Tíminn - 14.10.1958, Blaðsíða 5
I í MIN N, þri'ðjudaginn 14. október 1958.
5
Hinrik Bjarnason:
Nokkur orð um vistheimilið í Breiðuvík
Athugasemd vií grein Þóríar Jónssonar, Látrum
Um Breiðuvík.
í júní síðastliðnum, nánar til-
tekið þann 25., birtist í Tímanum
viðtal við mig um starf mitt sem
skólastjóra Drengjaskólans í
Breiðuvík undanfarm tvó ar, svo
og um ýmislegt annað í sambandi
ýið þetta vistheimili rikisins í
Breiðuvík í Rauðasandshreppi.
í þessu viðtali fór ég ekki dult
með þá skoðun mína, að meiru
hefði ráðið kapp en forsjá við
staðsetningu og uppbyggingu vist-
heimilisin3. Sú væga gagnrýni, er
þar kom fram, beindist einkum að
því algjöra fyrirhyggjuleysi gagn-
ýart eðii og ástandi væntanlegra
vistmanna, sem virðist hafa verið
rík.iandi hjá þeim aðilum, sem
Völdu stað og réðu gerð þessarar
mikilvægu stofnunar. Eg leitaðist
við að gefa þeim mörgu, sem á-
huga hafa á uppcidi þeirra barna,
ér umhverfið hefir gert að horn-
rekum, lýsingu á því, hvert væri
hið raunverulega sálarástand.
þéirra aívegaleiddu drengja, sem
til Breiðuvíkur eru sendir. Það
vill stundum gleymast i ákafa
framkv.manna og byggingafyrir-
ætlunum fjármálasnillmga, að
áðalatriði uppeldisstofnunar er
hópurinn, sem ala á upp. Þessi
hópur er, þrátt fyrh' endurnyj-
ún, alltaf samur, og við hann á
að miða byggingar, umhverfi,
starfslið og tæKi, en ekki öfugt.
Eg get þessa hér vegna þess, að
í grein í Morgun'blaðmu 3. þ. m.
um Vistheimilið í Breiðuvík, læt-
ur minn ágæti nábúi vestur þar,
Þórður hreppstjóri Jónsson 1 Látr-
tim, að því liggja, að ég geri hiut
drengja og stofnunar verri en vert
sé, foreldrum til ótta og drengj-
um og forráðamönnum til óþuxrft
ar. Jafnframt sakar hann mig um
ösannsogli varðandi ástand hyOýla,
en fer þó í ýmsu harðari orðum
um það ástand en ég gerði í
nefndu viðtali.
Þar eð grein þessi er nokkur á-
drepa á frásögn mína, langar mig
til þess, að taka nokkur atriði henn
ar til lítillegrar athugunar.
Fyrst er þar til að taká, að með
ólíkindum er, að ég geri hlut
hinna ungu skjólstæðinga minna í
Breiðuvik of dókkan. Það er ólík-
legt af því, að í þeim hópi hefi ég
ey-tt tveim vetrum, og ævinlega
fundist ég vera í góðum félags-
skap, enda hafa Breiðvikingar
orðið mér kærastir af fólki mér
óvandábundnu. Og einmitt vegna
þess, að framtíð þeirra er ntér all-
mikið áhugamál, þá er mér einnig
inikið í mun, að almenningur fái
rétta mynd af þeim aðstæöum og
umhverfi, sem þjóðfélagið kostar
til uppeldis þeirra i. Gagnrýni er
hverrt stofnun holl nauösyn, og
þvi nauðsynlegri, sem þjóðfélags-
legt gildi hennar er meira. Þórð-
ur Jónsson telur mig hafa einblínt
á gallana, en þagað um kostina.
Hann fuliyrðir að ég hafi ekki séð
alla dyrð tíreiðuvíkur, og það er
hárrétt. Eg hefi „aðeins“ verið
i Breiöuvíic átta mánuði á ári, og
af þeim sokum ekki scð þar annað
én sandgráa haustjörð, svarðbrúna
mýri og vetrarhrjóstur a íjóilum.
