Tíminn - 26.03.1957, Page 8
8'
T f MI N N, þriSjudaginn 26. marz 1957.
Þessi mynd er tekin á þjóðveginum handan Akureyrarpolls fyrir nokkrum dögum. Handan hins háa snjóruðn-
ings við vegabrún, sést Pollurinn, og svo nokkur hluti Akureyrar og vesturfjöllin í baksýn.
Ekki veidnr sá er varir þótt verr íari
— Um æðarvarp, eitrun og íleira —
Á ÞESSUM misserum eru uppi
allmiklar deilur um eitrun fyrir
refi. Nú mjög nýlega hefir verið
'kVeðíð upp úr með að hefja skipu-
'lagða eitrun fyrir svartbak. Hvað
snertir eitrunina fyrir refi, þá
hafa fjölmargir þeirra manna, sem
mest hafa til brunns að bera og
lengsta reynslu eiga að baki, mót-
mælt þeim eitrunaraðgerðum með
skýrum og óhrekjanlegum rökum.
Eins og fyrr segir, hefir nú nýskeð
verið hvatt til allsherjareitrunar
fyrir svartbak og þá tiltekið hér
við Breiðafjörð. Þetta er gert á
vebtvangi búnaðarfræðslu Búnað-
arfélags íslands og túlkað sem
knýjandi nauðsyn fyrir varpbænd-
ur við Breiðafjörð fyrst og fremst.
Þegar svona er í pottinn búið,
væri elcki ólíklegt að nokkurt til-
lit yrði tekið til uppástungunnar
og jafnvel hugsanlegt að til fram-
kvæmda komi. Mér finnst því ærin
ástæða að ræða þetta mál og láta
koma fram þau sjónarmið, sem lítt
var sinnt í nefndri búnaðar-
fræðslu. Fyrst vil ég þó samþykkja
það og undirstrika, að það er alveg
rétt að svártbak hefir stórfjölgað
og einnig hitt, að hann er alveg
stórkostlegur vargur gagnvart æð-
arfugli.
EN HVER er svo ástæðan til
þessarar miklu og öru fjölgunar
svártbaksins? Eg spyr ekki af því
að við Breiðfirðingar vitum það
ekki. Það þarf varla að segja nein-
um varpbónda við Breiðafjörð
hver ástæðan er.
Fjölgun svartbaksins er verk
varpbændanna sjálfra og þeim í
koll kemur. Þetta er sá beiski sann
leikur, sem sniðgenginn var í bún
aðarfræðslunni. Mörgum mun og
alkunnugt hvar skórinn kreppir
mest.
Segja má að það sé eðlilegt hvað
svartbakurinn kemst upp í stórum
stíl, þegar haft er í huga hve mik-
ils þarf með til að varna því.
Ef vel á að vera, þarf að gera
minnst þrennar leitir um öll varp
lönd. Nú eru ástæður margra orðn
Erlent yfirlit
(Framhald af 6. síðu).
að talið verður ógerlegt að mynda
nýja stjórn, ef stjórn hans hrökkl-
ast frá. Frakkar eru enn ekki und-
ir það búnir að grípa til djarfra,
róttækra aðgerða. Á meðan svo
háttar til, eiga þeir vart völ á betri
stjórnanda en Mollet, sem er seig-
ur og traustur og vill áreiðanlega
vel. En eigi að grípa til stórræða,
þarf að leggja stjórnartaumana í
hendur á manni, sem er hugmynda-
ríkari, skjótráðari og harðfengari.
Þá þarfnast Frakkar Mendes-
Franees eða manns, sem er gerður
líkt og hann. Þ. Þ.
ar þannig, sökum annríkis og fólks
fæðar að ekki mun fátítt að ein
eða tvær leitir séu látnar nægja
og þær þá fyrst og fremst farnar
vegna æðardúnsins. Þegar það er
og haft í huga, að dæmi eru til að
þrjár og fjórar víðlendar og dreifð
ar varpjarðir eru komnar undir
umsjá eins og sama bónda, þá
skylst fljótlega hvað er að gerast
og hefir verið að gerast undanfar-
inn áratug og lengur þó.
