Tíminn - 09.01.1957, Síða 6

Tíminn - 09.01.1957, Síða 6
6 TÍMINN, miSvikudaginn 9. janúar 1957« ðtgeíandi: FramsóknarflokkurLnn. Ritstjórar: Haukur Snorrason Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur I Eddubúsl viS Lindargötu. Símar: 81300. 81301, 81302 (ritstj. og blaðamena), suglýsingar 82523, aígreiSsla 2323. PrentsmiSjan Edda h.f. „B^Saþeyrá og norSangarSur VESTRÆNIR fréttamenn í Moskvu hafa símaö blöðum sínum nú um nýárið, aö stærsta pólitíska spurning hins nýja árs þar, sé, að þeirra dómi, hvort rússnesku leiðtogarnir hafi ákveðið að endurreisa Jósef Stalín. Enn sem komið er, verður spurn- ingunni hvorki svarað ját- andi né neitandi, en ýmis teikn eru samt á lofti, sem í Moskvu hafa ekki verið alls kostar ánægðir með allan ár- angur af því umróti, er þeir komu af stað þegar Stalin var felldur af stalli í fyrra. Síðan hafa oröið miklar sprenging- ar í leppríkjunum, og innan sjálfra Ráðstjórnarríkjanna hafa orðið umræður, sem hafa jafnvel leitt til þess að sjálfur flokkurinn og stefna hans hefur sætt gagnrýni. í benda til þess að breyting sé. leppríkjunum skutu frelsis- í aðsigi. Stærst þeirra eru ummæli Krúsjeffs í skálaræðu á gaml árskvöld, þar sem hann lof- aði Stalin í áheyrn allra helztu valdamanna landsins og sagði: „Við erum allir Stalinistar“ í baráttunni gegn andstæðingum komm- únismans. Þessi ummæli komu ekki öllum á óvart. Skömmu áður hafði „Pravda“ endurprentað ritstjórnar- grein úr blaði kínverska kommúnistaflokksins þar sem því var haldið fram, að „þjónusta" Stalins við „verka lýðinn“ væri þyngri á met- unum en „mistök“ hans. HÉR VAR UM MIKLA breytingu að ræða í viðhorf- inu til Stalins, síðan á 20. flokksþinginu í Moskvu í fyrra, er Krúsjoff sagði þing- heimi að Stalin hefði verið geðbilaður glæpamaður. En á gaiplárskvöldi sagði hann aft ur á móti, að Stalin hefði verið „maður framkvæmd- anna“ og slíkir menn hlytu jafnan að verða valdir að mis tökum en Stalin hefði þó gert meira gott en illt. Þessi brífyt ing á túlkun minnir á stór- atburðina, sem gerzt hafa á yfirráðasvæði kommúnista á þeim 10 mánuðum, sem liðn- ir eru frá því að flokksþing- ið var haldið. Lengst af síðan hefur áherzla verið lögð á hin slæmu áhrif frá stjórn- artíð Stalins. Menn hafa keppst við að kenna honum um allt, sem miður hefur íarið. Það var ekki skipulag- inu að kenna, sögðu þeir þá, heldur persónu Stalins, sem lét dýrka sig eins og yfirmann lega veru. ÞAÐ ER NÚ ljóst fyrir hokkru, að stjórnarherrarnir kröfur upp kollinum jafn- skjótt og Stalinsdýrkunin var afnumin og slappað var á ógnartaumunum. Upp úr því róti komu leiðtogar, sem voru þjóðlegir fremur en rússneskir í sínum kommún- isxna, í Rússlandi sjálfu fóru listamenn Og menntamenn að láta á sér bæraVÍTÖfðúst frelsis til að vinna að list- sköpun án flokkslegra fyrir- skipana, og námsmenn létu út úr sér algerlega óleyfileg- ar spurningar um sannindi sumra kennisetninga komm- únismans. En þessi „bráða- þeyr“ varð ekki langvinnur. Kommúnisti í 26 ár, en er búinn að íá nóg af einræðisbrölti flokksstjórnar Kunnur danskur ílokksma'Sur sakar Rússa j mn að hafa eyftilagt „friðarlireyfmg!ma“ Nýlega gaf danska kommúnistablaðið Land og Folk út fylgiblað og flytur það greinar eftir ýmsa flokksmenn um þær þrautir, er kommúnistaflokkar ganga nú í gegnum og um atburðina