Tíminn - 25.10.1957, Qupperneq 12
Veðrið:
Allhvass og hvass suðvestan —
skúrir og síðar él.
Að sérhver nái fullum þroska, ætti að j
vera sameiginleg stefna allra ríkja"6*^
Niels Bohr, eftlisfræ'Öingurinn heimskunni
sæmdur sérstökum heiíursver'ÖIaunum
Washington, 24. okt. — í dag fór fram virSuleg athöfn
í Washington er í fyrsta sinn var úthlutað verðlaunum, er
nefnast „Kjarnorkan í þágu friðarins“. Fyrsti verðlaunahaf-
inn er Niels Bohr, hinn heimskunni danski vísindamaður,
sem vann stórmerkilegt brautryðjendastai-f í sambandi við
klofningu atómkjarna og jafnan hefir borið mjög fyrir
brjósti hagnýtingu kjarnorkunnar til friðsamlegra nota og
í þágu mannkynsins 1 heild.
Föstudagur 25. október
Hiti kl. 18:
Rvík 6 stig. Akureyri 4, Ioondon
14, París 13, Kaupm.höfn 9 stig,
Stokkhólmur 6, New York 18.
1957.
Sýrlendingar í varðstöðu
Verðlaun þessi eru að upphæð
75 þús. dollarar. Viðstaddir verð-
launaveitinguna voru meðal ann-
iars Eisenhower forseti og mi’kil!
fjöldi sérfræðinga og áhrifamanna.
Niels Bohr og kona hans höfðu
farið vestur til að veita verðlaun-
nnum viðtöku og jafnframt mun
hann halda fyrirlestra vestra.
N
önnur riki í að framkv'æma hjá
sér aðgerðir, sem miðuðu að hinu
sameiginlega markmiði.
„Draumur mannkynsins".
Compton vék að því, sem hann
'kallaði „hinn ameríska draum“
og hefði verið til meðal Banda-
rikjamanna allt frá stofnun sam-
bandsríkisins. Kjarni hans væri
liugsjónin um stað, þar sem hver
og einn gæti náð fullum og á-
sköpuðum þroska og verið metin
eftir því hvern skerf þeir legðu
til að hjálpa öðrum að ná þessu
marki. Þessi draumur sagði Compt
on er nú sameiginleg draumsjón
alls mannkyns.
NIELS B O H R,
eðlisfræðingurinn heimskunni.
Merk ræða.
Hinn kunni eðlisfræðingur dr.
Arthur Compton, sem stjórnaði
rannsóknum þeim í Bandaríkjun-
um, er leiddu til þess að fyrsta
kjarnaklofningin heppnaðist, flutti
(aðalræðuna við þetta tækifæri.
Ræddi hann um kjarnorkuna í
þágu friðar og aukins þroska ein-
Étaklinga og þjóða.
- Hann hélt því fram, að varan-
legur friður yrði ekki tryggður
með öðru móti en því, að allar
sjálfstæðar þjóðir „sameinuðust
um eittlivert sammannlegt mark-
mið, sem væri samboðið mætti
þeirra og veldi.“
iilannlegur þroski leiðarljósið.
Compton lagði tiL, að allar þjóð-
ir gerðu aukinn þroska hvers ein-
staklings að sameiginlegu grund-
vallarmarkmiði, sem sé, „að hvert
ríki geri allt sem í þess valdi
stendur til þess að skapa mögu-
leika fyrir hvern einstakling í
viðkomandi ríki, að ná þeim fulla
þroska sem honum er af náttúr-
unnar hendi áskapaður og eðlileg-
ur“. Fylgdu allar þjóðir þessari
meginstefnu, 'myndu þær jafn-
framt vinna saman að framkvæmd
hennar og hvert einstakt ríki ekki
gera þær ráðstafanir, er hindruðu
Mollet boðar inn-
flutningshöft
PARÍS, 24. okt. — Mollet, sem nú
reynir að mynda ríkisstjórn í
Frakklandi, mun leggja stefnuskrá
sína fyrir fulltrúadeildina á mánu
dag, pg þá fer fram atkvæða-
greiðsla um, hvort. þingið veiti
honum stuðning til stjórnarmynd-
unar. Mollet sagði í dag, að fjár-
hagur landsins væri mjög aivar-
legur, og ef til vill yrði óh.já-
kvæmilegt að setja innflutnings-
höft. Hann gaf í skyn, að Robert
Schumann kynni að verða fjár-
málaráðherra í hinni nýju stjórn,
ef þingið samþykkti stefnuskrá
sína.
