Tíminn - 07.04.1957, Page 2
T í MIN N, sunnudaginn 7. apríl 1957,
2
Líklegt aS Pólverjar íái 75 miÍlján
dollara lán í Bandaríkjnmim í ár
Af öryggissjóíi Eisenhowers og samkvæmt
ákvæíum PL 480
> * W .
í United Pressfregn frá Washington, segir, að JohiTFöst-
er Dulles, utanríkisráSherra Bandaríkjanna, hafi fallizt á, að
veitt verði samtals 75 miljón dollara lán og efnahagsaðstoð
til Pólla.nds.
Tillaga Dullesar um þetta efni
er nú í athugun hjá öðrum stjórn-
ardeildum. Talið er, að í þessari
upphæð sé 20 millj. dollara úr
sjóði þeim, sem Eisenhower for-
seti hefir til umráða, og nemur
alls 100 millj. dollara. Úr þeim
sjóði er vfirleitt veitt til að styrkja
efnahagsaðstöðu vinveittra landa.
PL 480
Þá er talið, að í fúlgu þeirri, sem
Pólverjum er ætlað, sé verulegur
| hluti látinn í samræmi ivað ákvæði í
j amerískra laga nr. 430 ("FL 480), j
’ en það fé er inn konuð, fyrif’igölu |
j á amerískum landbúria^arýöt'iipi, j
sem eru í eigu ntjórnarirtii.afe' Að-
j stoð er t. d. veitt með þvj ah levfa
i útflutning ýmissa vara og 'fá' við-
komandi lönd að greiða ándvirð-
| ið í eigin gjaldeyri. í fre^n þessari j
er ekki sagt, að Pólverjar hafi þeg-
ar fengið þessa aðstoð, en líklegt
er talið, að svo semjist, að þeir fái
! hana á þessu ári.
Vilja aS islenzk glíroa verði skyldu-
námsgrein drengja í barnaskólnm
Romið fram á Alþingi fiumvarp, sem mið-
ar að því að auka aftur veg hinnar fornu og
þjóðfegu íþróttar
Tveir þingmenn, þeir Benedikt Gröndal og Pétur Pétursson
hafa borið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á
íþróttalögunum, þar sem gert er ráð fyrir að glíma verði tekin
upp sem skyldunámsgrein fyrir drengi í skólum landsins.
í fyrradag var fyrsta umræða
um þetta nýja frumvarp og fylgdi
Benedikt Gröndal því úr hlaði með
stuttri ræðu.
Gert er ráð fyrir því að dreng-
irnir læri glímuna á aldrinum 10—
11 ára og er hugmyndin að fella
glímukennsluna inn í leikfimi-
kennslu eða kenna hana á sérstök-
Um námskeiðum. Nauðsyn leg
„Eg tek ekki á móti
þjófum með axar-
Eins og getið var um hér í
blaöinu opnaði Pétur Hoffmann
nýlega sýningu í Listamanna-
skálanum á munum þeim, er
hann hefir undanfarið fundið á
„Gullströndinni" fyrir vestan
Selsvör. Þarna eru dýrir hring-
ar af gulli gerðir eða silfri, borð
búnaður af góðmálmum o. fl.
Einnig er á sýningunni mál-
verkið af orrustunni frægu í
Selsvör, sem um getur í annál-
um, og sverðið góða Pétursnaut-
ur. Nú fyrir helgina skeði það,
að giæpamenn brutust inn i
iliistamannaskálann og vildu
hafa gersemar Péturs á braut.
‘Þjófarnir gripu í tómt, því að
"Pétur haföi kvöldið áður látið
gull og sílfur í poka og borið
-tieim.
Sagðist Pétur mundu taka á
móti slíkum heimsóknum á
«forna vísu með axarskalla og
vissara væri fyri rinnbrotsþjófa
ai5 halda sér frá góssi sínu í
framtíðinni.
Nefnd skipuÖ til a$ rann-
saka ásakanir um hry'Öju-
verk í Aisír
•París—6. apríl. Franska stjórnin
iliefir skípað nefnd til að rann
«aka, hvað hæft er í þeim ásök
unum, að franski herinn í Alsír
"3t»afi gert sig sekan um hin hrylli
tegustu hryðjuverk. Ýmis frönsk
■bhjð haía undanfarið birt hinar
asgiiegustu lýsingar á framferði
^rakka í Alsír.
.Ýinslr franskir leiðtogar í Alsír
•«4iafa híiAiiega gagnrýnt þessa
nefndaríikipun stjórnarinnar og
segja, að það sé móðgun * við
franska herinn.
glímubelti skulu vera í eigu hvers
skóla og drengjunum gert að
skyldu að lesa undir handleiðslu
kennara stutta bók um sögu glím-
unnar, glímubrögð og varnir í
glímu.
