Tíminn - 25.10.1957, Síða 2
Ávarp á degi Samemuðu þjóðanna
Forseti íslands flutti eftirfarandi ávarp ti!
þjóSarinnar í gærkvöldi
G'óðir Islendingar!
Þetta síðasta starfsár Hinna Sarn
einuðu þjóða hefir leitt tvennt
skýr.t í ljós. Fyrst það, hve mátt-
vana samtökin eru, þegar við þá
er að eiga, sem engin tillit taka,
og hitt annað hve mikils Hinar
Sameinuðu þjóðir geta mátt sín,
þegar skiiyrðin eru hagstæö. Það
eru góð skilyrði, þegar hinar ein-
stöku þjóðir sýna félagslyndi og á-
hyrgðartilfinningu gagnvart .sam-
tökunum og tilgangi þeirra, en ill,
þegar synjað er um allt samstarf.
Þetta var raunar alltaf vitað, og
liggur í augum uppi. En bæði Sú-
ez- og Ungverjalandsmál hafa vaid
ið meiri umræðum en áður um tak
mörkuð áhrif og völd Hinna Sam-
einuðú þjóða, og ýmist vaxandi
vorileysi eða kröfum um úrbætur.
Það tvennt hefir skeð, sem vert
er að rifja upp fyrir almenningi á
þessum minnisdegi, það fyrst, að
neitunarvald Öryggisráðsins hefir
verið takmarkað, og hitt annað að
stofnað var gæzlulið Hinna Sam-
einuðu þjóða. í Öryggisráði getur
einn aðili stöðvað öll afskipti og
íhlutun, hvað sem við liggur. En
nú geta' tvéir þriðju hlutar at-
kvæða á Allsherjanþinginu ráðið
úrslitum í hverju máli, án tillits
til hins gamla neitunarvalds.
f sambandi við Súezdeiluna var
og stofnað, í fyrsta sinn, gæzlulið
tíu þjóða til meðalgöngu á ófriðar-
sv^ðinu. Það lið var að vísu fá-
mennt, og hefði hver ófriðaraðili
sem var, -getað rutt því úr vegi.
En svo fór þó ekki, því á bak við
var ósýnilegt afl Hinna Sameinuðu
þjóða, almenningsálitið í alþjóða-
málum. Gæzluliðið var stofnað
vegna þessara sérstöku átaka einna
saman, en vaxandi kröfur eru á
dagskrá um öflugra og varanlegt
gæzlulið, sem Hinar Sameinuðu
þjóðir stýri til tryggingar og örygg
is heimsfriði. Það er þó of snemmt
að gera sér vonir um öfluga al-
þjóðalögreglu, eins og fyrirhugað
var við stofnun Hinna Sameinuðu
þjóða, en öllum er það Ijóst, að
friður og réttvísi þarf bakhjarl,
ekki síður í milliríkjaskiptum en
innanlandsmálum.
Það er mála sannast, að Hinar
Sameinuðu þjóðir fullnægja ekki
hinum ítrustu óskum né framtíðar-
vonum um öryggi og frið. Það er
bezt að gera sér engar tálvonir.
Friðsamlegri stjórnmálaviðureign
inhanlands er stundum lýst svo, að
hún sé barátta fyrir því, að ná svo
góðum árangri sem framast er
mögulegt. Þessi skiígreining á
ekki síður við í alþjóðastjórnmál-
um. Miririkyninu virðist það áskap-
að, að það, sem að fæst og er frek-
ast kleift, nær sjaldan eða aldrei
hirini hæstu hugsjón. Hinar Sam-
eiriuðu þjóðir ná ekki lengra. en
sem svarar þeim samtakamætti,
sem þær stýra á hverjum tíma.
Það stekkur enginn langt yfir hæð
sína. Við sitt eigið aft, hafa hinar
Sameinuðu þjóðir ekki öðru að
bæta, en því alþjóðaáliti, sem
þeim tekst að skapa í hverju máli.
Alþjóðaálit skapar alltaf nokkuð
aðhald. Og þegar litið er ú þessa
hlið í starfsemi hinna Sameinuðu
þjóða á síðasta starfsári, þá er sízt
um afturför að ræða. Allur almenn
ingur þráir frið og farsæld, og
starfsemi Hinna Sameinuðu þjóða
er tákn og traust þess hugarfars.
