Tíminn - 22.09.1957, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.09.1957, Blaðsíða 5
TÍMINN, sunnudaginn 22. september 1957. 5 Margt býr í sjónrnn: Lindýr LINDÝRIN, eða Mollusca, : I eins og þau eru nefnd á vís- indamáli, eru geysilega teg- || undamörg; aðeins liðdýrin eru tegundafleiri. Munu vera nær || 100 þúsund núlifandi tegunda til, og eru þá talin með þau H lindýr, er á landi lifa. Þessi dýr eiga langa sköpunarsögu || að baki sér, svo langa, að við || mennirnir eigum örðugt með || að koma sliku tímatali inn í || höfuðið á okkur, því að hvað || er ein mannsævi á móti 500 || milljónurn ára. Það er -þvi ekki || nema eðlilegt, að lindýrin séu harla ólík innbyrðis. Þeim er !| skipt 1 5 flokka, er svo eru || nefndir: 1. Nökkvar; 2. Kuð- ungar eða sniglar; 3. Samlokur eða skeljar; 4. Pípuskeljar og || 5. Smokkfiskar eða kolkrabb- ar. Fystu flokkarnir 4 eru ofí í daglegu tali nefndir skeldýr, þar sem meginþorri þeirra hef- ur um sig kalkskel til hlífðar. aftur á móti er flokkur smokk- fiskanna annaðhvort skellaus eða aðeins vísir til skelja áð undanskildum fáeinum tegund um, svö sem hinum undursam lega gerðu perlusnekkjum (Nautilus), en á þær verður minnst síðar. Það er ekki eingöngu í hin- um mismunandi flokkum, að ’gerð skeljanna sé breytileg, heldur er hún geysilega ólík meðal hinna ýmsu tegunda hvers flokks. Fegurð og fjöl- breytni virðist þar engin tak- mörk sett. NÖKKVARNIR eru ekkert ósvipaðir óskabirni fljótt á lit- ið. Þeir hafa aðeins bakskelj- ar 8 að tölu, eina hálfmána- Djúpnökkvi Þáttur kirkjunnar: jj Blómsturmál „LÁTIÐ BLÓMIN tala“, segir ágæt auglýsing, sem vakio hef- ir mikla athygli. En það bezta við orð þessi er samt, að þau eru alveg samhljóma boðskap sjálfs Drottins, sem segir: „lít- ið til blómanna". Honum dylst ekki, að blómin hafa mikinn boðskap að flytja hverr: lilust- andi og vakandi sál. Fáir af stórmennum andans hafa gjört allt, sem glitrar og grær að stærri fyrirmyndum og fegra táknmáli í lífi mannanna, en einmitt meistarinn. sem var Ijós heknsins. ALDREI ómar tcfrahljómur til- Ij verunnar sem á bergmál frá i hjarta Guðs í orðunum: „Verði | | ljós“ yndislegri sam'hljóma en i á vorin. Ef unnt væri að heyra p eins og Heimdallur, ljósguðtnn i niikli, öll þau undur, sem sin- fónía groandans hlýtur að op- i inbera í bverju brumi sem opn ast, þá væri hljómkviöa einnar morgunslundar á vorin æðri öllu, sem meistarar tónanna hafa enn nnegnað aö skapa. Horfið á hina „glituðu blæju, gróna blómurn smám“ og hver þúfa, hver laut á sitt sérstaka lag, sína ákveðnu hrynjandi, sín afmældu stef. Og blómin þau segja þér á söngljúfu blómsturmáli sínu heilar sögur um baráttu við | myrkrið, um sigra ljóssins, um f bið sína ei'tir vorblænum, sem leysti fjötra frostsins, um bæn sína til fyrstu geislanna, um fögnuðinn að vakna. Og önnur -tala um auðmýkt sína, unað og ást, um söknuð sinn og þjáningu, óttann og kvíðann, þegar norðangolan þeytti yfir þau hrími og sólin var gleypt af grásvörtum ský- bólstrum. JÁ, ÞAU hafa mörgu að segja frá, þótt ung séu vetrarblómin í skriðunni og lambablómin í ■ mónum og ilmandi ljósberinn á holtinu, en allt á það sam- | hljóm í sál mannsins í hug hans og lífsbaráttu. Og jiá þarft ekki að vera i| skáld til að heyra rödd sjálfs || || Guðs í gegnum prédikun blóm- p || anna. Þau tala með þögn sinni I || angan og litum yndislegra mál en nokkur' prestur í prédikun- arstól. Þau eru sjálf opinberun 