Tíminn - 13.12.1956, Blaðsíða 1
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriítarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
40. árgangur.
12 síður
Reykjavík, fimmtudaginn 13. desember 1956.
f blaðinu í dag:
Vettvangur æskunnar, bls. 5. j
Bækur og höfundar, bls. 8.
Um Grikki og Kýpur, bls. 6.
Menningarsamtök Héraðsbúa,
bls. 7.
284. blað.
OMuskipið HamrafeSl
20 milljón króna tjón hlauzt af
drættinum að leyfa kcup oiíuskipsins
Nú er veriS a8 dæla í land fyrsta olíufarminum, sem Hamrafall flytur vil
hndsins og er skipiS farið aS léttast á sjónum eins og sjá má á myndinni,
sem var tekin í gær inn viS Laugarnes. (Ljósm.: Sveinn Sæm.)
Hanmiarskjöltl íeggnr áherzlu á
mikilvægi lögregliisveita S. þ.
Helmingur brezk-frönsku herjanna á brott
úr Egyptalandi
Fyrst var sótt um leyfi til kaupaeua í
maí 1953, en staSiS var í vegi fyrir
kaupuimm af íslenzkum valdamönn-
|angað til í árslok 1955
Nokkur atriíi úr ræíu Hjartar Hjartar
framkvæmdastjóra viÖ komu skipsins
Af drættinum einum saman hlauzt 20 miljón króna tjón.
• Það tók íslenzka valdamenn nærri 3 ár að átta sig á því, að
' andspyrna gegn framtaki samvinnufélaganna var um leið
andspyrna gegn mikilvægum þjóðarhagsmunum. En biðin
varð dýr. — Þessar upplýsingar komu fram í ræðu, sem
Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri skipadeildar SÍS flutti
í móttökuveizlu, er eigendur Hamrafells héldu í Þjóðleik-
húskjallaranum á mánudaginn í tilefni af komu skipsins. í
ræðu sinni komst framkvæmdastjórinn m. a. svo að orði:
New York—NTB, 12. des. —
Burns, yfirhershöfðingi S. Þ. í
Egyptaland'4, flutti í dag aðal-
bækistöðvar sínar til bæjarins
E1 Balasj á Súez-eiði. í því. til-
efni las hann fyrir hermönnum
sínum ávarp frá Dag Hammar-
skjöld.
í ávarpi þessu brýnir Hammar-
skjöld það fyrir hermönnunum, að
mikið sé i húfi fyrir framkomu
þeirra, þeir séu .hermenn friðarins
og hlutverk þeirra annars konar
en nokkurra annarra, sem áður
hafi borið vopn. Takist ykkur vel,
sagði Hammarskjöld, mun það
hafa stórkostleg áhrif til góðs, ekki
aðeins í þessu máli, heldur mun
gifta ykkar nú leiða til þess, að
okkur tekst ef til vill að tryggja
lög og rétt í heiminum framvegis.
Yfirhershöfðingi brezk-franska
hersins á Súez-svæðinu íilkynnti
í dag, að brottflutningur herja
sinna gengi mjög vel, hefði nú
helmingur alls liðsins verið flutt-
ur á brott.
„.... Framfaraspor seinustu
áratuga eru mörg og stór. Upptaln-
ing, því til sönnunar, er óþörf.
Staðreyndirnar tala sínu máli.
Margur framandi undrast hverju
fámenn þjóð hefir hér fengið á-
orkað, og gjarna er spurt hvað
valdi góðum árangri.
Óyggjandi svar verður vart gef-
ið. Hitt er ljóst, að harðbýlt land
og hrjóstrugt hefir á vissan máta
hert til dáða, og að margur hefir
lært, að samstaða er lífsnauðsyn,
eigi fámenn og fátæk þjóð að ná
nokkrum teljandi árangri.
Reynslan sannar þetta þráfalld-
lega.
Er okkur ekki öllum ljóst, að
Kommúnistar hafa fangelsað
verkalýðsleiðtoga Ungverja
3000 verkamenn og verkaiýðsleiðtogar
hnepptir i dýfiissur Rússa og leppa
þeirra á þrem dögum
Hungursneyð yfirvofandi i landinu
mnan
London-Búdapest-NTB. 12. des.:
Allsherjarverkfallið var algert í
dag, en því á að Ijúka á iniðnætti
í nótt. Flestar verzlanir í Búda-
pest voru lokaðar í dag, en hús-
nueður biðu klukkustundum sam
ÍIÍ veður á togaramið-
um og afli lítill
Frá fréttaritara Tímans á
ísafirði.
