Tíminn - 11.05.1958, Blaðsíða 1
T*n»r TÍMANS ero
f blaðinu 1 dag:
Skakþáttur, bls. 4.
Lífið í kringum okkur
og Mál og menning, bls. 5.
Sambúð Kína og Japans, bls. 6.
Skrifað og skrafað, bls. 7.
104. blað.
Sæmilegri vertíS lokið Frumv.umefnahagsráðstafanirríkis-
stjórnarinnar lagt fram á morgun
í dag er lokadagurinn. Bátar hafa verið að hætta veiðum í verstöðvum suðvestan lands síðustu daga, en þó
stund'a einhverjir veiðar þar enn. Þetta er orðin allgóð vertíð, einkum netavertíðin og allmikill afli kominn á
land, svo að teljast verður meðalvertíð að minnsta kosti. Nú verður hlé á sókn um sinn, bátarnir verða málaðir
og laofærðir áður en þeir halda norður á síldarvertíðina i næsta mánuði. Myndin sýnir Akranesbát halda heim.
Vorharðindin orðin langvinn og
þung í skauti, sauðburður að hef jast
Utlit er þó fyrir hlýnandi veíur, svo aíi vonir
sianda til, aí úr rakni
Harðindi eru enn um mikinn hluta landsins, einkum
norosr' og austan. Hefir snjóað nær hvern dag' norðan lands
síðustu viku, verið rnikil næturfrost og oftast um frostmark
á dcginn. Er þetta illur ábætir á mikinn fannavetur.
Þe--i vorharðindi fara nú að
verðf. bændum þung í skauti. Kom
ið er fram í þriðju viku sumars
og sauðburður um það bil að hefj
ast eða byrjaður sums staðar. Fé
er þó enn á gjöf, jafnvel innistöðu
í einstaka sveit. Hefir sú innistaða
verið allt síðan í desember. Ef vor
harðindi þessi halda áfram enn um
sinn, hlýtur þessi vetur að teljast
meg þeim hörðustu, sem komið
hafa um langt árabil. i
Á Nórðaustur-landl var enn élja
veður í fyrrinótt og gær og 1—2
stiga hiti um hádaginn. Á Austur '
landi hefir veður verið lítið eitt
mildara en þó mjög kalt.
Sunnan lands og' vestan hefir
verið bjartara en þó jafnan nætur
frost og norðan kuldasteytingur,
þótt klökknað hafi í sólskini há-
dagsins.
Umræður um
BiíreiSin endasiakkst, en ökomaður
slapp furðo lítið meiddur
Sviptingu ökuleyfa fyrir umferíarbrot beitt
í víkara mæli, þótt ekki sé um ölvun aí ræba
Tvem menn hafa verið sviptir ökuleyfi til bráðabirgða,
eða þar tí! dómur gengur í máli þeirra, fyrir að vera valdir
að slysum Slíkar fvrirfram sviptingar hafa ekki tíðkazt að
ráði áður, cn er ætlimin að fara að beita þeim í ríkara mæli
gegn mönnum, sem fremja alvarleg umferðarbrot, iafnvel
þótt ekki sé'um ölvun að ræða, en svo var ekki í þessurn
málum.
Annar inannanna var sviptur
ökuleyfinu til bráðabirgða fyrir
tvö brot. 29. apríl var hann að
leggja bifreið sinni upp á gang-
stt á Skólavörðustíg og ók þá á
konu, er var þar á gangi. Konan
meiddist nokkuð. I-Iinn 3. þ. m.
var hann á leið norður Skothús-
veg. og er að gatnamótum Fri-
kirkjuvegs og Sóleyjargötu kom,
ók hann inn á aðalbraut og á
bifreið, er þar var á ferð. Eftir
að hafa valdið árekslrinum, ók
hann brott af árekstursstað, en
ökumanni hinnar bifreiðarinnar
iókst að koma í veg fyrir, að hann
kæmist undan.
30 metra bremsuför.
Hit: slysið skeði á miðvikudag
inn var. Tvær bifreiðir voru á leið
vestur Hringbraut. A móts við
gatnainót Sóleyjargötu ætlaði öku
maður bifreiðarlnnar, sem á eftir
var, en það var leig'ubifi:eið, að
á undan var, beygt norður Sóleyj
argötu. Skipti e.ngum togum að
leigubifreiðinni var ekið aftan á
hina, með þeim afleiðingum, að
hún endastakkst. fór í heilhring en
kom niður á hjólin á svonefnclri
umferðareyju, eða grasfletinum
milli gatnanna. Bifreiðin er talin
gerónýt, en ökumaður, sem var
einn í bifreiðinni meiddist furðan
lega lítið. Bremsuför eftir Ieigubif
reiðina mældust 30 m. löng á
þurru malbiki. Leigubifreiðarstjór
inn var sviptur ökuleyfi til bráða
birgða.
