Tíminn - 15.12.1957, Blaðsíða 13

Tíminn - 15.12.1957, Blaðsíða 13
SAGA T í MINN, sunnudaginn 15. desember 1957. ær og kýr. Þú gazt ekki átt í smá ástarævintýri án þess að hún væri flægt í málið, væri ’einhversstiiðar hjóna- skilnaður á döfinni var ör- uggt að hún var þa,r nærri. En þrátt fyrir allt var hún ágætis k l,:mnaður. gat ekki að því gert, að mér var dálítið skemmt þegar ég kom til heniiar um hádegið og sá hve hún var áköf. Hún var steini lostinn yfir ógæfu Bishopshj ónan n a, en þetta var allt ósköp spennandi, og hún var hjartans ánægð yfir því að geta sagt mér alla söguná. — Ég á við, engin var eins skelfd .eins og ég, þegar Margery sagði mér að hún ætlaði að' gera alvöru úr því að yfirgefa Charlie, sagði hún og fór með orðin eins og hún væri- að leika hiutverk sem hún hefði leikið mörgum sinnum áður. Þau voru ást- fangnasta par sem ég hef komizt í kynni við. Hjóna- bandið var fullkomið. Það var eins og eldingu hefði slegið niður. Auðvitað erum við Bill afar hrifin hvort af öðru, en við rífumst hræðilega stöku sinnum Stundum gæti ég alltað þvl drepið hann. :—. Mig varðar ekkert um sambúð ykkar Bills, sagði ég. — Segðu mér frá Bishops- hjónunum. Tii þess er ég kominn. — Mér fannst ég verða að hitta þig. Þegar öllu er á botn inn hvolft, ert þú eini maður- inn, sem g’etur útskýrt máliö. —. Guð minn góður, segðu þetta ekkL Ég vissi ekkert um málið þangað til Bill sagðí mér það i gær. — Það var min hugmynd. Mér varð skyndilega ljóst að þú vissir ekkert um málið, og vildi ekki að þú kæmist að þessu á óþægilegan hátt. — Byrjaðu nú á byrjun- inni, sagði ég. — Nu, þú átt sjálfur upp- tökin að þessu, Þú komst vandræðumim af stað. Þú komst þeim í kynni við unga manninn. Þessvegna lá mér svo á að tala við þig. Þú veist allt um hann. Ég sá hann aldrei. Ég veit ekkert um hann nema það sem Margery sagði mér um hann. — Hvenær ætlarðu að borða? — Hálf tvö. — Ég líka. Haltu áfram með söguna. En athugasemd mín leiddi til þess að Janet fékk nýja hugmynd. — Sjáðu til. Get- um við ekki breytt því þannig að við fáum okkur snarl hér, bæði tvö. Ég er viss um að nóg er til af köldum mat i húsinu og okkur liggur ekk- ert á. Ég þarf ekki i hár- greiðslu fyrr en kl. 3. — Nei, nei, nei, sagði ég. — Ég vil ekki sjá það. Ég geng út úr þessu húsi 20 mín útum yfir kl. 1 í síðastá lagi. — Þá verð ég að flýta mér með söguna. Hvað er þitt álit á Gerry? — Hver er Gerry? — Gerry Morton. Hann heitir Gerald. — Hvernig ætti ég að vita það? — Þú hefir dvalið hjá hon- um. Sástu aldrei bréf til hans? — Ég býst við þvi, en ég las þau aldrei, svaraði ég afundinn. — Æ, láttu ekki svona. Ég áttíi við lumislögin. Hvernig lítur hann út? — Gæti verið sprottinn út úr sögu eftir Kipling. Vand- virkur og duglegur. Heims- veldissinni, og allt eftir þvi. — Ég á ekki við það, hróp- aði Janet óþolinmóð, — ég á við hvernig hann lítur út. — Eins og allir aðrir, held ég. Vitaskuld mundi ég þekkja hann aftur ef ég sæi hann, en hann hefir engin sérkenni. Hann viröist