Þótt það séu einkum fáir stærstu
varpbændurnir, sem bera aðalsök-
ina, þá er útkoman sú, að allir
hljóta mein af. Við hinir, sem allt-
af gerum okkur að skyldu að
hreinsa lönd okkar árlega, verðum
engu síður fyrir búsifjum, því
hinn mikli svartbakssveimur breið
ist út um allt frá hinum stórkost-
legu griða- og uppeldisstöðvum og
fer sífellt í vöxt.
KRAFAN UM eitrun, og þær
eitranir, sem þegar hafa verið
framdar, eru afleiðing af því að
varplöndin hafa verið vanhirt. Ef
Búnaðarfélag íslands ætlar að fara
að láta æðarvarpið til sín taka, og
það væri sannarlega vel til fallið,
þá held ég að væri rétt að byrja á
byrjuninni og koma því til leiðar
að varpbændur gegndu þeirri
frumskyldu sinni að sinna um
varpið og þá meðal annars að upp
ræta gjörsamlega árlega viðkomu
svartbaksins. Það er merkurinn
málsins. Meðan þeirri frumskyldu
er ekki fullnægt, hafa menn harla
lítinn rétt til að krefjast eitrunar.
Ekki dreg ég í efa að það er á-
hrifaríkt að eitra fyrir svartbak-
inn. Eiturhræin sem hafa flotið
um ailan sjá hér undanfarin vor
hafa vitnað.
Þótt svartbakurinn megi missa
sig, þá er þó á fleira að líta, ef
búnaðarfræðslan og Búnaðarfélag
fslands skyldu fara að reka þetta
eiturtrúboð af postullegri áfergju
og koma til leiðar skipulagðri eitr
un víðsvegar.
Ef svo færi, þá mætti hið háa
unum, því það er Alþingi, sem
hefir leitt eiturasnann í herbúð-
irnar.
ÞÁ VAKNAR og sú spurning,
hvort ekki væri ráð fyrir þá að-
ila að rumska, sem standa ættu
vörð um náttúru landsins og heið-
ur. Eg leyfi mér hér með að spyrja
þá vísindamenn, sem hafa það
starf m. a. að vaka yfir vernd ís-
lenzkrar náttúru, hvort þeir ætli
ekki að láta til sín taka nú, þegar
sú beina og bráða hætta vofir yf-
ir, að fágætasta og tignasta fugli
fslands verði útrýmt fyrr en nokk-
urn varir.
Eða er nokkur sá náttúruvísinda
maður, sem vill taka ábyrgð á því
að örninn taki ekki eitrið ef far-
ið yrði til og eitrað í hverri ey,
hólma og tanga um gjörvallan
Breiðafjörð og víðar þó?
Eg held það vera sönnu nær, að
6—10 bændur gætu haft það á
valdi sínu að útrýma örninum, ef
til veldust þeir, sem verst gegndi.
Ef þetta er rétt, sést bezt
hvernig sakir standa og hvort ekki
er ástæða til ýtrustu aðgæzlu, svo
framarlega sem öll sóma og skyldu
tilfinning er ekki aldauða.
ÁSTÆÐULAUST er og að loka
augum fyrir því, að til munu vera
þeir menn, að ekki yrði örinn
þeim harmdauði. Örninn þarf sitt,
eins og hver önnur lífvera. Æðar-
fuglinn fer ekki varhluta af að-
sókn hans og hafa varpbændur oft
orðið hart úti í þeim skiptum. Er
vel hægt að skiija að það þykir
hart aðgöngu þegar örninn sópar
heilar eyjar ár eftir ár, að þola
slíkt bótalaust.
Eg fæ ekki betur séð, en að
grípa verði til ákveðinna aðgerða
og marka ákveðna stefnu í þessum
ínálum. Svo framarlega sem hugur
fylgir máli að friða örninn og koma
í veg fyrir tortímingu hans, þá
verður að forðast alla eitrun þar
sem nokkur líkindi eru til að örn
inn geti beðið tjón af. Gildir það
um allt útbreiðslusvæði hans.
Þá ætti og jafnframt að kosta
nokkru til og bæta mönnum ein-
hvern hlut af því tjóni, sem örn-
in veldur hverju sinni.
ÞAÐ VIRÐIST næstum óhugs-
andi að Alþingi geti verið þekkt
fyrir það til langframa, að allt reki
sig hvað á annars hórn, sem það
gerir í þessum málum. Með hinni
áfjáðu eiturtrúboðsstefnu, sem nú
er rekin með fulltingi þess, tekur
það á sig hina þyngstu ábyrgð á
öllum afleiðingunum.
