Tíminn - 02.11.1956, Síða 1
1
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni. &.
40. árgagnur.
12 síður
Reykjavík, föstudaginn 2. nóvember 1956.
Viðtal við Guðmund frá Miðdal,
bls. 4.
Gerfiefnin og eiginleikar þeirra,
bls. ö.
Grein um sauðfjárbúskap, bls. 7.
249. blað.
Bretar og Frakkar s
igu á Sáezeiðl í
mikinn innrásarher
Nasser b©ðar algert stríð egypzku Seinustu
^jéðarinnar gege innrásarherjunum frá þingi S. þ.
Kairo og New York, 1. nóv. — Nasser hélt útvarpsræðu til
þjó'ðar sinnar í dag. Hann kvað Egypta myndu berjast urnl
hvert sveitaþorp og hverja hæð, unz yfir lyki. Við berjumst.
fyrir frelsi Egyptalands og virðingu. í dag hefst nýr kafli íj
sögu Egvptalands, sagði hann. Heimsveldissinnum geðjast
ekki að óháðri stjórnarstefnu Egyptalands. Þeir hafa nú
stofnað samsæri til að koma Egyptalandi á kné.
Þetta samsæri hófst, þegar
ísrael réðst á Egyptaland án nokk-
urs tilefnis.
Úrslitakostir Breta og Frakka.
Nasser vék að úrslitakostum
Breta og Frakka frá 30. nóv. Þeir
Frá Happdrættinu
Þar sem ekki voru komin skil
frá öllum umboðsmönnum úti á
landi í gærkveldi, þótti ekki til-
tækilegt að birta vinningsnúm-
erið i dag. Er það gert í öryggis
skyni, og hefur verið ákveðið að
vinningsnúmer happdrættisins
verði ekki birt fyrr en vissa er
fyrir að skil á öllum útistand-
andi miðum séu komin til skrif-
stofu happdrættisins.
Á þessu þarf engan afsökunar
að biðja, því þetta er gert vegna
hagsmuna allra þeirra mörgu er
keypt hafa miða í happdrættinu.
Vinningsnúinerið verður ræki
lega auglýst bæði í útvarpi og Tím
anum, og lesendum gert aðvart
daginn áður en það verður birt.
Happdrætti Húsbyggingar-
sjóðs Framsóknarflokksins.
hefðu verið settir fram undir því
yfirskyni, að nauðsyniegt væri að
hernema Súez-skurð til að halda
uppi eðlilegum siglingum um
skurðinn. Á þeim tíma hefðu sigl-
ingar um skurðinn gengið eðlilega
og með venjulegum hætti.
Hann kvað tilboð Breta og
Frakka hafa falið í sér skerðingu
á sjálfstæði Egyptalands, sem
ekki hefði verið unnt að fallast
á. Hann lýsti yfir, að Bretar og
Frakkar hefðu brotið alþjóðarétt,
stofnskrá S. Þ. og breytt and-
stætt almenningsálitinu í heim-
inum. Skoraði hann á þjóðina að
berjast til síðasta manns eins og
Þjóðverjar hefðu gert, Indónesíu-
menn og Grikkir, en einkum
benti hann þeim á fordæmi Al-
sírmanna.
Egyptar lýsa yfir styrjöld.
í morgun kallaði Fawzi utaurík-
isráðherra Egypta sendiherra
Breta og Frakka á sinn fund í
Kairó og lýsti yfir því við þá, að
Egyptaland liti svo á, að styrjöld
ríkti milli þess og Bretlands og
Frakklands. Væri því stjórnmála-
sambandi landanna slitið. Benti
hann á, að brezkar og franskar
(Framhald á 2. siðu.)
ÞingiíS sitii á fundi þar
tii bardögum vertii bætt
Allsherjarþlng S. b. knm sam-
an til íundar i kvöld undir mið-
næíti. Forsetinn Ortega frá Chile
seítl fundinn með 1 mínútu þ'ign
til bænar og þenkingar. Sam-
þykkt var með (52 atkvæðum gegn
2, en 7 sátu hjá, að ræða árásina
á Egj'pta. FuIItrúar Breta og
Frakka árkildu sér rétt til að
hafa að engu samþykktir þings-
ins í m.'linu og efuðu lögmæti
afskipta þer.s af því. Fulltrúi Eg-
ypta, Gmar Loufti, tók fyrstur til
máls. Krafðist liann þess að þing
ið fordæmdi árásaraðilana og
byndi þegar endi á hernaðarað-
gerðir.