vera snyrtileg ur. — Ó, guð minn göður, ságði Janet, — ertu skáldlsagna- tnnilegar þakkpr til allra, fjær og nær, er sýndu okkur samuð og vlnáttu viö andiát og útför Sigríðar Koibeinsdótfur frá Veigastöðum. Þorlákur Marteinsson. — Kristín Þorláksdóftir ÖHum þeim mörgu, er auðsýndu okkur samúð við fráfail og tarðarför eiginkonu minnar og systur, Kristínar Guðjónsdóttur, færom við alúðarfyllst’u þakkir. Sigfús Jónsson Magdalena Guðjónsdóftir Maðurrnn minn og faðir okkar, Jón Jóhannesson, bifreiðarstjóri, Laugateig 17, andaðist 11. þ. m. — Fyrir hönd okkar og annarra vandamanna: X : . ' Anna Benediktsdóttir Sæmundur R. Jónsson Loftur H. Jónsson. höfundur eða ekki? Hvernig eru augun á litinn? — Ég veit það ekki. — Þú hlýtur að vita það. Þú getur ekki dvalist heila viku hjá neinum án þess að taka eftir augnalitnum. Er hann Ijóshærður eða dökk- hærður? — Hvorugt. — Er hann stór eöa lítill? — Meðalmaður, minnir mig. — Ertu að reyna a'ð reita mig til reiði? — Nei, hann er bara ósköp venjulegur. Það er ekkert sérstakt við hann. Hann er hvorki lagiegur né ljótur. Hann er heiðarlegur í útliti Lítur út eins og séntilmaður. — Margery segir að hann hafi töfrandi bros og sé vel vaxinn. — Er það svo. -— Hann er alveg bálskotinn í henni. — Því heldurðu það, spurði ég þurrlega. — Ég hef séð bréfin frá honum. — Ertu að' segja mér að hún hafi sýnt þér þau? — Já, vitaskuld. Það er alltaf erfitt fyrir karlmenn að umbera kjaft- hátt kvenna um einkalíf þeirra. Þær eru blygðunar- lausar. Þær segja hvor annari frá viðkvæmustu leyndarmál um án þess að blikna. Hógværð er dyggð karla. En þó að karlmanni sé kunn ugt um þennan veikleika kvenna kemst hann ekki hjá þvi að verða þrumu lostinn Nýstárlegar, fróíJlegar og skemmtilegar Iýs- ingar úr Reykjavíkurlífinu fyrir og eftir síSustu aldamót, skráíar af Gunnari M. MagnÚSS rit- höfundi. — Einstakir kaflar bókarinnar bera m. a. þessi nöfn: Eyfirzku hjónin á Rauðará — Ví'ða hef ég róið — Iíeykja- víkurfjara — Stundaglasið og vatnsberarnir — Með auk- nefni að fornum sið — Sæfinnur með sextán skó — Rósin af Saron — Um franzós og hreinleika — Kínverjinn með glasið — Frásagan um bláa Ijónið og gullna hanann —• Söngurinn um Þórð Malakoff — Tímaskiptaárið og fram- tíðarmaðurinn — Dymbildagar í Latínuskólanum — Breyzkur og hjartfólginn bróðir. 1001 nótt Reykjavíkur Jólabók á öllum reykvískum heimilum. Kostar í fallegu bandi kr. 150.00. IÐUNN - Skeggjagötu 1 - Sími 12923 Frásagriaþiettir um ýmis efni eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur skáldkonu, sem er landskunn undir nafninu Erla. Hú segir frá hrakningum og mann- raunuin í svartnættisbyljum á heið- unl °g öræfum, harffri lífsbaráttu heiðabyggja, förumönnum og öðr- um kynlegum kvisturn á meiði j,jöð- arinnar, dulrænum fyrirbserum og mörgu fieira. Völuskjóða er kjörbók alha þeirra, er unna þjóð- legum fróðleik. — Verð ib. kr. 118,00. IÐUNN- Ske8gjagötu I - Sími I 29 23. Dyggðin sanna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.