Ég mun ekki rekja starfsemi
Hinna Sameinuðu þjóða í þessu
stutta ávarpi. En barna'hjálp,
flóttamannafyrirgreiðsla, tækniað-
stoð, matvælastofnunin og margt
fleira, eru dæmi þeirrar viðleitni,
sem heimurinn má ekki án vera,
og nú fyrst er sýnd á alheimsmæli-
kvarða. Hver veit hve langt verður
komist um lausn hinna stærstu al-
þjóðavandamála á þessum vett-
vangi, ef haldið er áfram í ein-
beittri trú á mikla möguleika. Ör-
yggi’ óttans á þessari atómöid
hrekkur ekki til frambúðar. Gagn-
kvæmgr gkilningur og traust, sam
hjáip og umhyggja þarf að útrýma
óttanum og styrjaldarhættunni.
MgjíJ. vaxandi samúi ®g samstarfi
á aiþjóðavettvangi mun heiti
„Hinna Sameinuðu Þjóða“ að lok-
um reynast sannnefni. —- En a!lt
getur brugðist til beggja vona.
Framtíðin veltur á hugarfari og
stefnu þeirra, sem forustuna hafa.
Hinar Sameinuðu þjóðir eru hin
víðtækustu alþjóðasamtök, sem til
hefir verið stofnað. Enn eru þau
ung .að aldri. Vér megum ekki
vera mjög bráðlát. Allt er lengi að
vaxa, sem-lengi á að standa. Fram-
tíðarmöguleikarnir éru miklir, og
gifta mannkynsins í veði. Yfir
| þessum degi blakta allir fánar
' hinna einstöku sameir.uðu þjóða
— og bera við himin líkt og frið-.
arbogi.
Vér óskum Hinum Sameinuðu
þjóðum allra heílla, og gefi Guð
góðri viðleitni sigur!
FríverzlunarmáliíS
i (Framhald af 1. síðu).
eiginlega markaðar gæti valdíð
þeim verulegum erfiðleikum, þar
sem samkeppnisaðstaða þeirra á
mörkuðum innan sexveldasvæðis-
ins myndi rýrna stórum í saman-
buröi við þjóðir innan svæðisins.
Þannig óttuðust Bretar ójafna sam
keppni við Þjóðverja um sölu á
iðnaðarvörum á sexveldasvæðinu.
Danir óttast samkeppni Hollend-
inga og Frakka á landbúnaðar-
vörumarkaðinum í Vestur-Þýzka
landi, og íslendingar hafa m.a.
ástæðu til að óttast samkeppni
Frakka og Þjóðverja á saltfisk-
markaðir.um í Ítalíu, og þannig
mætti lengi telja. Jafnframt hef-
ur sú skoðun þráfaldlega komið
j fram, að með sexveldasamningn-
um myndi skapast alvarlegur
klofningur meðal þeirra þjóða,
sem eru þátttakendur í Efnahags-
samvinnustofnun Evrópu.
AfstaSa Breta til frí-
verzlunarmálsins
Xil þess að ráða bót á þessum
vanda, en jafnfranit stíga stórt
skref í átt til hagkvæmari við-
skipta innan Evrópu, báru Bretar
fyrir tæpu ári frain tillögu um
stofnun svonefnds fríverzlunar-
svæðis í Evrópu og skyldi það ná
til allra þjóða innan Evrópusam-
vinnustofnunarinnar, þar á meðal
sexveldanna. Innan þessa svo-
nefnda fríverzlunarsvæðis skyldi
smám saman eða á 12—15 árum
afnema höft á viðskiptum og tolla
á innflutningi, en hvert ríki fyrir
] sig skyldi geta ráðið tollum sín-
um gagnvart öðrum þjóðum. Frí-
j verzlunarsvæðið er eingöngu hugs
að sem áframhald þeirrar sam-
vinnu í efnahagsmálum, sem Efna-
hagssamvinnustofnunin hefur
gengizt fyrir, en alls okki sem
skref i átt til stjórnmálasambands
eða jafnvel sameiginingar, eins og
segja má um sexveldasamninginn,
enda hafa hinar hlutlausu þjóðir
Evrópu, Sviss, Svíþjóð og Austur j
ríki, allar lýst yfir stuðningi sín-'
um við liugmyndina um fríverzl
unarsvæðið.