1 || Guðs -—• án orða. En áhrifamesta prédikun ■ blómsturmálsins er ræðan um || það, hvernig helgur andi vors- ' || ins,' guðsandi jarðar, breytir hrjúfum efnum moldar, grjóts og gróms í fíngerðustu, hrein- ustu og skærustu lífverur ' heims, svo hreina og skæra : ii ! blómlíkami, að ekkert annað | getur verið svo fíngert utan ; skærleikinn í líkama lítils barns, ekkert svo silkimjúkt og tært, netma auga þess og gull- lóin á litlum kolli. Slíkur er máttur Guðs í einu blómblaði. Hvort getur þá - hugurinn efast, að hann veiti; anda lífsins efnishjúp af öðr- um dýrri heimi, þegar þessi er orðinn of þröngur og smár. HVORT MUN þá ekki eilífðar- vorið unaðslegt og blóm þess unaðssæt í höfugri dögg, úr því að hann skrýðir svo andar- taksundrið, sem í dag stendur | en á morgun verður ekki fram- ar. Þannig hlustum við á blömst- § ||| urmál hins blíða vors utan allra kirkna, oían allra prédikunar- || stóla. „Látið blómin tala“. Árelíus Níelsson. j ^|^iBWMMiwntriiiismiin»iwi»iMiniiiiiiiiiiiiii(iM>iiiaHfm<«^siiBatgBeé^iam'iiam(tmiiiiiimiiFniWTfíWHWiin!t(ii^< Beitukóngur laga skel sitt á hvorum enda, I en hinar 6 eru meira eða minna | sperrulaga og mynda eins og | kjöl eftir endilöngu baki dýrs | ins. Litur skeljanna er ýmist | hvítur, grár, rauður eða rau'ð | flikróttur. 11 tegundir hafa I fundizt við ísland. Kuðungarnir hafa aftur á f móti um sig skel, sem er annað f jhivort gormlagasnúin (beitu- kóngur) eða húfulaga (haðar- hetta). Stundum eru vindiag- ar þessir mjög fáir eða nær því hverfandi, og er þá bara meira eða minna víð rauf eftir skelinni endilangri (ránarkugg | ur). Litur skeljanna er oft | hvítleitur eða móleitur, en fjöl | margar tegundir eru líka til í | skrautlegum litum. Allmargar f kuðungategundir eru skellaus- | ar — hinir svonefndu nakin- | tálknar. Eru þeir tíðir í yfir- | borði sjávar innan um önnur § ísmádýr og smásæjan gróður | (svif). Alis eru þekkíar 173 I tegundir kuðunga (með skel f |og skellausar) úr íslenzkum f •jó. ; PÍPUSKELJARNAR, sem | istundum eru kallaðar skips- 1 Itennur, eru líkastar langri og f imjórri vígtönn að útliti, eru f gildastar í annan endann og f mjókka smám saman fram í : odd, enda einu sinni neíndar meðal dýraíræðinga denticulus elephantis, þ.e. fílstönn. Flokk ur þessi var miklu tegunda- fleiri á fyrri jarðöldum en nú, það sýna steingerfingar. Hér hafa fundizt aðeins 5 tegundir. Samlokurnar eru oftast þann ig gerð'ar, að 2 skeljar hvolfast saman utan um sjálft dýrið, og eru einn eða tveir vöðvar (dráttarvöðvar) flestir ofan til í hvora skel. Við stríkkun og slöknun á vöðvum þessum opn ast eða lokast skeljarnar með hjáip svonefndra tengsla, sem liggja við skeljarnefið eru þau gerð úr hornkenndu efni. Lög- un, mynstur og litur skeljanna er með afar margvíslegu móti. Og oft er innra borö þeirra með skínandi skelplötugliáa. Úr slíkum skeljum, ef lögun þeirra hentar, eru framleidaar skyrtutölur, pennahnífasköft o. fl. Umhverfis ísland lifa 83 tegundir samlokna. LOKS ERU svo smokkfisk- afnir, eða öðrðu nafni blek- fiskar. af þeim eru 14 tegundir hér við land. Af ytra útliti eru þeir harla ólíkir skel eða kuð- ungi, en öll innri bygging þeirra bendir til þess, að þeir séu náskyldir þessu dýrum. Srnokk urinn heíur 8 eða 10 langa arma með sogskálum fram úr höfðinu, og inn á milli arm- anna er kjafturinn hulinn; í honum eru sterkir skoltar, ekki ólíkir páfagauksnefi. Sjónin er ágæt og betri en á sér stað meðal annarra lindýra. Neðan við höfuðið að framan er líiið Mál og Menning ... 