Á öskudaginn 1957.
Játvarður Jökull Júlíusson.
Páll Zóphóníasson
(Framhald af 7. síðu).
því tvennu, að jarðirnar, sem ekki
eru byggilegar eins og nú er, séu
bættar svo, að á þeim sé búandi og
jafnframt sköpuð aðstaða til að
komast í vegasamband og að á
þeim sé rekin sá búskapur sem
þar á bezt við og gefur bæði á-
búanda og þjóðfélaginu í heild
mest í aðra hönd. Þessu hefir
varla verið nægilega sinnt, og
því er nú talað um að framleiða
vörur, t. d. sölumjólk, á stöðum
þar sem enginn markaður er fyr-
ir hana, og þess krafist að ríkið
borgi hana.
Víst er, að við öll fasteignamöt,
,sem gerð hafa verið, hefir ekki ver-
ið tekið nægjanlegt tillit til mis-
jafnra samgangna og misjafnrar
aðstöðu til innanlandsmarkaðar og
þarf að gera því máli öllu miklu
betri skil í fasteignamati því, er
*
Attræður í dag: Magnús Þórarinsson
fyrrum bóndi í Hrútsholti
Magnús er fæddur 26. marz 1877
að Akurholti í Eyjahreppi og ólst
þar upp til tvítugsaldurs. Hann
tók snemma að vinna fyrir sér eins
og títt var um pilta á þeim tím
um, og stundaði hann sjómennsku
á yngri árum jafnframt því sem
hann vann við sveitastörf í ætt
byggð sinni, og lengi fram eftir
búskapar árum sínum, tók hann
oft í árina, þegar róið var í
Skógarnesi, og þótti því aðeins
vel mannað farið að Magnús frá
Hrútsholti réri með, en hann var
mikill þrekmaður, og flestum van
ari sjómennsku þar um slóðir.
Árið 1904 kvæntist Magnús
Önnu Sigurbrandsdóttir, ættaðri
úr Ólafsvik og hófu þau búskap
árið 1905 að Hrútsholti í Eyja
hreppi. Þar bjuggu þau allan sinn
búskap eða til ársins 1937, er
Anna lézt. Árið eftir brá Magn
ús búi, en synir hans tóku við
búsforráðum í Hrútsholti og dvald
ist Magnús hjá þeim og í Skógar
nesi um nokkur ár á eftir, en hef
ur átt heima í Reykjavík síðustu
árin og dvalist hjá elsta syni sín
um, Guðmundi Magnússyni, bif
reiðarstjóra að Langholtsvegi 60.
Þeim Önnu og Magnúsi varð 13
barna auðið, og eru tíu þeirra
á lífi, 8 synir og tvær dætur, öll
hið mannvænlegasta fólk. Eign
iiðustu þau hjón þrenna tvíbura
og voru allt piltar, en síðustu tví
burarnir dóu ungir og einnig
yngsta dóttir þeirra hjóna.
Einn af sonum Magnúsar býr
enn á föðurleifð sinni, Ilrútsholti,
annar er bóndi í Borgarfirði, en
hin systkinin eru öll búsett í
Reykjavík, nema önnur dóttirin,
sem býr í Keflavík.
Magnús Þórarinsson hefur lokið
miklu dagsverki — komið upþ
stórum hóp myndarlegra og mann
vænlegra barna, og meðan hann
bjó í Hrútsholti bætti hann jörð
sína og byggði þar upp. Hann vaí
atorkumaður mikill, og vinsæll af
sveitingum sínum, og munu marg
ir þeirra verða til þess að senda
hinum aldna bónda hlýjar kveðjur
í dag. — I. K.
Víðtæk endurskoðun á vörnum og her-
kostnaði Vestur-Evrópu gerð á næstunni
SamRcmulag það. sem náðist fyrr í þessari viku milli utan-
ríkisráðherra V-Evrópubandalagsins um málamiðlun varðandi
fyrirliugaða fækkun Breta 1 her sínum á meginlandinu, er
byggt á þeirri forsendu, að undinn verði bráður bugur að víð-
tækari endurskoðun á öllu varnarkerfi og herkostnaði Atlants-
hafsbandalagsríkjanna af vörnum V-Evrópu. Verður reynt
að ná sámkomulagi um hernaðarframlag hvers einstaks íúkis
með tilliti til fjárhagsgetu og efnahagsástands þess. Verður
jafnframt gerð endurskoðun á varnarkerfinu frá hernaðar-
legu sjónarmiði og þá fyrst og fremst með tilliti til þess,
hversu mikið skuli stuðzt við alls konar kjarnorkuvopn.