Undanfarna mánuði hafa farið
fram víðtækar athuganir á því,
hvernig framkvæma mætti slíka
fríverzlun. Þrjú vandamál hafa þar
verið efst á baugi. í fyrsta lagi,
hvernig samræma mætti friverzl-
unarsvæðiú hinum sameiginlega
markaði. í öðru lagi til hvaða
vörutegunda fríverzlunin skuli
taka, og í þriðja lagi, hvernig
, leysa mætti vanda þeirra þjóða,
] sem skemmst eru á veg komnar
j í efnahagsmálum.
I Fundurinn í París
Á ráðherrafundi þeim, sem hald
inn var í París í s.l. viku, var
einkum rætt um fyrstu tvö atrið-
in, enda er ljóst, að þau ráða úr-
slitum um það, hvort samningar
geta tekizt um stofnun fríverzl-
unarsvæðisins. Að því er það snert
ir, hvort sexveldin séu reiðubúin
til að fella hinn sameiginlega mark
að inn, í friverzluHarsvapðið, voru I
gefnar yfirlýsing'ar á fundiriuml
þess efnis, að gera verður ráð
fyrir, að svo geti orðið. Hitt vanda
málið, til hvaða vörutegunda frí-
verzlunin skuli taka, varðar okkur
ísleridinga miklu meira. Eins og'
kunnugt er hafa Bretar lagt á það
höfuðáherzlu hingað til, að frí-
veizlunin taki ekki til landbúnaðar
afurða og fiskafurða, en hins veg-
ar skiptir það aðrar þjóðir höfuð
niáli. að liún taki til þeirra í ein-
hverju formi. Á Parísarfuhdinum
gáfu Bretar yfirlýsingar, sem fólu
í sér mjög verulegar tilslakanir
i þessum efnum. Ekki veröur þó
fullkomlega skýrt hvernig Bretar
hugsa sér þessar tilslakanir, fyrr
en kemur að samningaborðiiiu,
tn fundurinn samþykkti að fela
sérstakri ráðherranefnd að annast
þær samningaviðræður, undir for-
sæti brezka ráðherrans, Mr.
Mandlong.
Afstaða íslands
Það sem gerist í þessum málum
kann að verða örlagaríkt fyrir ís-
lendinga, sem eiga afkomu sína
undir útflutningi fremur en flest-
ar aðrar Evrópuþjóöir. Aukin við
skipti og greiðir markaðir fyrir
afurðir erlendis er íslendingum
lifsnauðsyn, og í því getur falizt
hætta, að vera utan við samtök,
þar sem helztu keppinautar okkar
eru þátttakendur. Hins vegar er
hér við mörg vandamál að etja.
Sérstaklega hlýtur afstaða íslands
að mótast af því, hvort, eða ,að
hversu miklu leyti fríverzlunin
tekur til fiskafurða eða ekki. Þá
skiptir það og meginmáli liver
áhrif fríverzlunin hel'ði á afkomu
atvinnuveganna, og hvort hægt
er að fá fjármagn til þess að
byggja upp nýjar framleiðslu-
greinar og styrkja þær, sem fyrir
eru*
Eg gerði á fundinum grem fyrir
hagsmunamálum íslendjnga varð-
andi viðskipti þeirra við lönd hins
fyrirhugaða fríverzlunarsvæðis,
þeim vonum, sem við það geta
verið tengdar, og þeim vanda, sem
því getur fylgt. Að sjálfsögðu geta
íslendingar ekki mótað endanlega
afstöðu sína fyrr en frumvarp að
fríverzlunarsamningi milli aðildar
ríkja Efnahagssamvmnustofnunar
innar liggur fyrir. En ríMsstjórnm
mun fylgjast nákvæmlega með
öllu, sem í þessu mikilsverða máli
gerist.
Skattar
(Framhald af 1. síðu).
á sköttum hjóna, en þær breyt-
ingar yrði að undirbúa vandlegar
en gert er í frumvarpinu, þannig
að breytingin gagnist þeim, sem
helzt þurfa þess með.
