Tíminn - 08.02.1957, Page 8
8
Mmning: Kristleiínr Jónsson
f DAG verður borinn til hinztu
hvíldar, frá kirkjunni í Fossvogi,
Kristleifur Jónsson, bóndi, að
Borgarholti. Hann fæddist 28. 10.
1899, að Kóngsbakka í Helgafells-
sveit, en lézt á sjúkrahúsi Hvíta
bandsins 27. f. m. eftir þungbæra
sjúkralegu og langa vanheilsu. Má
segja, að hann gengi aldrei heill
til skógar síðasta áratuginn. Á
miðju sumri 1955, gekk hann und
ir uppskurð og náði þá nokkrum
bata um sinn, en á s. 1. hausti tók
helmeinið að grafa um sig á ný, og
vann nú fullan sigur.
Kristleifur ólst upp hjá for-
eldrum sínum að Kóngsbakka, á-
samt stórum systkinahóp, og hann
hélt alla stund órofa tryggð við
æskustöðvar sínar og ættmenni,
þó að leiðir skildu og leiti bæri
á milli. Á mótum æsku og mann-
dómsára leitaði hann sér atvinnu
utan heimilis, fyrst við sjóróðra.
síðan sem háseti á togurum og
húsabyggingar. Voru honum því
töm flest störf til lands og sjáv-
ar, og þótti hvarvetna hinn nýt-
asti starfsmaður. En kærust voru
honum þó landbúnaðarstörf og
hirðing búfjár. Þar naut hann sín
bezt, þar undi hann hag sínum
bezt. Þessi áhugi Kristleifs fyrir
sveitalifi og búskap varð til þess
að hann reisti hús á erfðafestu-
landi austan Engjadals og hafði
þar jafnan nokkurt bú, þó að
hann stundaði daglaunavinnu oft-
ast öðrum þræði. Mun hann hafa
verið eina sauðflestur Reykjavík
ur-bænda á síðustu árum, og svo
var hann natinn og umhyggjusam-
ur við slcepnur sínar, að af bar.
Hafði hann áreiðanlega nokkrar
áhyggjur af því, hvað um þær yrði,
þegar hann sá, að hverju fór.
Kristleiíur var þunglyndur að
eðlifsari, og fremur fálátur, en
hann var hreinskiptinn og tillögu-
góður, og svo orðheldinn, að fáa
hef ég hitt hans jafningja. Samn-
ingsorð hans var haldbetra harð-
soðnustu lögfræðibókmenntum. og
minna væri skrifað, og samning-
ar betur haldnir, ef fleiri líktust
honum. Hann var sjálfur manna
ólíklegastur til að gangá á bak
orða sinna, — og sömu kröfu
gerði hann til annarra. Trassa-
skapur og óregla í meðferð fjár-
muna var honum þyrnir í augum,
því að hann var snyrtibóndi og
traustur þjóðfélagsþegn, — og það
var sannfæring hans, að hver upp-
skæri eins og til væri sáð.
Við fráfall Kristleifs setzt þung
ur harmur við dyr konu hans, frú
Kristjánsínu Bjarnadóttur, hinni
mestu ráðdeildar- og dugnaðar-
konu, sem ein situr eftir, þrotin
að heilsu. Auk hennar mun og
fleirum finnast skarð fyrir skildi.
S. B.
*
Miimmg: Halldór Agústsson,
Vestmannaeyjum
Þau sorglegu tíðindi urðu hér
aðfaranótt hinn 9. jan. s. 1., að
Halldór Ágústsson skipstjóri féll
út af vb. Maí og drukkriaði.
Halldór heifinn var fæddur 26.
okt. 1926 í Víðidal 'í Vestmanna-
eyjum. Foreldrar hans eru hjónin
Elín Halldórsdóttir frá Búðarhóli
í Landeyjum og Ágúst Sigfússon
frá Stóru-Breiðuvík við Reyðar-
fjörð.
Á 2. aldursári fluttu foreldrar
Halldórs austur að Stóru-Breiðu-
vík, og þar bjuggu þau til ársins
1940, en fluttu þá til Vestmanna-
eyja aftur, og hafa búið liér síðan.
