Tíminn - 05.03.1958, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.03.1958, Blaðsíða 12
Veðrið: Norðan stinningskaldi. Víðast iléttskýjað. Hiti: —5 til 9 stig. tUta!>ng i aoKKrnm borgm klukkan 1R I gær: 1 Reykjavík —2 stig, Akur-eyri —4 Stokkhólmur 3, París 5, Þórs* fhöfn í Færeyjum 1. Miðvikudagur 5. marz 1958. Setustofuhúsgögn í verzluninni Öndvegi, Laugavegi 133. Ný húsgagnaverzlun „Öndvegi h. f.“ að Laugavegi 133, tekur við af verzlunisini „Yalbjörka VandatSar vörur og fjölbreytt úrval, björt og rúmgóð húsakynni í fyrradag var blaðamönnum boðið að skoða nýja hús- gagnaverzlun að Laugavegi 133. Ber hún nafnið Öndvegi h.±. og er arftaki verzlunarinnar Valbiörk sem var.til húsa að Laugavegi 99. Húsakynni á hmum nýja stað eru hjört og rúmgóð. vörum smekklega fyrir komið og viðskiptavinum auðveldað að skoða sig um. í hinni nýju verzlun er margt ágætra. muna, all-t frá þrífótum undir blómlsturpotta uppi borð- ' stofu- og svefnherbergissett. Öll eru húsgögnin smíðuð úr vönduð- um viði af miklum haganleik og verði í hóf stilllt. Öndvegi h-f. býð- ur viðskiptavinum sínum afborg- unarskilmála sem eru mjcg sann- gjarnir og gera fólki kleif.t að eignast prýðisgóð'ar vörur á auð- voldan hátt. Valbjörk h.f., Laugavegi 99 var á sínum tíma stofnsett í sam- bandi við aðalumboð fyrir Val- björk h.f. Akureyri, en rekið af Baldri Guðmundssyni og á hans ábyrgð. Nú hefir Baldur myndað hluta- félag um þesisa verzlun sína og fiutt hana á Laugaveg 133. Verzl- unin, sem hlotið hefir nafnið Önd vegi h.f., hefir á boðstólum fjöl- breytt úrval bæði af tré- og bólstr- uðum hú-igögnum, auk margra teg unda af áklæðum sem hægt er að fá í metratali sé þess óskað. í sambandi við verzlunina á að koma upp húsgagnabólslrun til að gera þjónustuna fullkomnari- Hugmyndin er að viðskiptavinirnir geti leitað til fyrirtækisins með flest það sem að heimilisprýði lítur. iÞeir sem unnið hafa að útbúnaði verzlunarinnar eru þessir: Miálning: LLtina valdi Sveinn Kjarval. Verkið annaðist Svan Magnússon og Bjarni Gíslason. Ljósin: Ljósateikningar annað- ist Traust h.f., en verkið vann Þor steinn Sæitrant. Innréttingar annaðist Eií Jó- hannesson. Ungur íslenzkur listmálari fær góða dóma gagnrýnenda á Italíu Kári Eiríksson frá Þingeyri hefir teki'ð þátt í nokkr um sýningum þar og haldi'Ö eina sjálfstæíia Ungur íslenzkur listmálari, Kári Eiríksson, hefir getið sér góðan frama með þátttöku í málverkasýningum suður á Ítalíu. Hafa listdómendur í þessu fornfræga landi fagurra lista lokið miklu lofsorði á verk þessa unga íslendings og sagt, að þar fari samar. hrein og tær túlkun listrænna viðhorfa og list Kára beri með sér hið norræna svipmót. Hinn ungi íslenzki listamaður, sem kominn er á framabraut list- unna þar syðra, er 22 ára gamall Dýrfirðingur, sonur Eiríks Þor- steinssonar, a'lþingismanns og Önnu Guðmundsdóttur konu hans. Hefir stunda'ð nám á Norður- löndum og Ítalíu Kári lagði un-gur stund á mynd- list í Handíða- og myndlistaskólan- um í Reýkjavík, en fór síðan til iframhaldsnáms við Listaháskólann í Kaupmannahöfn. Gat hann sér þar gott orð _og hélt til frekara náms suður á Ítalíu. Þar hefir hann dvalið um tveggia ára skeið og lagt Stund á m'álaralist hjá hinum fremstu menntastofnunum í þeirri grein. í janúar efndi Kári til sjálf- stæðrar máiverkasýningar í Flór- enz. Sýndu þá í sama húsi tveir málarar samtímis, ítalskur list- málari og Kári. Var sýning þessi haldin á vegum samtaka, sem nefnast Societa delle Belle Arte (Framh. á 2. síðu.) Furðufregnir um fræga söngstjömu á íslandi Þegar hin fræga er.ska söng- og sjónvarpsstjarna tck sig til og skrapp til Íílar.ds frá öllu sínu ann rjki á leik- cg sjónvarpssviðum m-:'ljón2.b3rgarinnar, þctti það að sjálfsögðu tíðindum sæta í ensku blöðunum, enda allt, sem snertir hina frægu leikara og söngstjörn- ur útgengilegt lestrarefni hjá mill- jó.'