Togarinn ísborg landaði hér 70
lestum af fiski og Marz frá Reykja
vík 60 lestum í dag. Veður hafa
verið ill á togarmiðum og afli því
lítill. Samgöngur eru hér lélegar.
Flugferðir hafa legið niðri um
sinn vegna veðurs, og í gær t. d.
sneri flugvélin, sem hingað átti
að fara, við vegna veðurs. GS.
an í biðröðum við flutningabíla
til þess að reyna að fá brauðbita.
Umferð um borgina var með
allra minnsta móti í dag. Víðs-
vegar um Búdapest mátti heyra
vélbyssuskothríð og jafnvel stór-
skotahríð og samkvæmt frétta-
stofufregnum kom oft til átaka
á milli andstæðinga leppstjórn-
arinnar við stuðningsmenn henn
ar og rússneska hermenn.
Mörg hverfi borgarinnar voru
girt af í dag og gerð í þeim ná-
kvæm leit að vopnum.
Utvarp leppstjórnarinnar flytur
sífellt áskoranir til verkamanna
um að hefja vinnu á ný, það sé
grátlegur misskilningur, segir út
varpið, að það verði til þess að
Rússar fari úr landi með her sinn,
það séu fazistar og afturhalds-
sinnar, sem standi á bak við þetta
verkfall og verði engum nema auð
valdssinnum og gagnbyltingarmönn
um til gagns.
BARIZT AF IIÖRKU
VIÐ PECS.
Þær fregnir hafa borizt til Bel-
grad, að undanfarna 3 daga hafi
3000 manns verið handteknir í
Ungverjalandi og þar á meðal
séu allir helztu leiðtogar verka-
mannaráðanna. 133 þúsund
flóttamenn hafa nú komið til
Austurríkis frá Ungverjalandi og
enn heldur straumurinn áfram.
(Frami.ald á 2. síðu.)
Djilas dæmdur í 3ja
ára fangelsi
Belgrad, NTB. 12. des.: Fyrrver
andi varaforseti og forsætisráð-
herra Júgóslafíu, Milovan Djil
as, var i dag dæmdur í þriggja
ára fangelsisvist í Belgrad, eftir
að rétturinn hafði Iýst liann sann
an að þeim sökum er á liann voru
bornar. Djilas var sakaður um að
hafa rekið fjandsamlegan áróður
gegn stjórn landsins og gefið er
iendum mönnum rangar upplýs
ingar um stjórnarfarið í iand-
inu. Réttarhöldin fóru fram fyr-
ir luktum dyrum að öðru leyti en
því, að nokkriun útvöldum blaða
mönnum og fulltrúum stjórnar
innar var veitt iimganga.
enginn einstaklingur á íslandi
hefði getað keypt olíuskipið
„Hamrafell“?
Það þurfti sterk samtök
Oiíufélagsmanna og Sam-
bandsfólksins til a3 skip
þetta yrði íslenzk eign, sem
sigla mætti um heimsins höf
og bera fána samvinnuflot-
ans og okkar fagra þjóðfána.
Þegar á það er litið og við
það miðað, að „Hamrafell"
kostaði nær 50 miljónir, sést
að ekkert eitt átak er stærra,
engin einstök framkvæmd,
sem til hefir verið stofnað á
íslandi er stærri þessum
kaupum, nema Áburðarverk-
smiðja ríkisins og Sements-
verksmiðjan.
Ég vænti, að það teljist viðeig-
andi og jafnvel gagnlegt að rifja
upp við þetta tækifæri nokkur at-
riði og staðreyndir, sem nú liggja
að baki, sérstaklega ef vera mætti
til framtíðargagns, þegar við á-
þekk verkefni er fengist.
Það þurfti að berjast á tvenn-
um vígstöðvum og vinna sigur á
báðum til þess að „Hamrafell"
yrði íslenzk eign.
Orrustan hér heima
Þótt ótrúlegt megi virðast, reynd
ist langsóttara að vinna orrustuna
hér heima en hina, sem erlendis
varð að heyja, þegar við glímdum
við að efla íslenzka skipastólinn
og færa á nýtt svið með kaupum
á stóru olíuflutningaskipi.
Vilhjálmur Þór sem forstjóri
Sambands ísl. samvinnufélaga og
formaður Olíufélagsins h. f. gat í
ársbyrjun 1953 tryggt, að félög
þessi eignuðust stórt olíuflutninga
skip og sótti um leyfi til að mega
hefjast handa þann 9. maí 1953.
