Tíminn - 17.03.1957, Qupperneq 7
T ÍMIN N, sunnudaginn 17. marz 1957.
7
Slik yfirlýsing hefur ekki
komið fram fyrr svo að ég
muni, við myndun rikisstjórn-
ar hér á landi. Þessi yfirlýs-
ing er vottur þess, að meiri
hluti landsmanna er nú orð-
ið fylgjandi jafnvægisstefn-
unni. Jafnvægi i byggð lands-
ins er um þessar mundir eitt
af kjörorðum þjóðarinnar. Vel
er, að svo sé, því að það, sem
þjóðin vill gera, má ætla að
hún geri eftir því, sem geta
leyfir á hverjum tíma.
í þessu sambandi er sérstök
ástæða til þess að geta sér-
staklega tveggja mála, sem
verið hafa til meðferðar á Al-
þingi því, er nú situr. Vil ég
þá i fyrsta lagi nefna frum-
varp það, er landbúnaðarráð-
herra lagði fyrir þingiö i s.l.
mánuði, um landnám, ræktun
og byggingar í sveitum. I öðru
lagi, lög, sem samþykkt voru
á þinginu rétt fyrir áramótin,
um heimild til skipakaupa og
lántöku erlendis í sambandi
við þau. Þessi tvö mál eiga
það sameiginlegt, að með af-
greiðslu þeirra eru stigin stór
og athyglisverð spor í þá átt
að stuðla að jafnvægi í byggð
iandsins.
Hér er annars vegar ákveð-
ið að verja árlega verulegum
fjárhæðum úr ríkissjóði um-
fram það, sem gert hefur ver-
ið, til eflingar atvinnulífi í
sveitum landsins_ til þess að
fjölga nýbýlum og gera þau
betur úr garði en verið hefur
og til þess að koma því í
kring, að lágmarksstærð
ræktaðs lands á byggðum jörð
um verði sem svarar 30 dag-
sláttum. Til þess að svo megi
verða, er gert ráð fyrir, að
ræktaðar verði 36 þús. dag-
sláttur samtals í sveitum í
þessu skyni. Fyrir fáum árum
hefð'i slik fyrirætlun vissulega
verið til tíðinda talin. Hins
vegar er gert ráð fyrir, aö rík-
isvaldið hafi forgöngu um út-
vegun stórra fiskiskipa með
þaö fyrir augum fyrst og
fremst, að þeim verði á sínum
tíma ráöstafað til útgerðar í
þeim landshlutum, þar sem
verkefni skortir við sjávarsíð-
una. Enn er að vísu óséð,
hvernig til tekst um fram-
kvæmd þeirra heimilda, sem
í þessum lögum felst. Til
þess, að lögin beri þann ár-
angur, sem til er stofnað', þarf
mikla fjármuni, sem ekki
verða til staðar nema þjóðin
geti fengið þá að láni erlend-
is með viðráðanlegum kjör-
um. En sú viljayfirlýsing
þingsins, sem í þessum lögum
fellst er sögulegur viðburður
ekki síður en hin nýja rækt-
unaráætlun sem nú liggur
fyrir Alþingi.
Hina sundurlausu þætti
um jafnvægi i byggð landsins,
sem skráðir eru hér að fram-
an, hefi ég sett saman, af því
að Tíminn er 40 ára í dag,
og af því að mér, vegna starfs
mins viö blaöið um skeið, var,
ásamt öðrum, boöið að birta
í því einhverskonar afmælis-
grein þennan dag. Ég minn-
ist að sjálfsögðu ýmsra atvika
í sambandi við starf mitt og
þó sérstaklega margra merkra
viðburða í þjóömálum íslend-
inga og áhrifaríkrar starfsemi
Framsóknarflokksins á árun-
um 1930—’40. Hefi þó ekki
talið mér fært að fást við það
efni að þessu sinni, því hefi
ég tekið' þann kostinn að ræða
nokkuð á víð og dreif, um
mál, sem mér var hugstætt á
þeim tíma, öðrum þjóðmálum
fremur, og er enn. Ég óska
Tímanum þess á fertugsaf-
mælinu að hann verði þess
jafnan umkominn, eins og
hann ávallt hefur verið, að
Þverskurður af THERMOPAN rúðu
★ Útilokar móðu og frost.
★ Sparar kyndingarkostnað.
★ Sparar málningu á gluggum.
★ Dregur úr hávaða.
Málmrammi
tvær rúður
Mynduð þér kaupa eftirlikingu af málverki, ef frum-
myndin fengist fyrir sama verð.
Þegar um er að rœða tvöfalt einangrunargler, þá vitið
þér hvað þér fáið, ef þér kaupið ORIGINAL THERMO-
PANE, sem nú er notað hér á landi í þúsundir íbúða, i
opinberar byggingar, skóla, sjúkrahús, verzlunarhús,
verksmiðjuhús o. fl.
Með því að nota THERMOPANE eruð þér viss um gœðin
og endinguna.
Verð og aðrar upplýsingar hjá umboðsmönnum verk-
smiðj unnar.
.t
EGGERT KRISTJÁNSSGN & C □. H.F.
mmttitiituittitittuiitiiittitttiiititttiitttttxtttituitxtxititititttixtnmKtitiitt
«♦♦»♦«»♦♦♦♦ — *
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
!■■■■■■■■■
'.V.V.V.
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIP
l Kaupféiag HeUissands \
SANDl
. Sendum Tímanum hugheilar kveöjur á
árnar Tímanum heilla á 40 ára afmælinu, og þakkar íj | 40 ára afmcelinu meÖ þakklceú fyrir þátt
I; biaðinu áratuga stuðning við kaupféiögin og samvinnu- > \ hans í vexti og viögangi samvinnustefnunn-
:■ ■: i
:■ stefnuna.
leggja fram lið sitt til þess
aö styrkja þjóöina í trúnni á
landið og glæða framtíðar-
vonir manna í hinum dreifðu
byggðum — og þá jafnframt
fær um að hjálpa til að láta
þær vonir rætast — hvort sem
sú byggð, sem ekki má glata
von sinni, er við fjall eða
strönd og hvort sem hún hef-
ir uppeldi sitt af gróöri jarð-
ar eða því, sem í djúpi hafs-
ins býr
G. G.
ar í landinu.
KAUPFÉLAG KJALARNESÞINGS
iiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiiiiiM
nimiiiunitiinnHimiiiiuiitiiHiuimiiiiiiiuiiimiiiuiiiiniiiimfUPmnwHimimiiiitmiiiiiiiiiuiimimnjiiniiimHHmmnj