Tíminn - 29.11.1958, Síða 2

Tíminn - 29.11.1958, Síða 2
T í MI N N, laugardaginn 29. nóvember 1958» Fulltrúar þings BSRB. Myndin er tekin við setningu þingsins í Melaskólanum í gær. (Ljósm.: Tíminn, J. H. MJ. Þing BSRB (Framhald a£ 12. síðu). il efnahagsmálanna. ,.Það er ósk ikkar og von, að við gerum ekki aöfur til samíélagsins nema þær séu sa.nngjarnar og réttar", sagði lorjnaðuj' að lokum og sagði 19. ping BSRB sett. Þá tóku til máls ges'tir þings- ns frá ýmsum stéttafélögum, Sverrir Hermannsson, form Lands sa.mbands ísl. verzlunarmanna, 'Sgill Hjörvar frá Farmanna- og riskimannasafnbandinu, Adolf ðjörnsson, form. Sambands ísl. óankamanna, Sæmundur Friðriks- son, frá Stéttarsambandi bænda 0" Siguringi Pétursson frá Iðn- nemasambandi íslands. Fluttu neir allir þinginu árnaðaróskir Þá barst þinginu og kveðja frá Alþyðus’ambandinu og þakkaði for maður kveðjuna. Eitt nýtt félag var nú tekið í bandalagið en það er Slarfsmannafélag Keflavíkur- bæjar. 118 fulltrúar Þingið sitia 118 fulltrúar frá 25 félögum og eru í félogum þess- um samtals 4062 félagsmenn. Voru kjörbréf fulltrúanna sam- þykkt á þinginu í gær. Þingforsetar vorú kjörnir Mar- íus Helgason, Júljus Björnsson og Hannes Jónsson, allir með lófa- tnki. Ennfremur las formaður, S.'gurður Ingimundarson upp árs- skýrslu bandalagsins og mun hennar verða getið hér í blaðinu síðar. Þingstörfum var haldið áfram í gærkveldi. Jón Þorleifsson listmálari opnar sýningu á verkum sínum í dag Þetta er fyrsta sýning listamannsins í tvö ár og sýnir hann nú alls 35 oííumyndir í dag opnar Jón Þorleifs- ion, listmálari, sýningu á málverkum sínum, og er sýningin að heimili lista- mannsins, Blátúni við Kapla skjólsveg. Á sýningunni eru alls 35 olíumyndir, flestar landslagsmyndir, sem lista- ■ maðurinn hefir málað á ;■ pessu ári. Fréttamönnum gafst kostur á i ð sjá sýningu Jóns í gær og er ihætt að fullyrða,’ að hún er með- d betri málverkasýninga, sem hér ‘i$fa sézt að undanförnu. Myndirn- ar eru allar olíumyndir, bæði andslags- óg uppstiilingarmyndir >gr lét Jón þess getið, að hann hefði einkum valið stærri myndir að þessu sinni, en smámyndirnar yrðu að bíða betri tíma. Sýndi síðast fvrir 2 árum Aðspurður kvaðst Jón hafa síð- art haldið sýningu fyrir tveimur áium og var hún í Listamannaskál anum. Ilann kvað myndirnar á sýningunni sem opnuð er í dag vera flestar málaðai"á þessu ári og eru þær allar til sölíi. ÓHætt er að hvétja fólk''til þess að gera sér ferð að sjá þéssa ágætu málverkasýningu Jóns' Þor- lcifssonar, en hann er sem kunn- ugt er einn okkar beztu málara_ Sýningin verður opin daglega kl. 14—22 frá og með deginum í dag og til 13. des. að Biátúni við' Kaplaskjólsveg. Fjclþætt SiáiíSahöId StádentaráSs Háskólans á fullveldisdaginn Pétur Ottesen flytur hátiTSarætSu dagsins Stúdentaráð Háskóla ís- iands efnir að venju til há- tíðahalda 1. desember, og að pessu sinni verða hátíðahöld in helguð 40 ára afmæli full- veldis landsins, sem fékkst I . desember 1918. Aðalhá- tíðaræðu dagsins flytur Pét- ur Ottesen alþirigismaður í útvarpssal kl. 13,30. Hátíðahöld dagsins hefjast kl. .0,30 að morgni með guðsþjónusiu : kapellu háskóians. Sigurbjörn Ein irsson prófessor prédikar. Kl. 13.30 lytur svo Pétur Ottesen ræðu sína úlvarpssal. Kl. 15.30 hefst hátíðasamkoma í íátíðasal háskólans, og er öllum leimill aðgangur. Samkomuna set- ■>r formaður stúdentaráðs, Ólafur Sgilsson. Háskólakórinn syngur iindir stjórn Höskuldar Ólafssonar. .Oavíð' Ólafsson fiskimáiastjóri