Tíminn - 08.02.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 08.02.1957, Blaðsíða 12
VeðriS: " Austan stinningskaldi, sums staðar allhvasst. Skýjað með köílum. Fösludagur 8. febrúar 1957. Hitinu kl. 18: Reykjavík 4 st., Akureyri -í-4 st., London 8 st., París 12 st., Kauj>- mannahöfn 4 st., New York 7 st. Nauðsynlegt að leysa þegar upp sameignar- félagið Faxa, þar sem útséð er um rekstur sumargestir Tillaga Þór^ar Björnssonar í bæjarstjórn í gær. — Skuldir Faxa 30—40 milljónir. — Bærinn getur oríií ábyrgur fyrir öilum skuldunum, þar sem um sameignarábyrgð hans og Kveldúlfs er a<S ræía , Forseti bæjarstjóraar neitar að bera alla ? guna upp: Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær flutti Þórður Björnsson tillögu þess efnis, að sameignarfélagi Reykjavíkur- bæjar og Kveldúlfs um Faxaverksmiðjuna yrði slitið, og eign- irnar seidar, þar sem útséð virtist nú um, að nokkurn tíma yrði um arðbæra starfrækslu verksmiðjunnar að ræða í þeirri mynd, sem hún er. Rökstuddi hann tillögu þessa ýtarlega í inngangi og framsöguræðu. , rekstrarhalla og vaxtagreiðslur Þorður rakti 1 storum drattum jjjagast 0fan a skuldir fyrirtækis sögu þessa fyrirtækis, sem stofnað jns £r effjr ,jr var 1948 með sameignarfélagi j Reykjavíkurbæjar sem er eigandi Ábyrgð Reykjavíkurbæjar. að 3/5 hlutum og Kveldúlfs, sem Þórður Björnssoii benti og á, er eigandi að 2/5 hlutum. Bygg-| að Reykjavíkurbær bæri raunar íngarkostnaður var fyrst aætlaður um 10 millj. kr. en fór mjög fram úr áætlun, og var orðinn, er verk smiðjan var tilbúin, 25 millj. kr. en varð síðar með breytingum um 30 millj. kr. Sífelldur rekstrarlialli. Árin 1952 og 1953 starfaði verk- smiðjan eitthvað en sífelldur halli hefir verið á rekstrinum .Mikill dráttur hefir verið á því, að reikn ingar fyrirtækisins væru lagðir fram, og síðustu reikningar, sem bæjarfulltrúar hafa fengið að sjá, erii frá 1953, þá var hallinn á rekstrinum 1,5 millj. kr. enda vinnslutekjur nær engar. Skuldir voru þá orðnar alls 32,5 millj. kr. Ýmsar tillögur um starfrækslu. Stjórn Faxa hefir nokkrum sinn um imprað á því, að nota mætti verksmiðjuna til annars en síldar vinnslu, svo sem að vinna karfa og annan togarafisk, svo og fislc úrgang. Einnig hefir verið talað um að sétja mætti þar upp korn- myllu, og tveim dögum fyrir síð- ustu bæjarstjórnarkosningar var birt tillaga frá stjórn Faxa um j vjsf 0g uans a eftir. Öllum er heim að setja þar upp fóðurmölun. Þá jjj aðgangur. voru og sett í verksmiðjuna tæki^___________________________________ til vinnslu soðkjarnáT Af engum þessum framkvæmdum varð þó, enda mun ekkert af þessu hafa ver ið talið framkvæmanlegt til hag- kvæms reksturs. Loks birtir stjórn Faxa áætlun um að breyta verk- smiðjunni í hraðfrystihús, og var sá aukakostnaður áætlaður um 12 millj. króna. Var þá gert ráð fyr- ir að rífa allar aðrar vélar burt. Þar sem útgerðarráð og bæjar- ráð hafa nú samþykkt að hefja byggingu hraðfrystihúss, virðist sú hugmynd dauð einnig í verki, og er þá augljóst, að með öllu hefir verið gefizt upþ við að finna verk smiðjunni annað starfssvið. Þar með virðist einsætt að leysa fyrir- tækið upp og reyna að koma eign unum í verð í stað þess að láta ábyrgð á öllum skuldum fyrir- tækisins, þar sem um sameign- arfélag væri að ræða, þar sem hvor félagsaðili bæri ábyrgð fyr ir annan. Vitað væri að Kveld úlfur drægi mjög saman starf semi