Tíminn - 17.10.1958, Blaðsíða 7
TÍMJN N, föstuðaginn 17. október 1958.
2
Föstud. 10.10. '58.
Mvinchenarborg telst grund-
völlu'ð 14. júní 1158 og held-
ur |»ví hátíðlegt 800 ára af-
mæli sitt í ár. Hefir verið
hér mikið um að vera síðan
á afmælisdaginn í vor, og
má teljast að því tilhaldi
hafi að mestu lokið með októ
berhátíðahöldunum svoköll-
uðu, sem byrjuðu —raunar
kringum 20. sept. og iauk á
sunnudaginn var, 5. okt.
Þessi októberhátíð er árleg-
ur viðburður og gömul og
gróin venja hér um slóðir.
Enn má þó sjá afmælisskilti
í verzlunargluggum og á hót-
elum, og enn er framreiddur
hátíðarbjór. Er hann ótæpt
drukkinn af gestum og
heimamönnum, enda er
þetta einhver kunnasta bjór-
borg í heimi hér.
Skákmennirnir mega þó frem-
ur liUS gefa sig að bjórþambinu,
því siálfsagt yrði það ekki til
skerpingar dómgreind þeirra í
flóknum taflstöðum. Á skákstað
er þeim borið molakaffi og það
talið duga betur í þeim tilgangi.
ryrirlækið Nescafé eða Nestlé
gefur kaffið og fær í staðinn að
auglýsa það á liverju skákborði
með kaffifeaukum sínum.
Síðasta umferð í forriðlum fór
fram í gærkvöldi, og biðskákir
hreinsuðust upp í morgun. Réð-
ust þá örlög skáksveita, að því er
til flokkaskiptingar tekur í loka-
hrinunni. En áður en greint verði
frá þeirri skiptingu, er bezt að
gefa nokkurt vfirlit um skákir okk
ar mamna i fjórum síðari umferð-
unum.
Fyrsta og anriars borðs menn
okkar, Ingi R. Jóhannsson og
Guðmundur Pálmason, tefldu all-
ar íarriðilsumferðirnar án hvíld-
ar (utan hvað þeim bar að sitja
yfir í ntéstsíðustu umferð) og
unnu jafnframt þaö afrek að tapa
ekki neinni skák. Er Ingi með
5% vinning (eða 69%) og Guð-
mundur með 4% vinning (56%)
eftir átta skákir.
Skákir Inga
Fímfcita umferð okkar sveitar
var viðureign við Suður-Afríku-
menn. Á fyrsta borði þeirra teflir
Heidonfeld, enda þótt . hann sé
fyrir ári eða svo fluttur búferl-
um til Dyflinnar. Annars er hann
þýzkur að uppruna. Ingi hafði
svart og beitti Sikileyjarvörn, en
x upphafi tafls kom Heidenfeld
með nýlegan leik (Ra3), sem eign
aður er Perúmanninum Canál.
Ingi þekkti lítið til þessa aftarigð-
is og tók sér um klukkustundar-
umhugsun á 5—6 leiki. Tókst hon-
um þar með að gera staðgóða
áætlun um ft-amhaldið. Heidenj-
feld mun ekki hafa valið happa-
drýgstu leið, og náði Ingi í bili
dálítilli sókn á f-línu, en hinum
tókst að eýða henni von bráðar.
Svo fér að Ingi bauð jafntefli í
23. leik, enda var hann þá mjög
þreytlur orðinn eftir hina löngu
þaulhugsun í byrjun taflsins og
Iþó öllu frenuir eftir erfiða skák
við Ceerniak kvöldið áður og lang
varandi hiðskák þennan sama
morgun. Segja má að staðan hafi
engan veginn verið rakin jafnteflis
staða, en „betri er ein kráka í
hendi en tvær í skógi“ stendur
þar. Brást Heidenfeld hinn glað-
asti við og taldi sér sóma að jafn
tefli við fyrsta borðs mann svo
sterkrar skákþjóðar sem íslend-
ínga.
í sjöttu umferð fékk Ingi fyrsta
stórmeistarann andspænis sér, Un-
zicker. Þegar hér var komið sögu,
höfðu íslendingar 12 vinninga í
5 umferðum, en Vestur-Þjóðverj-
ar 9 vinninga í 4 umferðum.
