Tíminn - 13.08.1957, Blaðsíða 9
TÍMINN, þriðjudaginfl 13. ágúst 1957.
9
MARTHA OSTENSO
RÍKIR SUMAR
í RAUÐÁRDAL
101
brigði, sem væri ónæmt fyrir
myglu. Vandræðin voru hins
vegar þau eins og nú var kom
ið, að Steve hafði nógan tíma
til að halda áfram tilraunum
sínum, en faðir hans á hinn
bóginn var orðinn alger þræll
hinnar stóru fjölskyldu. Hann
myndi aldrei framar geta
veitt sér þá ánægju og na'utn
að fylgjast með framþróun
og breytingu eins afbrigðis —
hvað þá heldur að hann rækt
aði tegund, sem væri ónæm
fyrir myglu.
— Loren ætlar sér að taka
við jörðinni, sönglaði Olina.
En David ætlar sér að veröa
listamaður. Rose á mynd, sem
Karsten teiknaði fyrir tveim
árum . . . þegar flóðið kom í
ána. Hann skildi teikninguna
eftir á árbakkanum og Rose
fann hana og geymdi hana.
Karsten blóðroðnaði og fór
allur hjá sér: — Hún hefir
auðvitað ekki haft vit á að
gera neitt betra við hana,
tautaði hann.
— Rose Shaleen er komin
hátt á 17. ár, hélt Olina á-
fram að söngla.
— Það er ekkert smáræði,
sem þú hefir látið út úr þér
í morgun, Olina, sagði Mag- I
dali. Eru allir búnir að boröa?
Hún leit einu sinni í hring
yfir borðið og reis svo snöggt
upp úr sæti sínu.
Karsten gat ráðið þaö af
sléttum, en hörðum svip móð-
ur sinnar, að hún myndi út-
kljá málið seinna við Olínu,
þar eð öll misklíð eða ókyrrð
var stranglega bönnuð við
borðið. En hversvegna hafði
barnið spunnið upp þessa
sögu til varnar systur sinni?
Vissi hún ef til vill meira um
Solveigu og þennan náunga
Alec, en hann sjálfur? Olina
hlaut að hafa verið út á ferli
löngu áður en Solveig fór á
fætur og leitað að álfum og
huldufólki, sem hún í laumi
trúði enn að væri til. Karst-
en hnyklaði brýrnar og ein-
hvern veginn var það svo að
seinni skammturinn af svína
fleskinu og eggjunum smakk-
aðist verr en sá fyrri.
— Alls staðar við hið fjöl-
setna borð voru nú samræður
í fullum gangi. Það var rætt
um uppkeruhorfur, hinn öra
vöxt Wing-þorpsins og lík-
urnar fyrir því, að þangað
myndi innan skamms lögð
járnbrautargrein frá stórri
aðaliínu, sem orðasveimur
gekk um að þegar væri byrj
að að leggja frá suðurhluta
landsins. Jim Jewel, stórvax
inn, beinaber og málreifur
náungi frá St. Paul, sem ívar
hafði ráðið fyrir tveim dög-
um, var þegar búinn aö kynna
sér hitt og annað í Wing-
þorpi og þótti auk þess mik-
ill sómi að því, að vinna hjá
fyrirfólki, er bærinn bar nafn
af. Karsten sá hvernig móðir
hans komst aftur i gott skap
við gullhamra þá, sem nýi
vinnumaðurinn sló henni og
skar ekki utan af. Ef til vill
myndi hún eftir allt saman
gleyma að refsa Olínu litlu.
—Þeir segja mér í borginni
sagði Jim gleiðgosalega, að
þér frú Wing og bróðir yðar,
bankastjórinn, hafið verið
þau fyrstu, sem börðust gegn
óhóflegum flutningsgjöldum
járnbrautarfélaganna. Þetta
var í kringum 1884. Það kalla
ég skratti hraustlega gert af
kvenmanni. Og þér komið líka
yðar fram. Ef ekki hefði notið
við yðar baráttu, þá er óvíst,
að fylkisþingið hefði haft sig
í það að setja lög, er settu
þessum bölvuðum járnbrautar
okrurum steininn fyrir dyrn
ar. Ó, auðvitað heyrði ég líka
hvernig þér, hr. Wing, hefðuð
barizt fyrir þessu líka en þeg
ar konurnar taka til hend-
inni við hlutina, þá fyrst fara
þeir nú að ganga. Nei, það
ætti að reisa yður minnis-
merki í miðju borgarinnar
frú Wing.
Eins og á stóð, þá lét Mag-
dali sem hún hefði ekki heyrt
blótsyrðin sem hrukku út úr
Jim Jewel. Andlit hennar
bókstaflega glóði og tútnaði
út af ánægju við lofsyrði
vinnumannsins. Og hún átti
líka þetta lof skilið. Hversu
marga fundi hafði hún ekki
átt mestan þátt í að skipu-
leggja og unnið viku eftir
viku að því að skapa virka and
spyrnu meðal fólksins gegn
hinum óhóflegu flutnings-
gjöldum járnbrautanna.
Og þaö myndi heldur aldrei
hafa orðiö til neinn bær með
nafninu Wing ef ekki hefði
notið við dugnaðar og kænsku
Magdalis á liðnum árum.
Roald hafði auðvitað hjálpað
til, en þó hefði henni stund-
um vegnað betur án hans.