Mér þyiKir samt ckki a.uanaijótt í
Breiðuvík, og að sumarlági í sól-
skini yrði ég vafalausl hrifmn, ég
kann alls staðar vel við img i soi-
skini og sumarblíðu.
llúsnæðið.
Sem gireindum og athugulum
manni dylst Þórði það ekki, að
meira en litið hafi verið ábótavant
fyrstu skipulagningu starfs í
Breiðuvík, og ég vil leyfa mcr að
'taka upp þau orð hans hér, að það
mun „einsdæmi með slika stofnun
að byrjað sé að rcka hana um leið
og byrjað er að byggja." Þórður
hefir líka ákveðnari -hugmynd
ir um ástand Breiðuvíkur, húsa og
jarðar, heldur en þeir, vísu menn,
er hana völdu til hælisbyggingar.
Hann segir hana hafa verið eyði-
jörð, og mannvirki öll i þeirri
mcstu niðurníðslu, sem hugsazt
geti. Hann er sýnu svartsýnni en
hinir vísu landnámsmenn, er þarna
sáu íbúðarhæft hús fyrir 6—7
manns, og stórt steinhús, sem yrði
mikils virði sem vinnustofur, ef
fallið yrði frá því að gera það íbúð-
arhæft. Svo sáu þeir líka, að pen-
ingshús væru að miklu íeyti fyrh-
hendi. Þarna hefi ég tilhneigingu
tii þess, að taka meira mark á
ummælum Þórðar en þeirra ágætu
manna, er staðinn völdu. Hitt féll
mér miður, að raunsæi hans skyldi
ekki haldast, er hann hóf að ræða
um byggingar þær, er reistar hafa
verið. Það eru sérstaklega ummæl
in um rakann. Eg sagði í viðtalinu
að íbúð sú í Breiðuvík, sem ætl-
uð var bústjóra, væri allt að þvi
óíbúðarhæf sökum raka. Þarf ég
ekki að fara mörgum orðum_ um
það. Hinn óskaplegi raki í íbúðinni
duldist engum, sem inn í hana
kom. Eg hefi líka öllu rrieira álit á
ummælum húsameistai-a þess, er í
íbúðinni bjó í 2 ár, heklur en þvi,
■ sem Þórður kann að telja. En af
því nú að þetta var sterkt að orði
kveðið hjá mér, og Þórður telur
það rangt, þá langar mig til þess,
að spyrja hann eftirfarandi spurn-
inga:
Telur hann að bústjórinn í
Breiðuvík hafi látið leggja nýja
plasteinangrun á innveggi raka-
herbergjanna, múrhúð'a og skipta
um gólfdúk nú í sumar til þess
eins, að veita múrurum atvinnu,
eða nninu nú peningar til fram-
kvæmda í Breiðuvík orðnir svo
miklir að vöxtum, að nauðsyn sé
slíkra tiltekta til þess að koma
þeim í lóg? Eða telur Þórður Jóns-
son það í samræmi við slit bygg-
inga yfirleitt, að slikra aðgerða
skuli þörf í húsi, 6—7 <íra gömlu?
Mér vár auðvitað fullkunnugt
um hið nýja hitakerfi, og það að
vonum, því lengstan þann tíma,
sem ég var 1 Breiðuvík, vann minri
ágæta samverkamaður, Erlingur
Magnússon handavinnukennari,
sitt starf við þannig aðstæður, að
full ástæða var fyrir skólastjóra að
hafa áhuga á framkvæmd hitalagn?
ar, enda - var ég viðstaddur þann
eftirminnilega atburð, þegar fýrt
var í fyrsta skipti upp í katlinmn
mikla. Hafi Þórður ekki verið þar,
þá hefir hann að minnsta kosti
haft tækifæri til þess að kynna sér
þessa hitalögn, sem er ágæt, og
bera hana saman við það miðstöðv-
arkerfi, sem hann kennir um rak-
ann.
Um samgöngur og Iækni.