Jóhann Hafstein sagði að ú-
stæðulaust væri að vera með þessa
villukenningu um hálaunamenn,
eins og hann orðaði það, og sagði
að enginn yrði stórgróðamaður
á íslandi af þeim launum, sem
hann yrði að telja fram til skatts.
Magnús Jónsson sagði að engu
máli skipti í þessu sambandi-hvort
um væri að ræða háar eða lágar
tékjur.
Tekjur koma óskiptar til
útsvarsáiagningar eftir
sem áSur
Gísli Guðmundsson benti á þá
staðreynd, að þau gjöld, sem fólk
finnur helst fyrir, eru ekki skatt-
arnir, lieldur útsvörin og ekki
væri gert rá'ð fyrir neinni lækk-
un, eða breytingu á þeim í sam-
bandi við umrætt frumvarp um
sérsköttun hjóna.
. Sagðist Gísli vilja vekja at-
liygli á því, að sainkvæmt frum-
varpinu lækka ekki skattskyldar
tekjur framteJjenda. Tekjurnar
kænni því eftir sem áður óskipt-
ar til útsvarsálágningar, Ef að á
að Iækka gjöld hjóua, á líka að
gera það við útsvarsáalgning-
una. Um það myndi meira muna
en skattana.
Gísli Guðmundsson gat þess að
lokum, að þéssi rnál um skatta
á tekjur hjóna, myndi vera til
athugunur á vegum ríkisstjþrnar-
innar, eins og fram hefði komið
TÍMINN, föstudagiun 25. október 195?,
»íttOk.u -i,’ Jl
ASalfundur Framsóknarfélags Hafn*
arfjarðar verðnr n.k. sunnudag
Aðalfundur Framsóknarfélags Hafnarfjarðar verður
haldinn í Góðtemplarahúsinu næstkomandi sunnudag
og hefst hann klukkan 4 síðdegis. Auk venjulegra að-
alfundarstarfa verður rætt um bæjarstjórnarkosning-
arnar. Framsóknarmenn eru hvattir til að mæta á
fundinum.
Hver verkfallsaldan af annarri lamar
franskt atvinnu- og efnahagslif
NTB—París, 24. okt. — í annað sinn á 10 dögum mun
franskt atvinnulíf verða lamað á morgun af völdum víð-
tækra allsherjarverkfalla, sem grípa beint og óbeint inn
í allt athafnalíf landsmanna. Að þessu sinni eru það flest
allir starfsmenn við samgöngutæki Frakklands, sem gera
sólarhrings allsherjarverkfall, svo og starfsmenn pósts og
síma og útvarpsstarfsmenn um allt landið. Er verkfallið
til þess að mótmæla vaxandi dýrtíð og krefjast hærri launa.
í verkfalli þessu taka og þátt
einstakir starfihópar 1 mörgum
atvinnugreinum. Má því segja að
allt atvinnulíf landsins verði lam-
að.
Gífurlegt þjóðartap.
Verkfall rafmagnsstarfsnian,na
og starfsmanna við gas- og orku-
ver í fyrri viiku leiddi einnig af
sér stórfellda stöðvun og er talið,
að tapið af völdum þess verkfalls
hafi numið 2 þús. millj. ísl. kr.
Allt samgöngukerfi Parísar mun
stöðvast að mestu, jafnvel sumir
leiguhílstjóirar ætla ekki að hreyfa
bíla sína.
Búizt er við, að sama sagan
gerist í flestum horgum Frakk
Tanner gengur ilSa
stjórnarmyndun
NTB— HELSINGI, 24. okt. —
í dag tilkynnti finnski Bænda-
flokkurinn, að' hann myndi ekki
taka þátt í ríkisstjórn undir for-
sæti Vainö Tanners, núverandi
formanns finnska jafnaðarmanna,
en honum hefir forsetinn falið að
reyna stjórnarmyndun. Ekki er þó
enn með öllu vonlaust, að Tanner
takist enn að koma saman stjórn.
Landhelgin
(Framhald af 12. síðu).