fyrir austan járntjald. Meðal þessara greina er alllöng greinargerð eftir kunnan danskan kommúnista, Edvard Heiberg arkítekt, sem verið hefir „fé!agi“ í 26 ár, en rís nú upp gegn flokksleiðsögunni, sem hefir til þessa verið á rússnesku línunni og hefir túlkað Ungverjalands- málin þannig, að margir kommúnistar hafa sagt sig úr flokknum. í grein «inni ræðir Heiberg um afskipti Rússa af uppreisninni í Ungverjalandi og rekur söguna frá 4. nóvember, er rússneski herinn kom til skjalanna í annað sinn. Var þessi íhiutun gagr.Ieg fyrir sósíalis mann? Heiberg spyr. Hann svarar sjálfur, að sá sósíalismi, sem eigi að neyða upp á ungversku þjóðina, með tilstyrk útlendra hersveita, sé andvana fæddur. Og slíkt athæfi sé í algerri mótsögn við yfirlýsta stefnu danska kommúnistaflokks- ins, sem krefjist þess, að meirihluti þjóðar ráði stefnunni. Heiberg tel- ur því, að stjórn kommúnistaflokks ins hefði átt að lýsa því yfir, skýrt og skilmerkilega, að hún væri alger lega andvíg starfsaðferðum Rússa, en í þess stað sveigði flokkurinn stefnuna að aðgerðum Rússa eins og venjulega. Heiberg telur, að á- stæða til þess að rísa upp'geg'n þessu athæfi hafi verið enn ríkari en ella, vegna þess, að á 20. flokks þingi kommúnista í Moskvu, var gert ráð fyrir sjálfstæðari starfs- aðferðum kommúnistaflokkanna eyðiiaggjandi hreyfinguna. fyrir fríðar- Norðangola flokksleiðsögunn y£irleitt- Þá varpar Heiberg fram ar fóru aftur yfir landið. - ^eirri ?Pu/nin^’ hv°rt ,íhlutun Frelsi til að skapa, þýddi ekki Russa hafl venð nauðsynlcg vegna að menn væru lausir við leið- sögn flokksins. Nú ber frétta mönnum í Moskvu saman um, að aftur hafi verið hert á eftirliti með listamönnum og er nú meira talað um „eitruð áhrif borgaralegra þjóðfélaga“ en var um skeið. ÞAÐ ER ENN ekki ljóst, hvað leiðtogarnir ætla sér fyrir með Stalin. Hvort á að endurreisa hann, eða hvort ætlunin er að draga úr áhrif- um fordæmingarinnar vegna reynslunnar, sem fengin er. í vestrænum flokkum virðast menn þegar verða varir við að „bráðaþeyrinn" sé geng- inn yfir, og norðangarður stalinismans sé í uppgangi. Leiðtogar þessarra flokka eru flestir stalinistar, og þaul- æfðir í heljarstökkum. En liðsmenn eru ekki eins lið- ugir, og þeir snúa baki við flokknum. Hvað sem ofan á verður í flokknum er ljóst, að kommúnistahreyfingin verður aldrei söm aftur. Stal- in og ungverska uppreisnin hafa steypt henni af stalli. Ný tækni við íiskverkun friðarins, eins og haldið sé fram. Þetta telur hann kjarna málsins. Hann segir frá því, að á síðustu árum hafi hann einkum miðað pólitísk afskipti sín við að gagna friðarhreyfingunni. Hann hafi af heilum hug stutt yfirlýsingar um að samningar eigi að leysa vald beitingu af hólmi. Hann hafi talið að sú kenning gilti ekki aðeins fyrir annan aðilann, heldur báða. Og Heiberg segist vera þeirrar skoð- unar enn. Þegar hann lítur yfir sögu at- burðanna, er honum ómögulegt að koma auga á að árás Rússa á ung- versku frelsishreyfinguna hafi ver- ið nauðsynleg til að fyrirbyggja stríð. Þessu er cinmitt öfugt farið, segir hann. Árás rússnesku her- sveitanna í Ungverjaland gæti hafa kallað á íhlutun utan frá.' Heiberg getur ekki betur séð en „friðar- hreyfingin", sem ýmsir kommún- istar státuðu mjög, sé dæmd til þess að verða óvirk uin langa fram- tíð. Og öll sú þróun, sem orð- in