Tíminn - 21.09.1958, Qupperneq 12
VEÐRIÐ:
Austangola, léttskýjað.
Reykjavík, 18 stig, Akineyri 7,
London 17, París 17.
Sunnudagur 21. september 1958.
,Aldrei að örvænta’jkjörorð brezkra
togaramanna á Islandsmiðum núna
Leikrit Kristjáns Alkertssonar,
Haust, frumsýnt á miðvikudag
Valur Gíslason í aíalhlutverki, Einar
Fáisson leikstjóri
— segir Fishing News
Fara á önnur mið vegna lélegs afla
í nýútkomnu Fishing News er greint nokkuð frá við-
horfum rranna í Hull, Grimsby og Fleetwood til fiskveið-
anna við ísiand eftir að landhelgisstækkunin gekk í gildi.
Margir brezki.r togarar feru nú komnir heim aftur eftir að
hafa fiskað við ísland í septembermánuði. „Aldrei að ör-
vænta“, segir blaðið, að sé kjörorð þeirra togaramanna, sem
stunda veiðar á íslandsmiðum um þessar mundir.
Blaðið skýrir svo í'rá, að í Hull
sé það almenn skoðun meðal tog-
aramanna, að íslendingar viti,
hvað þeir eru að gera með út-
víkkun landhelginnar. Togarar,
sem veiði á þeim svæðutn, sem
brezk herskip vernda, verði að
innlbyrða eins mikið af fiski og
mögulegt er með, það í huga, að
veiðin kynni að stórminnka, ef
verndarsvæðið yrði eiíthvað fært
til. Sumir togararnir komi þannig
með mikið magn af mjög lélegum
fiski eða óseljanlegum fiski,1 en
það hefur þær afleiðingar, að af-
koman verður slæm. Önnur skip
koma hins vegar til hafna með
afla, sem er þriðjungur af venju-
legum feng á þessum árstíma, seg-
ir blaðið. Ennfremur álíta margir,
að alltof margir brezkir togarar
séu nú að veiða við ísland. Margir
þeir iogarar, sem nú séu að veiða
á verndarsvæðum brezka herflot-
ans við ísland myndu að öllu eðli
íegu vera á veiðum í Hvítahafi
eða við Bjarnarey.
meiri við ísland en togveiðimanna
í Hull, segir Fishing Nevvs. Tekið
er fram, að aflinn hafi verið lé-
legur að undanförnu.
Fara á önnur ínið.
í Fleetwood e.r það, sem menn
hafa tekið sér kjörorðið: Aldrei
ag örvænta, en þar hafa allmargir
togarar skipt um veiðislóðir eftir
fyrstu ferðina á íslandsmið í sept.
og stefna nú á önnur fjarlæg mið.
Enda þótt margir togaranna frá
Skálað eftir drýgðar dáðir
Grimsbymenn þrjózkir.
Togaramenn í Grimsby eru gall
Tveir togaraskipstjórar frá Grimsby, sem eldað hafa grátt silfur viö ís-
lenzka varðskipsmenn. Tóku þeir skál saman, er báðir voru komnir til
hafnar í Sretlandi, um borð í togaranum Lifeguard. Til vinstri er Bernard
Newton á Lifeguard, en til hægri Jim Crockwell á Northern Foam.
harðir á því, að láta ekki í neinu Fleetwood hafi verið að veiðum
undan íslendingum, né láta hrekja utan 12 mílna landhclginnar, hef-
sig af venjulegum veiðislóðum, ur veiði þeirra verið minni en
enda séu togveiðar Grímsbymanna venjulega.
Fyrsta írimsýning Þjóðleikhússins á þessu leikári v.erður
næst komanJi miðvikudag. Þá verður frumsýnt leikrit
Kristjáns Albertssonar, Haust. Leikstjóri er Einar Pálsson.
Leikritið Haust kom út í fyrra-
haust á forlagi Helgafells og nefnd
ist þá Hönd dauðans. Höfundur
hefur nú breytt leikritinu nokkuð
og skrifað sum atriði þess um, þótt
efnislega sé það óbreytt. Leikritið
gerist erlendis, í Sviss, og í höll
einræðisherra nokkurs í Evrópu,
og fjallar um alþjóðlegt efni, ein-
ræðis- og ofbeldishneigð siðari ára
tuga. Eveðst höfundur hafa skrif-
að leikritið á síðari árum, en efnið
hafi lengi sótf á sig. Kristján Al-
bertsson hefir verið staddur hér
á landi undanfarið og fylgzt með
æfingum á leik sínum.
Að'alhlutverk.
Með aðalhlulverk i leikritinu
fara Valur Gíslason, sem leikur
einræðisherrann, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir og Rúrik Haraldsson,
en aðrir leikendur eru Herdís Þor-
valdsdóttir, Regína Þórðardóttir,
Haraldur Björnsson, Helgi Skúla-
son, Arndís Björnsdóttir, Róberl
Arnfinnsson, Ævar Kvaran og Er-
lingur Gíslason. Leiktjöld eru eftir
Lárus Ingólfsson.