11 1 Rltttl, dr. Haíidór Halidórss^n. :| i | ^ LÆRÐUR maður og kennari, sem 11 ekki vill láta nafns síns getið, rit- | aði mér í sumar bréf um vanda- j mál, sem vafalaust fleiri, er við 11 ritstörf og kennslu Mst, hafa velt 11 fyrir sér. Mér er ljúft að láta í I i ljós skoðun mfna á þessu máli. En 1 áður en ég geri það, þykir mér S ■ rétt að birta bréf kennarans. Það er á þessa leið: Mig langar að biðja þig að fjalla um atriði nokkurt í þætt- inum Máli og menningu. Mjög verður vart í riti og einkum ræðu manna „ólógískrar“ nolkun- ar eigharfornafnsins sinn og óá- kveðna fornafnsins hver (hvor), er þessi orð koma fyrir í sama orðasambandi. Dæmi: Þeir fóru sinn í hverja (hvora) áttina. Þau stóðu siít hvorumegin (sic) veg- | arins. Þeir tóku sinn í hvorn endann. í stað þessa er vafalítið upprunalegra og réttara að segja: | Þeir fóru hver (hvor) í sína áít- ina, eða í sína áttina Iiver (hvor). Þau stóðu hvort sínum megin vegarins. Þeir tóku hvor í sinn endann. Ég hirði ekki að nefna fleiri dæmi, þótt þau sé að finna sem mý á mykjuskán. Af þessu | er sýní, við hvað ég á. Auk þess, að víxl verður hér á stöðu for- nafnanna í setningunni, missir eignarfornafnið eiginlega merk- ingu.sína og fær óeiginlega og ó- ákveðna merkingu. Finnst mér því ruglingur af þessu tagi fjarri réttum málfræðilegum skilningi og næsta óviðfelldinn. Hygg ég samt, að þorri manna nú á dög- ym geri sig, að því er ég held, — sekan um rugling í notkun fyrr- nefndra orða í ámóta sambönd- um. Nú verður spurningin þessi: Eru þessi brengl fornafnanna gömul í málinu? Ef svo er, rétt- lætlst þá þessi notkun þeirra af gamalli venju? Þá langar mig að iokum að fá skýringu á notkun | (mætti eí til vill segja merk- ingu) eignaríornaínsins í sam- bondum ems og: bíllinn bentist sitt á hvað; það er sitt hvað, gæfa og gjörvileiki. Ég gleymdi’ að geta þess, að málfræðingur einn sagði í út- varpinu i vetur „sinn úr hverri áttinni“. Nóg um það. Ef þú vilt gera svo vel að taka efni bréfs þessa til umræðu í þætti þínum, bið ég þess, að nafns míns sé ekki getið. op á húðfati því (sem nefnt er möttull), er lykur um dýrið. Um op þetta getur dýrið sogið inn sjó. Ef smokkurinn verður hræddur, eða þarf að flýja ó- vin sinn, blandar hann svörtum vökva í sjóinn í möttlinum, og spýtir síðan blekblöndunni út um opið, um leiQ og hann þýt- ur með geysihraða aftur á bak. Missir þó óvinurinn oft sjónar á honurn. Af þessum svarta vökva hefur hann hlotið nafn- ið blekfiskur. Stærð smokksins hér er oft ekki meiri en 20 —30 cm, Stöku sinnum hefur rekið hér á land stóra smokka. Fyrr á tLmum komust stundum á kreik reglulegar tröllasögur um þessar skepnur, sem bárust að landi,. og er því erfitt að segja með vissu, hver raunveru leg stærð þeirra hefur verið. En vel geta þær hafa mælzt ■> IV2 m. á lengd. Slíkir smokk- íiskar hafa ótrúlega mikið afl til ao bera og geta verið köf- urum hættulegir. ÉG MINNTIST á möttulinn, sem lj’kur um smokkinn. Þann- ig er það einnig á samlokum og kuðungum. Þessi þykka húð liggur sem poki eða blökur um líffæri þeirra. Þá hafa þeir vöðvastyrkan fót scm hreyfi- tæki, er þau þurfa að hreyfa sig úr stað á liafsbotni, þó eru hér ýmsar undantekningar. Ef við athugum kuðung með dýrinu í, sjáum við, að það situr fast í mjórri enda snigils- hússins. Þetta stafar af því, að (Framliald á 8. síðu.) ÉG HEFI athugað