Frá fermingaraldri til 18 ára
aldurs vann Halldór við alls konar
vinnu, og dvaldi að jafnaði í for-
eldrahúsum.
Átján ára gamall hóf Halldór
nám í bátasmíði hjá Gunnari M.
Jónssyni skipasmið hér, og laulc
því eftir 4 ára nám.
Haustið 1950 lauk Ilalldór prófi
á vélstjóranámskeiði hér, og sam
tímis fékk hann réttindi til að
fara með 35 lesta báta sem skip-
stjóri.
Og 23 ára gamall byrjaði hann
útgerð hér í Eyjum ásamt tveimur
öðrum, á vb. Freyju, er þeir fé-
lagar keyptu og héldu út í fjögur
ár.
Halldór var formaður á bátnum
og aðaldriffjöðurin í útgerðinni,
bæði á landi og sjó. Bát og útgerð
seldu þeir félagar, og hættu út-
gerð um sinn. Reyndist þessi út-
gerð þeirra þó allvel stæð fjárhags
lega eftir því sem hér gerist. Réði
þar miklu um, að Halldór fór vel
með allt, er honum var trúað fyrir,
nýtinn og hagsýnn.
Næstu tvö ár var Halldór verk-
stjóri útgerðar Fiskiðjunnar hf.
hér, hafði umsjón með útgerð báta
fyrirtækisins.
Vorið 1956 keypti Halldór, á-
samt tveimur mönnum öðrum, vb.
Höllu, er þeir skírðu upp, og gáfu
nafnið Maí. Gerðu þeir bátinn út
s. I. sumar og haust á línu.
í fyrsta róðri — útdrætti — á
þessari vertíð féll Halldór fyrir
borð og drukknaði.
Á þeim árum er Halldór nam
bátasmíði, réðust foreldrar hans í
að byggja yfir sig og fjölskylduna
íbúðarhús. Vann Halldór öllum
stundum við byggingu foreldra
sinna, og mun hans framlag í
vinnu, hafa ráðið miklu um, að
foreldrar hans eignuðust sitt eigið
íbúðarhús, að Landagötu 16.
Frístundum sínum, er ungir
menn nota gjarna til eigin ánægju
fórnaði hann foreldrum sínum við
byggingu hússins. Faðir hans hafði
átt við mikla vanheilsu að stríða
í mörg ár, dvalið á sjúkrahúsum,
bæði á Akureyri og hér, og lætur
það að líkum, að fjárhagur var
þröngur.
Þetta eitt sýnir, að Halldór mun
hafa skilið, að leiðir til úrbóta á
efnahag væru .fyrst og fremst eigin
athafnir, dugnaður og trúmennska
í starfi. Þessir eiginleikar hafa
verið íslenzku þjóðinni haldbeztir
í efnahagslífi hennar gengnar
aldir.
Halldór kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Guðbjörgu Sigurjóns-
dóttur frá Víðidal hér hinn 29.
nóv. 1952, hinni ágætustu eigin-
konu. Eignuðust þau hjón þrjú
börn, er öll eru á lífi.
Eftir að Halldór og þeir félag-
ar seldu mb. Freyju, hóf hann
byggingu íbúðarhúss fyrir sig og
fjölskyldu sína, á Faxastíg 6B. Að
byggingunni vann hann að mjög
miklu leyti sjálfur í frístundum
sínum, og hafði hanri að mestu
lokið byggingunni á s. 1. hausti, og
fluttu þau hjónin í nýju íbúðina
nokkru fyrir s. 1. jól.
Hér er aðeins brugðið upp svip-
mynd úr lífi þessa unga og efni-
lega manns, og gefur hún örlitla
sýn inn í lífsferil hans.