Spánn og Bandaríkin voru komin
kippkorn fram fyrir. Var talsverð
ur hugur í mannskap okkar að
reyna að klekkja á heimaþjóðinni,
ekki af neinum kala, síður en svo,
Fyrirliði bandarísku sveitarinnar
bauð Inga jafntefli fyrir Reshevsky
heldur í drengilegum leik og
reyna að halda þriðja sætinu á-
fram. Ingi hefði því gjarnan vilj-
að tefla til vinnings í þessari skák,
en Unzicker valdi leið, sem lagði
niegináhættuna Inga á herðar, ef
hann gerði sig til einhvers' líkleg-
an. Náði Þjóðverjinn nokkru færi
um stundarsakir, en Inga tókst
að fyrirbyggja allar meiriháttar
aðgerðir hans. Urðu við það tvö
föld mannakaup og síðan samið
jafntefli í mjög áþekkri stöðu á
báða bóga.
Spánverjar hafa lcomið nokkuð
á óvart með ágætri frammistöðu
sinni, en þeir tefla fram öllum
sínum beztu mönnum og hafa
verið í fararbroddi í riðlinum all-
an tímann. Gegn Þomar Iék Ingi
móttekið drottningarhragð, sem
hann kveðst hafa kynnt sór nokk-
uð fyrir mótið. Pomar gat ekki
varizt peðstapi en náði nokkru
gagnfæri í staðinn, bauð svo upp
á annað peð, sem Ingi hefði e.t.v.
ekki átt að þiggja, þar sem því
fylgdi hættan á skiptamunstapi,
en með því að Ingi hafði þá tvö
peð þar á móti og vafasamt var,
hvort vinningm- leyndist í stöð-
unni fyrir Spánverjann, gekk
hinn siðarnefndi greiðlega að
jafnteflisboði Inga. Skákin varð
ekki löng.
í síðustu umferð hafði Ingi hvítt
gegn sjálfum Reshewsky, sem bar
fyrir sig kóngsindverska vörn.
Ir.gi beitti aftur á móti biskupa-
aðferðinni (Ba2 og Bg5) og var
því líkast sem hún hitti veikan
púnkt á Reshewsky, sem tefldi
framhaldið ekki sem nákvæmast.
Staðan varð gríðarlega flókin,
enda fóru engin mannakaup fram.
Þegar komnir voru tæpllega 20
leikir, höfðu báðir eytt miklum
tíma, áttu aðeins eftir umj 50
mín. hvor. Þá skeður það í um-
hugsunartíma Inga, að bandaríski
fyrirliðinn Spann kemur til hans
og býður jafntefli fyrir Resh-
ewskys hönd. Enda. þótt þetta
væri óneitanlega) allskrítin að(-
ferð, fannst Inga ekki borga sig
að leggja út í erfiða úrvinnslu
þessarar margslungnu stöðu og
samsinnti því boðinu. Tal fylgdist
með skákinni og þótti hún standa
Inga heldur í vil. Hélt hann jafn-
vel að Ingi hefði glatað þarna
góðu tækifæri til að vinna fræg-
an stórmeistara. Við síðari athug-
un kom þó í ljós, að staða Inga
reyndist ekki jafn ýkja traust og
sumt benti til.
Skákir Guðmundar
Guðmundur lók hvítu gegn hol-
lenzkri vörn Dreyers frá Suður-
Afríku,. hafði heldur rýmra tafl
allan tímann, en þóf var talsvert
framan af. Þar kom að Dreyer
lék leik, sem gefið gat hættulegt
færi, en þar sem hann var í ani
með tímann, og þeir báðir raun-
ar, tefldi hann vörnina gegn
kóngs'sókn Guðmundar ekki rétt
vel. Guðmundur seig á jafnt og
þétt, unz svarti kóngurinn lét
fánann falla í 39. leik.
í næstu skák var það Guðmund
ur, sem fór í hollenzka vörn, gegn
Tröger frá Köln, sem varð Þýzka
landsmeistari í fyrra. Skákin fór
ifljótt út af venjulegum leiðum
og var frumlega tefld af báðum.
Guðmundi sást yfir dálitla leik-
fléttu TrÖgers í miðtaflinu og
missti peð fyrir bragðið, en mikið
var þá eftir á horði og ekki Öll
nótt úti. Þegar skákin fór í bið,
má kannske segja að Tröger hafi
Ihaft svolitla vinningsmöguleika,
en eftir biðina tefldi hann ekki
eins vel og unnt hefði verið. Upp
kom hróksendatafl með þremur
peðum gegn tveimur kóngsmegin,
og varð Þjóðverjinn að sætta sig
við jafnteflið eftir 71 leik, þótt
hann sýndist lengi hafa góðtan
hug á vinningi.