flyt- úr ræðu og talar um landhelgismál- ið. Guðrún Tómasdóttir syngur ein- söng. Að lokum verður flutl sam- felld dagskrá um 1. desember 1918. Um kvöldið heldur stúdentaráð hóf fyrir háskólastúdenta og gesti ■að Hótei Borg, og hefst það með borðhaldi kl. 18.30. Þar mun pró- fessor Einar Ólafur Sveinsson halda ræðu og dr. Sigurður Þórar- insson hafa uppi gaman. Sungið verður undir borðum sem í öðrum samkvæmum stúdenta, og ennfrem- ur verða sungnir gluntar. Að lok- um verður dans stiginn. Árni Hallgrímsson látinn Árni Hallgrímsson fyrrum starfsmaður við Kíkisútvarpiff og um langt skeið ritstjóri tínvarits ins Iðunnar varð brá'ðkvaddur að AlþýSusambandsþing (Framh. af 1. síðu.) byggt á því, að hagfræðilegir út- reikningar væru látnir segja til um hvaða kaup væri hægt að greiða hverju sinni. Fáar fólags- málahreyfingar hafa vaxið með meiri hraða en verkalýðshreyfing- ú., og það er eðlilegt að slík hreyf ing þurfi mikinn þroska til þess . að taka ekki meira en til er, þeg- ar hún hefir þá aðstöðu, að geta rí unverulega ráðið kaupgjaldinu í landinu upp á sitt eindæmi. Þeg- ar efnahagsráðstafanirnar voru gerðar síðastliðið vor, var reiknað út hvað kaup gæti hækkað. Það var fimm af liundraði. En allir hagfræðingar lýstu því yfir, að ómögulegt væri að komast út úr efnahagsöngþveitinu nema að vísi talan væri tekin úr sambandi. Því fór ég fram á aukaþing ASÍ í s'um- ar, en það fékkst ekki. Þá var far- ið fram á, að þingið vrði í nóvem- berbyrjun. Það brást einnig. Og nú er komið að þvi, að við fáum yfir okkur seytján vísitölustig, að vcrulegu levti vegna þess, að kaup hefir hækkað meir en ráð var fyr- ir gert. Ef við nemum nú staðar, þr er hægt að tryggja sömu lífs- k.iör og í febrúar í fyrra eða októ- ber í haust, en til þess að undir- búa þetta þarf svigrúm Sumir segja: borgið þetta niður. Út af fyrir sig er það engin úrbót, en jafnvel til þess þarf líka frest. Ég gieðst af þvj, að þið eruð að setja upp eigin hagfræðideild. Hvað getum við betur boðið en að hag- fræðingur ykkar og hagfræðingur okkar í ríkisstjórninni reikni dæm ið og segi til um hvað hægt er að borga? Og það er víst, að þótt ekki verði horfið að þessú ráði nú, þá kemur að því fyrr en síðar. Tillögurnar Þegar forsætisráðherra liafði lokið máli sínu, las forseti upp eftirfarandi tillögu, borna upp af Eðvarð Sigurðssyni, Björgvin Sig- urðssyni, Tryggva Helgasyni, Sr.orra Jónssyni, Ilagnari Friðleifs syni, Jóni Sigúrðssýni, Sigurði Siefánssyni, Torfa Vilhjálmssyni, Óskari Hallgrímssyni, Birni Jóns- syni, Eggert G. Þorsteinssyni og Gunnari Jóhannssyni: „í tilefni af bréfi liæstvirts forsætisráðherra vill 26. þing Alþýðusambandsins lýsa yfir þeim vilja sínum, að ráðstafanir þær í efnahagsmálum, sem fyrir dyrum stendur að gera, miðist við, að kaupgjaldsvísitalan fari eigi yfir 185 stig, en telur hins vegar ólijákvæmilegt að þar til samkonuilag hefir tekizt um lausn málsins, fari um kaup- greiðslur samkvæmt gildandi lög um og samningum stéttarfélaga. Jafnframt telur þingið æski- legt að gerðar verði ráðstafanir, ef þurfa þykir, að þau 17 stig, sem hér um ræðir, hafi ekki álirif á verðlag vöru eða þjón- ustu í deSembermánuði“. Þá kom fram önnur tillaga frá Kristni B. Gíslasyni, er hljóðar svo: „26. þing Alþýðusambands ís- lands telur nauðsynlega sam- vinnu milli ríkisvaldsins og' hinna vinnandi stétta. Af þeimj ástæðum lýsir þingið yfir, að það mælir með því, að frumvarp það, sem forsætisráðherra liefir | sent því til uinsagnar, verði gert ] að