Tíminn - 11.10.1956, Qupperneq 12

Tíminn - 11.10.1956, Qupperneq 12
VeSurútlit: Allhvass vestan, skúrir síðdegis. Arlegir loft Hitinn á nokkrum stöðum kl. 18: Rvík. 7 stig, Akureyri 8 st. Lon< don 12 st. Khöfn 8 st. New York 13 st. Danmerkurhöfn, Gr.l. 17. Fimmtudagur 11. október 1956. 340 líílömb ílntt til ílellu, 80 lesíir aí framleiSslu- v irum og vetrarforía í milli Öræfa og Reykjavíkur 1 Þessa dagan standa sem liæst árlegir loftflutningar fjár og varn ings úr Öræfum og flutningur vetrarforða héðan austur. Það er Flugfélag íslands, sem annast þessa flutninga eins og áður. Hefir tekist hin ágætasta sam- vinna í milli bænda og félagsins um þessi mál. Þessir flutningar eru fastur liður í búskap bænda og félagsins og hafa alla tíð tekist á- gætlega. Ríkir mikil ánægja meðal fólksins eystra yfir þessari loftbrú, sem er sérstakt fyrirbæri hér á landi og þótt víðar væri leitað. Líflambaflutningur að Hellu. Að þessu sinni er ætlunin að fiytja 349 líflömb frá Öræfingum á flugvöllinn hjá Hellu á Rangár- völlum og er þegar búið að fara 4 (Framh. á 2. EÍðu.) Flugvél frá Flugfélagi íslands hleS- ur lömb og varning hjá Blesakletti vi5 Fagurhólsmýri. — Lambhrútur rekur hausinn út um stjórnklefa flugvélarinnar. Hafði hann rekið hausinn inn um opnar dyr í milli farþegarúms og stjórnklefa og skipsmaður þá þrifið hann og lof- að honum að sjá veröldina út um gluggann. % ' og Favzi á fundum í sKrirstofu Hammarskjölds Taflð, að gruudvöllur fyrir sam* • lagi hafi náðst New York, 10. okt. — Leynilegir einkafundir héldu á- fram í dag milli utanríkisráðherra ýmsra þeirra ríkja, seni saman eru komnir í New York til að ræða Súez-deiluna í ör- yggisráði S. Þ. Mesta athygli vekja fundir þeirra Selwyn Lloyds utanríkisráðherra Breta, Pineau utanríkisráðherra Frakka og Fawzi utanríkisráðherra Egypta. Þessir fundir eru haldnir í einkaskrifstofu Dags Hammarskjölds, framkvæmda- stjóra S. Þ., sem jafnframt mun hafa átt mestan þátt í að koma þeim á. Fyrsti fundur þessara ráðherra var í gærkvöldi og annar var hald- inn í dag. Alger leynd er yfir við- ræðunum, en sú staðreynd, að ann ar fundur var haldinn í dag þykir bera þess vott, að einhver sam- komulagsgrundvöllur sé fyrir hendi. Næstu dagar ráða úrslitum. Jafnframt eru á kreiki flugu- fregnir um, að Dulles hafi í meg- inatriðum lýst sig sammála tillög- um Fawzi utanríkisráðhérra Egypta. Dulles ræddi í dag við Krishna Menon sendimann Nehrús, að ósk Indverjans, og síðar ræddi hann við Hammarskjöld. Menn virðast nú vonbetri en áður um að samkomulag náist. Hvort það tekst eða ekki mun sjást áður en tveir dagar eru liðnir, eða fyrr. Veshsrveldin krefjast efnda á lof- orðum Rússa nm sameiningu Þýzkal. Washington og London, 10. okt. — Vesturveldin þrjii sendu í dag samhljóða orðsendingu til ríkisstjórnar Sovét- ríkjanna varðandi sameiningu Þýzkalands. Segja ríkin það eitt markmið sitt, að landið sameinist hið fyrsta og leggja að Sovétríkjunum, að efna loforð sitt, sem gefið var á fundi æðstu manna stórveldanna í Genf 1955 þess efnis, að Þýzka- land yrði sameinað á grundvelli frjálsra kosninga í landinu öllu. Er í orðsendingunum á það bent, að Rússar hafi algerlega vanrækt að efna þetta loforð. Látin er í ljós sú skoðun, að sameining Þýzka lands sé ekki aðeins nauðsynja- mál fyrir þýzku þjóðina heldur ríki, sem vinna að því að tryggja heimsfriðinn. Sambamlsþingið haldið í Berlín. Vestur-þýzka stjórnin sendi fyrr í haust orðsendingu til Sovétríkj- anna, þar sem skorað er á þau að greiða fyrir sameiningu landsins. Til þess að leggja áherzlu á kröfu vestur-þýzku stjórnarinnar um sameiningu, verður sambands- þingið, sem hingað til hefir verið í Bonn, að þessu sinni haldið í V-Berlín. Var það sett þár í dag að viðstöddum nær öjílum þing- mönnum, en sjálfur mun dr. Adenauer kanzlari köma þangað næstu daga. Sjálfstæðismenn gera ágreining um kjör bréf uppbötarþingmamia Alþ.flokksins Að venju var þingheimi skipt í þrjár kjördeildir við setn- ingu Alþingis í gær, og taka þær kjörbréf þingmanna til at- hugunar. Héldu deildirnar fundi í gær og munu skila áliti á þingfundi í dag kl. 1,30. Blaðið hefur frétt, að þegar við fyrstu athugun kjörbréfa, hafi Sjálfstæðismenn gert ágreining um kjörbréf uppbótarþingmanna Al- þýðuflokksins. Er þar um að ræða íramhald kæru Sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar í vor og mála- r.