Lífssaga Halldórs er stutt, en
hún er vörðuð dáðríku starfi og
drengskap. Og þegar litið er yfir
þennan stutta lífsferil, og þau
störf, er að baki liggja, kemur
manni í hug, að Halldór liafi verið
í kapphlaupi við lífið, um að koma
sem mestu af og byggja upp fram-
tíðarheimili tveggja fjölskyldna,
foreldra sinna að nokkru leyti, og
sitt eigið, áður en lífsskeiðið væri
á enda runnið, þótt ungur væri.
Voru þessi störf þó aðallega unn-
in í frístundum, er tími gafst frá
Erlent yfirlit
(Framhald af 6. síðu)
ur-Evrópuríkin munu því fylgj-
andi og sama gildir um samveldis-
lönd Breta. Sennilega eru Indland
og ýms fleiri Asíuríki sama sinnis.
Þá má og gera ráð fyrir, að sú sé
afstaða ýmsra ríkja Suður-Ame-
ríku. Ástæðan fyrir þessu er ekki
aðeins sú, að þeir, sem nákvæm-
ast vilja fylgja sáttmála S. Þ.,
eins og skandínavisku löndin,
telja ekki heimilt að gera um það
ályktun. Ástæðan er einnig sú, að
sérstök afskipti eða samþykki S.
Þ. um málið á hvern veginn, sem
þau eru, muni aðeins espa upp og
gera illt verra, og því sé rétt að
bíða 1—2 ár og sjá hverju fram
vindur. Af tveimur ástæðum, hefir
Alsír algera sérstöðu, sem gerir
mál þess frábrugðið öðrum ný-
lendumálum. Annað er það, hvað
margir Frakkar eru þar búsettir,
og hitt er það, að enn vantar þar
nægilega skipulagða og samhenta
sj álf stæðishreyf ingu.
Það hefir vafalaust ýtt undir
þá skoðun, að sérstök afskipti S.
þ. af Alsír, séu vafasöm á
þessu stigi, að trúboðinn frægi,
Albert Schweitzer, hefir sent Eis-
enhower bréf og hvatt til þess, að
Alsírmálið verði ekki látið koma
til atkvæða á þingi S. Þ. að þessu
sinni, þar sem það muni ekki
bæta fyrir lausn málsins. „The New
York Times“ skýrði frá þessu
bréfi Schweitzer á þriðjudaginn
var. — Þ. Þ.
öðrum athafnasömum störfum, er
hann hafði með höndum.
Um Halldór má segja, að hon-
um hafi aldrei fallið verk úr hendi
Þrítugur að aldri er lífi lians
lolcið hér meðal okkar. Almennt
er talið að á því aldursskeiði byrji
manndómsárin. Framundan liggi
verkefni mannsins til uppbygging-
ar og nokkurs þroska. Ég ætla, að
það fari ekki á milli mála, að
störf Halldórs á þessari stuttu ævi
beri vott um mikinn manndóm,
þroska og fórn sér og sínum til
handa.
Yfir störfum og lífsferli Hall-
dórs heitins er birta, er geymir
hugljúfar minningar um ungan at-
hafnamann, er miklar vonir voru
bundnar við. Eg vil ekki láta hjá
líða að láta þess getið, að hjálp-
semi hans var á orði höfð og greið
vikni, og var þá ekki spurt um
endurgjald, heldur þörfina hjá
þeim, er þurftu á liðsinni að halda.
Það mun öllum hafa komið á
óvart, að Halldór skyldi gista hina
votu gröf í þessari för, m. a. vegna
þess að hann var ágætur sundmað-
ur og veður ekki vont, því að í
minnum er haft, er hann bjarg-
aði barni frá drukknun hér við
Básaskersbryggju með snarræði
og ágætri sundkunnáttu. Varð
hann þó að kasta sér til sunds
eins og hann stóð á bryggjunni,
og kafa eftir barninu, er lá við
drukknun. Og aðstæður allar liin-
ar erfiðustu.
Halldór var hagur maður, og
lagði gjörva hönd á marga hluti.
Hann var vel að manni, hár vexti,
og fríður sýnum. Bjart var yfir
svip hans, og öll framkoma hans
bar vott um prúðmennsku og
drenglund.