Arlega skal vera skólaglíma, þar
sem drengir, sem taka þátt í glímu-
náminu, sýna getu sína og kunn-
áttu í glímu. Þá er í frumvarpinu
ennfremur gert ráð fyrir að nem-
endur í æðri skólum eigi þess kost
að leggja stund á glímu og glímu-
nám.
Glíman merkur þáttur í
menningararfi íslendinga.
f greinargerð, sem fylgir frum-
varpinu segir svo:
íslenzka glíman er sérstæður og
merkur þáttur í menningararfi
þjóðarinnar. efir það valdið vax-
andi áhyggjum, að glímunni hefir
hnignað og hún er ekki lengur al-
mannaeign. ý
Með því að gera glímu skyldu-
námsgrein í barnaskólum landsins
á sama hátt og sund er reynt að
stiga stórt skref til að vekja á ný
almennan áhuga á glímunni og
tryggja það, að hver drengur, sem
hefir fulla heilsu, hafi að minnsta
kosti spennt um sig glímubelti í
skóla, tekizt fangbrögðum við jafn-
aldra sína og lært nokkur skil á
glímureglum.
Skólabörn á þeim aldri, sem gert
er ráð fvrir að njóti glímukennslu,
hafa að jafnaði 2—3 kennslustund-
ir í viku í fimleikum. Algengt er,
að hverri slíkri kennslustund sé
skipt í tvennt, fyrst sameiginlegar
fimleikaæfingar, en síðan ýmsa
leiki eða hópíþróttir. Gæti glíman
mjög vel komið í stað annarra
leikja eða hópíþrótta seinni hluta
kennslustundar einu sihni í viku.
Skólarnir þyrftu að eignasf glímu-
belti, en að öðru leyti hentar glím-
unni öll hin sama aðbúð og fim-
Ieikar njóta. Ef þessi kennslutil-
högun telst ekki hentug, má auð-
veldlega kenna glímuna á nám-
skeiðum.
Erfiðasti þátturinn í framkvæmd
þessarar lagabreytingar er senni-
lega sá hlutur, sem ætlaður er
kennurum. Hingað til hefir þess
ekki verið krafizt af þeim, að þeir
kenndu glímu, og er því ekki hægt
að ætlazt til, að þeir séu allir und-
ir það búnir. Úr þessu má bæta
með stuttum námskeiðum, eins og
lagt er til í frumvarpinu. Bera
flutningsmenn það traust til kenn-
arastéttarinnar, að hún muni ekki
liggja á liði sinu til að bjarga ís-
lenzku glímunni á þann hátt, sem
hér er gert ráö fyrir.
Skipbrotsmenn stíga á flugvél og halda heim
Sklpbrotsmennirnir af belgíska togaranum, sem strand jöí á MeSallandsf jöru á dögunum, Héldu heim á leiS i
gær, meS mlllilandaflugvél Flugfélags íslands, til Hamaorgar. — Ljósm.: Sv. Sæm.
Framsókiiaríéiag
síofnað
í Höfðakaupstað
Höfðakaupstað, 24. marz.
Undirbúningur að stofnun
flokksfélags Framsóknarmanna
var haldinn hér 17. febrúar s.l.
en í dag var félagið formlega
stofnað. Stjórn þess skipa
Hrafn Benediktsson, formaður,
Jóhannes Ilinriksson, Páll Jóns-
son, Björgvin Jónsson og Jón
Jónsson. PJ
Makarios farimt .
frá Seychelle-
London, 6. apríl. — Maka-
rios erkibiskunp er farinn frá
Seychelle-eyjum með grísku olíu
skiþi, sem flytur hann til Mada-
gaskar, en þaðan fer hann fiug-
leiðis til Aþenu. Þar mun hann
ræða við gríska ráðamenn, en
síðan heldur hann væntanlega
til London til að ræða við brezku
stjórnina um Kýpurdeiluna.
Ekki er talið með öllu ósenni-
legt, að erkibiskupinn kunni síð-
an að halda til Bandaríkjanna.
53 keppendor á Skák
móti Suðurnesja
í Keflavik
Eftir 5 umferðir á Skákmóti
Suðurnesja í Keflavík er Ragn-
ar Karlsson efstur með 4y2 vinn
ing. Næstir eru Óli Karlsson,
Hörður Jónsson cg Sigurður
Brynjólfsson með 4 vinninga.
Tefldar eru 9 umferðir eftir
Monradskerfi. Þátttakendur eru
53, þar af 15 í unglingaflokki.
6. umferð verður tefld í Tjarn-
arlundi næstkomandi sunnu-
dag kl. 6.
Heimsmeistaratitill Rússaas Botvinn-
iks virðist nú í bráðri hættii
Talií er a<S landi hans Smyslov beri sigur úr
hýtum á heimsmeistaramótinu í Moskva
greinilega af sér, er hann áttl
greinilega vinningsmöguleika og
síðar í 12. umferð skorti hann
sýnilega sjálfstraust, og tapaði.
