Tíminn - 17.06.1958, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.06.1958, Blaðsíða 13
13 5»; TÍMINN, þriSjudaginn 17. júní 1958. sex grunaðir saga efftir agatha christle Skrifstofuma^urinn horfði á þá undarlegu augnaráði. Loks sagði hann: — Hr. Amb eriotis? Mér þykir það miður, herra minn, ég er hræddur um að þér getið ekki hitt hann. — Eg er nú á öðru máli, svaraði Japp stuttur í spuna. Hann vék skrifstofumannin- um ögn til hliðar og sýndi honum skilríki sín. Þá sagði skrifstofumaður- inn: — Þér skiljið ekki herra minn. Hr. Amtoeriotis andað ist fyrir hálftíma. III. Kafli Sölarhring síðar hringdi Japp til Poirot. Hann var allt annað en blíður á manninn. — Gátan er ráðin. Allt ligg ur ijóst fyrir. , — Hvað áttu viö, vinur minn. — Morley framdi sjáifs- morð. Það er deginum Ijós- ara. Ástæðan liggur i augum uppi. — Hver var hún? — Eg var að fá skýrslu læknis um dauða Amberiotis. Hann dó af of störum i skammti af adrenalíni og procaine. Það hafði áhrif á hjartað, skildist mér og gerði út af við hann. Þegar grey- skarnið sagðist vera lumpinn í gærdag, þá sagði hanií satt. Þarna hefurðu það. Adiæna- lin og procaine er efni sem tannlæknar sprauta inn í góininn á mönnum til að deyfa þá. Morley gerð'i glappa skot, skammturinn var of stór, og skildist hvað hann hafði gert, rétt eftir að Am- beriotis var farinn. Hann tireysti sér ekkj til að horfast í augu við staðreyndirnar og skaut sig. — Með byssu sem enginn vissi til að hann ætti í eigu sinni? — Hann hlýtur að hafa átt hana, þrátt fyrir það, svar aði Japp. Ættingjar vita ekki allt. Þú yrðir hissa ef þú kæm ist að raun um hvað ættingjar vita lítið um mann. — Satt er það að vísu. — En gátan er sem Sagt ráð in, sagðj Japp. Þetta er rök- rétt skýring á öllu saman. — Veiztu það vinur minn, sagði Poirot, að ég er síður en svo ánægður með þessa niður stöðu. Það er satt að sjúkling ar verða oft veikir af þessu deyfilyfi. Smáskammtar af þessu lyfi hafa stundum gert út af við menn sem hafa ver ið veikir fyrir. En það er sjald gæft að læknar fremji sjálfs morð þó svo sé í pottinn búið. — Já, en þú átt við þau til felli þar sem deyfilyfja- skammturinn hefir verið eðli legur. í þeim tilfellum er ekki hægt að skella skuldinni á lækninn. Það er veikleiki sjúklingsins, röng efnaskipt ing, sem orsakar dauða hans. En hér er augsýnilega um of stóran skammt að ræða. Þeir vita ekki ennþá nákvæmlega um magnið. En það er áreið anlega of mikið. Morley gerði glappaskot. — Jafnvel þótt svo sé, væri það talið glappaskot, en ekki glæpur, sagöi Poirot. — Að vísu en það kæmi hon um ekki að miklu gagni í starfi sínu. Það mundj hafa riðið honum að fullu. Enginn mundi fara til tannlæknis er sprautar inn í mann banvænu eitrj bara af því að hann er lítið eitt utan við sig. — Þetta kemur mér ein- kennilega fyrir sjónir, ég verð að játa það. — Þetta kemur fyrir, þetta kemur fyrir Iækna, efnafræð inga — — menn sem verið hafa traustir og trúverðugir árum saman, þeir gera þetta í hugsunarleysi. Þar með eru þeir búnir að vera. Morley var tilfinningamaður. Ef um lækni er að ræða, þá er alltaf hægt að skella skuldinni á efnafræðing eða lyfjagerðar- mann. En nú var það Morley sem einn bar ábyrgðina. Poirot maldaði á móinn: — En því skildi hann ekki eftir bréf. Sagði frá því hvað hann hefði gert. Sagði að hann gæti ekki horfst í augu við afleiðingar gerða sinna. Bara örfá orð til systur sinnar. — Nei, mér virðist hann hafa misst taumhald á sér og forðað sér fljótustu leið úr ógöngum. Poirot svaraði engu. Japp hélt áfram: — Eg þekki þig, gamli minn. Þú hefir komizt 1 tæri við morðmál, og þá viltu halda því til streitu að um morð sé að ræða. Eg við