Guðmundur og Pérez öltu sam-
an hestum sínum í sjöundu um-
ferð. Var það svokölluð Ben-Oni-
byrjun. Pérez lét peð snemma
í tafli, sjáifsagt með vilja, þar
eð hann fékk nokkurt mótspil í
staðinn. Eftir 20 leiki liafði Spán-
Fréttabréf frá Baldri Pálmasyni um Ólympíu-
skákmótiÖ í Miinchen
m
Guðmundur Pátmason
. vaplaus enn.
verjinn í frammi tilburði til að
heimta peð sitt bætt, en við það
hefði Guðmundur komið út með
heldur lakara, svo hann tók það
ráð að þráskáka á svörtu drottn-
ir.guna. Var þá lýst friði í milli
þeirra.
Heimsmeistari unglinga, Lomb-
ardy, s'em mér er tjáð að hafi
hug á að heim,sækja ísland aftur
núna eftir Ólympíumótið, hafði
hvítt á móti Guðmundi í lokaum- _
ferðinni. Blés hann snemma til
sóknar kóngsmegin, en Guðmund
ur náði gagnfærum á drottingar
væng, og gaí Lombardy ekki látið
þær aðgerðir afskiptalausar. Þeg-
ar samið var jafntefli eftir tæpa
30 leiki, áttu báðir tækifæri á
gegnumbroti kóngsmcgin, en þarj
sem í því fólust hættur fyrir báða,!
þótti þeim ekki varlegt að láta til
skarar skríða.
Freysteinn lasinn
Freys'teinn Þorbergsson tefldi
aðerns tvær af fjórum skákum
seinnihlutans, gegn Grivaines, S.-
Stórmeistarinn Evans
of sterkur fyrir Ingimar
!
Afríku, og Schmid, Vestur-Þýzka-
landi, enda hefir hann ekki verið
vel frískur. Þeir Grivaines fengu
jafnvæga stöðu upp úr byrjun-
ir.ni, en þó þótti Freysteini sem
sinn hlutur væri ívið hetri og
reyndi mikið til að ná yfirhönd-
inni. Við það komst hann í tíma-
hrak, og sneris't þá innan tíðar á
verri veg fyrir honum. Grivaines
náði kóngssókn, sem lauk með
imannsvinningi, og vör þá; ekki
um ^nnað en uppgjöf að ræða
á þriðja borði okkar.
Freysteinn iagði út i glæfralega
sókn gegn Schimd, fórnaði fyrst
peði og bauð síðan fram peð og
hrók í þokkabót, en Schimd tók
ekki því góða boði en fór aðra leið,
sem gaf vísan sigur. Loks skildi
Freysteinn drottningu sína eftir í
uppnámi i 16. leik, og þarf þá ekki
að spyi'ja neins að leikslokum.
Þessi skák ber með sér að Frey-
steinn var illa fyrirkallaður og
hvíldarþurfi.
Ingimar Jónsson tefldi á 4. borði
gegn Suður-Afríkubúanum Isaac-
son, en á 3. borði gegn Darga, Vest-
ur-Þýzkalandi og Evans, Bandaríkj-
unum. I hinni fyrstu þessara sikáka
/ar tefldur spænskur leikur, og
varð byrjunin skemmtileg, Ingimar
aiun hafa haft heldur betur, og
iýndist honum á einum stað að
hann gæti unnið mann eftir að
nokkur uppskipti hefðu farið fram,
en þetta reyndist tálsýn, þegar til
kom. Fékk hann við þe’tta aðeins
erfiðara tafl og lenti auk þess í
tímaþröng. Skákin fór i bið, og var
þá jafnteflið næsta fyrirsjáanlegt,
en þeir þreyttu þó taflið upp í 62
leiki.
Aðrar skákir
Gegn Darga kvað Ingimar sig
hafa haft góða jafnteflismögu-
leika, en hann lék af sér eftir
rúma 20 leiki og bar ekki fullkom-
lega sitt barr eftir það. Var liann
ekki vonlaus um jafntefli samt sem
áður, en í framhaldinu eftir bið-
ina, komst hann í þrönga stöðu
til allra athafna, enda mun Darga
hafa valið beztu leið. Gaf Ingimar
skákina. Skálcir íslendinga og Þjóð-
verja vöktu mikla athygli, eins og
raunar flestar skákir Þjóðverj-
anna, og kannski ekki hvað sízt
þessi skák. Svo mikið er víst, að
hinn gamalreyndi skákmeistari
Rellstab tók hana eftir á til sér-
stakrar skýringar í hliðarsal.