Bretar féllust á að fækka aðeins
í her sínum að sinni um 14500
manns, en þar eð þetta mun fyrst
og fremst taka til annarra starfs-
manna í hernum en þeirra, er
gegna beinni herþjónustu á víg-
velli, mun fækkunin hafa lítil á-
hrif á hernaðarmátt bandalagsherj
anna í Rínarlöndum.
Víðtækara samstarf.
Það var dr. Adenauer kanslari
V-Þýzkalands, sem kom með mála-
miðlunartillöguna og hugmyndina
að víðtækari endurskoðun áður-
nefndra atriða.
Fréttaritarar segja, að helztu
málin, sem rannsökuð verði, séu:
Hversu öflugur þarf herafli banda-
lagsins raunverulega að vera í
Vestur-Evrópu, hvert á að vera
hlutfallið milli þess sem nefnt er
venjuleg vopn og hins vegar ný-
tízku kjarnorkuvopna, svo sem eld
flauga? Ennfremur hverja fjárhags
lega möguleika einstök ríki hafi
til að taka á sig byrðar af fram-
leiðslu nýtízku kjarnorkuvopna?
Reynt verði að ná samkomulagi
um sameiginlega framleiðslu slíkra
vopna og gjaldeyrisvandræði Vest-
ur-Evrópuríkjanna m. a. vegna dval
ar herja í öðru bandalagsríki verði
leyst í heild en ekki aðeins fyrir
hvert land um sig.
Bretar létu undan síga.
Fréttaritarar benda á, að óneit-
anlega hafi Bretar orðið að láta
undan síga í máli þessu fyrir sam-
einaðri andstöðu bandamanna
sinna. Þeir telji sig að vísu hafa
óbundnar hendur enn um að fram-
■kvæma fyrirhugaða fækkun í herj-
um sínum á meginlandinu, en hafa
orðið að fresta henni í bili. Hins
vegar fá þeir framkvæmda ýtar-
lega endurskoðun á hervarnarmál-
unum í heild og kostnaði hvers
ríkis, en þeir telja sinn hluta af
byrðunum alltof stóran.
fram fer 1965, og sem sannarlega
ætti að fara að undirbúa.
Hinn mikii munur
Eg vil að síðustu geta þess,
sagði Páll Zóphóníasson, að ég
hefi hér og þar sveigt að ýmsu,
sem mér finnst mega fara betur
í þessum eða hinum hreppnum, og
ekki alltaf verið mjúkur í máli.
Mér er það ekki tamt að segja ann
að en meiningu mína, enda þótt
ég viti að hún er stundum illa séð.
Á þessu bið ég ekki velvirðingar
en vona að menn athugi aðfinnsl-
ur mínar vel.
'Víða reyni ég af lcunnugleik
mínum að rekja orsakir til eins og
annars, og má telja líklegt að þar
bresti mig hér og þar kunnugleik
til að sjá rétt. En ég vona að slík
ar ágizkanir megi verða til þess,
að kunnugir kryfji málið betur til
mergjar, og það geti leitt til fram
kvæmda sem gagn megi verða af.
En hvað sem því líður vona ég
að lesendur sjái af því yfirliti, er
smám saman birtist á næstu mán-
uðum, hvílíkur reginmunur er á
því, hvernig jarðirnar í landinu eru
setnar, og hve langt er frá því, að
jafnvægi í byggðum landsins sé
nú, og því verði þessi greinarflokk
ur til þess að gerðar verði ráðstaf
anir til að koma meiri jöfnuði á
í sveitunum og skapa lífvænleg bú
skaparskilyrði á þeim ca. 20% af
jörðum landsins sem ekki hafa
þau nú, sagði Páll Zóphóníasson
að lokum.
Tíminn mun hefja birtingu á
skýrslu Páls á morgun.
=
Kaupum
| gamlar og notaðar bækur. —
| Einnig tímarit.
| Fornbókav. Kr. Kristjánssonar
| Hverfisgötu 26 — Sími 4179