fyrstu árin hefði veri'ð meira af fóiki er þjáðst hafði af berldaveiki en nú væri það, sem kæmi flest yngra fólk. Ekki taldi Oddur að rúmum vist manna yrði fjölga'ð úr því sem nú er. Vinnuheimilið væri fullskipað, en enginn þvrfti að bíða eftir áð komast þangað. Fóikið sem kemur að Reykjalundi er þar yfirleitt eitt og liálft ár. Vistmenn eru nú 85 og vinnu stundir þeirra um 100 þús á ári. Það væri athyglisvert að þetta fólk að jafnaöi væru 75% öryrkjar þeg ar það kæmi út af heilsuhælunum, afkastaði slíkri vinnu, að seldar vörur vinnuheimilisins yrðu um 7 millj. króna á yfirstandandi ári. Oddur sagði að tólf ára reynsla hefði sýnt að við hæfileg skilyrði væri hægt að nýta starfsorku þessa fólks ,sem að öðrum kosti gæti ekki séð sjálfu sér farborða fyrst um sinn . Fjársöfnunixi gengur til upp- byggingar. Þórður Benediktsson sagðist hafa orðið var við þann misskiln ing að fé það er safnast á merkja söludögum og með öðrum söfnun um, rynni til daglegs reksturs heim ilisins. Þetía væri ekki rétt, því að vinnuheimilið stæði algjörlega und ir rekstrinum. Fé það sem safnaðist með merkjasölu og vöruhappdrættinu væri eingöngu varið til uppbygg ingar og væri því hreinlega stofn kostnaður. Merkjasala næstkomandi sunnu- dag. Eins og fyrr er sagt er hinn ár legi merkjasöludagur SÍBS næst- komandi sunnudag og verða þá merkin þannig útbúin að aftan á þeim er lítið umslag, sem kaup andinn opnar. Innan í sumum þeirra eru tölustafir. Þeir eru núm er í happdrætti í sambandi við merkjasöluna. Fyrsti vinningúrinn er fjögurra manna fólksbifreið. Dregið verður hjá borgarfógeta að merkjasölunni lokinni. Merkjasölustaðir verða 120—130 úti á landi og í Reykjavík verða merkin seld á 40 stöðum. TRICHL0RHRE1NSUN (■ÞUBRHVWS'J.M > ':í-. SDlV*ÍL'AEOTlJ 7« ■ StMI 3237 BARMAHLÍO G Fréttir frá landsbyggðmni F« með vænna móti í VopnafirSi Vopnafirði í gær. — Stórhríðin, sem gekk yfir Norðurland í fyrra- dag, náði ekki hingað. Veður var nokkuð hvasst og hryssingslegt, en snjókoma ekki meiri en svo, að gránaði í rót. í dag er betra veð- ur. Slátrun stendur nú yfir hér. Fé virðist vera heldur með vænna móti hér og betra en í fyrra. KB. Dilkar á Hólsfjöllum reyndust vel Grímsstöðum í gær. — Hér var norðan stormur og nokkur snjó- koma í gær og fyrrinótt, og er raunar enn. Allmiklir skaflar eru komnir en rifið á milli. Fé er úti og ekki talin ástæða til að taka það í hús að sinni. Fjallabændur hafa nú lokið slátrun og reyndust dilkar allvel, töluvert betur en í fyrra. Lokatölur um meðalvigt eru þó ekki fyrir hendi enn. KS. Tvær tófur í skoti Þórshöfn í gær. — Það bar við hér á dögunum, er Þórarinn Þor- valdsson á Völlum var á gangi á víðavangi með byssu, að hann sá tófur tvær vera að leika sér eða fljúgast á. Virtust þær ekkert taka eftir ferðum hans, og gekk hann hiklaust allnærri þeim og skaut þær síðan báðar í einu skoti. Þriðja tófan var unnin hér fyrir nokkrum dögum með barefli. Var það Pétur Björgvinsson, sem vann á henni. Hljóp hún undan hundi inn í holu, en Pétur gróf niður á hana frá öðrum stað og drap hana með barefli. Dilkar me'S betra móti á Langanesi Þórshöfn í gær. — Slátrun hófst hér 20. sept. og mun henni ljúka 11. okt. Slátrað er rúmum 9 þús. fjár. ilkar reynast heldur betri en í fyrra. JJ. Slátrun lokið í Ólafsfirði Ólafsfirði í gær. — Slátrun er nýlokið hér, og var slátrað rúm- lega 1500 fjár. Dilkar voru yfirleitt rýrir, meðalvigt á sláturhúsinu 14,4 kg. Mesta meðalvigt dilka hafði Hartmann Guðmundsson, Þrasastöðum í Stíflu, 16,04 kg. Lagði hann inn 102 dilka. Þyngsta dilk á sláturhúsinu átti Magnús Guðmundsson bóndi á Þverá, 25 kg. Þyngsta dilka í Ólafsfirði átti Steinn Jónasson á Bakka 15,7 kg. og lagði hann inn 37 dilka. BS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.