Fyrstur af samveldislöndunum
talaði fuIKrúi Ceylon. Hann for-
dæmdi algerlega árás Breta og
Frakka og kvað ótrúlegt ábyrgðar
leysi feiast í henni.
Þá talaði fulltrúi Breta langt
mál. Taldi aðgerðir Breta og
Frakka réUlæíanlcgar vegna þess
að þær myndu íeiða til Iausnar
Palestínuvandamálsins og binda
endi á hið óvissa ástand þar
eystra.
Þá tataði Dulles og baS
þingSS áð krefjast þess aS
deiluaðilar hættu bardögum
þegar í staS. Krafðist hann
þess, að þingið sæti á fundi
þangað til aðilar hefðu orðið
við þeirri kröfu.
Egypzki herÍKO á Smaískaga sagðiír á skípu
lagslausum flótta. Stöðugar loftárásir Breta
og Frakka á flugvelli
sökbt í SéezskisrSi cg siglkg
ar um skiirSiim algerlega stöðvaSar -
London og Kairó, 1. nóv. — Herskip Breta og Frakka voru
á leið til Súezeiðis í kvöld með landgöngusveitir, sem eiga að
hernema Súez-svæðið til að byrja með, hvað sem síðar verður.
Skipin nálgast eiðið bæði frá Miðjarðarhafi og Rauðahafi.
Ekki hafði frétzt um landgöngu kl. 11 skv. ísl. tíma. Egypzki
herinn er á skipulagslausum flótta á Síanískaga, að því er
ísraelsmenn segja. Bretar halda áfram loftárásum á flugvelli
og herstöðvar. Segja þeir flugher Egypta eyðilagðan. Sagt er,
að nokkrir tugir manna hafi farizt í loftárásum þessum. Árás-
in á Egypta er fordæmd í fiestum löndum heims. Allsherjar-
þingið kom saman til fundar í kvöld og var byrjað að ræða
málið á 11. tímanum. Vera má, að fulltrúar Breta og Frakka
gangi af fundi, ef samþykkja á vítur á Breta og Frakka fyrir
ofbeldisárás.
. sveitir Egypta. Seinni hluta dags
Yfirmaður brezku og frönsku útvarpið í Tel Aviv áskorun
herjanna, sem sækja að Egyptum,
Sir Charles Keightley sagði á Kýp-
úr í dag, að hann hefði yfir að
ráða öflugum her og yrði því hægt
að beita sér að framkvæmd hern-
aöaraðgerðanna af miklum krafti.
En við vonum, sagði hershöfðing
inn, að við neyðumst ekki til að
beita þessum mikla herafla.
fsraelsmenn sækja að austan.
Samtímis sækja ísraelsmenn að
Súez-skurðinum að austan úr Sín
aí-eyðimörkinni. Virðast þeir þar
hafa betur í viðureigninni við her-
Rússneskar hersveitir flykkjast inn í Ung
verjaland og slá Járnhring’ um Biídapest
Ungverska stjórnin íýsir yfir, að Ungverja-
land sé nú sjáífstætt, ófiáð og lifutlaust lýð-
ræðisríki. - Segir sig úr Yarsjárbandalagimi
Vín í gærkveldi. (NTB). — Þau tíðindi gerðust í Ungverja-
landi í dag, að Imre Nagy forsætisráðherra lýsti yfir, að Ung-
verjaland hefði sagt sig úr Varsjár-bandalaginu og lýsti yfir
að landið væri hér frá sjálfstætt, óháð og hlutlaust lýðræðis-
ríki. Þá hefir stjórnin sent sérstakan boðslcap um þetta til
S. Þ. og skorað á stórveldin fjögur að vernda sjálfstæði og
lilutleysi landsins. — Fregnir bárust hins vegar um það í
kvöld, að rússneski herinn hefði umkringt Búdapest og tekið
alla helztu flugvelli á sitt vald, einnig að skriðdrekasveitir
rússneskar hefðu enn farið inn í landið.
! >
Nagy sendi orðsendingu sína
sem formlegan boðskap til Dag
Hammarskjöld, framkvæmdastjóra
S. Þ. Jafnframt fylgdi áskorun um
að allsherjarþingið tæki mál Ung-
verjalands þegar fyrir, er það kem-
ur saman.