Ekki fékkst þá leyfi viðkomandi
yfirvalda, og á því ári var fjórum
sinnum sótt um leyfi til kaupa eða
! byggingar og reksturs olíuflutninga
skips.
Á árinu 1954 var enn haldið á-
fram að reyna að fá heimild til að
ráðast í kaup á olíuskipi, en án
árangurs, og það var ekki fyrr en
í árslok 1955 að leyfi fékkst loks
til framkvæmda eftir nær þriggja
ára þrotlausa baráttu.
Á meðan leið tíminn og mörg
tækifæri glötuðust til hagstæðra
samningagerða. Sérstaklega var
skaðlegt að hafa bundnar hendur
á árunum 1953 og 1954, því þá
voru fragtir lágar og minni ásókn
á skipasmíðastöðvar en áður og
síðar og þá að sjálfsögðu um leið
sterkari samningsaðstaða kaup-
enda.
Happ fyrir þjóðfélagið
Þegar framkvæmdafrelsi okkar
var ekki lengur heft, var lagt til
næstu orrustu, og fvrir margra
manna tilstuðlan náðist að festa
kaup á því glæsta skipi, sem siglt
hefir verið farsællega aí í Tenzk-
um sjómönnum í 2% mánuð og r.ú
liggur fyrir festum á Reykjavíkur-
höfn.
Það er sérstakt happ fyrir þjóð-
félagið í heild, að skip þetta skuli
einmitt nú vera íslenzk eign.
Válegir atburðir hafa gerzt í ver-
öldinni. Allir, sem hér eru, þekkja
þá og vita hver áhrif þeir hafa
haft á olíuflutninga til Evrópu.
Sá voði blasir við, að orkuver og
iðnaður margvíslegur á meginland-
inu verði fyrir verulegum truflun-
um eða jafnvel stöðvist, sökum
örðugleika á flutningi olíu. Á öld
vélamenningar eru slíkir hlutir
næsta alvarlegir.
Þeir eru það ekki sízt fyrir okk-
úr, sem búum við hið nyrzta haf
og höfum engan annan aflgjafa
fyrir bátaútveg, samgöngutæki og
ýmis konar vélar en olíu flutta um
langan veg.
Þráfaldlega hefir erfiðlega geng
ið með að fá leigð skip til íslands-
ferða. Aldrei hefir þó alvarlegar
horft en nú fyrir nokkrum dög-
um, og auðsætt var þeim, sem á-
byrgð bera í þjóðfélaginu, að hefði
ekki „Hamrafell" verið íslenzk
eign og tilbúið til að flytja olíu til
landsins, var þjóðfélaginu svo al-
varlegur vandi á höndum, að vart
varð séð, hver úrræði dyggðu.
Heimkoma „Hamrafells“ hlýtur
því að vera einmitt nú margfallt
fagnaðarefni.
Við teljum okkur hafa ríka á-
stæðu til að þakka þeim, sem á
einn eða annan hátt hafa að því
stuðlað, að sjöunda samvinnuskip-
ið hefir nú bætzt í kaupskipaflota
íslendinga. Flaggskip íslenzka flot-
ans, sem í einni ferð flytur til
landsins nær tvöfalt magn það,
sem hin 5 samvinnuskipin, sem í
millilandaferðum eru, færa til
landsins í einni ferð.
20 miljón króna tjón
Fyrst mun rétt að þakka fyrr-
verandi ríkisstjórn íslands. Það
má telja það þakkarvert, að ekki
stóð þó lengur en raun ber vitni
um á, að meirihlutavilji fengist fyr
ir því að leyfa Olíufélaginu og
Sambandinu að kaupa þetta skip.
(Framh. á 2. síðu.l
Sölur togaranna í
Englandi og Þýzkal.
Undanfarna daga hafa nokkrir
íslenzku togaranna selt afla sinn í
Englandi og Þýzkalandi og sá síð-
asti þeirra, Þorsteinn Ingólfsson
selur í Grimsby í dag.
Togarinn Gylfi seldi í Cuxhafen
sl. mánudag 201 lest fyrir 92200
mörk. Harðbakur seldi í Aber-
deen í fyrradag 2883 kt. fyrir
7955 sterlingspund.
Skúli Magnússon seldi í Ham-
borg í gær 192 lestir fyrir 97532.
Röðull seldi í Hamborg í gær
242 lestir fyrir 121.126 mörk.
Þorsteinn Ingólfsson selur í dag
í Grimsby og er það síðasta sala
togaranna fyrir jól.