Tíminn - 01.12.1956, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.12.1956, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, laugardaginn 1. desember 1956. Fjórða bindi þ jóSsagna Jóns Arna- sonar er komiS ól, eltt bindi eftir i Hér er um hina merkilegustu og vönduíustu útgáfu a<$ ræ<Sa, allt verkið um 3500 bls. Út er komið fjórða og næstsíðasta bindi af Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Er þetta bindi um 700 blaðsíður, en verkið allt mun verða um 3500 blaðsíður. Gunnar Einarsson og Haf- steinn Guðmundsson, fyrir hönd útgáfunnar Þjóðsaga, sem gefur verkið út, og Bjarni Vilhjálmsson, sem býr verkið til prentunar ásamt Árna Böðvarssyni, ræddu við blaðamenn um útgáfuna í gær. Tvö fyrstu bindin voru að mestu endurprentun á fyrri útgáfum af þjóðsögum Jóns Árnasonar, en þó endurskoðuð nokkuð. Þetta var þó ekki nema minni hluti þess safns, sem Jón viðaði að sér og lót eftir sig í 30 binda handritasafni, sem geymt er í Þjóðskjalsafninu. Þrjú bindin, sem við er bætt, geyma sagnir úr þessu safni. í þriðja bindinu, sem út kom í fyrra, hófst viðbótin og var efni raðað niður af sömu skipan og Jón hafði haft í sinni útgáfu. Voru þar goðafræðisögur af álf- um, tröllum, vættum o. fl. drauga- og galdrasögur. Þetta fjórða bindi hefst á nátt- úrusögum, og síðan koma helgi- sögur, viðburðasögur oð útilegu mannasögur. Loks er upphaf að ævintýrum, aðeins einn þáttur, svonefndar stjúpusögur, en ann- ars verða ævintýrin meginþáttur síðasta bindis, sem út á að koma næsta ár en hefir einnig að geyma skrár um atriðisorð og mannanöfn. Þessi mikla útgáfa af íslenzkum þjóðsögum frá fyrri öldum er í senn við það miðuð, að hún sé að gengilegur lestur öllum almenn- ingi og náma fræðimanna í þessum efnum. Sögurnar eru birtar á því máli, sem þær eru skráðar á, og engu breytt nema stafsetningu og beinum málvillum. Myndir eru í öllum bindunum, í þessu er mynd af útilegumannakofa úr Hvanna- lindum, og auk þess rithandarsýnis horn hinna helztu þjóðsagnaritara, sem sögur bindisins hafa skráð. Þá eru í bindinu gamlir galdrastaf ir við upphöf kafla, og hefir Haf- steinn Guðmundsson skýrt þá upp. Eru þetta galdrastafir, sem áttu að hafa þá náttúru, að væru þeir ristir á hauskúpu af manni og síðan sofið á, dreymdi þann sem á svaf það, er hann vildi helzt vita. Margir eru þeir þjóðsagnarrtar ar, sem lagt hafa hönd að þesu mikla verki fyrr á árum. Yngstur þeirra er Páll Pálsson, sonur-Páls Sigurðssonar alþingismanns í Ár- kvörn, og var hann 11—12 ára þegar hann ritaði sagnasyrpu sína eftir gömlum konum. Mun það safn vera harla merk heimild um hinn raunverulega frásagnarhátt þjóð- sagnanna, því að meiri hætta er á, að eldri og skriftlærðari menn hafi fært sögurnar til hefðbundn- ara ritmáls. Við þíirfum ekki nýjan Marx (Framhald af 6. síðu) augum fólksins, sem er farið að sækja fast á að fá aukið frelsi. í Póllandi ganga blöð og ræðumenn miklu lengra en Gómúlka heflr þorað að taka undir, og í Ungverjn- landi heldur ekkert stjórninni við völd nema rússnesk vopn og neyð- arástandið. Þannig er viðhorf Sovétríkjanna mótsagnakennt og fálmkennt, það er eins og þeir viti ekki, hvar þeir eiga að bera niður að sinni, og út- koman er líka verri en efni ann- ars standa til. „Það þarf að skrá sögu rússneska hcimsveldisins. Til þess þurfum við ekki nýjan Marx heldur annan Tacitus“, segir Man- chester Guardian að lokum í þess- ari atliyglisverðu ritstjórnargrein. Fjölsóttur aðalfundur Framsóknar- j félags Borgarfjarðarkjördæmis J ASalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðarkjördæmis og almennur flokksfundur Framsóknarmanna í Borgarfjarðar- sýslu og á Akranesi var haldinn á Akranesi síðastliðinn sunnu- dag. Þórir Steinþórsson, skólastjóri í Reykholti, var fundar- stjóri en Guðmundur Björnsson kennari, Akranesi, fundar- ritari. Daníel Ágústínusson bæjarstjóri, formaður félagsins gerði grein fyr- ir störfum félagsins á síðasta starfs ári. Félagið hefir starfað mikið á árinu og fálagatala aukizt. í stjórn félagsins voru kjörnir: Daníel Ágústínusson, Akranesi for maður, Ingimundur Ásgeirsson Hæli, ritari, Guðmundur Björns- son , gjaldkeri, Þórir Steinþórs- son Reykholti, varaformaður og Þorgrímur Jónsson Kúldudalsá meðstjórnandi. Varamenn voru kjörnir Jón Þórisson Reykholti og Þórhallur Sæmundsson Akranesi. Endurskoðendur voru kjörnir Jón Pétursson og Kristján Jónsson Akranesi. Þá var kosið trúnaðar- ráð og skipa það einn maður úr hverjum hreppi og einn til vara. Er það skipað þessum mönnum: Gestur Jóhannesson Giljum og Magnús ÍColbeinsson Stóra-Ási í Hálsasveit. Sturla Jóhannesson Sturlu-Reykjum og Björn Jónsson Deildartungu, Reykhoitsdal. Krist- ján Davíösson Oddstöðum, Þor- steinn Kristjánsson Gullberastöð- um, Lundareykjadal. Sigurður Dan íelsson Indriðastöðum og Guðm. Stefánsson Fitjum, Skorradal, Jón Jakobsson Varmalæk og Sigvaldi Jónsson Ausu Andakíl. Eyjólfur Sigurðsson Fiskilæk og Kristinn Júlíusson Leirá, Leirársveit. Guð- mundur Brynjólfsson Hrafnabjörg um og Guðmundur Jónasson B.iart eyjarsandi Strandarhreppi. Guðm. Þorsteinsson og Magnús Símonar- son Stóru-Fellsöxl Skilmannahr., Ellert Jónsson Akrakoti og Ágúst Halldórsson Sólmundarhöfða Innra Akraneshreppi, Jónas Márusson og Bjarni Th. Guðmundsson, Akra- nesi. Bezt að auglýsa í TÍMANUM f tsskápar, margar gerði Þvottavélar, Hrærivélar Rafmagnspottar Rafmagnspönnur Steikarofnar, sérstakir 5AW-4896 Lampar - Vegglampar - Standlampai margir tugir gerða ronur LAUGAVEG 103 ÖÖ6LJi>ii

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.