Tíminn - 28.11.1958, Blaðsíða 8
8
T ÍHIIN N, föstudagiim 28. nóvember 1958.
Aðgerðir rtkisstjórnar hafa leitt til
stórkostlegrar framleiðsluaukningar
Frá fundi Framsóknarfélaganna í Hafnarfirfö,
þar sem Halldór E. Sigurðsson alþÍRgismaður
hafíii framsögu
; Framsóknarfélag Hafnarfjarðar hóf vetrarstarfsemi sína
;fyrir nokkru með umræðufundi, þar sem rætt var um stjórn-
málaviðhorfið. Frummælandi var Halldór E. Sigurðsson alþm.
en aðrir ræðumenn voru Guðmundur Þorláksson, Stefán V.
Þorsteinsson og Gísli Kristjánsson.
Þá ræddi hann efnáhagsmálin
m jög ítarlega, skýrði aðgér'ðir
Stjórnarinnar og áhrif þeirra á
útflutningsframleiðsluna, sem
hefðu leitt til stórkostíegrar fram-
leiðsiuaukningar eins og kunnugt
væri. Stöðvunarstefnan hefði hins-
vegar ekki reynzt fær, ;þar sem ó-
gerlen-t hefðí verið að stöðva vöru-
verð, þar sem fé hefð ivantað til
framleiðslunnar.
Þessar ráðstafanir hefðu getað
orðið til frambúðar ef almennar
kauphækkanir í laiydinu hefðu
etíci farið yfir þau 5%, sem gert
var ráð fyrir. Éeyndin hefði þó
orðið sú, að kaup hefði hækkað
verulega fram yfir þetta og skap-
aði það nýtt vandamál. Ekki hefði
etm tekizt að ná samstöðu milli
ríkisstjórnarinanr og verkalýðs-
félaganna um lausn á þessum
vanda, og lét ræðumaður í ljós
vor> um að sú samstaðá mætti tak-
ast 'sem fyrst.
Framkvæmdir
Þá rakti ræðumaður nokkuð
hinar stærstu og merkustu fram-
3cvæmdir, sem ríkisstjórnin hefði
unnið að og skýrði frá, hvernig
hefði tekizt að afla fjár erlendis
til þessara framkvæmda. Tekizt
hefði með ýmsum framkvæmdum
úti um land að koma á atvinnu-
jöfnun og stöðva hinn ískyggilega
fólksflótta frá kaupstöðum, þorp-
um og sveiium úti um landið til
bæjanna við Faxaflóa.
Að lokum fór ræðumaður nokkr
um orðum um mál málanna, land-
helgismálið. Taldi hann nauðsyn-
legt að halda á því máli af lægni
og festu og hviko hvergi frá settu
mar.ki. Hefði forsætis- og dóms-
málaráðherra farizt það vel úr
hendi.
Framkoma forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins hefði skaðað veru-
lega, því ástæða væri til að ætla
að hún 'hefði valdið því að Bretar
hafi álilið að hægt væri að semja
um landhelgina. En þjóðin hefði
fordæmt þetta athæfi og stæði ein-
huga um útfærsluna og því væri
sigurinn vís, sagði ræðumaður að
lokum.
Guðmundur Þorláksson ræddi
nokkuð þá gagnrýni, sem ríkis-
stjórnin hefði sætt að undanförnu.
Taldi hann gagnrýni nauðsynlega
og skapaði valdhöfunum visst að-
hald, en öll gagnrýni yrði að byggj
ast á rökum ef hún ætti ekki að
missa marks. ,
Nægir markaðir
Þeir, sem vildu láta ríkisstjórn-
ina njóta sannmælis, viðurkendu
að hún hefði margt vel gert.
