Tíminn - 04.04.1957, Síða 8
8
Sfúdentaráð segir sig úr.»
(Framhald af 5. síðu).
hverjar afleiðingar hún hefir fyrir
samtökin.
Að áliti núverandi minnihluta
Stúdentaráðs var nokkur vandi á
höndum um úrsögn úr sambandinu
einmitt nú, vegna þess, að Stúd-
entaráð hefir tekizt á hendur að
sjá um alþjóðaskákmót stúdenta í
Reykjavík í sumar í umboði IUS.
Varð ekki hjá því komizt að standa
við þá samninga. Sat minnihlutinn
hjá við atkvæðagreiðslu um úrsögn
ina að þessu sinni. Hins vegar hefir
svo skipazt, að skákmótið verður
haldið, svo sem fyrirhugað hefir
verið og er því von hingað á flest-
um, ef ekki öllum, beztu skák-
mönnum heims úr röðum stúdenta.
Ing. G.
Tangi
íer
(Framhald af 4. síðu).
týr, en það borgar sig að opna
á þeim munninn.
Talað viS Hammed
Matsöluhús í Casba. Hann setzt
álengdar við borðið, tðginleitur
og dökkur í andliti. Og hann drep
ur hendi í skál með vatni og þvær
sér. Máltíðina borðar hann með
þrem fyrstu fingrum hægri hand
ar. „Bismillah!" (í guðs nafni.)
Og þegar hann er mettur, lætur
hann fingurna upp í sig og sýgur
þá vandlega. Að því búnu drekk-
ur hann vatn úr stóru glasi, sem
gengur milli borðsgesta. „Hamd-
oulIah!“ (Lof sé guði.) Síðan þvær
hann sér aftur.
Hann er í raun og veru skraf-
hreyfinn. Samtalið byrjar á stutt
um athugasemdum um daginn og
veginn, en berst fljótt að stjórn-
málum. Hann talar um atburðina
við Súez og brezk-frönsku árásina
á Egyptaland, um ofbeldisverk
Frakka í Alsír og um samheldni
Arabaríkjanna:
— Arabaríkin eru einn heim-
ur. Við eigum eitt móðurland,
Egyptaland, það er móðurland okk
ar allra — og einn foringja,
Nasser. Við tölum eitt mál og trú-
um á einn guð. Bretar og Frakk
ar hafa gert samsæri gegn Araba
■íkjunum. Arðrán þeirra og kúg
un hafa legið eins og mara yfir
löndunum fyrir sunnan Miðjarðar
haf, og nú hrista þeir framan í
okkur vopnin. Og ísrael, það á
eftir að hverfa af yfirborði jarðar.
Gyðingar eiga eftir að reika land
lausir um allan heim eins og þeir
hafa jafnan gert. Vesturveldin
hafa stofnað ísrael með fjárvaldi
til þess að fjandskapast við Araba
ríkin. en trú okkar mun brjóta
þá á bak aftur. Þig skal ekki furða
þótt við séum tortryggnir í garð
Evrópumanna. Sjálfir hafa þeir
skipulagt spillinguna hér í hafn-
arborgunum. Það er ekki fyrr en
löndin fá sjálfstæði að farið er að
hreinsa til. Og nú er Marokko sjálf
stætt. í raun og veru má segja,
að Marokko hafi fæðst ó árinu,
sem leið. Soldáninn okkar, hans
hátign, Mohamed Ben Youssef,
er búinn að læra mikið af Evrópu
kannski meira en þeim gott þyk
ir. Og nú er farið hreinsa til í
hafnarborgunum, uppræta vín-
drykkjuna og annað, sem Múham-
edstrúarmönnum er óleyfilegt að
gera. Og hérna í Tanger er búið
að banna danssalina og strípasýn
ingarnar, en með víninu og dans
inum halda allir lestir innreið sína.
Ég veit það bezt sjálfur, hef sjálf-
ur farið víða og drukkið vín cg
faðmað konur. Girndin er söm við
sig, hvar sem er á hnettinum. Þeg-
ar karl og kona finna líkama hvors
annars, er freistingin á næstu
grösum, og fjandinn hafi það, ef
þau hrasa ekki saman.
Hann hlær kankvíslega um leið
og hann stendur upp og réttir
höndina. Hann heitir Hammed.
Biiiiiiniiiiiiiiiiiiiiin
Framhaldssiundsjá H.Í.P.
(Framhald af 7. síðu).
samningum og bréfaviðskipjtum
og ferðalögum, því tafir á áætl-
unum munu raska og hindra fram
kvæmdir.
Tungl og Satúrn í ágætri afstöðu
í sama mánuði. — Nú eru góð tæki
færi á leiðinni og festa birtist
og áreiðanleiki í öllum viðfangs
efnum og eldri menn munu veita
góð ráð og öryggi.
Tungl og Marz í samstæðu ó
sama tíma. — Þetta er athugavert
og fljótráðar ákvarðanir mundu
gerðar sem drægju slæman dilk
á eftir sér.
