Tíminn - 11.11.1958, Síða 12
All hvass sunnan og suðvestan,
skúrir.
Ólögleg bifreiðaverzl-
un við vamarliðsmenn
Kleifarvatnsbifreiíinni stolið biiatSrí fyrír árí
af veginum fyrir sunnan Hafnarfjörti
Reykjavík 6 stig, Akureyri 11,
Kaupmannahöfn 5, London 7,
Þriðjudag 11. nóv. 1958.
li-. í-i
BlaSiS heíir nú fengiS
staSfestingu á fréttinni, sem
birtist í sunnudagsblaSinu,
þar sem skýrt var frá því, aS
oifreið heí'ði verið logskorin
í sundur og varpað i Kleifar-
vatn. Bifreið þessi hvarf fyr-
ir einu ári, þar sem hún stóð
.KVENVEGURINN'
BREYTI5T
it ■ m*"m**»
Fundur í Félagi
Framsóknar-
kvenna
Félag Framsóknarkvenna í
Reykjavík heldur félagsfund á
venjulegum staó næstkomandi
fimmtudagskvöld kl. 8,30. Rætt
verður um félagsmál, en aðal-
umræðuefni fundarins verður
umgcngnismeuning æskufólks.
Framsögu í þvi máli liafa Alda
Pétursdóttir og Valöorg Ileiits-
óttir. Félagskonur fjölmennið.
biluð á veginum fyrir sunn-
an Hafnarfjörð. Þessa dag-
ana eru að finnast bifreiðar
frá varnarliðinu, sem hafa
verið keyptar ólöglega og
síðan notaðar til ,,endurnýj-
unar“ á bifreiðum, sem kaup
endurnir áttu íyrir.
Lítur út fyrir að hér hafi verið
um ag ræða all umfangsmikla bif-
reiðaverzlun undan farið ár. Eins
og kunnugt er, þá er ekki leyfi-
logt iögum samkvæmt að kaupa
bifreiðar af varnarliðinu nema á
vegum Sölunefndar varnarliðs-
eigna. Nú kemur hins vegar í ljós,
að Sölunefndin hefur verið snið-
gengin. Var áður vitað um tvær
bifreiðar, sem seldar hafa verið
tii Reykjavíkur með ólöglegum
hætti, en nú eru fleiri að bætast
í hópinn og stendur rannsókn yfir.
í Kleifarvatn
Hvað snertir bifreiðina, sem
iFramhald á 2. *tðu)
Myndir þessar sýna að reið-
mennska kvenna hefir tekið mikl-
um breytingum síðastiiðna halfa
öld. Áður fyrr sátu konur kven-
veg á hesti i þar til gerðum söðli,
og er alkunna hér á íslandi af
hve mikilli iþrótt konur sátu
hesta með þeim hætti. — Enn
þykja konur góðir knapar og fara 5
stundum geyst, þótt torfærur séu
á leiðinni, en sá er munurinn, að
þær hafa stigið til fulls á hestbak.
JafnaSarmenn unnu þrjú þingsæti og
niuno taka þátt í mynclun stjórnar
Úrslit lögþingskosning-
anna í Færevium urðu í að-
alatriðum þau, að Jafnaðar-
mannaflokkurinn bætti við
sig um 1 þús. atkvæðum og
þrem þingsætum, Þjóðveld-
isflokkurinn bætti við sig
einu þingsæti og um 300
atkvæðum. Fólkaf lokkurinn
tapaði einu bingsæti og
munu kosningaúrslitin verða
til þess að ný stjórn tekur
við í Færevium.
Veður var fremur óhagstætt, en
þó varð kjörsókn mun bctri en
í lögþingskosningunum 1954. Þá
var hún um 67%', en varð að þessu
sinni 71%. Afj þessu sinni var kos-
ið um 30 þingsæti, en seinasta
Helgileikur eftir séra Jakob Jónsson
sýndur í Akureyrarkirkju á næstunni
Akureyri í gær. — Ákveð-
ið er að hefja sýningar á
helgileiknum Barthemeus
blindi eftir séra Jakob Jóns-
son hér í Akureyrarkirkju.
Fer fyrsta sýning fram á 18.
afmæiisdegi kirkjunnar 17.
þessa mánaðar. Leikstjóri
verður Ágúst Kvaran.
Þetta ‘ér í fyrsta sinn, sem helgi
leikur er sýndur í Akureyrar-
kirkju. en þesSi leikur var sýndur
í Bessastaðakirkju í vor undir
leikstjórn Lárusar Pálssonar.
Flytjéndur leiksins eru 12 auk
lesara og prests. Árni Jónsson fer
með aðalhlutverk. í upphafi fiyt-
ur scra Pétur Sigurgeirsson
ávarp og skýringar, en séra Krist-
ján Róbertsson fer með hlutverk
prestsins. Kirkjukórinn aðstoðar í
undir stjórn Jakobs Tryggvason-
ar. Þjóðleikhúsið lánar búninga.
í Svíþjóð
Þá má það til tíðinda teljast, að
séra Sigurbjörn Einarsson próiess
or hefir þýtt þennan helgileik á
sænsku og munu sýningar senn
hefjast á honum í sænskum kirkj
um. ED.
Erlendar fréttir
BREZKI flugherinn rak í dag 3 þús.
grískumælandi Kýpurbúa úr þjón-
ustu sinni við flugvöllinn í Nic-
ósíu. Samtímis voru brezkum borg
urum fengin vopn í hendur og
hernaðareftirlit aukiö enn stórlega.