ísiendingar verða sjálfir
að virða landhelgina
Páll sagði, að nú væri löngu úr-
elt þau sjónarmið, sem togaraeig-
endur hefðu einu sinni haft gagn-
vart landlhelginni, er spurt var:
Hvar eiga togararnir okkar þá að
fi'ska? Um langt skeið hefðu ís-
lenzkir menn haft það að tféþúfu,
að vísa erlendum veiðiskipum í
landhelgina, þegar lítil hætta væri
á varðskipum.
IVIeð því að setja ný ákvæði,
eins og í frumvarpinu i'elast,
taldi flutningsniaður að sýnt
væri svart á hvítu Iiversu alvar-
leguin augum íslendingar líta
sjálfir á landheigisbrot, með því
að taka úr umferð þá skipstjóra,
sem staðnir eru að veiðum í land-
heigi. Það væri sami háttur og
liafður væri, þegar hættulegir
ökumenn væru teknir úr umferð.
hjá fjármálaráðherra í sambandi
við fjárlagaumræðurnar á dögun-
um.
Vi8 þessa þingfrétt má
bæta þeim upplýsingum a8
fjármálaráðherra skipaði á
liSnu vori nefnd sem vinn-
ur nú að því að athuga hvern
ig bezt og réttlátast verður
fyrir komið skattlagningu á
hjón. Sagoi fjármálaráðherra
í fjárlagaræðunni að hreyta
þyrfti gildandi ákvæðum í
þessu efni og koma á nýjum
reglum varðandi skattlagn-
ingu á tekjur hjóna.
lands. Póstafgreiðsla mun tefjast
og truflast, svo og símaþjónusta.
í fyrstu var ætlað, að útvarps-
starfsmenn myndu vinna, en síðar
tilkynntu þeir verkfall og verður
því aðeins útvarpað stuttum frétta
tilkynningum á morgun.
Fer Hammarskjöld
til Sýrlands?
NTB—NEW YORK, 24. okt. —
Flugufregnir lcomust á kreik um
það í gærkvöldi, að Vesturveldin
hyggðust bera fram tillögu á alls-
herjarþinginu, þess efnis, að Dag
Hammarskjöld framkvæmdastjóri
S.þ. verði sendur til nálægari aust
urlanda til þess að athuga klögu-
málin, sem undanfarið hafa geng-
ið milli Sýrlendinga og Tyrkja. Þó
hefir sýrlenzki fulltrúinn á þing-
inu, látið í ljós efa um, að slík
heimsókn yrði til nokkurs gagns.
Sænska stjórnin
biðst lausnar
NTB—STOKKHÓLMI, 24. okt. —
Svo sem búizt hefir verið við
undanfarna daga, baðst Tage Erl-
ander forsætisráðherra Svía lausn
ar í dag fyrir ráðuneyti sitt. —
Orsökin er sú, að Bændaflokkur- .
inn hefir ákveðið að hætta stuðn-
ingi við ríkisstjórnina. Þótt kon-
ungur muni fyrir siðasakir leita
tii annarra flokká um stjórnar-
myndun, er vitað mál, að borgava
flokkarnir geta ekki myndað meiri
hlutastjórn, og mun því svo fara,
að Erlander fær að nýju tilboð ,
um að mynda stjórn. Verður það
hrein stjórn jafnaðarmanna, en.
minnihlutastjórn. Hversu lengi
hún situr, er að sjálfsögðu óvíst. .
Crosby giftir sig
í annað sinn
NTB—Las Vegas, 24. okt. —
Bing Crosby sá frægi maður af
söng sínum og leik í kvikmynd
urn og sjónvarpi hefir gift sig í
annað sinn. Kona hans lézt fyrir
fimm árum. Crosby kvæntist að
þessu sinni 23 ára gamalli kvik
myndastjörnu Cathy Grant. Hann
er 53 ára að aldri.
Sími kominn í
Grímsey
Frá fréttaritara Tímans
GRIMSEY í gær: — Lokið er nú
við að leggja síma á alla bæi hér í
Grímsey. Hófst símalagningin síð-
astliðinn laugardag og lauk í gær
um hádegið. Sími er nú í tóíf hús-
um í Grímsey. Fy.rirhugað er að
koma á talbrú milli eyjar og lands,
en það verður ekki hægt fyrr en
rafstöð hefir verið sett upp hár.
Almenn ánægja er með símann og
þykja íuikil þægindi að honutn.
— G. J.