Smyslov hefir leikið snilldar-
lega allar skákirnar til þessa,
hann virðist gæddur djúpu
sjálfstrausti og hann notfærir
sér alla vinningsmöguleika til
hins ýtrasta.
Minnt er á, að enn er 12 um-
ferðum ólokið, svo að Botvinnik
á enn tækifæri til að hefna fyr-
ir ófarirnar, en heldur er það
talið ólíklegt. Eftir þessra um-
ferðir hefir Smyslov einum vinn
ing meira.
London. — Með'al skáksér-
fræðinga víðs vegar í heimin-
um er nú talið, að heimsmeist-
aratitill Milthails Botvinniks sé
nú í bráðri hættu. Talið er, að
á heimsmeistaramótinu, sem
nú er í fuilum gangi í Moskva,
muni landi hans, Smyslov,
reynast honum yfirsterkari.
Botvinník — Smyslov
Skákfréttaritari Tass-frétta-
stofunnar hefir látið svo um-
mælt, að enginn vafi leiki á því,
að vegur Botvinniks í skáklist-
inni sé minnkandi, Smyslov hafi
þegar sýnt mikla tæknilega yfir-
i burði.
i
j SKORTIR SJÁLFSTRAUST
! í 7. umferð lék Botvinnik
l ..____________________________
Ferðaíélagið Útsýn hefir ákveðið
þrjárEvrópuferðir í sumar
Ferðafélagið Útsýn hefir nú að mestu lokið undirbúningi
sumarferða sinna. Eins og að undanförnu gengst félagið fyrir
kynnis- og skemmtiferðalögum til ýmissa landa Evrópu. Heim-
sóttar verða margar merkar borgir og fögur héruð álfunnar.
7341 farþegi fóns um
Keflavíkurflugvöll
í marz
í marzmánuði 1957 höfðu sam
tals 148 farþegaflugvélar við-
komu á Keflavíkurflugvelli. Eft-
irtalin flugfélög höfðu flestar
lendingar:
Pan American World Airways
Inc. 26 vélar. British Overseas
Airways Corporation 22 vélar.
Trans World Airlines 17 vélar.
Maritime Central Airlines 16
vélar. Flying Tiger Line 15 véi-
ar. Samtals fóru um flugvöllinn
7341 farþegar, 169.500 kg af rör-
um og 23.758 kg af pósti.
Ferðafélagið Útsýn var stofnað
í þeim tilgangi að gefa almenningi
kost á skemmtun og fróðleik í sum
arleyfum með því að efna til vel
skipulagðra hópferða erlendis fyr-
ir kostnaðarverð, þar sem þátttak-
endum gæfist kostur á að kynnast
menningu og listum annarra þjóða
en njóta um leið hvíldar og
skemmtunar. Þetta er þriðja starfs-
ár félagsins.
Vestur-Evrópuferð.
í byrjun júlí verður farið flug-
leiðis til London og dvalizt þar í
nokkra daga, en síðan haldið til
Parísar. í París verður höfð viku-
dvöl. Skroppið verður í ferðir um
nágrenni borgarinnar, m. a. til
Versala. Frá París verður haldið
um Belgíu og Holland og gist í
jBrussel og Amsterdam, síðan um
; Norður-Þýzkaland og dvalizt tvo
daga í Hamborg. Þaðan verður ekið
um Danmörku til Kaupmannahafn-
ar. Á leiðinni frá París til Hafnar
hefir hópurinn langferðabifreið til
umráða. í Kaupmannahöfn verður
4 daga dvöl, en haldið heiialeiðis
þaðau með Gullfossi og k*mið við
í Skotlandi.
Önnur ferð hefst um miðjar
ágúst og verður þá haldið beint til
Parísar með flugvél. Að lokinni
nokkurra daga dvöl í París verðui
ekið í langferðabifreið tÖ Sviss 0|
dvalizt þar í viku á ýmsum feg
urstu stöðum landsins, m. a. í
Genf, Bern, Interlaken, Grindel
wald, Luzern og Zurich.
Dvalizt verður 3 daga í Grindel
wald. Gefst þá tækifæri til hvíldai
og útivistar í hinu heilnæma fjalla
loftslagi, gönguferða og fjalla
íþrótta. Frá Sviss liggur leið þesss
hóps norður Þýzkaland með við
stöðu í Heidelberg og Rínarlönd
um. Gist verður 2 nætur í Ham
borg og 3 í Kaupmannahöfn, er
haldið heimleiðis þaðan með Gull
fossi.
Spánn í septeuiber.
í athugun er að efna til Spánar
ferðar í september. Verður þá far
ið víða um Spán og stanzað í París
í annarri leiðinni.
Skrifstofa Útsýnar í Nýja bíói
við Lækjargötu er opin mánudaga
—föstudaga kl. 5—7 síðdegls, sími
2990, og eru þar véittar allar nán-
ari úpplýsingar um ferðir félagsina