Halldór var trúhneigður og
treysti á guðlega handleiðslu, enda
hafði uppeldi hans í heimahúsum
lagt trausta undirstöðu að þeirri
lífsskoðun. Líf hans og störf mót-
uðust af þeirri lífsskoðun.
Rétt fyrir jólin fluttu hjónin í
nýja húsið sitt, framtíðarheimilið,
og nutu þar jólagleðinnar. Og nýja
árið hóf göngu sína með hækkandi
sól, og nýjar og glæstar vonir
blöstu við þessum ungu dugmiklu
hjónum. — En Alfaðir ræður. —
Æðri máttarvöld kusu Halldóri
verksvið í annarri veröld. Hann
var kallaður burtu „meira að
starfa guðs um geim“.
Ástvinir, er eftir standa á
„ströndinni“, eru harmi lostnir.
En vissulega er það huggun í raun,
að minningin um góðan dreng,
ástríkan eiginmann, föður, son og
bróður, og um störf hans, er urðu
öðrum til blessunar, er hugljúf
og óbrotgjörn.
Og „Ég veit, að látinn lifir,
það er huggun harmi gegn.“
Vestmannaeyjum, 20. jan. 1957.
Sveinn Guðmundsson
T í M I N 'N; 'föstudaginn 8. febrúar 1957,
Bláa bandinu berst 10 |jús. kr. gjöf til
styrktar bindindis- og hjálparstarfi -
Sjófrur til minningar um séra Magnús í Laufási
Fyrir nokkru barst Bláa band-
inu stórgjöf frá frú Ingibjörgu
Magnúsdóttur, prestsekkju frá
Laufási við Eyjafjörð. Var það
sparisjóðsbók með tíu þúsund kr.
iunstæðu, og er gjöf þessi gefin
til minningar um foreldra frú
Ingibjargar, séra Magnús Jóns-
son prest í Laufási, hinn alkunna
bindindisfrömuð og konu hans
Vilborgu Sigurðardóttur.
Frá Ingibjörg leggur svo fyrir,
að af þessu fé skuli stofna sjóð,
er beri nafn foreldra hennar og
tekur sjóðurinn við gjöfum og á-
heitum.
Tilgangur hans er „að styrkja
bindindis- og hjálparstarf það, sem
áfengisvarnafélagið Bláa bandið
hefir með höndum“.
Stjórn Bláa bandsins hefir á
hendi stjórn sjóðsins og veitir fé
úr honum, og meðan eitthvert af
börrium frú Ingibjargar er á lífi
skal eitt þeirra eiga sæti í sjóðs-
stjórninni.
Fyrir hönd Bláa bandsins héfi
ég tekið við þessari rapsnarlegu
gjöf frú Ingibjargar Maghúsdóttur
og þakka hana hérmeð fyrir Felags
ins hönd. Hún sýnir hug þessarar
ágætu konu til þess málefnis, sem
faðir hennar bar svo mjög fyrir
brjósti, og jafnframt skilning
hennar á því verkefni, sem Bláa
bandið er að reyna að leysa af
hendi.
Sjóðnum, sem heitir Minningar-
sjóður séra Magnúsar Jónssonar
og Vilborgar Sigurðardóttur, hefir
nú verið sett skipulagsskrá og tek-
ur hann héreftir við gjöfum og á-
heitum. Verður því fé, sem sjóðn-
um kann að berast, varið til starf-
semi Bláa bandsins eða til styrkt-
ar sjúklingum þar.
Ég þakka frú Ingibjörgu Magn-
úsdóttur þessa höfðiriglégu og
vinsamlegu gjöf og óska hennl
allra heilla. go líc
Jónas Guðmundsson,
Listi trúnaðarmannaráðs sjálfkjörinn ;
í Félagi íslenzkra rafvirkja
í fyrradag rann út frestur til framboðs við stjórnarkjör í
Félagi íslenzkra rafvirkja. Þar sem aðeins einn listi kom
fram, listi trúnaðarmannaráðs, var hann sjálfkjörinn.