Tungl og Neptún í góðri af-
stöðu í okt. 1957. — Það mun
líklegt að lítið verði vart við þessi
áhrif, því þau eru æðra og and
legs eðlis. Þó gætu þau ef til
vill bent á auknar skemmtanir eða
veizluhöld eða gleðskap á einhvern
hátt eða sjóferð sem yrði til
gagns og gamans.
Tungl og Satúrn í slæmri af-
stöðu í febr. 1958. — Þetta verð
ur örðugur tími hjá félaginu. Taf
ir ýmis konar vilja koma í ljós
og hindra framkvæmdir og fram
farir og og framfaraviðleitni
undir valdaáhrifum og stöðnun
gæti átt sér stað.
Tungl og Úran í slæmri afstöðu
í marz 1958. — Nú er nauðsyn
legt að hafa nánar gætur á öllum
viðskiptum við aðra menn og taka
engar bráðar eða óhugsaðar á-
kvarðanir og fara að engu óðslega,
til þess að reyna að komast fram
hjá vandkvæðum og töfum. Mikla
aðgætni og hyggindi verður að
við hafa ef um mikilvæga samn
inga eða breytingar væri að ræða.
TÍMINN, fimmtudaginn 4. aprfl 1957.
■iiiiiiiiiiEiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiuiimiai
Fermingarföt
Drengjajakkafót 7—15 ára[
Matrósaföt og kjólar
Stakir drengjajakkar
Drengjabuxur og peysur.
Dúnhelt og fiðurhelt léreft.
Barnaúlpur, sænskar og ísl. i
Æðardúnsængur.
Sendnm í póstkröfu
Hæstaréttarlögmaður
Páll S. Pálsson
Málflutningsskrifstofa
Bankastræti 7 — Sími 81311
Vesturgötu 12 — Sími 3570.
aiiiiiitaiiKiiiiiiaiiiiiHHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiuii
Þessi Ijósmynd er eftir einn af félagsmönnum í féiagi áhugaljósmyndara,
Freddy Laustsen a3 nafni og hefir myndin hiotiS verðlaun á sýningu erl.
Tungl og Úran í góðri afstöðu
í maí 1958. — Þetta er ágætur
tími þeim, sem geta til fulls svar
að áhrifum. Ýms góð tækifæri
gætu komið í Ijós og veitt góðar
aðstæður til aukinna framfara og
breytinga og þessi tækifæri gætu
birzt jafnvel fyrirvaralaust og án
þess að verða fyrirséð. Það er
því bezt að beita vel og skynsam-
lega dómgreindinni í sambandi
við notkun þessara tækifæra.
Tannskemmdir
(Framhald af 4. síðu).
fluor í drykkjarvatn eða mjólk oa
þykir það gefa góða raun, þegar
börn eiga hlut að máli, en hafa
minni áhrif á tennur fullorðinna.
En árangursrikast er þó talið að
draga sem allra mest úr sætir.d?-
áti, einkum þeim tegundum, sem
fyrr voru nefndar.
SIOHMRsll
1« CQ IS KABATA
TH-CL* irCN A&HJftlNítirAtt
HMiMnmimnmminwin.i....iim.iL.«uiiuiniuniilllum
I ÚR og KLUKKUR
5
I Viðgerðir á úrum og klukk-
I um. Valdir fagmenn og full-s
I komið verkstæði tryggja
I örugga þjónustu.
I Afgreiðum gegn póstkröfu.
I in Ipunílsson
Skort$ripðvsrzluo
Laugaveg 8.
Eh
iJ
Q
<
Q
Q
S
W
CQ
H
w
O
fU
p
£
p
Q
N
Pí
P
H
O
Q
Ph
S
O
1-5
Q
M
4—)
H
W
'<
Þh
ítí
<
§
P
Eh
o
Q
Ph
GUDRÚN Á. SÍMONAR
Undirleikur 25 manna hljómsveit JONNY GREGORY
MALAGUENA — JEALOUSY — SSBONEY — BEGIN THE BEGUIN
Ofangreind 4 lög eru á einni 45 snúninga plötu „Extended Play“ í mynd-
skreyttum umbúðum. Mjög smekkleg tækifærisgjöf til vina yðar heima
og erlendis. Platan er óbrothætt og hægt að senda hana í venjulegu
sendibréfi.
SIGRÚN JÓNSDOTTIR
Undirleikur: K.K.-sextettinn:
GLEYMDU ÞVÍ ALDREI (Lag Steingrímur Sigfússon)
BLÆRINN OG ÉG (The Breeze And I)
Þetta er fyrsta platan, sem Sigrún syngur inn á fyrir His Master’s Voice,
en hún er eins og kunnugt er ein af okkar beztu dægurlagasöngkonum.
FÁLKINN H.F. hljðmplötudeild
..........................................................................................................Illllllll.IIIIIIIHI....................................................
| VEQIÐ UAGSÝM' kmpúíi'
£ HIHHIIIIIIIHHIIinilllllllllllllllHIIIIIIHIIIIIIIIinilllllllllHIIIIIIIIIHIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIHIIIlHIIHIIIIIIIIIIIIHIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIMIIIHIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllHHIIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHHIHHI
•OiÍÍíáBtðá^ ..