Það er varasamur hlutur að full-
yrða, að skólastjóra í Breiðuvik
gangi ekki annað til .en viljaleysi,
ef hann getur ekki haft „nauðsyn-
legt samband“ við lækni. Þessi
ummæli eru raunar þannig, að ég
kinoka mér við, að ræða þau nán-
ar. En hitt slendur óhaggað’, að í
fjóra ínánuði á ári hverju má bú-
ast við þeim samgönguerfiðleikum
á leiðum frá Breiðuvík, að alvar-
legra afleiðinga megi vænta, ef
þörf er fyrirvaralausr'ar .læknisað-'
sloðar í neyðartilfellum. Það lækn
ishérað, sem Breiðuvík er i, á því
láni að fagna, að því þjónar frá-
bær læknir. En hversu góður sem
læknir kann að vera, þá tel ég tak-
markaða þá læknisaðstoð, sem
hægt er að veita gegnum síma. Ef
illa færi, þá gefa ummæli Þórðar
um viljaleysi góða hugmynd úm,
hverjum yrði um kennt.
Starfsfólk.
Eg tel að við stofnun, sem á að
fást við uppeldi afvegaleiddra ung-
linga, sé þörf slarfsfólks með sér-
þjálfun til þeirra starfa. Þetta
viilja margir álíta mestu firru. En
ef svo reyndist, að hér á landi sé
hægt að reka slíkar stoínanir, án
allra sérþjálfaðra starfsmanna, þá
er líka ísland eina landið í heimi,
er leyst hefir vandamálið á svo ein-
faldan hátt, vandamál, sem mestu
menningarþjóðir heirns hafa varið
áratuga rannsókum og ógrynni fjár
til þess að finna beztu lausn á. Mér
hefir yfirleitt heyrzt á því starfs-
fófki í Breiðuvík, sem vinna hefir
átt með drengina, að það teld:
sinn stærsta annmarka þann, að
það hefði ekki nægilega þekkingu
til þess að ná þeim árangri í starf.'
sínu, sem það helzt óskaði. Hitt
er rétt hiá Þórði, að minnsta kost.'
að því ieyti, sem ég þekki til, að
til Breiðuvíkur befir ráðizt margl
ágætisfóik. Og þann tíina, sem ég
var í Breiðuvík, var þar húsmóð'ir,-
til sem allrar hamingju var þeirri'
vanda vaxin, að veila drengjunuin
þá móðurblíðu, sem þeir annars
hefðu farið á mis við. En hverju cr
það að kenna, að vistheiinilið í
Breiðuvik er þess ekki umkomið,
að taka við að meiri hluta drengj-
um á aldrinum 13—16 ára, þeim
aldri, þegar framkvæmdasemi fer
verulega að gera vart við sig? —
Hvernig stendur á því að sæmilegt
starf í Breiðuvik hefir því aðeins
tekizt, að þar væru að mikium
meirihluta vistmenn á aldrinum
8—12 ára? Það skyldi þó aldrei
vera, að afvegaleiddir drengir á
aldrinum 13—16 ára þyrftu á að-
stoð kunnáttumanna að halda til-
þess, að greiða úr vandræðum sín-
•um og vekja áhuga á einhverjum
vísi að störfum og tómstundavinnu,
sem kynni að falla þeim í geð sem
fullorðnum mönnum? Kannske er
fjarstæða að halda því fram, að í
Breiðuvík séu að meirihluta dreng-
ir að 12 ára aldri vegna þess að
aðstæður til starfs þar geri ómögu-
legt að „ráða við“ 12—15 drengi
um og yíir fermingu?
Eg hefi áður minnzt á einangrun
Breiðuvikur, sem Þórður telur
hæfilega til þess, að drengirnir
fái notið uppeldisáhrifa á heim-
ilinu. En hver á að verða framtíð
þessara drengja? Hvort er liklegra,
að þeir gerist bændur í Rauða-
sandshreppi, eða hverfi aftur til
kaupstaða? Og mundi það teljast
góður undirbúningur undir líf
drengs í fjölmenni, að senda hann
til langdvalar á einangruðum út-
kjáika? Eða mundi slíkt þroska um-
gengnismenningu hans, og auka
möguleika til þess, að hafa samvist
ir við heilbrigða jafnaldra sina?-
Nei.