urkenni að ég kom þér á spor ið í þetta sinn. Jæja, mér skjátlaðist. Eg viðurkenni það fúslega. — Eg held nú samt að önn ur skýring sé til, sagði Poirot. — Það eru til nægar skýr ingar, sagði Japp, ég hef hug leitt þær allar. En þær eru allar of fáránlegar. Gerum ráð fyrir að Amberiotis hafi drepið Morley, fyllzt sektar- kennd þegar hann kom heim og tekið inn eitur sem hann hefir stolið hjá Morley. Ef þér finnst það sennilegt, verð ég að segja a'ð mér finnst það mjög ólíklegt. Við höfumævi ferlisskýrslu Ameriotis á Scot i land Yard. Hóf feril sinn sem veitingamaður í Grikklandi, átti lítið gistihús. Fór svo að gefa sig að stjórnmálum. Hann hefir stundað njósnir í Frakklandi og Þýzkalandi, grætt fé á tá og fingri. En honum fannst hann ekki græða nógu fljótt, og það er álitið að hann hafi lagt fyrir sig fjárkúgun. Enginn sérleg- ur heiðursmaður, hann Amb- erotis. Hann var í Indlandi s. 1. ár og kúgaði álitlegt fé út úr einum prinsinum þar að því er menn halda. En það hefir verið erfitt að afla sann anna gegn honum. Háll sem áll. En það er önnur skýring. Það má vera að hann hafi verið að kúga fé út úr Morley. Morley hefir gripið gullvægt tækifæri og. sprautað í hann banvænum skammti af eitri í þeirri von að löareglan hé1 di að um mistök væri að ræða. i Síðan fær Morlev samvisku- bit og gerir út af við sier. Þetta væri hugsanleet, en és get í- myndað mér að MorJev hafi framið siáifsmorð af rá.ðnum hug'. Nei, éo- pr nærri viss um að um mistök var að ræða. Morlev hafði la»'t of ha.rt að sér oer ekki eætt næs'íiegrar varúðar. Eg er hræddur um að málinu sé ba.r með lnkið. — Eo- skíl . . .. sa.o'ði Poirot og stunrii hungann. éo skil . . . — Eo- veit, hvoi-nip- hór Tiður sao’ð; .Tfl.nri rinuinvnlpa'q,. en bú getur ekki ætiazt til að hú fáir skemmtiiecrt morð í hvert skipti. Ailt sem ég get tiiiiiiiiiiiuiiiiinjiiiiiHiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiirhiiiiiim 1 TIL SÖLU 1 I I s fokhelt timburhús, 54 ferm. 3 herbergi, eldhús og I bað. Mjög vandað. Sanngjarnt verð. Gæti útvegað 1 lóð. Tilboðum sé skilað til blaðsins fyrir hádegi n. k. | | laugardag, merkt: „Gott hús“. | ^HminmmiiiniiiiiHiiiiiiiiiHiiiuuiiiiiiiHuuiiiiiiiiiiiuiiuuiiiiuiiiHiiiiuiiiHiuiiiiuHiiiiiinuiiiiiiiiiiniBiaaw | T§l sölu | | eru 3 fólksbifreiðar, 2 vörubifreiðar, 1 sendibif- § I reið, stálpallur með sturtum og trépallur, ef við- I | unandi boð fæst. | | Til sýnis við bifreiðaverkstæði Rafmagnsveitunnar I v/Elliðaár á morgun (18. júní) eftir kl. 1 e. h. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 11 f. h. á § fimmtudag. | | Rafmagnsveita Reykjavíkur. | 55 5 iíiiuuuiiiiiiiiiiiiiiiitiuiiiiiuiiiiiuiiiiiiiiHiiiiiiiiuiHiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiiiHiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiuiiw ^nniiminiuiininiiiiiiiiiiiimiiinmiiniiiniiiiiui.iimiiiiiiniiiiiiiiiiinmiiiniiiitiiiimiiiuiumuumniuotag I Uppboð I | Opinbert uppboð verður haldið í vörugeymslu Eim- I skipafélags íslands í Haga, hér í bænum fimmtu- 1 | daginn 19. júní n. k. kl. 1,30 e. h. | Seldar verða ýmsar gamlar vörur eftir kröfu Eim- § skipafélagsins til lúkningar geymslukostnaði o. fl. 1 Greiðsla fari fram við hamarshögg. 1 = Borgarfógetinn í Reykjavík. |j ísæsiiiiminiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimiM Úrvalsostar frá Mjólkurbúi Flóamanna FLÓA- 45 % ostur FLÖA- Schweitzerostur FLÓA- sterkur ostur FLÓA- sterkur smurostur FLÓA- goudaostur FLÓA- hangikjötsostur FLÓA- rækjuostur FLÓA- grænn alpaostur FLÓA- tómatostur Enn fremur ómissandi í ferðalagið FLÓA- kjarnostur í túbum. OSTAR Mjólknrbií Flóamanna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.