Tíminn - 30.04.1957, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.04.1957, Blaðsíða 7
TÍMINN, þriSjudaginn 30. apríl 1957. B Bændur þnrfa að stefna fá 50—60 hesta af hverjum hektara Eríndi Páls Zóphóníassonar sem hann] flutti í útvarp í gær og hét sumarmál Nýlega eru liðin ein af tímamót- um ársins, sumarmálin, augnablik- ið, þegar vetrarvikurnar 26 eru liðnar og sumarvikurnar taka við. Það getur nú að vísu oft farið svo, að sumar kemur ekki með sumri, það verða oft átök milli sumarsins, sem vill koroa á réttum tíma, og vetrarins, sem ekki vill sleppa völd unum, og þau átök geta oft staðið fram um fardagana, og er þá ýmist á því tímabili, hvorum vegnar bet- ur. Þessu má búandi maðurinn aldrei gleyma, og undir það þarf hann ætíð að vera búinn, að sum- ar komi ekki með sumri. í raun og veru höfum við aldrei ráð á öðrum tíma en líðandi stund, augnablikinu sem er að h'ða. Við ráðum hvað við hugsum, tölum og aðhöfumst á því, en um leið og það er liðið, er það komið aftur fyrir okkur og tilheyrir liðna tímanum, og þá er líka komin önn- ur líðandi stund, annað augnablik, sem við aftur höfum ráð á, og get- um ráðið hvað við aðhöfumst á. Þegar við athugum þetta, má okk- ur vera ljóst, hve nauðsynlegt okk- ur er að nota tímann bæði vel og rétt. Gera það rétt á hverri líðandi stund, sem skilur eftir hugljúfar minningar, minningar sem við síð- ar getum dregið fram og glaðst við. Og gera aldrei neitt, sem við síðan þurfum að reyna að gleyma, svo sem fylgir okkur eins og skugg inn, hvernig sem við reynum að grafa hann og gleyma. En af reynslunni læra einstakl- ingarnir. Af henni læra þeir, hver einstakur, hvernig þeir eiga að nota komandi líðandi stundir, ef þeir lifa og þá að njóta þeirra, til þess að mynda skaphöfn sína þroska sjálfan sig, að gera sig sem líkastan, þeim, sem við erum skap aðir eftir og eigum að hafa okkur til fyrirmyndar í breytni okkar. Og af liðna tírnanum lærum við hvernig við eigum að starfa til að verða sem nýtnastir þegnar í þjóð- félaginu og gera heildinni sem xnest gagn. Tvær áminningar Og af reynslu fjöldans myndast sagan. Og af henni lærir heildin. Þar á hver þjóð sína sögu, og hver stétt sína. Og hvað er það nú sem sveitafólkið, bændurnir og sifjalið þeirra hafa að læra af nýliðnum vetri? Mér finnst, að sá sem tím- anum ræður, sá, sem stjórnar veðri og vindi, hafi í vetur gefið bændum landsins tvær áminning- ar. Hann lét vetur gera samgöng- ur erfiðar, og það svo, að þær tepptust um skeið tii vissra hluta landsins. Það sýndi sig þó að við því voru menn varbúnir. Vistir voru ekki til á heimiiunum til að mæta langri samgóngustöðvun. Og þó búum við við íshafsbauginn, og megum alltaf eiga von á að sam- gönguerfiðleikar og samgöngu- stöðvun, geti orðið mikið lertgri en í vetur. Við getum átt von á því, að ís — bæði hafís og lagís — loki siglingum í margar hafnir um- hverfis landið, og þó er það svo, að vörubirgðirnar sem til eru um áramót á höfnunum sem geta lok- ast af ís, fara minnkandi ár frá ári. Þess^ vegna var þessi ámnming, sem okkur var gefin í vetur, þörf. En lærum við af henni? Hin áminningin var gefin með því að jarðlaust. varð um tíma, svo öllu búfé varð að gefa inni. Mis- lengi var það, víða 12 vikur og sums staðar allt upp í 18 vikur. Víða höfðu menn nægt fóður handa búfénu, en allmargir ein- staklingar urðu uppiskroppa, en ulls staðar gátu nágrannar hjálpað, bvo skakkaföll verða vonandi eng- in eða lítil, þó það fari eftir því þvernig baráttan um völdin milli Bumars og vetur fari næstu vikurn- Br. Hér voru bændurnir minntir á það, að þeir þurfa á hverjum þaustnóttum að veya undir það búnir að geta mætt hörðum vetri, vetri