sína, og af liálfu bæjarins hef'ði svo vitað væri ekkert ver ið gert til þess að tryggja þaS, að Kveldúlfur stæði við skuld bindingar að sínu leyti í félag inu. Nauðsynlegt væri því að rjúfa þetta fjármálasamband bæj arins og Kveldúlfs, bjóða hon um forkaupsrétt að hluta bæjar ins, samkvæmt ákvæðum félags samningsins, en aS öðrum kosti leita til borgarfógeta um upp- gjör og uppboð á eignum félags ins. Framsóknarvist Framsóknarfélag Akraness held- ur skemmtisamkomu í félagsheim- ili templara næstkomandi sunnu- dag og hefst hún kl. 8,30. Til skemmtunar verður framsóknar- Neitaði að béra upp tillöguna. Borgarstjóri varaðist að ræða tillögu þessa, og viðurkenndi með þögninni þá hrakfallasögu, sem þarna var sögð. Þegar kom að at- kvæðagreiðslu brá svo við, að for ;eti bæjarstjórnar kvað upp þann úrskurð, að hann liti á tillögu Þórðar, sem var alllöng og ýtarleg r •" greinargerð að tillögu og neitaði að bera upp nema niðurlag hennar. Þórður andmælti þessu harðlega og benti á, að hér væri tekinn upp nýr siður, þar sem forseti leyfði sér að búta sundur framkomnar tllögur og teljá hluta af þcim greinargerð. Hér væri mjög gengið á rétt bæjarfulltrúa til að bera fram mál, og það væri í mörgum tilfellum nauðsyn legt, að í tillögum fælist greinar gerð fyrir málum, og væru þess mörg dæmi frá fundum bæjar- stjórnar. Varð af þessu nokkurt þóf en fór svo, að forseti féllst á að bera upp nokkru meiri hluta til- lögunnar, en hann hafði áður úr- skurðað. Borgarstjóri lagði til, að tillögunni yrði vísað til stjórnar Faxa-verksmiðjunnar. Þórður Björnsson mótmælti því og benti á, að í stjórn Faxa væru einmitt tveir menn úr stjórn Kveldúlfs og væri kynlegt að vísa til umsagn ar þeirra máli, sem þannig bæri að. Bað hann um nafnakall um tillöguna. Var samþykkt að vísa henni til stjórnar Faxa með 9 atkv. (íhald- ið og Magnús Ástmarsson) gegn fjórum, en tveir greiddu ekki at- kvæði (Bárður Daníelsson og Pet rína Jakobsson). Það fór ekki á milli mála á fundinum, að íhaldið vill sem minnst um Faxa ræða, enda er nú fullséð, og raunar miklu fyrr, að hér er um fyrirtæki að ræða sem aldrei verður starfrækt á eðli legum grundvelli í núverandi mynd. Því er ekki um annað ræða en slá botninn í þetta ævintýra- fyrirtæki íhaldsins. Bærinn hefir þegar orðið fyrir milljónatapi af Faxa, en það verður að koma í veg fyrir að milljónir bætist á ári hverju við það tap. Hæring- ur og Faxi eru skilgetnir íhalds- bræður, sem óumflýjanlega hljóta sömu örlög. Kekkonen forseti Finnlands og frú hans í bóstaö' sínum í Helsingfors. Þau eru væntanleg í opinbera heimsókn hingað í ágúst í sumar. Kosið í ráð og nefndir í bæj- arstjórn Reykjavíkur í gær Samstarf vinstri f lokkanna nm þessar kosn- ingar hélt áfram með sama hætti og í fyrra Kosningar fóru fram á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær. Frú Auður Auðuns var endurkosin forseti bæjarstjórn- ar með 9 atkvæðum, en 6 seðlar voru auðir. Um kosningar í nefndir hélzt samstarf milli vinstri flokkanna frá fyrra ári. Frá skrifstofu Framsóknarfélaganna Skrifstofan er opin frá kl. 2—6. Hverfastjórar, hafið samband við skrifstofuna og næstu daga. dag Sala aðgöngumiða að kvöldvökunni 12. þ. m. hafin Á vegum Framsóknarfélaganna verður haldin kvöldvaka í Tjarn- arkaffi þriðjudaginn 12. þ. m. Koma þar fram ýmsir skemmti- kraftar með fjölbreytt efni. Þó að skemmtinefndin hafi ekki tek izt