var á leiö fil bættra sam- skipta og gæti hafa leitt til afvopnunar, gufaði upp á einni nóttu. Framkvæmd jesúítareglunnar í friðarmál- unum er ekki aðeins sið- ferðilega fordæmanleg held- ur jafnframt gjörsamlega Hræ^ilan vij „frávikm<<: í seinni hluta greinargerðar sinn ar ræðir Heiberg um þá möguleika sem flokksrnenn í kommúnista- fiokki hafa til þess að lcoma skoð- unum sínum á framfæri, og kemst að þeirri niðurstöðu, að þeir séu sáralitlir. Hann segir: maður í 26 ár og hefi búið við margvíslegar ofsóknir frá hendi andstæðinganna. Ég hefi sjaldan verið í andstöðu (við flokks- línuna). Þess vegna verður mér e.t.v. meira um það en ella, þeg ar ég er nú kominn í þessa að- stöðu, hversu óskaplega það er erfitt að koma sjónarmiði sínu á framfæri ef það fellur ekki heim við stefnu flokksstjórnar- innar . . . Sá, sem er á önd- verðri skoðun, hefur að kalla enga möguleika til að koma máli sínu á framfæri að löglegum leið um. Sérhver gagnrýði verður að koma sem fyrirskipun að ofan. Það er flokksfélag, héraðsstjórn og flokksþing. Hér er allt það hernaðarlega skipulagða tæki, sem við höfum fengið að erfð- um frá hreyfingu, er stóð í „ . . . Ég hefi verið flokks- HEIBERG j miðju borgarastríði er gilti líf og dauða, en við höfum yfirfært til friðsamlegra aðstæðna í okk ar landi . . . “ Heiberg hvetur til þess að næsta flokksþing geri þannig upp málin, og ólýðræðislegar starfsaðferðir, sem eru verndaðar í flokknum og eru þegar hefðbundnar, verði úti- lokaðar. Flokksþing eiga að á- kveða aðalstefnuna, en um leið ganga þannig frá málum, að ekki verði þolað að flokksstjórn „hugsi fyrir flokksmennina" og beiti kúg- un alla þá, sem öðruvísi hugsa. (Framh. á 10. síðu). "BAÐSrorAA/ HER í blaðinu var í gær skýrt með nokkrum orðum frá reynslu Breta af verk- smiðjutogaranum „Fairtry" sem hefur lagt á land 5000 lestir af verkuðum fiski á 2y2 ári, eða jafnmikið magn og 2É2 nýtízku bi’ezkur togari af venjulegri gerð. Þetta skip er tilraunaskip, og eftir tals verðar þrautir virðist Bretar vera komnir að merkilegri niðurstöðu um notkun verk smiðjuskipa af þessu tagi. Væri ástæða til þess að afla meiri upplýsinga um þennan rekstur. Hér stendur fyrir dyrum að semja um smíði nýrra togara. Veltur á miklu að undirbúningur verði sem raunhæfastur, og siglt verði fram hjá sumum þeim skerj- um, sem á var steitt við tog- arakaup íslendinga eftir stríðið. í hinni brezku frá- sögn var skýrt frá því, að notkun fiskflökunarvéla um borð í „Fairtry" hefði gert reksturinn hagkvæmari. Er það athyglisverð ábending. Nú er að hefjast nýtt tíma- bil í fjskverkun hér hjá okk- ur. Fyrstu fiskflökunarvélarn ar eru að taka til starfa á ver tíð þeirri, sem nú er hafin. Við þær eru miklar vonir bundnar. Notkun nýrrar tækni við fiskverkun og fisk- veiðar ætti að geta gert rekst urinn hagkvæmari, en á því er þjóðinni hin mesta þörf. Landsmenn eru fljótir að tileinka sér nýja tækni, órag ir að reyna ný tæki og oftast er þaö kjarkur, sem er til góðs. En stundum verður rekstur tækjanna ekki sú lyftistöng, sem efni standa til. Þar eru að verki sjálf- skaparvíti, ónóg skipulag og of lítil hagsýni. Hin nýja tækni þyrfti að lækka fram- leiðslukostnað og bæta að- stöðu útflutningsverzlunair- innar. Og það ætti hún líka að geta gert, ef rétt er á hald ið. Mjólkurbúðir moka út