með 20—28 vikna innistöðu. Og nú fer sumarið í hönd. Getum við nú á því notað það þannig, að við, að komandi haustnóttum, verð um betur færir um að mæta hörð- um vetri en við vorum í haust sem leið? Ég held það, og vildi nú benda á nokkur atriði, sem ég held að geti orðið til þess að þið bænd- ur góðir, getið, að komandi hausti, orðið búnir undir harðan vetur. Aukið töðufail Meðaltúnið á byggðu jörðunum í landinu er 10,2 hektarar að stærð. Af því fást 414 hestar, eða sem næst 40 hestar af hverjum hektara. Þetta er alltof lítil upp- skera. Margir bændur fá 70 og 80 hesta af hverjum hektara. Það á því enginn bóndi að láta sér nægja þetta meðaltal. Þeir eiga að stefna hærra, fá 50—60 hesta af hverjum hektara. Ef við getum nú í sumar gert ráðstafanir til þess að fá, þó ekki væri nema 20 hestum af töðu meira af hektaranum en við höfum fengið, þá eru það 100 hestar af meðaltúninu og ef það bættist við, yrðu heyin næg, þótt næsti vetur yrði harður, og það þótt kæmi 26 vikna inniseta. En getum við gert eitthvað, sem gerir mögulegt að auka töðufallið í sumar um 10 hesta af hektara? Ég held það, og ég held að ef þið stefnið að því, bændur góðir, þá gerið þið það. Og nú vil ég reyna að benda á nokkur atriði, sem þarf að athuga í þessu sambandi: 1. Það er enginn vafi, að túnin spretta yfirleitt verr fyrir það, að það er borið of seint á þau. Bú- fjáráburðinn á helzt að bera á og dreifa að haustinu, víðast hvar á landinu, en sé það ekki gert, á að gera það eins snemma að vorinu og hægt er. Hann ætti víðast hvar að vera kominn á túnin nú. En er hann það? Sé hann það ekki, þá gerið gangskör að því að koma honum strax á túnin og dreifa vel úr honum. Og tilbúna áburðinum ætti líka að dreifa sem allra fyrst. Látið mig hvergi sjá að verið sé að dreifa áburði eftir miðjan júní, eins og ég varð sjónarvottur að í fyrravor. Með því getið þið byrjað að slá síðast í júlí, og sargað við fram á veturnæturnar. Komið á- burðinum sem allra fyrst í jörðina, með því getið þið byrjað sláttinn fyrr, og fáið meiri töðu af hektar- anum. 2. Skurðgrömrnar og jarðýturn- ar eru að byrja að vinna hér og þar um landið. Ég hefi orðið var við það, að bændur vilja ógjarnan láta grafa gömlu túnin. Þeir kunna ekki við það að sjá þar kominn uppgröft, sem jafna þarf út yfir túnið. En þetta er það sem þarf að gera víða við gömlu túnin. Þau eru víða svo blaut, að þau geta ekki sprottið þess vegna. Setjið þið nú skurögröfurnar á þau. Það þýðir ekkert að vera að bera á- burð ár eftir ár, á tún vaxið hálf- gresnu, með svo mýrskotna töðu, að kýr snerta hana ekki nema hún sætorni, það er að henda pening- um í sjóinn. Takið því skurðgröf- urnar núna fyrst, og látið héraðs- ráðunautana segja ykkur hvernig á að grafa í túninu, ykkar til þess að fá það þurrt og sprettuhæft. 3. Skiptið túninu niður í reiti og áttið ykkur á hve hver er stór. Þá eigið þið hægara með að bera hæfi lega mikið á hvern einstakan hluta túnsins. Aðgætið síðan í sumar hvað þið fáið af hverjum túnhluta, og þá munið þið fljótt komast að raun um, að þetta var ykkur nauð synlegt en þetta gefur nú ekki að ráði meiri töðu í sumar, þar er fyrst að ári sem gagn þessa koma fram. Friðiö túnin 4. Friðið túnin. Þau eru nú fá, túnin á byggðu jörðunum, sem Páll Zóphóníasson enn eru ógirt, en þó samt nokkur. Friðið þau. Og önnur eru enn svo illa girt, að skepnur ganga á þau Og enn eru skepnur látnar ganga eftir vild. Gerið við girðingarnar. á túnunum með vilja. Það er rétt að bcita tún, þegar bóndinn á svo arðsamar skepnur, að þær geta misst meira af næringarefnum í seljanlegar afurðir en þær geta fengið úr grasinu í bithaganum. Getur þetta átt við