að fá hentugan dag undir samkomu þessa, eru margir nú þegar búnir að panta miða. — Byrjað verður á sölu miðanna e. li- í dag á skrifstofu Framsókn- arfélaganna — sími 5564. Frá Framsóknarfélagi Reykjavíkur Munið klúbbfundinn II. febrúar kl. 8,30 s. d. Fundurinn verður á venjulegum fundarstað. Fyrsti varaforseti bæjarstjórnar var kjörinn Sigurður Sigurðsson með 8 atkv., en 7 seðlar voru auð- ir, og annar varaforseti Guðmund- ur H. Guðmundsson með sama at- kvæðafjölda. Skrifarar voru kjörnir Geir Hallgrímsson og Ingi R. Helgason óg til vara Sveinbjörn Hannesson og Alfreð Gíslason. Nefndakosningar. I bæjarráð voru kosnir Auður Auðuns, Geir Hallgrímsson, Guð- mundur H. Guðmundsson, Guð- mundur Vigfússon og Bárður Dan íelsson. Varamenn: Gunnar Thor- oddsen, Einar Thoroddsen, Svein- björn Hannesson, Ingi R. Helga Togarafélagið á Akureyri krefur SIF um milljón kr. í skaðabætur Fisksöluhringurinn flutti út atJ kalla allar fiskbirgðir í landinu á s. I. vori nema Akureyrarfiskinn ÚTGERÐARFELAG Akureyr- inga li.f., seni gerir út 4 Akureyr- artogaranna hefir krafið Sölusam band ísl. fiskframlciðenda um milljón krónur í skaðabætur vegna tjóns, sem félagið hefir orðið fyrir af ráðsmennsku fisk- söluhringsins. Frá þessu var skýrt á bæjarstjórnarfundi á Ak- ureyri fyrir nokkruni dögum og gerði það formaður Útgerðarfé- lagsins, Helgi Pálsson, bæjarfull- trúi. Krafa félagsins nemur alls kr. 990.800.00. TOGARAÚTGERÐIN á Akur- eyri hefir átt við verulega fjár- hagsörðugleika að stríða að und- anförnu. Nain reksturstap 1955 rösklega 3 millj. króua og voru þó engar afskriftir reiknaðar, og útkoman 1956 er talin talsvert lakari. Hefir þessi útkoma skapað verulega erfiðieika fyrir bæjar- félagið. Til þess að ínæta þeim liefir bæjarstjórn Akureyrar nú ákveðið að láta 3 millj. króna af tekjum yfirstandandi árs renna I framkvæmdasjóð bæjarins, og ganga 2,5 millj. til Útgerðarfélags ins. Þetta þýðir verulega hækkun álagðra útsvara í bænum. Fái fé- lagið leiðréttingu sinna mála hjá saltfiskhringnum, rætist nokkuð úr. En það mál mun enn á und- irbúningsstigi og óséð, hvort sættir riást. son og Þórður Björnsson. í framfærslunefnd voru kjörin Gróa Pétursdóttir, Guðrún Jónas son, Guðrún Pétursdóttir, Jóhanna Egilsdóttir og Sigurður Guðgeirs son. Varamenn: María Maack, Lára Sigurbjörnsdóttir, Jónína Guð- mundsdóttir, Elín Guðmundsdóttir og Svava Jónsdóttir. í bygginganefnd voru kosnir Guðmundur H. Guðmundsson, Ein- ar Erlendsson og Bárður Daníels son. í hafnarstjórn voru kosnir Ein- ar Thoroddsen, Guðmundur H. Guð mundsson og Ingi R. Helgason. Varamenn Gunnar Thoroddsen, Sveinbjörn Hannesson og Guð- mundur Vigfússon. í hafnarstjórn utan bæjarstjórnar Einar Ög- mundsson og Hafsteinn Bergþórs son og til vara Guðbjartur Ólafs son og Hannes Steffensen. í lieilbrigðisnefnd voru kosnir Geir Hallgrímsson, Ingi R. Helga- son og Sigurður Sigurðsson. Þá var einn fulltrúi kosinn í sóttvarnarnefnd og var það Sigurð ur Sigurðsson. í stjórn Fiskimanna sjóðs Kjalarnessþings var kosinn Guðbjartur Ólafsson. í stjórn líf- eyrissjóðs bæjarstarfsmanna voru kosin Auður Auðuns, Geir Hall- grímsson og Álfreð Gíslason og til vara Þorbjörn Jóhannesson, Ingi R. Helgason og Björgvin Fredriksen. Endurskoðendur bæjarreikninga voru kjörnir Ari Thorlacíus, Egg ert Þorbjarnarson og Ólafur Frið riksson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.