EkiS á konu á
Laugarnesvegi
í gærkvöldi.
Um kl. 8,30 í gærkvöldi varð
kona fyrir bifreið á Laugarnes-
vegi á móts við húsið nr. 79. —
Fjögurra manna bifreið var þar
á norðurleið og sá bifrciðastjór
inn ekki konuna fyrr en slysið
varð. Þegar var farið með kon-
una á Landakot, en ekki
var vitað um meiðsli hennar,
þegar blaðið fór í prentun, en
hún mun liafa lilotið talsverða
áverka. Bifreiðastjórinn skýrði
rannsóknarlögreglunni frá því að
í sama mund og slysið varð Iiafi
bifreið koinið á móti og veriö
í um 10 m. fjarlægð. í þeirri
bifreið voru maður og kona, og
er talið öruggt að þau hafi orðið
vitni að slysinu. Það er vinsam
Ieg tilmæli rannsóknarlögregl-
unnar, til fólks þessa, að það
hafi þegar samband við hana.
Sýrlenzki herinn hefir rússnesk vopn og rússneska einxennisbúninga. Hann hefir það líka eftir herjum í kom-
múnistaríkjum, að þjálfa kvenfólk til að meðhöndla vopnin. Eru kommúnistar harðari á þeim vettvangi en naz-
istar voru nokkru sinni. Myndin sýnir sýrlenzka stúlku með rússneska vélbyssu. Ekki er þess getið, að hún sé
meðlimur í friðarsamtökum kvenna, er kommúnistar halda uppi í mörgum löndum, en það væri svo sem eftir
öðru hjá þeim, að hún væri þar í foringjahlutverki.
Frá umræftum á Alþingi í gær:
T eknir verSi úr umferð þeir skipst jór-
ar, sem gerast landhelgisbrjótar
Pá!< Zóphóníasson vill að með því að þyngja
viðurlögin leggi menn áherziu á mikiivægi
iandhelginnar
í gær var til fyrstu umræðu á Alþingi frumvarp Páls
Zóphóníassonar um aukin viðurlög við landhelgisbrotum. Er
þar gert ráð fyrir því að auk sekta missi íslenzkir skip-
stjórar, sem gera sig seka um slíkt brot, skipstjórnarrétt-
indi í eitt. ár og ævilangt við ítrekað brot.
Nýþingmál lögð
fram í gær
í gær voru lögð fram noikkur
ný mál á Alþingi. Þau eru þessi:
Frumvarp til laga um breythigu
á vegalögum frá Jón Siguvðesyni
og Steingrími Setinþórssyni, Binn
ig frumvarp til laga um hreyl-
ingu á vegalögum frá Karli Kristj-
ánssyni. Fjalla þessi frumviirp um
það að nýir vegir verði feknir
inn á vegalög.
Frá Pétri Péturssyni em ívær
þingsályktunartállögur. (jrumr um
hagnýtingu brotajárns og hitt um
endurskoðun laga um hafttarbóta
sjóð.
__________________________U
Flutningsmaður fylgdi frumvarp
inu úr hlaði við fyrstu umræðu á
fundi efri deildar í gær. Rakti
'hann fyrst þá miklu þýðingu, sem
það hefir fyrir fiskstofninn við
strendur landsins að landhelginn-
ar sé gætt og friðunarákvæði
haldin. Ungviðið, sem elzt upp á
Rússarherða tökin á Sýrlandi meS
gífurlegri efnahagshjálp og gjöfum
Lundúnum, 24. okt. — Talsmaður brezka utanríkisráðu-
neytisins sagði í dag, að skipun Rokossoskís marskálfes, sem
landgrunninu, er sá stofn, sem sið- yfirmarms herja nálægt landamærum Tyrklands, yrði ekki
koiSn'lund!r.1Auðveí!asé0hfnTvegU skilið öðruvísi en sem öKru« við Tyrki eins og á stæði.
ar að drepa mergð af ungum fiski Þar við bættist, að það væri ekki venja russnesku stjórn-
með veiðitækni þeii-ri, sem bönnuð arinnar að tilkynna um skipun hershöfðingja í einstök
er í landhelgi. herstjórnarembætti. í tyrkneskum blöðum er skipun mar-
skálksins skoðuð sem móðgun og ögrun af grófasta iagi.