-ksturinn fyrir landkjörstjórn, sem endaði með algerum ósigri kærenda. Þegar kjörbréfin verða lögð fram í dag á þingi má búast við nokkr- um umræðum um þessi mál. Á fundum kjördeildanna í gær munu hins vegar ekki hafa verið teljandi umræður um þau, heldur aðeins atkvæðagreiðslur um kjörbréf. Tveir viífirringar héldu 96 börnum og kennurum 6 klst. í heljargreipum Happdrætti HúsbyggingarsjéSs Framsóknarfl.: 20 söludagar eftir Hver vill ekki eignast nýja 3ja herbergja íbúð 90 m2 að stærð? Hver lætur hjá líða að freista gæfunnar fyrir 10 kr., þegar 300 þús. kr. íbúð er í boði? Hver hreppir íbúðina í happdrætti húsbyggingar- sjóðs Framsóknarflokksins 1. nóv. n. k.? Miðar eru seldir úr bíl í Bankastræti daglega kl. 2—7. íbúðin (Bogahlíð 26) er opin virka daga kl. 5—7. Umboðsmenn hafið samband við skrifstofuna og látið vita hvernig salan gengur. — Umboðsmenn í Reykjavík og Kópavogi, síminn er 5564. Réðust inn í skóSa í MíSanó. Einn maður drepinn Mílanó, 10. okt. — Bræður tveir, báðir vopnaðir og ann- ar nýsloppinn af geðveikrahæli, héldu barnaskóla í einni af I útborgum Mílanó í herkví í dag. Kröfðust þeir lausnargjalds að upphæð 200 miljónum líra fyrir börnin og kennslukonur þeirra, að öðrum kosti skyldi ekkert þeirra yfirgefa skólann lifandi. Stóð umsátur þetta í 6 klst., unz lögreglan tók menn- ina höndum með áhlaupi á þak skólahússins. 23 ára gamall bj7ggingaverkamaður beið bana í átökum þessum, en báðir mennirnir særðust. ’-ar W' •5E.r Nákvæmlega klukkan 11 f. h., þegar börnin, 96 að tölu, voru að leik í garði skólans, réðust tveir j vopnaðir menn inn í bygginguna. Þeir bundu kennslukonurnar þrjár len hótuðu að drepa börnin, sem I voru viti sínu fjær af hræðslu, ef þau hlypu brott. Þcir æptu til manna, sem söfnuðust saman fyrir utan skólann: Við heimtum 200 miljón lírur í lausnargjald, ann- ars drepum við hvert einasta barn. Þið skulið ekki voga ykkur að koma nálægt okkur, því við skjót- um ykkur umsvifalaust niður. 500 lögreglumenn. Stúlka ein, sem var í hópnum, hljóp í brott til að gera lögregl- unni viðvart. Hún fékk skot í fót- inn og varð að bera hana hrott. Að klukkustund liðinni voru komn ir um 500 lögreglumenn og her- menn á staðinn vel vopnaðir. For- eldrar barnanna streymdu að, ör- vita af hræðslu um börn sín, en lögreglan þorði lengi vel ekkert að aðhafast, en urðu að halda sum um foreldrunum með valdi til þess að þeir ryddust ekki inn í skólann. Skýldi sér bak við þrjú börn. Kallað var til mannanna í hátal- ara, að gefast upp, en annar þeirra harðneitaði því. Kom hann út í glugga, en skýldi sér bak við þrjú börn, svo að lögreglan þorði ekki að skjóta, þótt margar byssur væru á lofti. Annar maðurinn hótaði að kasta sýru í andlit barnanna og sprengja skólann í loft upp með dýnamiti, ef lögreglan reyndi að ráðast inn. ! „Eg er ekki brjálaður“. Prestur einn reyndi að róa menn ina og bað þá að koma og tala við sig í rólegheitum. Sá, sem verið hafði í sjúkrahúsinu, varð hinn versti og kvaðst ekki vera neinn vitfyrringur, þótt reynt hefði verið að stimpla sig slíkan. Gekk á þessu þófi lengi. Byggingarmaður einn reyndi að fara upp á þakið í stiga, en mennirnir skutu hann til bana. Loks réðust tveir lögreglumenn til uppgöngu á þakið vopnaðir vél- byssum. Sluppu þeir óskaddaðir upp, tókst að komast íiálægt vit- fyrringunum og særa þá báða. — Þegar þeir voru bornir brott á börum, var mannfjöldinn orðinn svo trylltur, að hann ætlaði að rífa þá í sig og drepa. Sögðu þá lögreglumennirnir, að þeir væru þegar dauðir, sem þó ekki var. — Lauk svo þessari merkilegu og hættulegu viðureign, sem kostað hafði ungan mann lífið, en matgir orðið nær örvita af skelfingu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.