nokkuð, hvern ig notkun orðanna sinn og hvárr (hverr) var háttað í fornmáli. Og virðist hin „ólógíska“ notkun, sem kennarinn kallar svo, yfirleitt ekki hafa tíðkazt þá. Hirði ég ekk-i að rekja dæmi þess, en bendi þeim, sem á'huga hafa á, á dæmi þau, sem Nygaard tilfærir í Norrþn Syn tax, bls. 339—340. Þó vil ég taka það fram, að sum þeirra eru ekki sambærileg við þau, er kennarir.n tekur. En þótt aðalreglan virðist vera þessi í fornbókmenntunum, má þó sýna fram á, að ruglingur- inn er gamall. Eftirfarandi dæmi er úr Snorra Eddu: Hann sá 3 hásæti ok hvert upp frá öðru, ok sátu 3 menn sinn í hverju. Sn.E. 1,36. Að visu verður ekki fullyrt, að þetta sé orðalag Snorra Sturluson- ar, bví að hið upprunálega handrit Snorra Eddu er glatað. Þó er mik- il ástæða til’að ætla, að svo sé, því að .setningin er með svipuðu orða- lagi í öllumi hinum elztu og beztu handritum. Ég tel því vafalaust, að „ruglingurinn“, sem um er tal- að í bréfinu, sé frá 13. öld að minnsta kosti. Þó virðist hann ekki hafa verið algengur, því að Nygaard, sem orðtók mörg rit frá sjónarmiði setningarfræði, kallar þetta dæmi úr Snorra Eddu „en paafaldénde omstilling for hverr í sínu“. í NÚTÍMAMÁLI virðist mér á- standið þannig, að ýmist sé sagt þeir fóru hvor í sína áttina eða þeir fóru sinn í hvora áttina. Ég mundi ráöleggja kennurum að láta þetta afskiptalaust. Það kann að vera, að þeir gætu breytt málfari 5 nemenda af hundraði að þessu leyti, varla meira. Breytingin er orðin svo algeng, að viðurkenna verður hana som rétt mál, hvað sem allri rötóhyggju Uður. Það er að vísu mikils vert hlutverk máls- ins að vera tæki til tjáningar rök- réttrar hugsunar. En það er ekkl hið upprunalega né veigamesta hlutverk þess. Megnið af því, sem sagt er og skrifað, á lítið skylt við rökhyggju. Vitaskuld er það hlut- verk skóla að örva nemendur til þess að beita málinu rökvíslega. En hafa verður alltaf gát á því, að mál breytast og gagnslaust er að sporna við inálbreytingum, ef þær eru konrnar á hátt stig. Kennari á að verá íhaldssamur um mál, en hann á ekki að vera afturhalds- samur. Eyjólfur Stefánsson frá Dröng- um konn til mín í vetur og kenndi mór kvæði allundarlegt. Kvæðið, sem mun vera ort ekki alllöngu fyrir aldamót, var gert til þess að sýna orð og orðasambönd, sem bóndi einn í Dalasýslu notaði. Mörg orðanna eru vel skiljanleg, aðeins érlendar slettur, en önnur eru srfiðari viðfangs. Eyjólfur nafcjtreindi bæði bóndann, sem um var ort og höfund kvæðisins, en ég mun ekki gera það. En kvæðið var á þassa leið: Landshöfðinginn leyfir dont, lætur repentera. Amtmaður er orðinn slont, sem ætti strix að vera. Repentera klerkur kann, kænn með vizkuhóti, en ég sjálfur aftur vann anventera á móti. Set þá alla á sömu skrá, sízt þeim breyti vana. Reíormera þessa þrjá þyrfti jöfur Dana. Dont, sagði Eyjólfur mér, að merkti „skeytingarleysi", og slont, sagði hann, að væri „óburðugur“. Að öðru leyti mun ég ekki skýra vísurnar. En gaman væri að vita, hvort orðaleppar þessir hafa víð- ar verið notaðir en í Dölum vestur. GUÐMUNDUR G. Hagalín rithöf- undur bað mi'g að spyrjast fyrir um það hjá lesendum þáttarins, í hvaða markingu þeir noti orðið fuliorðinn. Hann er vanur orðinu í merkingunni „fullvaxinn“, þ. e. 16—20 ára. Hér syðra er það liins vegar notað í merkingunni „rosk- inn“. Hyggur Guðmundur, að sú merking orðsins gerist nú æ tíð- ari. H. IL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.