Þá hefir Nagy snúið sér beint
til Vorosjolovs forseta Ráðstjórnar-
ríkjanna og farið þess á leit að
hann tilnefndi þegar nefnd til
samninga við Ungverja.
Rússneskur her flykkist að.
í dag tóku að berast fregnir um,
að rússneskar vélahersveitir héldu
inn í Ungverjaland, aðallega úr
norðaustri. Nagy kallaði rússneska
sendiherrann þegar á sinn fund og
bað um skýringar á því, en þær
munu ekki hafa legið á lausu. í
gærkveldi bárust frekari fregnir
um þetta, og var sagt, að rússnesk-
ar hersveitir kæmu einnig frá
Búlgaríu og Rúmeníu.
Anna Kethley
Járnhringur um Búdapest.
Þá bárust fregnir um, að rúss-
neskar skriðdrekasveitir liefðu
slegið „járnhring" um Búdapest
og tekið ýmsa liernaðarlega inik-
ilvæga staði þar og víðar um
landið, þar á meðal flugvöll
Búdapest og fleiri borga.
Svissnesk flugvél, sem fór til
Búilapest ineð blóðvatn í dag,
fékk leyfi til að lenda, en ekki
til að fara aftur, og var áhöfnin
handtekin og kyrrsett.
Mannmergð á götum.
Eftir að fregnir bárust um að-
streymi rússnesks hers til landsins
tók mannfjöldi að safnast saman á
götum höfuðborgarinnar, og mikil
; ókyrrð og óvissa var ríkjandi. Víða
á götum mátti sjá brennur, og var
þar verið að brenna rússneskar og
kommúnistiskar bókmenntir. Lík
borgara og rússneskra og ung-
; verskra hermanna liggja enn sums
i staðar á gangstéttum og götum.
Nýr komniúnistaflokkur
stofnaður
Kommúnistar í Ungverjalandi
hafa stofnað nýjan flokk í land-
inu. Frú Anna Kethly, sem undan-
farið hefir verið í haldi og er nú
67 ára að aldri hefir verið kosin
formaður sósíaldemokratiska
flokksins. Þá er sagt, að Mikojan,
varaforsætisráðherra Rússa sé nú
á leið til Búdapest í annað sinn.
til egypzku hersveitanna um að
gefas upp, þar eð aðstaða þeirra
væri vonlaus. Þær væru algerlega
innikróaðar.
Flugher Egypta eyðilagður.
Útvarpið í Tel Aviv hélt því
einnig frain, að Flugher Egypta
væri ur sögunni. Árásir brezkra
og franskra flugvéla hefðu skot
ið niður eða eyðilagt á flugvöllum
nær allar flugvélar þeirra. Skv.
brezkum heimildum voru fjórir
herflugvellir eyðilagðir í gær og
ídag var haldið áfram árásum á
flugve’li við Súez-skurðinn og við
Nílarósa. Segja flugmennirnir, að
mikill fjöldi flugvéla hafi verið
eyðilagður á jörðu niðri, þar á
meðal margar Mig-þrýstiloftsflug
vélar frá Sovétríkjunum.
Fregátu sökkt í Súez-skurð.
Egypzka yfirhersstjórnin tilkynn-
ir, að öll umferð um Súez-skurð
sé stöðvuð vegna þess, að brezkar
og franskar flugvélar hafi varpað
sprengjum á egypzka fregátu á
skurðinum og sökkt henni þar.
Egyptar flýja í Sínaíeyðimörkinni.
Um kl. 7 skv. ísl: tíma var til-
kynnt., að herstöð Egypta við Hafa
í Gaza-eyðimörkinni væri fallið.
(Framhald á 2. síðu.)
Nehrú biður Eisen-
hower að forða
heimstyrjökl?
Washington, 1. nóv. — Þrálát-
ur'orðrómur gekk um það í dag,
að Nehrú forsætisráðherra Ied-
Iands hafi skrifað Eisenhower
forseta bréf og beðið hann að
beita öllum áhrifum sínum til
þess að koma í veg fvrir, að styrj-
öldin fyrir botni Miðjarðarhafs
yrði að heimsstyrjöld, en á því
telöi hann hættu. Eisenliower for
seti sat á fundi með landvarna-
ráði Bandaríkjanna í dag og
ræddi ástandið í Egyptalandi. —
Nelirú er sagður hafa rætt í dag
við sendimenn 28 ríkja í New
Dehli.