Næsta viðfangsefni Þjóðleik-
hússins verður Look Back in Ang-
er eftir John Osborne. í bræði
nefnist leikritið á íslenzku. Þá er
KRISTJÁN ALBERTSSON
í ráði að sýna Horft af briúnni
á næstunni á Selfossi, en Þjóðieik-
húsið hefur sýnt það viða um land
vig góðar undirtektir. Þá v.erður
leikritið sýnt í Reykjavik. og einn
ig verða teknar upp sýningar á
Föðurnum og Dagbók Önnu
Frank.
Hafravatnsrétt er á |>riðjudaginn
Krustjoff krefst brottflutnings
bandaríska hersins frá Formósu
Hafnar algerlega tilmælum Eisenhowers um
að heita áhrifum sínum á Kínverja til aí fá
þá til alS taka upp friívænlegri stefnu
Stærsfa rerr i nand við Reykjavík er Hafravatnsrétt, oj eiginicga rerr KeyKviKinga, bæoi vegna peas au til
hennar smalazt mikið af sauðfé reykvískra fjáreigend og þangað þyrpisf jafnan margt fólk úr höfuðstaðn-
um, einkum þeir, sem úr sveit eru runnir og elga þess ekki kosf að fara í rétfir á æskuslóðum — og margir
fara með börn sín þangað til þess að sýna þeim féð, og er það góður siður. Hafravatnsdétt er á þriðjudaginn
kemur. Myndin var tekin þar í fyrra.
NTB—Moskva, Peking og Taipeh, 20. sept. — Krustjoff
forsætisráöherrá Ráðstjórnarinnar hefir bréflega svarað
síðustu orðsendingu Eisenhowers Bandarikjaforseta, og hafn
ar hann þar algerlega tilmælum Eisenhowers um, að Ráð-
stjórnin beiii áhrifum sínum til að fá Kínverja til að taka
upp friðvauilegri stefnu gagnvart Formósu. Krafðist Krust-
joff þess í bréfinu, að bandaríska herliðið yrði þegar í stað
flutt brott frá þessu svæði.
Krustjoff skrifaði, að hvorki
Ráðstjórnarríkjunum né Kínverj-
um stæði stuggur af því, sem hann
nefnir kjarnorkusiriðshótanir
Bandaríkjamanna. Ef til þess
komi séu Rússar síður en svo
eftirbátar Bandaríkjanna. Rússar
muni ekki hika við a'ð ganga til
beins hernaðar vig hlið Kínverja,
ef til slílcs komi.
Krústjoff hefur í hótunum.
Krustjoff segir ennfremur, að
ef Bandaríkjamenn fallizf ekki á
að flytja þegar í stað burt her
sinn, eigi kínverska alþýðustjórn
in ekki annars úrkosta en hrekja
óvinaherliðið burt frá eyjunum
undan ströndinni og útrýma þeim
beinlínis, ef það reynist ekki hægt
öðruvísi. Orðsending Krustjoffs
var í gærkvöldi afhent sendifull-
trúa Bandaríkjanna í Moskvu.
Herbragð.
iBlöfí 1 Peking hafa mjög gagn-
rýnt Bandaríkjamenn fyrir að
vilja vopnahlé á Formósusundi. Er
þetla lúlkað beinlínis her.bragð til
að vinna tíma fyrir þjóðernissinna
herinn á Quemoy til að bæta þar
hernaðaraðstöðu sína.
Sjóorrusta.
Hernaðarátökin halda enn
áfram á sundinu, og tilkynntu
þjóðernissinnar í morgun, ag þeir
hefðu sökkl einum timdurskeyta-
bát fyrir kommúnistum, en laskað
annan í sjóorrustu, er hafizt hefði
með þeim hætli, að tundursheyta-
bátarnir haíi ráðist á þjóðernis-
sinnaherskip. Einnig tilkynna þeir
að birgðaflutningar til Quemoy
haldi áfram, þótt örðugt sé um
vik vegna skothríðarinnar frá meg
inlandinu.
Skemmdarverk unn-
in í Mosíellssveit
Mosfellssveit í gær. —- S .1.
þriðjudagsnótt var brotizt inn í
hænsnabúið Teig skammt frá
Reykjalundi og framin þar ýmis
skemmdarverk, og nemur tjóniö
þúsundum króna. Þessa nótt var
illviðri, og réðust skemmdurvarg-
arnir fyrst á vörubíl utan við
húsið, óku Ihonum á gir'ðinigu og
stórs'kemmdu, meðal annars eyði
lögðu valnskassann. Eftir það’ var
brotizt inn í hænsnahúsið, steypt
niður kassastæðu með tvö hundr-
uð eggjum og þau flest brotin.
Fleira var i'ifið og eyðilagt, en
engu teljandi stolið.
Lögreglan í Hafnarfirði kom
þegar á vettvang um morguninn
og er málið í rannsókn en ekki
að fullu upplýst. Þykir líklogast
| að maður með sjúklega skemmda
| fýsn hafi verið þarna að verki.
Eigandinn, Matt'hías Einarsson,
telur tjónið vera um 8 þúsund
kr. I-Iann varð og fyrir því tjóni
í sumar, að brotizt var inn í
sumarbústað hans við Þingvalla-
vatn og skemmdarverk umún.
AÞ.