hámjólka kýr og tvílembur að vori, og kýr, eftir að grös sölna að hausti. En þá þarf að hólfa túnin sundur, svo beitin notist vel og rétt. Það hafa nýlega verið hjá mér tveir bænd- ur, sinn úr hvorum landsfjórðungi og sinn í hvort skiptið. Við rædd- um um jarðirnar í þeirra sveitum. Ég spurði annan hvort hann héldi ekki að töðuframtal hjá granna hans væri rangt. Eftir því átti að fást 11 hestar af hektara. Nei, hann hélt það vel talið, því hvort tveggja væri, að allar skepnur, og þó sérstaklega hrossin, ganga í tún inu allt árið nema rétt um blá siáttinn. oq svo svelti hann það. Hinn spurði ég einnar spurning ar um granna hans sem átti eftir skýrslum að.fá 17 hesta af töðu af hverjum ha. í túninu. Það hélt hann nú ckki. en sagði eðl'Iegt að lítið kæmi af túninu, því að bæði væri það raklent að parti til, og svo væri það trú bónda að beita yrði hesturo. á túnið að haustinu og vetrinum cf þétt vær: í rót, til þess að halda mosanum í skeijum, en hann héldi að þetta vær: misskiln ingur, sem það og cr. Þið sem enn hafið þessa trú. leggi.ð hana til hl>3 ar. Og ýfirleitt íriðið túnin, og ef þið þurfið að beita þau, þá gerið það skynsamlega. Látið ekki arð- lausar skepnur naga töðuna af íun- ui um. 5. Berið nóg á, sveltið ckki grösin ykkar. Allt sem lífsanda dregur þarf sína næringu. Látið túngrösin fá hana, og fá hana nægj anlega snemma vors. Ekki skal ég nefna neinar tölur yfir hvað þið eigið að bera á. Ef þið hafið skipt túninu í reiti, og vitið hvað þið hafið beríð á hvern þeirra undan- farið og hvað þá fengið af hverjum þá hafið þið reynt hvernig það hef- ir gengið, og hvernig þarf að breyta tii þurfi þess. En annars hafið þ'ð héraðsráounaut með ykk ur til skrafs og ráðagerðar, þegar þið ákveðið hve mikið þið berið á. Og litlu veiku stráin eru eins og krakkarnir ykkar. Þau vaxa og dafna bæði ef þau fá sæmilegan að búnað og nóg að borða. Þurkið því og friðlð túnin, gerið aðbúðina sæmilega og berið nóg á, gefið þeim nóg að borða. Vandið vinnsluna 6. í sumar verða ef að vanda lætur , sáð í nálægt 3000 ba sem nú eru brotnir, og bíða herfingar og sáningar. Vandið nú vinnsluna. Búið sáðbeðin vel undir áður en þið sáið grasfræinu svo þiö fáið sprettu sem slá má strax í sumar. Sumir fá sprettu á nýræktarflögin á sama sumri og sáð cr, og slá í ágúst eða fyrst í september Um nantgnparækt Naviiigriparæktarléíögin og afurSafiróunin. Frá rannsóknum um kvort samband sé milli nythæviar og líkamsstærðar kýrinnar Þar sem við íslendingar stundum nautgriparækt eink um til mjólkurframleiðslu, verðum við að leggja mat á kýrnar eftir mjólkurlagni þeirra. Um þennan mikil- væga eiginleika kýrinnar ræður erfðaeðli hennar mestu, en í næstu röð kemur fóðrun hennar og hirðing. Víða erlendis leggja menn meiri áherzlu á kjötafurðir naut- gripanna og leggja þá meiri rækt við líkamsvöxt þeirra og útlit. En einnig hjá mjólkurkynjum er viss líkamsbygging talin benda til af- urðasemi og hreysti og hér á lándi er mikil áherzla lögð á útlit naut- gripa við dóma á nautgripasýning- um. Afurðaskýrslur eru nauðsynlegar. Æfður maður getur með nokk- urri vissu gert sér grein fyrir hvort kýr sé góð mjólkurkýr eða ekki, með því að athuga vaxtarlag henn- ar og útlit, en hætt er þó við að ónákvæmni gæti í þeim dómi, og afurðaskýrslur eru því nauðsynleg- ur grundvöllur alls skipulegs kyn- bótastarfs í nautgriparækt til mjólkurfi-amleiðslu. Um 44% «f íslenzkum kúm eru skýrslufærðar í nautgriparæktarfé- iögum. Um gæði og gagnsemi þeirra 56%, sem ekki eru á skýrslu og fitumælingar ná ekkl til, vit- um við lítið. Mikilvægasta ráðstöf- unin til þess að bæta kúastofn okk- ar almennt, er því sú, að fjölga