Veslings kæri, skammsýni
ívar, sem beinlínis elskaði allt
sem var smátt í sniðum og
iét lítið yfir sér, hann myndi
hafa komið í veg fyrir áform
hennar, ef hann hefði komið
því við. Þau höfðu í fyrstu
skipt jáí'nbrautarhlutabréf-
unum fyrir eignarhald á
landi, sem þau siðar seldu
j arðeignabröskurum með
miklum hagnaði. Það fé not-
uðu þau svo til þess að kaupa
upp „á réttu augnabliki" þá
landnema, sem „áttu í basli“,
það er að segja, þá sem skorti
dugnað til að brjótast til
bjargálna. Svo kom skiplagn
ingin að hinu nýja þorpi og
síðar sala lóða, er tími var
til kominn og loks hafði Roald
sett á stofn Bændabankann.
Magdali gat ekki annað en
hálf kennt í brjósti um ívar,
sem var næstum undrandi
og hálf viðutan yfir öllu því,
sem hún hafði hrundið í fram
kvæmd. En hún hafði nú sagt
honum fyrir mörgum árum
síðan, þegar erfiðleikarnir
voru sem mestir, nákvæm-
lega hvernig hún hugsaði sér
að þetta skyldi gerast.
Og nú var Jim Jewell að
stinga upp á minnismerki.
Auðvitað var slíkt hlægilegt.
Minnismerki voru fyrir fólk,
sem var dáið.
— Borgin sjálf er minnis-
merki fyrir mömmu, sagði
Magdis og varð svo eitt blóð-
stykki i framan yfir þessari
mælgi smni og starði niður á
diskinn sinn.
— Alveg rétt, dóttir góð,
alveg rétt, flýtti ívar sér að
segja, til þess að breiða yfir
vandræði hennar og fát.
Magdali hló, rjóð í kinnum
og ungleg. — Þið gerið mig
svo hégómlega, að það verð-
ur ómögulegt að umgangast
mig, sagði hún. Við unnum
öll mikið tii þess að öðlast
það, sem við nú höfum, hélt
hún áfram. — Guðrún, þessi
kaffikanna er tóm.
Ólína, sem aftur var tekin
að stara með djúpbláu aug-
unum sínum á Karsten og
sagði nú dreymandi: — Rose
Shaleen kom heim í gærdag.
— Jæja, hvað með það,
sagði Karsten. — Ég vissi
ekki einu sinni að hún hefði
verið að heiman.
— Hún hefur verið hjá
frænku sinni, Kate, í heila
viku, sagði Olina yfir rönd-
ina á mjólkurglasinu sínu.
— Davíð sagði mér það í gær.
GRILON MERINÓ
LLLARGARN
Verksmiðjur
____ Sambandshúsinu. — Sími 7080.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiiiiiiiiinni
gniiniiuiiiiiiiinniiniiiiiinniiiiiiiiiiiiiiunmimniiiiniiuiiiiiiiiMiiiiinniiiiiiiiiimnmmiiiiiiiiuinmnnmMw
flninmMiBœraaaiEiHnmmuiiiamnuumiiinifluiuiiiiiuiiiiuiiiiiiiiiiiiimuiniumiimifinaisi
Vélrinunarstúlka
Skátar
Stúlkur — Piltar
| Ljósálfar — Ylfingar
1 Mætið stundvíslega kl. 12,30 í dag í Skátaheimilinu.
~ iiimiinin _______
= Mætið í búningum.
1 ____________ __________ Stjórnir félaganna.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimnmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiu
wjuw.wAmwjwwmwMmwwww
í
v Innilega þakka ég vinum, vandamönnum og félögum, ;!
í er sendu mér gjafir, blóm og heillaskeyti, og heimsóttu
*- rrnrr Ó n nrn o-Pm oalí mínn 0^7 í 1 í —4-1 ZXJ — —
:: mig á 60 ára afmæli mínu 27. júlí síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
ÍJ Jón FriSbjörnsson, V
> Freyjugötu 23, Sauðárkróki. jí
v.v.wwavvv.v.v.vaw.v.vav.v.v.v.v.v.w.vvÍ
I Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir vélritunar-
| stúlku. Enskukunnátta nauðsynleg. Umsókn ásami
| mynd óskast send til skrifstofu blaðsins fyrir 16. þ. m.
| merkt „Vélritun — 100“.
uiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimBB
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiH
| Ungur reglusamur |
| iðnnemi óskar eftir herbergi og fæði í Vesturbænum, |
| helzt sem næst Bifreiðaverkstæði S.Í.S. við Hringbraut. 1
| Tilboð sendist Tímanum fyrir 16. þ. m. merkt ,,Iðnnemi“. 1
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifii
Fylgist með tímanum. Kaupið Tímann
Konan mín.
Stefanía Guðmundsdóttir,
andaðist í Reykjavík 9. þ. m. — Jarðarförin ákveðin frá Fossvogs-
kapellu, föstudaginn 16. þ. m. kl. 1,30 e. h.
Einar Einarsson. Stokkseyrl.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
Guðfinnu Jósepsdóttur,
Bjarteyjarsandi.
Aðstandendur.
Kveð'uathöfn móður okkar,
Sigríðar Bjargar Sveinsdóttur
frá Skarði í Skagafirði,
fer fram með baen frá Keflavikurkirkju miðvikudaginn 14. þ. m.
kl. 2 e. h. Sama daga kl. 5 e. h. frá Dómkirkjunni I Reykjavík og
verður athöfninni í Dómkirkjunni útvarpað.
Börn og fjölskyldur þeirra.