.um manna. Meðan stjarnan var enn á ís- landi, birtust fregnir af íslands- dvöl hennar, því áríðandi var að vera fyrstur með fréttirnar. Ein þessara frétta birtist í Daily Mail, einu útbreiddasta blaði Bretlands. Er frásögnin í ævintýrastíl í ein- um vinsælasta þætti blaðsins á öftustu síðu, þar sem eingöngu er rætt um frægt fólk og alltaf farið frjálslega með sannleika og ná- kværnni enda tekur engir.n, sem þekkir ensku blöðin frásögnina al- varlega. Þar segir sá enskur bla'ða- maður, sem einna duglegastur er aö afla frétta af frægu fólki, að unglfrú Cogan liafi fengið þjóð- höfðingjamóttöku hjá forseta ís- lands og bónorösbréf fr^ tveimur tylfitum eskimóa, allir sendu henni hvalkjötsbita með bónorðsbréfinu en það er gamall siður á „blóma- daginn“ í Reykjavík. — Sá sem skáldaði fréttina á ritstjórnarskrif- stofu í Lundúnum, hefir bersýni- lega ekki vitað annað um ísland en að þar er forseti, og að íslend- ingar lounna vel að taka á móti þjóðhöfðingjum. Skiptu um höfuð á hundi Tiímarltið Videnskab og Liv skýrði frá því nýlega, að á þingi rússneskra lífeðlisræðinga í árs- lok 1957 hafi verið frá því skýrt, að rússneskum skurðlæknum hafi tekizt að græða höfuð af hundi á búk hvolps, og lifði hann eðlilegu lífi í sex daga með hið nýja höfuð. Hann lapti, sýndi rétt andsvör við ljósi og hljóðum og lék sér meira að segja, se*ir lífeðlisfræðingur- inn Vladimir P. Demihof. Annar rússneskur lílfeðlisfiræð- ingur segir, að sér hafi tekizt að halda afskornu höfði af hundi lif- andi á dislki i sex klukkustundir. Höfuðið át, gapti og sýndi ýmis önnur andsvör. Þriðji skurðlæknirinn skar fót af hundi og saumaði h-ann aftur við eftir 25 klukkust. Sá hund- ur lifði eðililegu lífi í mörg ár og virtist ekkert tjón hafa beðið við þetta. Tilgangur þessarar rannsókna, segja vísindamennirnir, er að fá úr því skorið, hvort unnt sé að græða limi og önnur líffæri við jnannslíkamann í stærri stíl en gert hefir verið. Hingað til hefir aðeins verið um nýrnaágræðingar að ræða, en þetta þykir benda til, að unnt sé að gera slíkt í meiri mæli, þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi og brýna nauðsyn ber til. Miðsvetrarblót rithöfunda Eins og áður hefir verið sagt frá gengst Ritíhöfundafélag íslands fyr ir miðsvetrarblóti næsta fimimtu- dagskv'c’d í Iílégarði. Ileimil er þátt-taka öllum félögum í Banda- lagi ísl. listamanna. Aðgöngumiðar eru seldir í bókaverzlun KRON og hjá Eymundsson, og geta menn einnig tryggt sér þar bíl'far á blót- ið, er ferðir verða frá Bifreiðastöð íslands kl. 7 en samkoman hefst kl. 7,30. Á Genfarráðstefnunni er deilt nm hvernig Iandgrunn skuli skýrgreint NTB-Gonf, 3. marz. — Alþjóðaráðstefnan í Genf um land- helgi og sjórétt fjallaði í dag um stærð landhelginnar og hins svokallaðf landgrunns. Fulltrúi Arabíu krafðist þess, að AkabafJólnn við Rauðahaf yrði viðurkenndur arabiskt haf- svæði. Enn skortir lögbundna skýrgreiningu á, hvað kallað skuli landgrunn. I að landgrunn. skuli kallað allt í nafnd þeirri, sem fjallar um svæðið út að 200 metra dýpi. —• landhelgina sérstaklega tók full- Taldi Frakkinn hina mestu nauð- trúi Saudi-Arabiu til máls og not syn á, að nefndin ræddi þetta- aði lækifærið til að fullyrða, að mál rækilega. j Akábaflóann bæri að öllu leyti að ’ ; • skoða sem arabíska landhelgi og siglingaleið. Akabaflói er við norð austanvert Rauðahafið, cg að hon um eiga lönd Saudi-Arabía, Eg- yptaland og ísrael. Þar til Súez- deilan íhcfst, meinuðu Arabar ísraelsmönnum siglingar um fló- ann. Arabinn á Genfarráðstefn- u-nni tók skýrl fram, að þát.ttöku Saudi-Arabíu í landhelgisráðstefn unni mætti fráleitt s'koða sem nékkra_ viðurkenningu á ísraels- ríki. Ákvæði, sean samkomulag næðist um á ráðstefnunni gætu aðeins komið til framkvæmda á svæðum þar sem friður ríkti. Þess vegna myndu reglur ráðstefnunn ar eklci niá gildi að því er snerti