Ekki verður sagt að Ingimar hafi
beitt sínu bezta í viðureigninni við j
stórmeistarann Evans. Náði Evans'
snemma undirtökuuum og lagði!
andstæðinginn að velli eftir u. þ. |
b. 25 leiki, hafði þá unnið peð og'
hótaði mannsvinningi.
Arinbjörn Guðmundsson lék á 3.
borði gegn Spánverjanum Farré.
Byrjunin var Sikileyjarvörn, en
endirinn varð íslenzkur ósigur. Ein
kenndist skákin af fórnum og gagn
fórnum og aldrei um kyrrstöðu
að ræða. Fyrst fórnaði Arinbjörn
riddara og ætlaði að láta hrók
fjúka sömu leið, en Farré gaf sig
ekki að honum, en kom með snilid-
arleik á móti og endaði með drottn
ingarfórn og óhrekjandi máti. Ar-
inbjörn fer miklum viðurkenning-
ar orðum um taflmennsku mót-
stöðumanns síns, enda er það ó-
hætt, því að hann hefur víst unnið
allar skákir sínar á mótinu til
þessa.
Annar varamaður sveitarinnar,
Jón Kristjánsson, tefldi sína fyrstu
skák á mótinu við Spánverjann
Albareda, og er það raunar jafn-
framt fyrsta skák Jóns á erlendri
grund. Albareda hafði svart ög fór
í kóngsindverska vörn. Var heldur
frjálsara tafl hjá hvítum, en sam-
ið jafntefli eftir 16 leiki, án þess
að til átaka kæmi.
Jón tefldi aftur á 4. horði i síð-
ustu umferð forriðilsins og mætti
þá Rossolimo, sem nú er orðinn
Bandarikjamaður. Var leikinn
spænski leikurinn. Rossolimo fékk
betri stöðu, þar eð Jón fann ökki
beztu leið í miðtaflinu. Eyddist þá
einnig tíminn mjög fyrir Jóni og
varð hann að gefast upp eftir 30
leiki eða þar um bil.
Þannig fór þá í síðari helft for-
! keppninnar, að íslendingar gerðu
jafntefli 2:2 við Suður-Afrikumónn,
töpuðu fyrir Þjóðverjum og Band.i-
ríkjamönnum með 1:3 og fyrir
Spánverjum með lVá :2) ■>. Alls
fengust því 5% vinningur í þessum
hluta á móti 10- vinningum í fyrri
hlutanum. í heild verður þetta að
teljast dágóð frammistaða, þótt
hún hefði hins vegar mátt vera
betri. Varð íslenzka sveitin jöfn
Finnlandi í 4.—5. sæti riðilsins, cn
ísrael hálfum vinningi lægri. Þess-
ar þrjár sveitir lenda i úrslita-
flokki B og koma því til með að
tefla þar saman á nýjan leik.
Endanlegar tölur i forriðlum
urðu svo sem hér skal greina:
I. riðill: 1. Sovétríkin 27 vinn.
2. Búlgaría 21%, 3. Austurríki 21,
4. Holland 20V2, 5. Danmörk 16%, .
6. Frakkland 14V2, 7. Ítalía 11,. 8.
Porto Rico 8, 9. írland 4.
II. riðill: 1. Spánn 23V2 vinn., 2.
Bandaríkin 23, 3. Vestur-Þýzkalánd
22, 4.—5. ísland og Finnland 15%,:
6. ísrael 15, 7. Noregur 11V2v8.
Suður-Afríka 10%, 9. íran 7V2. '
III. riðill: 1. Argentína 23 vinn.,
2. Auslur-Þýzka 1 and 21, 3. Engl.and,
20, 4. Ungverjaland 19V2, 5. Pól-
land 19, 5. Kólumbia 16%, 7. Fil-
ippseyjar 12V2, 8. Skotland 10, 9.
Líbanon 2V2.
IV. riðill: 1. Tékkóslóvakía' 25
vinn., 2. Júgóslavía 24, 3. Sviss 20,
4. Kanada 19, 5. Svíþjóð 18%, 6.
Belgía IOV2, 7. Portúgal 10, 8,
Túnis 9%, 9. Grikkland 7V2.