FARÞEGAFLUGVÉL með 36 manns
innanborðs varð í dag að nauð-
lenda á hafinu nokkuð vestur af
Portúgal. Hefir flugvélum og skip-
um enn ekki tekizt að finna vélina.
í GÆR var opnuð i Genf ráðstefna
10 ríkja og verður rætt um ráð og
leiðir til að koma í veg fyrir skyndi
árásir.
kjörtímabili voru hingmenn aðeins
27.
Sennilega hefur kosningasigur
Jafnaðarmannatlokksins komið
nokkuð á óvart. Landhelgismálið
var eitt helzta kosningamálið. Var
talið að jafnaðarmenn myndu
fremur gjalda þess en hitt, þar eg
flokksbræður þeirra eru við völd
í Danmörku og vildu að því talið
var, fara að öllu mjög gætilega um
útfærslu fiskveiðilandhelginnar. —
Þjóðveldisflokkurinn var skelegg-
astur í því máli, en fylgisaukning
hans er þó fremur lítil. Úrslitin
urðu þessi: (Atkvæðafjöldi og
þingmannatala við seinustu kosn-
ingar innan sviga). Jafnaðar-
mannaflokkurinn: 3584 atkv.
(2515), 8 þingmenn (5). Sam-
bandsflokkurinn: 3296 atkv. (3320)
7 þingsæti (7). Þjóðveldisflokkur
inn: 3332 atkv. (3027), 7 þingsæti
(6). Fólkaflokkurinn: 2470 atkv.
(2660), 5 þingsæli (6), Framsókn
arflokkurinn: 464 atkv. (323), 1
þingsæti (1). Sjálfstjórnarf'lokk-
urinn fékk tvö þingsæti, og er það
sama og flokkurinn hafði áður.
Ný landsstjórn
Úrslitum kosninganna hefir ver-
ið fagnað í Danmöi'ku og stjórnar-
völd þar túlka þau svo, að ekki
muau verða nein breyting á sam-
handinu við Danmörk. Núverandi
landsstjórn nýtur ekki lengur
stuðnings meirihluta lögþingsins.
Ag þeirri stjórn stóðu Sambands-
ílokkurinn, Fólkaflokkurinn og
Sjálfstjórnarflokkurinn. Ilöfðu
þeir þá 15 þingmenn af 27, en hafa
nú aðeins 14 af 30. Stjórn verður
naumast mynduð án þátttöku jafn
i aðarmanna og eru getgátur um
að auk þeirra muni Sambandsfl.
og Sjálfstjórnarfl. verða með í
1 hcnni.
Stæði fyrir 60 bíla
Nýlega var bifreiðastæðið, er
sést hér á myndinni tekið í
notkun, og er það á horni
ingólfsstrætis og Lindargötu.
Stæði þetta mun rúma um 60
bifreiðir og leysir það úr mikl
um vanda, sem skapast hefir
þar um slóðir. Mun bifreiða-
stæði þefta einnig vera mikil
bót fyrir sýningargesti Þjóð-
leikhússins, svo og aðrar stofn
anir, sem eru staðsettar þarna.
Mikil bót er í að fá þetta
bif reiðastæði, en fyrr hefði
það mátt koma.
(Ljósm.: Tíminn JHM).
■■
.
f iið með
Bretum
Nýtt félagsheimili á Þórshöfn
Aðalfundur Framsóknarfélagsins I
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur verður
haldinn í Framsóknarhúsinu föstudaginn 14. nóvember
kl. 8,30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Ur samkomusal hins nýja og glæsilega félagsheimilis á Þórshöfn.
Sjá grein á 7. síðu í dag. (Ljósm.: Tíminn B. Ó.).
Laugardaginn 8. nóvem-
ber síðastliðinn lcom varð-
skipið Albert að vélbátnum
Víkingi frá Vestmannaeyj-
um, þar sem hann var að
ólöglegum veiðum með drag
nót. Var mb. Víkingur þá
staddur 0.5 sjómílur austur
af Álsey við Vestmannaeyj-
ar, eða 7,3 sjómilur innan
við 4 sjómílna fiskveiðitak-
mörkin á þessum slóðum.
! Varðskipið fór með bátinn til
Vestmannaeyja og var mál skip-
stjórans tckið fyrir rétt þá um
kvöldið. Skipstjórinn á bálnum
viðurkenndi brotið og stóðu rétt-
arhöldin í aðeins 20 mínútur, að
sögn Jóns .Tónssonar skipherra á
Albert. Er búizt við að dómur
j verði kveðinn uop í máli þessu í
dag.
Landhelgisgæzlunni höfðu hor-
izt kvartanir um. að ólöglegar
veiðar væru stundaðar af nokkr-
jum Vestmannaeyjabátum. Var
því nauðsynlegt að auka gæzluna
j lil muna á þess'um slóðum, en það
er mjög bagalegt eins og nú
stendur á, þar sem annríki er hjá
varðskipunum.
(Frá landhelgisgæzlunni).
Eins og þessi frétt frá land-
helgi9gæzlunni ber með sér liefir
sá leiðinlegi atburður skeð, að
íslenzkt skip hefir verið staðið
að hmdhelgisveiðum. Er illt til
þess að vita að íslenzkir menn
skuii þannig fylla flokk brezkra
landhelgisbrjóta, og því vcröur
vart trúað, að margir íslenzkir
skipstjórar gerist til slíks óvina-
fagnaðar á þessum örlagatimum
íslenzku þjó'ðarinnar.