Hvernig hefir gengið að afla
starfsfólks? Það hefir oft gengið
erfiðlega, og ómögulegt, að halda
nokkrum starfsmanni til frambúð-
ar, þrátt fyrir hina auðsæju nauð-
syn þess, að starfsmannaskipti séu
að mjnnsta kosti ekki örarl cn
vistmannaskipti.
Starf dréngjanna.
Ef marka má ummæli Þórðar,
þá liggur nærri að álykta megi, að
drengirnir liggi í dvala yfir vet-
urinn, en sumarið sé sá timi, sem
þeir hafi nóg að starfa, og citt-
hvað sé gert fyrir þá. Það kemur
nefnilega í ljós við athugun á
grein hans, að skemmtun þeirra
yfir veturinn samanstendur af
ferð á eina jólatrésskemmtun í
sveitinni. Og þetta nægir til þess
að fullyrða, að „allt sé gert, er
aðstæður leyfa, til að drengjunum
verði dvölin sem ánægjulegust, og
þeim geti liðið sem bezt“. Sem
betur fer minnir mjg, og vonandi
rifjast það upp fyrir Þórði vini
mínum líka, að töluvert fleira liafi
verið gert til þessj að stytta drengj
unum skammdegið, en það eitt, að
fara með þá á jólatréð. Hitt er rétt,
að húsnæðisleysi hefir haft það í
för með sór, að meiri áherzla hef-
■ir orðið að leggja á það, að hafa
öfan af fyrir drengjunum, heldur
en hitt, að veita þeim tækifæri til
skapandi síarfa.
Það hafa fleiri rætt um það, en
Þórður, hvílík kostajörð Breiða-
vík sé, með „ótæmandi ræktunar-
möguleika.“ Þessa sérlegu land-
• kosti lief ég ekki komið auga á.
Hitt veit ég, að það má vafalaust
gera mýrarflókann og sandfenin í
Breiðuvík að túni, með nægilegum
peningum, en sú blessunarríka úr-
lausn getur líka átt við hvert ein-
asta kot á íslandi. Mér er sömu-
leiðis ómögulegt að skilja, hvað á
að gera með stóraukinn búskap í
Breiðuvík, á meðan hinn núver-
andi og nauðsynlegi búrekstur þar
„Ytt úr vör í Breiðuvík".
Myndin var tekin — svo var haldiö áfram gönguferðinni.
er fjárhagslegur baggi á starfsem-|
im>I.
Af grein Þórðar má ætla, að
flest vandkvæði í Breiðuvík leys-.
ist með tilkomu aukins húsnæðis.
Það leysir vissulega nokkurn
vanda. En hefir við byggingu í
Breiðuvík, verið fyrst og fremst
hugsað um það, að fá verulega
hagkvæmf húsnæði til starfsenv
innar, eða hefur verið einblínt á
það, að fá nægilegt húsnæð'? Eftir
hvaða f.vrirmynd eru byggingarn-
ar gerðar? Hvaða meginsjónarmið
um aðferðir við uppeidi afvega-
leiddra drengja var ríkjandi hjá
þtim, er skipulagningu önnuðust?
Þessú væri gaman að fá svarað.
Nefndin.
Eg skal ekki fjölyrða um nefndir
þær, er scð hafa um stofnunina.
Eg geri ráð fyrir, að í þeim hafi
verið og só gott fólk. En þegar ég
lít á nýgerða reglugerð fyrir Vist-
heimilið í Breiðuvík, og les þriðju
grein, sem hljóðar þannig:
„Aður en dreng er veitt viðtaka
á heimilið , skal stjórnarnefndin
kynna sér aðstæður allar í rnáli
hans, þ. á ni. hver sé afstaða for-
eldra Jians eða forráðamanna til
vistarinnar.
Þá skal nefndin gæta þess, að
læknir rannsaki rækilega heilsufar
drengsins og sömuleiðis þess, að
sálfræðingur hafi áður athugað
hann, ef þess er nokkur kostur.