Stjórninni hefir tekizt að halda
uppi þróttmiklu atvinnulífi, ekki
aðeins hér við Faxaflóa, heldur
vlða úti um land, þar sem árstíðar-
bundið atvinnuleysi hefur lengi
verið. Tekizt hefði að útvega næga
markaði fyrir framleiðsluna, og
lögð hefir verið sérstök áherzla á
að skapa aðstöðu í landi til að
fullvinna aflann. Lokið væri við
sementsverksmiðjuna, sem hefði
verið komin í fjárþrot er stjórnin
tók við. Lokið væri virkjunum á
Vestur- og Austurlandi og fram-
kvæmdir hafnar við Sogið. Land-1
helgin hefir verið færð út, auknu
fjármagni verið veitt til verka-
mannabústaða, skatfriðindi sjó-
manna og sórsköttun hjóna svo
nokkuð sé nefnt af því, sem
stjórnin hefur framkvæmt.
Ræðumaður benti á a3 efnahags
málin væru í margra höndum og
sumir veigamestu þættirnir, svo
sem kaupgjaldsmálin, væru í hönd
um stéttarfélaganna, en ekki ríkis-
valdsins, því þjóðfélao okkar bygg
ir á félagsfrelsi og samningafrelsi,
en ekki sterku ríkisvaldi í þessum
málum.
Baráttuaðferðir
stjórharandstöSunnar
Að lokum fór hann nokkrum orð
um um samstarf stjórnarflokk-
anna og þá tilraun, sem gerð hefði
verið með myndun núverandi rík-
isstjórnar, til að koma á samstarfi
vinstra fólks í landinu. Framsókn-
arflokkurinn hefir verið einhuga í
stuðningi sínum við stjórnina, en
ekki væri hægt að segja hið sama
um hina stuðningsflokka stjórnar-
innar.
Stefán V. Þorsteinsson ræddi
um stjórnarandstöðu Sjálfstæðis-
flokksins. Fordæmdi hann baráttu
aðferðir stiórnarandstöðunnar,
sem byggðust á ábyrgðarleysi og
lýðskrumi. Flokkurinn varaðist að
taka ábyrga afstöðu til nokkurs
máls, en væri með stöðug yfirboö
og nöldur.
Þá fór ræðumaður nokkrum orð
um um bjargráðin og landbelgis-
málið og fordæmdi framkomu for-
Umsóknir um stöður
við Landsbóka-
og Þjóðminjasafnið
Um auglýstar stöður við Lands-
bóka- og Þjóðminjasafn hafa bor-
izt þessar umsóknir:
Um bókavarðarstöðu í Lands-
bókasafni: Albert Sigurðsson cand.
mag.; Aðalgeir Kristjánsson, cand.
mag.; Björn Franzson, Bersteinn
Jónsson, cand. mag.; Friðjón Stef-
ánsson, rithöfundur; Halldór J.
Jónsson, cand. mag.; Helgi Hálf-
dánarson, lyfsalí; Jóhann Sveins-
son, cand. mag.; Jón Gíslason,
fræðimaður; Ólaíur F. Hjartar,
bókavörður; Sigfús Haukur Andrés
son, cand. mag.; Sigurjón Sigurðs-
son; Sverrir Kristjánsson, sagn-
fræðingur og Þórhallur Guttorms-
son, cand. mag.
Um safnvarðarstöðu í Þjóðminja
safni: Albert Sigurðsson, cand.
mag.; Bergsteinn Jónsson, cand.
mag.; Frú Elsa E. Guðjónsson;
Halldó^ J. Jónsson, cand. mag.;
Jóhann Sveinsson, cand. mag.; Þor
kell Grímsson, cand. mag. og Þór-
hallur Gultormsson, cand. mag.
(Frá Menntamálaráðuneytinu).
ystumanna Sjálfstæðisfloksins í
því máli.
Að lokum mælti Gísli Kristjáns-
son nokkur orð og þakaði Halldóri
E. Sigurðssyni fyrir komuna til
Hafnarfjarðar.