einseyringum EF MAÐUR ER með smámynt í vasanum og grípur hana upp í lófann, er vísast að þar séu all- margir einseyringar. Þetta er nýlunda. Einseyringar voru að kalla horfnir úr umferð. Hvað átti líka að gera með þá á þess- um síðustu dýrtíðartímum? Einn eyrir kaupir bókstaflega ekki nokkúrn skapaðan hlut. En eins- eyringarnir í lófanum í dag minna á, að maður hefir ein- hvern tíman farið í mjólkurbuð fyrir konuna og fengið 4 stk. til baka, og svo önnur 4 stk. daginn eftir. Og þó á maður 8 einseyr- inga. Myntslátta ríkisins hlýtur að vera óhagkvæmt fyrirtæki. Efnið í einseyringnum hlýtur fyrir löngu að vera komið langt upp fyrir verðgildi peningsins. Og hvers vegna er verið að þessu? Við erum búnir að koma peningamálum okkar svo fyrir, að einseyringur er í rauninni fyrir löngu afnuminn, tveggja- eyringur líka. Hvers vegna er al- menn neyzluvara eins og mjólk ekki verðlögð þannig, að standi á því verðgildi, sem í raun og sannleika er lægst, en það er 5 aurar. Einseyringsfarganið í mjólkurbúðunum er fáránlegt. Sleifarlag hjá follþjónustu. BORGARI skrifar: — „Þið voruð að segja frá því á sunnudaginn, að til stæði að auka tollgæzlu. og er það vel. Maður er alltaf að rekast á smyglvarning og í seinni tíð er svo komið, að hann er hafður til sölu í verzlunum al- gerlega umbúðalaust. Þannig sá ég það fyrir jólin í kjötbúð hér í bænum, að þar var til sölu spægipylsa frá Houberg í Dan- mörk, bæði í bútum og^ sneið- um, eins og hver vildi. í sjopp- um er amerískt tyggigúmmí og „life savers“ og annað sælgæti, og svo mætti lengi telja. Annars var erindi mitt í baðstofuna ekki að ræða um þetta, sem allir vita, og engir ættu að vita betur en tollgæzlumenn. Heldur um þá þjónustu, sem þegnunum er í té látin af tollgæzlunni. Einu sinni sá ég bréf frá þeim yfirvöldum um það, að ef þakki, sem hjá þeim væri geymdur, vævi ekki sóttur, yrði honum fleygt. Þetta var fyrsta tilkynningin, sem við- takanda barst um pakkann, sem þá hafði^ legið á tollafgreiðslunni í 2 ár. Ég átti bágt með að trúa þessu, en hefi nú fengið dálitla sönnun um viðbragðsflýtirinn á þeim stað. Kunningi minn er- lendis sendi mér gjöf í sumar er leið. Hún var send með flugvél hingaö heim og tóku tollmenn pakkann í vörzlu sína. Síðan eru 5 mánuðir. Engin tilkynning um þennan pakka hefir enn borizt viðtakanda. Hvers konar vinnu- brögð eru þetta? Hvers vegna eru viðtakendur ekki kvaddir á tollafgreiðsluna til að gera grein fyrir varningi og greiða af hon- um gjöld? Ef þetta er sá almenni siður, er það enn ein sönnun um að gera þurfi einhverja meiri- háttar breytingu á starfrækslu tollgæzlunnar.... “ Þörf endurbóta. HÉR SKAL ENGINN dómur lagð ur á það, hvort skipulag hjá toll- þjónustu er í því lagi, sem vera þarf að þessu leyti, en óneitan- lega virðist það óeðlilegt, að sendingar liggi mánuðum saman hjá tollmönnum, er' taka þær í sína vörzlu, án þess að mönnum sé gert viðvart. En mikil þörf er á stórauknu eftirliti með því að vörum sé ekki smyglað inn í landið. Það er furðulegt, að rétt- "arvitund manna skuli orðin svo dofin, að viðurkenndar verzlanir leyfa sér að hafa smyglvarning á boðstólum. Ætti slíkt að varða þungum viðurlögum, jafnvel missi verzlunarréttinda. Þyrfti að hefjast handa um að útrýma þessari spillingu. —Finnur,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.