Samkvæmt því er Óskar Hail-
grímsson endurkjörinn formaður
félagsins næsta ár. Aðrir í stjórn
eru Páll J. Pálsson varaformaður,
Sveinn V. Lýðsson ritari, Magnús
K. Geirsson féhirðir og Kristján
Benediktsson aðstoðarféhirðir.
f varastjórn eiga sæti þeir Sig-
urður Sigurjónsson og Auðunn
Bergsveinsson. Trúnaðarmannaráð
skipa Svavar Björnsson, Einar Ein
arsson, Sigurður Kjartansson og
Tómas Tómasson. Varamenn eru
Marteinn P. Kristinsson, Gunnlaug
ur Þórarinsson, Kristinn K. Ólafs-
son og Kristján J. Bjarnason.
Stjórn Styrktarsjóðs: Aðalsteinn
Tryggvason ritari og Óskar Guð-
mundsson féhirðir. Varamenn eru
Áslaugur Bjarnason og Stefán
Jónsson.
Bækur og höfundar
(Framhald af 7. síðu).
björn Einarsson svofelldum orðum
í áramótaprédikun:
„Líðandi stund, hvað gerist með
an hún hverfur hjá?
Líf vaknar á einum stað, feigð
kallar á öðrum ný mannvera heils
ar með gráti, önnur kveður með
dauðahryglu. Þarna lætur ungling
ur tælast til syndar, sem verður
kvöl hans og smán um ókomin ár.
Þarna fer móðir með barn til
svefns og les vers, sáir helgu fræi
er ber ávöxt, sem enginn metur.
Þarna klingja menn glösum yfir
markleysu og mannskemmdum.
I Frá málaðri vör líður fúl and-
I remma slúðursins og lymskast út
| í lífið, sýkir, eitrar. Siggbarinn
| lófi strýkur vanga hins týnda son-
ar, sem er fundinn, kominn heim,
og ylur fyrirgefningarinnar þíðir
klakann inni fyrir. Þvöl hönd seil
ist eftir forboðnum ávexti og hurð
in lokast að hliði paradísar. Skjálf
andi tunga stamar bæriá'rstef og
himinninn opnast. Augnabliks-
tjón, sem eilifðin vart getur bætt.
Augnablikssigur, helgaður himins
ins náð. Þetta er að gerast í öll-
um áttum, ýmist þetla eða hitt,
þessa fleygu, hröðu stund, eins og
allar aðrar.“
HEITI BÓKARINNAR hefir
séra Sigurbjörn valið úr hinu al-
kunna sálmaversi Hallgríms' Pét-
urssonar:
}
Gefðu, að móðurmálið mitt, ;
minn Jesú, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt,
krossins orð þitt út breiði
um landið hér, til lieiðurs þér,
helzt mun það blessun valda,
meðan þín náð lætur vort láð
lýðum og byggðum halda. ^
Þessa bæn skáldsins hefir höf-
undur bókarinnar, Meðan þín náð,
gert að bæn sinni, og vitnar mál
og efni bókarinnar um það, að
hann hafi þar fengið bænheyrzlu.
Bókaútgáfan Frón hefir gefið bók-
ina út. Hún er sviphreip ,og fall-
eg. Verði hún þjóðinni til'þeirrar
blessunar, sem efni stárida til.
Pétur Sigurðsson 1
(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiifi
1 Brún hryssa 1
I 3 vetra gömul, ómörkuð, hefir tapazt frá Oddagörðum 1
I í Stokkseyrarhreppi. Auðkennd með K, sem var klippt 1
1 síðast í september í lendina. §
§ Eigandi Kristján Gíslason, sími 20, Selfossi.
mmmmmimmmmiiiiiiiiiiiimmmmimimmimimiiiimimmiiiiiiHiiimiiirimiiiiiiimiiHiiimimiimiiiiiÍn
Útför eiginkortu minnar,
Dómhildar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur
frá Höfn í Hornafirði,
fer fram mánudaginn 11. þ. m. kl. 13,30 frá Fossvogskapellu.
Athöfninni verður útvarpað.
F. h. aðstandenda.
BjarniGuðmundsson.