I öllum riðlum nema öðrum yar
baráttan gífuiiega hörð um sætj í
sigurriðli úrslitanna, og munaði
þar aðeins hársbreidd. T. d. tapaði
Hollendingurinn van den Berg
fyrir Reizzmann frá Porto Ricö í
síðustu umferð, og munaði það
sætinu fyrir Holland. Á sama hátt
þurfti Fúster frá Kanada að vinna
skák sína við Svisslendinginn Blau.
Hafði Fúster hrók og riddárá á
móti hrók og tveim samstæðúm
peðum, en Blau tryggði sér örugg-
lega jafntefli og færði þar með
sveit sinni sæti í sigurriðli. Lauk
þeirri viðureign síðast allra hinna
576 skáka, sem búið er að tefla
á þessu móti.
Mesta athygli vekur að Ungverj-
um og Hollendingum skyldi ekki
auðnast að komast í aðalflokk. úr-
slitanna, eins og þeir hafa þó kröft-
ugum liðssveitum á að skipa. Næg-
ir að nefna annars vegar Euwe
Donner ög Prins og hins vegar
Szahó, Bareza og Portisch. Ætlu
þessar þjóðir að vera nokkuð .ör-
uggar um tvö efstu sætin í . B-
flokki-
Sé rniðað við ólympíumótið Í95S
í Moskvu, standa nú fjórar þjóðib,
sem þá náðu sæti í A-fiokki, utan
við. Það eru Ungverjar (sem hiutu .
2.—3 sæti í Moskvu), Danir, ís,ra-
elsmenn og Rúmenar, en hinir síð-
astnefndu eru nú ekki þátttakend-.
ur. í þeirra stað koma nú í A-flokk:
Austur-Þjóðverjar, Svisslendingar,
Austurríkismenn og Spánverjar,
en hina siðast töldu vanlaði á
ólympíumótið í Moskvu. í B-flokki
eru nú 8 þjóðir hinar sömu og þá,
en nýjar eru nú þar: ísraelsmenn,
Ungverjar, Danir og Kanadamenn.
Þá lentum við í öðru sæti flokks-
ins á eftir Austurríki, hlutum 27
vinninga, sigurvegararnir 28. Aftur
á móti unnu Sovótborgarar aðal-
kcppnina með 31 vinning.
Enginn veit fyrir útkomuna úr
þeim dæmum, sem nú verður byrj-
að að reikna. En íslendingar biðja
að heilsa heim.
Baldur Pálnvisou.
Danir og Kanadamenn sigruðu íslend-
inga á Olympíuskákmóti i Munchen
Leik Islendinga og Dana á skák-
mótinu í Munchen iauk með
dönskum sigri. Larsen sigraði Inga
á 1. borði og er það fyrsta tap-
skák Inga. Guðmundur vann And-
ersen, Freysteinn gerði jafntefli
við Jens Enevoldsen, en Arinbjörn
tapaði fyrir Pedersen. Leikur Dana
og Ungverja fór þannig, að Ung-
verjar sigruðu með þremur vinn-
ingum gegn einum. Aðrir leikir í
umferðinni fóru þannig: Svíþjóð
vann ísrael með 2y2Jgegn iy2, Hoi-
land vann Pólland 3-1, Kanada
vann Ungverjaland 2% gegn 1%,
Danmörk vann Finnland 4-0, og
Kolumbía vann Belgíu 2V2 gegn
1%. Biðskák Inga við Frakkann
Raizman fór þannig, að Ingi sigr-
aði. Hlutu íslendingar því þrjá
vinninga gegn einum við Frakka.
| í. sjöttu umferð tefldu íslendíng-
ar við Kanadamenn. Ingi gerði
jafntefli við Yanofsky, Guðmundur
gerði jafntefli við Yaitonis og Frey
steinn jafnt. við Fuster. Ingim. tap
aði fyrir Joyner, sigruðu Kanada-
menn því með 2% gegn IV2, Ung-
verjaland vann Pólland 3% gegn
%. Holland vann Kolombíu jncð’
2V2 gegn 1%, Belgía og Svíþjóð
| gerðu jafntefli 2-2. Ólokið er íeik
Kanada og Finnlands. Larsen tap-
. aði fyrir Cuellar. í dag er ekki
| leflt á mótinu.