Skal afrit af umsögnum þessara
sórfræðinga, svo og umsögn barna
verndarnefndar (barnaverndar-
ráðs) um drenginn sendast for-
stöðumanni heimilisins.“
þá finnst mér undarlegt, að nefnd
in skuli sitja á Patreksfirði. Hitt
hefði mér þótt stórum undarlegra,
og jafnvel varhugavert, að hún
væri skipuð meðlimum úr Rauða-
sandshreppi. Þetta segi ég ekki til
þess, að kasta rýrð á mannkosti
Rauðsendinga, sem ég þekki að því
að vera drengi góða, heldur af
hinu, að hagsmunir hreppsbúa
gagnvart stofnuninni þurfa ekki
endilega að vera hagsmunir vist-
manna. Stofnun sem í Breiðuvík
verður ávallt að vera sjálfstæð og
óbundin heild innan sins umhverf-
is.
Því hefir á stundum verið halc
ið fram við mig af torsvarsmönnui.
Breiðuvíkur, að ekki mætti segj
afdráttarlaust frá aðstöðu og un
hverfi í Breiðuvík vegna þess, ai:'
í fyrsta lagi yki það á erfiðleik:
á öflun starfsfólks, og í öðru lag
vekti það óánægju hjá forráða'
mönnum barna. sem þar eru. Þett
eru haldlitlar röksemdir, en í þeiiv.
fellst þó meiri gagnrýni á Breiðc
vík en ég hefi nokkurn tíma látið
Ijós. Það er cngum greiði gerðu
með því, að þegja yfir stórgallaðr
meðferð viðkvæms þjóðþrifamáls
Ef mistök hafa orðið, á það av
vera keppikefli þeirra, sem þausj.i
og nokkuð mega að gera, að vic
urkenna þau og reyna að lagfæra
en þegja þau ekki í hel, þótt þa_
séu langt í burtu.
Við íslendingar höfum verið sv.
Iánsamir, að finna ekki nema rét
daufasta smjörþef af ,því stórvand.,
máli, sem afvegaleidd æska e
mörgum þjóðum. Því valda þjóc
félagshættir þeir, er hér hafa ver
ið ríkjandi um aldir, allt frarn .
síðustu áratugi. En með tilkomc:
fjölmennra kaupstaða og byggðr
hverfa eykst sú nauðsyn, að haí:
sé verulegt cftirlit með uppeidl 0;
atferli unglinga. íslenzkt þjóðfé
lag hefir ekki efni á því, að lát
nokkurn cinstakling fara í súginn,
ef hægt er að beita ráðum til bjar£
ar. Þess vegna eru stofnanir eir.:
og Vistheimilið í Breiðuvík naúð •
synlegar, og þess vegna er lík.
nauðsyn að til þeirra sé viturlcg.
stofnað.
Það má ekki gera þær að oln
bogabörnum innan uppeldiskerfi
okkar með þeirri skoðun, að þæ-'
séu ill nauðsyn. Það er rangt. Sair.
ábyrgð og drengskapartilfinnir..
menningarþjóðfélags birtist ei:
mitt hvað gleggst í þ\
hvernig það hjálpc
áleiðis til manndóms og þrosk ,
þeim þegnum sínum, sem eir.-
liverra orsaka vegna eru utangáí*
og ráðvilltir. Stofnanir fyrir þá og
árangur af starfi unnu þar, eru- þ'
á hverjum tíma nokkurs kont.
samvizka samtíðarinnar.
Það hefur ævinlega þótt nokku i
um vert, að hafa góða samvizku.
Reykjavík, 5. október 1951
Hinrik Bjarnaso ,
iiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiuiuiuiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiuiiiiiHiimB
|i
V örubílst jóraf élagið
ÞRÓTTUR
§
Auglýsing
eftir framboðslistum
Ákveðið hefir verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör 6 aðalfulltrúa og ö til vara á 3.
þing Landssambands vörubifreiðastjóra. Frestur
til að skila framboðslistum er til kl. 17 miðviku-
dag'inn 15. þ.m. Hverjum lista skulu íylgja með-
mæli minnst 26 fullgildra félagsmanna.
Kjörstjórnin
1
=J
i