Kýpurmálið
LONDON, 10. maí. —- Lands-
stjórinn á Kýpur, Hugh Foot er í
Bretlandi til viðræðna við brezku
stjórnina um framtíð Kýpur. Nú
um helgina ræðir hann við Lennox
Boyd nýlendumálaráðherra og Sel-
wyn Lloyd utanríkisráðherra á
sveitasetri forsætisráðherrans.
Macmilian forsætisráðherra mun
taka þáfct í viðjræðum þeirra á |
morgun. Lloyd ræddi fyrr í vik-
unni við utanríkisráðhcrra Tyrk-
lands og Grikklands, er þeir voru
í Kaupmannahöfn á NATO-fund-
inum. í 'gærkvöldi kom maður með
grímu inn á kaffihús á Kýpur,
vopnaður byssu, skipaði gestunum
að snúa sér til veggjar með hend-
Þingkosningar
i Grikklandi
Aþenu 10. maí. Þingkosningar
verða : Grikklandi á morgun, og í
morgun lauk kosningabaráttunni.
sólarhring áður en kosningarnar
hefjast. Frambjóðendur eru 300
og kjördæmin 52. Karamanlis for
sætisráðherra sagði í ræðu í lok
kosningabaráttunnar, að stjórnin
hcfði enga samninga gert við er-
lcnd ríki um herstöðvar í landinu.
ur ofar höfði. Síðan skaut hann
grískumælandi Kýpurbúa til dauðs
aka framúr. Hafði farþegi i bif- og hvarf á braut.
reið hans beðið hann að hraða........................................
för sinni. í því var bifreiðinni, sem
Af þeim fregnum sem Tím
inn fékk í gær má nú felja
víst, að frumvörp um ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum verði lögð
fyrir Alþingi á morgun, mánu
dag.
Eins og skýrt var frá hér
í blaðinu í gær hefir efna-
hagsmálanefnd og miðstjórn
Alþýðusambands íslands nú
skilað áliti um tillögurnar, og
var það álit birt hér í blað-
inu í gær.
Ríkisstjórnin hafði hins
vegar lýst yfir, að hún mundi
ekki leggja fram tillögur sín-
ar í frumvarpsformi fyrr en
verkalýðssamtökin hefðu
um þær fjallað.
„Við munurn heyja styrjöld á sviði
efnahagsmála“, segir Krústjoff
Stórfellt átak til að auka matvælaframleiðsluna
Moskva, 10. maí. — Krústjoff sagði í dag í ræðu í Moskvu,
að Rússar gætu án kvíða haldið áfram taugastríði við vest-
urveldin. ,,Við höfum sterkar taugar. Við æt’um ekki að
heyja vopnaða styrjöld við vesturveldin, heldur munum við
heyja styrjöld á sviði efnahagsmála.“
Hann sagði, að sambúð hinna
kommúnistaríkja væri góð, enda
þótt hún gæti ef til vill verið betri.
Krústjoff lýsti því yfir, að gert
myndi stórfcllt átak i náinni fram
tíð til að auka matvælaframleiðslu
þjóðarinnar. Tassfréttastofan skýr
ir frá þvi, að samþykkt hafi verið
á ráðsfundi í flokknum að veita
skyldi 100 milljónir rúblna til að
auka matvælaframleiðsluna. Verð
ur miklu af því fé varið til kaupa
á alls konar vélum, meðal annars
frá Bretlandi og Þýzkalandi.
Krústjoff sagði einnig í ræðu
sinni, að Rússar vildu gjarna fá
til landsins vísindamenn frá Vest
urlöndum til að flýta uppbygg-
ingu matvælaiðnaðarins.
Franskir hermenn
teknir af lífi
Uppreisnarmenn í Alsír hafa
tekið af lífi þrjá franska lier-
menn, er þeir tóku til fanga.
Frakkar hafa nú sæmt þá æðsta
heiðnrsmerki franska hersins.
Atburður þessi hefir vakið al-
rnenna ofsareiði í Frakklandi en
reiðin er þó nokkuð kvíða bland-
in.
PÁLL ÞORSTEINSSON
SKÚLI GUÐMUNDSSON
Fundir Framsóknarmanna í Hafnar-
firði og á Akranesi í dagx \
Framsóknarmenn austan fjails halda einnig
fund á Selfossi kl. 2 í dag
Framsóknarmenn á Akranesi efna til almenns flokks-
fundar í. dag, sunnudag, í fundarsalnum Kirkjubraut 8
og hefst fundurinn kl. 4 síðd. Frummælandi verður
Páll borsteinsson alþingismaður og ræðir um stjórn-
málaviðhorfið.
Framsóknarfélag Hafnarfjarðar heldur einnig al-
mennan flokksfund í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði í dag,
sunnudag, og hefst hann kl. 4 síðd. Frummælandi verð-
ur Skúli Guðmundsson, alþingismaður og ræðir um
stjórnmálaviðhorfið.
Þá efna Framsóknarmenn í Árnessýslu einnig til
fundar að Selfossi kl. 2 í dag um framtíð Þorláks-
hafnar og sfóriðju á íslandi, eins og skýrt var frá í
biaðinu í gær.