nautgriparæktarfélögum, færa ná- kvæma afurðaskýrslu yfir fleiri kýr og byggja þannig upp kynbóta- starfið á þessum grundvelli í þeim sveitum, þar sem engar skipuleg- ar kynbætur nautgripa eru enn stundaðar. Eftirfarandi tafla sýnir allvel árangurinn af starfi nautgriparækt arfélaganna og afurðaþróunina, eins ogr hún birtist í skýrslum þeirra. I skýrslunni er tekið ann- j að hvert fimm ára meðaltal naut- I gríparæktarfélaganna 1903—1948 : og loks meðaltal ársins 1955, en það er síðasta árið, sem skýrslur hafa verið reiknaðar út fyrir. Ar Félög Bændur Fullmjólka Ársnyt Feiti Fituein. í fél. kýr kg % 1903—08 10 300 880 2242 3.60 8071 1914--18 27 , 715 2584 2206 3.67 8096 : 1924—28 23 520 1932 2396 3.64 8721 1934—38 95 2274 6824 2615 3.69 9649 1944—48 77 1391 5211 3055 3.76 11487 j 1955 77 8539 3283 3.84 12607 Eins og sést af töflunni, hefir i samband sé á milli nythæðar kýr- drjúgum miðað að því hjá bænd- innar og líkamsstærðar hennar. um í nautgriparæktarfélögum að Greinin heitir Om mælkeköernes auka afurðir kúnna. Meðalnyt hef- störrelse som ökonomisk faktor og ir hækkað úr 2242 kg á tímabil- j er eftir N. Dyrbye. Sá, er stóð inu 1903—1908 í 3038 kg 1944—48 fyrir finnsku rannsóknunum, nefn og í 3283 árið 1955, eða um 1040 ist Suvenvuo. Áður en efni grein- kg. Meðalkýrin hefir hækkað fitu-! arinnar verður rakið, er rétt aff einingar sínar úr 8071 kg í 12607 ; bera nokkuð samar. finnska og ís- árið 1855 eða 4536 fitueiningar. Icnzka nautgripi. í Finnlandi eru 3 aðalkyn naut- Líkamsrækt og afurðasemi. gripa: Norðurfinnska, Austfinnska Fyrir nokkru birtist í danska og Vésturfinnska kynið. Meðal- tímaritinu Jerseybladet grein um þyngd þeirra er um 400 kg, en finnskar rannsóknir á því, hvort í (Framhald á 9. síðu). Hrefna ?20, eign Guófinnu Stefánsdóttur, Vogum í Mývatnssveit, er elni af glæsilegustu kúm iandsins. Myndin er tekin sumarið 1956, þegar Hrefna var 13 vetra. (ekki seint) með góðu grasi, aðrir geta aldrei slegið nýræktarslétturn ar á fyrsta ári. Vandið nú allir ný ræktarsléttuna í vor, svo slá megi hana seint i ágúst. Eg er viss um það, að ef þið takið ykkur til allir, og leggið ykkur fram um að fá 50 hesta af túnhektaranum i sumar, þá fáið þið það. Þetta er mark sem hægt er að ná. Og ef þið náið því í súmar, þá má ekki fjölga á fóðr- um í haust, almennt, og þá verða allir undir það búnir að taka á móti hörðum vetri næsta haust. Komi hann ekki, verða fyrningar vorið 1953 og þá fáum við bæði hey af fleiri hektörum en í ár, og úr því má fjölga skepnum árlega eins og heyaukinn sem árlega bæt ist við tiltekur. Eitt enn áður en ég hætti. — Heima í Viðvík var föðurbróðir minn sem var járnsmiður. Hann smíðaði Ijábakka o. fl. Margir komu fyrst til hans til að láta hann smíða bakka og bakka fyrir sig Ijá inn, þegar þeir ætluðu að fara aff bera niður. Þeir áttu að gera það fyrr. Hafið allt tilbúið til sláttarins farið ekki að byrja að skoða og lag færa tækin þegar grasið er komið. Verið á verðinum, verið tilbúnir aff taka grasið um- ieið og það er sláttutækt. Látið það ekki spretta úr sér. Um leið og ég lýk máli mínu þakka ég ykkur bændur góðir, fyr ir velurinn. Sérstaklega þakka ég öllum sem minntust mín með þökk og samúð, þegar ég hætti að vera fullgildur þegn þjóðfélagsins. Og bændunum og fóikinu í sveitunum vil ég óska þess að liðni tíminn — reynslan — megi kenna þeim leið- irnar til þess að nota tímann rétt, vera vaxandi maður og batnandi, betri þjóðfélagsþegn, og með ári hverju betur og betur undir það búinn á haustnóttum að mæta sam gönguteppu og hagleysi á komandi vetri. 1 Gleðiiegt sumar, gott starf á því.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.