(Framhald á 2. síðu).
Fjölmennur aðalfundur Framsóknar
félags Reykjavíkur í fyrrakvöld
JF | > ' ' 'í’W*" • <■.f
Einar Agústsson kosinn for-
maSur félagsins
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur var haldinn
í fyrrakvöld. Fundurinn var fjölmennur og gengu margir
nýir félagar í félagið. Einar Ágústsson lögfræðingur var
kosinn formaður. Hjörtur Hjartar framkvæmdastjóri, sem
lét af formannsstarfi baðst eindregið undan endurkosningu.
Hefir Hjörtur unnið mikið og ágætt starf fyrir félagið.
'Fundurinn hófst með því, að
Hjörtur Hjartar flutti greinagóða
skýrslu um félagsstarfið, sem var
mikið á síðasta starfsári. Björn
Guðmundsson, gjaldkeri félagsins,
skýrði frá reikningum. Að loknum
ræðum formanns og gjaldkera, tók
Jón ívarsson til máls og þakkaði
stjórn félagsins fyrir ágætt starf.
Kosið í stjórn og
fulltrúaráð
Að því loknu fór fram kosr.ing
í stjórn og fulltrúaráð. Hlutu kosn
ingu í stjórn þeir Einar Ágústsson.
Björn Guðmundsson, Kristján
Thorlacius, Þórður Björnsson og
Jón Rafn Guðmundsson.
í fulltrúaráð hlutu kosningu:
Hjörtur Hjartar, Egill Sigurgeirs-
son, Sigtryggur Klemensson, Jó-
hannes Eiíasson, Ólafur Jóhannes-
son, Birgir Torlacius, Þórarinn
Þórarinsson, Erlendur Einarsson,
Benedikt Sigurjónsson, Haukur
Snorrason, Jón ívarsson, Kristján
Thorlacius, Esra Pétursson, Björn
Guðmundsson, Guðmundur Kr.
Guðmund'sson, Hjálmar Vilhjálms-
son, Hannes Pálsson frá Undirfelli,
Vilhjálmur Jónsson, Jónas Jó-
steinsson, Leifur Ásgeirsson, Hall-
dór Pálsson, Haukur Jörundarson,
Einar Ágústsson,
hinn nýkjörni formaður Framsókn-
arfélags Reykjavikur.
Kristján Benediktsson, Sigurjón
Guðmundsson og Stefán Jónsson.
Fundarstjóri á fundinum var
Ezra Pétursson og fundarrilari
Ólaíur S. Kristjánsson.
Tyrknesk blöð segja, að rússn-
eski herinn á þessum slóðum sé
búinn nýtízku vopnum. Biöð í
Kairó fullyrða, að við heræíingar
fyrir skömmu hafi her þessi not-
að kjarnorkuvopn af nýjustn og
fullkomnustu gerð. Hafi heræfing
ar þessar niarkað tímamót í nú-
tíma liernaðartækni. Vitnar blaðið
í ummæli hershöfðingja í blaði
Rauða hersins.
Rússar lierða takið.
Óstaðfestar fregnir herjaaa, að
nýr samningur sé í undirbúningi
milli Sýrlands og Sovétríkjanna.
Þar skuldbinda Sovétríkin sig til
þess, að veita Sýrlendinguin víð*
tæka tækniaðstoð. Með þessu eigi
að auka þjóðartekjur Sýrlendinga
um tugi milljarða króna. Þá hafi
Rússar lofað að veita Sýrlending
um lán að upphæð 6 miUjarða
króna og á að endurgreiöa um
sjötta hluta þess á 12 arum, hitt
er gjöf.
Rússar ímimi ekki sitja hjá.
Porsætisráðherra Sýrlands og
forseti þingsins iýstú því báoir
yfir í dag, að Sovétríkin myndu
ekki sitja aðgerðarlaus, ef til þess
kæmi að ráðist yrði á Sýrland.
Þá hefir Kuwatly forseti sent
Saud konungi bréf og beðið hann
að taka aftur tilboð sitt um mála-
miðlun milli Tyrkja og Sýriend-
inga.