Erlent yfirlit
irmuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiii
i 1
1 Blaðburður I
a =
Unglingur eða eldri maður óskast til blaðburðar í i
| =
1 um DIGRANES 1
- 1
1 TÍMINN I
3 =
~ •5
«mmiimiiiiiininminniinmiiiniiniinimnimuimmiiiiiiiiiiiiUiiiiiiiiiiiiiii'"<iimiiimioiaaBiin»>
iFramhald af o. siðu>
þá, að þing S. Þ. lýsi sluðningi
| sínum við ráðstefnu Grikkja,
•JTyrkja og Breta um málið.
f Hcr skal , engu spáð um það,'
hver úrslit málsins verða á þing
inu. Ekki er ólíklegt, að Bretum
takist enn einu sinni að eyða því
með einhverjum hætti. En í raun
og veru mun slíkur sigur reynast
Bretum sjálfum verstur, eins og
allir slíkir sigrar í Kýpurmálinu.
hafa rcynzt þeim hingað til Ógn
aröldin á Ký'pur mun halda áfram,
meðan Brétar viðhalda þar harð
stjórn isnni og illa fengnum yfir-
ráðum. Meðan Kýpurbúum er neit
að um sjálfsákvörðunarrétt af er-
lendu valdi og þeir eru beittir
hvers konar harðyðgi og ofbeldi,
hafa þeir ekki um annað að velja
i en að lála liart mæta hörðu.
ÖLLUM aðilum væri það áreið,
anlega fyrir beztu, að sjálfsákvörð
unarréttur Kýpurbúa yrði viður-
kcnndur og þeir fengju fullt sjálf
stæði innan ákveðins tíma. Bret-
um yrði það fyrir beztu, þvi að
dvöl þeirra á Kýpur að óbreyttum
aðstæðum, er þeim hvorki efna
hagslegur né hernaðarlegur ávinn
ingur, en setur hins vegar ljótan
blett á skjöld þeirra. Hún bygg
ist aðeins á þráa og misskildum
metnaði. Tyrkjum væri það lika
fyrir beztu, því að sambúð þjóðar
brotanna á Kýpur getur aldrei
orðið góð á þeim grundvelli, að
meirihlutinn sé kúgaður í naíY.i
minnihlutans. Vafalaust er lieppi
legt, að fulltrúar þjóðarbrotanna
reyni að semja sjálfir um mál sín,
t. d. undir umsjón hlutlauss aðila,.
eins og Sameinuðu þjóðanna. Fyrir
i Kýpurbúa sem heild yrði það áreið-
anlega bezta lausn, að þeir fengju
sjálfstæði, og gætu snúið að við
reisnarstarfi i stað þess að þurfa
að beina orku sinni gegn erlendu
valdi og laina allt atvinnulíf lands
ins meira og minna af þeim ástæð
um. Öll ástæða er hins vegar til-
að ætla, að Kýpurbúar geti vel far
ið með mál sín sjálfir, því að þeir
eru með dugmestu og menntuð,-
ustu bjóðum austur þar. Þ.Þ.
;-WAVAV/A,.V>V.V.V,.V.V.,AV.V.V.,.V.V.V.VVAV.V.,AVA,AV.VA,.,AV.,.,.V\V,,.,,V,V.V.,.V.V.V.V.V.V.V.,.V.V.V.V.,.V.V,V.V.,.W.mv.í
GÓLFTEPPI
Wilton íslenzk
Nýkomið glæsífegí úrvai af uliarteppum
af mörgum stærðum og gerðum —
Einnig uliarhampsteppin margeftirspurðu
Komio og kynnið ykkur íslenzku WI L T 0 N teppaframleiðshina. — Tví-
mælalaust þéttasta og bezta teppaefni af ísl. gerð er sézt hefir hérlenáis.
KlæSum horna á milli. Athygli er vakin á Jiví fyrir fólk, sem er at> hyggja, aÓ algjör óþarfi er aÖ
dúkleggja undir teppin. — ATH.: íslenzku Wilton teppin lóast mjög lítitS. Fljót og góZ afgreiðsla.
Sparið tíma, erfiði og fyrirhöfn og látið okkur teppaleggja fyrir yð-
ur. — Þeir, sem ætla að fá afgreiðsiu fyrir jól, eru vinsamiega
heðnir að panta strax.
Einnig tökum við að okkur stærri verk, svo sem stóra samkomu-
saii, hótelherhergi, bíósaii og opinberar byggingar.
TEPPIHF
Aðalstræti 9 — Sími 14190.
.V.V.VAV.V.V/.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAVAV.V.V.V.V.V.V/.'.V.V.VAV.W.V..