umdeild svæði í Íöndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og í austur- löndum, sagði ful'ltrúi Saudi- Arabíu. Bann við kjarnorku- tilraunum á úthöfum GENF, 4. marz. — Á Genfarráð stefnunni um landhelgismál bar ■fulltrái Scvétríkjanna fiam þá til- lögu í dag. að bann yrði lagt við tilraunum með kjarnorkuvopn á hcifum úiti. Taldi hann, að Ktíkar tilraunir væru brot á ákvæði al- þjóðalaga um frjálsar siglingar allra þjóða á úthöfunum. Landhelgisgrunnið enn ekki til fulls ákveðið. Aðeins einn maður tók til máls í nefnd þeirri, sem fjallar um landgrunnið- Var það Frakkinn André Gros. Hélt hann því fram, að menn ættu alveg eftir að skýr- greina hugtakið landgrunn. Eng- in nákvæm skýrgreining hefði enn verið g'erð á því hugtaki. — Þjóð- róttarnefnd S.þ. hefir í uppkasti sínu að þjóðréttarreglum lagt til, Gott framlag til slysavarna Ágóði af nýafstaðinni merkja og kaffisclu kvennadeildarinnar í Reykjavík reyndist vera um kr. 60 þúsund. ViLl stjórn Kvennadei'ldar innar þakka öl'lum meðlimum deildarinnar, ásamt öðrum einstaik- lingum og söfnunum í bænurn fyr ir ómetanlega hjálp og velvild við þetta tækifæri sem og önnur er leitað hefir verið til bæjarbúa. Ekki tímabært, að fara tií Moskva, segir Nixon NTB—WASHINGTON, 4. marz. — Því var lýst opinberlega yfii* í Washington 'í dag, að fyrst um sinn myndi ekki af því verða, að Nixon varaforseti færi í heim sókn til Moskvu. Af orðalagi yfir lýsingarinnar ,má þó ráða, að slíkt hefir komið til niálá, enda birtu dagblöð vestra í dag fregn- ir um þeHa með stórum fyrir- sögnum og töldu slíka ferð standa fyrir dyrum. í yfirlýsingu sinni segir Nixon, að það sé ekki tímabært að fara í opinbera heimsókn til Rússlands. Hann muni hinsvegar á næstunnj fara í ferðalag tun V-Evrópulönd. Blöðin sögðu Mns vegar í dag, að varaforsetinn myndi nota tækifærið til þess að heiinsækja Moskvu. Þau töldu einnig, að til orða liefði komið a'ð bjóða heim háttsettum rússneskum stjórn- málamönnum og hefði Mikoyau þá helzt komið tií greina. Fátæki lávarðsbróðirinn Douglas- Home heimsækir prinsessuna sína Flaug til Stokkhólms í i?ær undir dulnefni, enda hundeltur af bla'Öamönnum margra landa NTB-Limdúnum, 4. marz. — „Ég veit ekki og vil ekkert segja um, hve lengi ég verð i burtu“, sagði brezki auglýsinga- stjórinn og jasspíanóleikarinn Douglas-Home, er hann tók sér far með flugvél frá Lundúnum í dag' til Stokkhólms, en þar ætlar hann að hitta Margrétu prinsessu, sonardóttur Gústafs VI. Adolfs Svíakonungs. Hinn ungi maður, sem er bróðir Home lávarðar, en yngri og því bæði án nafnbótar og eigna, hefir farið huldu höfði undanfarna viku. Hann hefir bókstafiega verið of- sóttur af blaðamönnum, sem hund- elta hann hvert sem hann fer. Undir ðulnefni. Einkum ha'fa þeir látið illa síðan kvisaðist, að Douglas-Home væri í þaun veginn að fara til Stokkhólms á fund elskunnar sinnar. Skari blaðamanna í Lundúnum, Osló og Stoklchóimi hefir veriö á þönum undanfarna daga og óltazt að mann auminginn kæmist án þeirra vitund ar til Stokkhólms. Hann hefir líka ætlað sér það. Er hann tók séi* far í dag með einni af flugvélum SAS, var hann slcráðiu* undir dulnefninu hr. Yorke á farþegaskránní. En blaðamönnunum tókst nú samt að ná í skottið á honum áður en hann slapp inn í flugyélina ,á Lundúna- flugvelli. Ástarævintýri í LuiulúnunL Prinsessan og lávarðsbróðirinn kynntust í fyrra, er Margrét var á skemmtiferð í Lundúnum. Sáust þau þá oft saman. Spunnust af þessu miklar slúðursögur. Var prinsessan fljótlega boðuð heim. Það er haft fvrir satt, að afí henn- ar, konungurinn, hafi harðbannað lienni að giftast píanóleikai*anum. Upp á síðkastið hafa verið sögur á lcreiki um að konungur hafi mild- azt í garð hinna ungu elskenda og 'svo mikið er yíst, að Doúglas- Iíome er lagður af stað til Stoklc- hóllns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.