lögum. Meðmælin eru veitt í! trausti þess að ríkisstjórnin í I samstarfi við stjórn Alþýðusain- bandsins noti þann ráðrúmstínia, sem lögin gefa, til þess að leggja heilbrigðan og alþýðunni liag- felldan grundvÖll að viðnámi gegn áframhaldandi þróun hinn- ar háskalegu verðbólgu“. Forseti lagði til, að tillögunum ásaifit bréí'i forsætisráðherra yrði vísað til verkalýðs- og atvinnu- málanefndar. Frú Jakobína Asgeirs dóttir látin Frú Jakobína Ásgeirsdóttir, Laugaveigi 69 Reykjavík, lézt að heimili sínu s. 1. nótt eftir þunga legu, en hún hafði átt við van heilsu að stríða s. 1. tvö ár. Frú Jakobíiia var þjóðkunn kona fyr ir þátttöku í félagsmáhim, og störf sín í þágu Framsóknar- flokksins. Þessarar mætu konu verður nánar minnst seinna í blaðinu. Jón Loftsson stór- kaupmaður látinn Einn athafnamesti iðnrekandi cig kaupsýslumaður þessa bæjar, Jón Loftsson stórkaupmaður, andaðist að heimili sínu að kvöldi 27. þ. m. Jón Loftsson var virtur og mikils metinn af stétt arbræðrum sínum og ölluin er með honum störfuðu og kynnt ust honum. Með honum er fall iiin í valinn einn af merkustu fulltrúum íslenzkrar verzlunar- stéttar á síðustu áratugum. Listamannalaun (Framh. af 1. Mðu.) Listamönnum fjölgar Síðustu tveir áratugir hafa ver- ið mikið blómaskeið á vettvangi isienzkra lista og viðurkenndum listamönnum fjölgað mjög mikið. Árið 1938 rann úthlutunarféð til soxtíu og fimm einstaklinga, en í ár voru þeir orðnir 128. Meðalupp hæð á listamann árið 1938 var krónur 1,566. Sú krónutala marg- földuð með fimmtán verður 23.490 kr. Árið 1938 var ákveðið í fjár- lögum að engum þeirra nýgræð- inga í listamannahópnum, sem ekki voru á fjárlögum, skyldi út- hlutað lægri upphæð en fimm hundruð krónum, eða 7,500 krón- i m samkvæmt núgildandi verð- lagi peninga, en í ár hlutu 45 lista menn fimm þúsund krónur, sem mundi svara til 333 króna árið 1938. Stjórn Rithöfundasambandsins leggur sjðan til í bréfi sínu, að ekki verði veitt lægri upphæð en þrjár milljónir króna til lista- manna á fjárlögum 1959. heimili sínu, Kvisthaga 12, að kvöldi s. 1. fimmtndags 73 ára að aldri. Árni hafði verið heilsulít iil síðari árin, en fékfcst þó við þýðingar fram til liins síðasta, enda bráðvel gefinn atorkumað ur. Selfoss (Framliald af 12. síðu). bergjum, stórum og vel búnum. Á iþrúarþilfari er s)||jórnpallur; kortaklefi, loftskeytastöð og íbúð loftskeytamanns. Á næsta þilfari, býr skipsljóri og allir stýrimenn. Þar er fyrir miðju setustofa yfir manna, stór og glæsileg. Einnig heúbergi með baði fyrir 2 farþega, svo og sjúkraherbergi fyrir tvo, einnig með sérstöku baði. AIls eru í skipinu 7 baðklefar og 7 saler.ii. Fyrir neðan þetta þilfar er skut þilfar, þar sem vélstjórar og bryti búa. Ennfremur býr 1, matsveinn og 11 undirmenn á þessu þilfari. Loks er aðalþilfarið (hlítðar- þilfarið) næst fyrir neðan skut- jiilfar og búa þar 6 undirmen.'i. A þessu þilfari er eldhús skipsiris, matsalir yfirmanna og undir- manna. svo og setustofa undir- manna, sem er alger nýlu-nda í is lenzkum skipum. Siglingatæki Loftskeytastöðin er" af Tele- funken-gerð og uppfyllir allar ströngustu kröfur, sem gerðar eru til stöðva í skipum í dag. Siglinga tæki öll eru af fullkomnustu gerð og má þar nefna Gyroáltavita, sjáljfslýritaek.ii ratsjá, bergmáls- dýptarmæli, miðunarstöð o. fl, Af öðrum tækjum má nefna tæki sem gefur til kynna hvort nokk ursstaðar hafi kviknað í lestum, og fullkomið slökkvikerfi sein leitt er um allar leslar og véla- rúm, með tilheyrandi viðvörunar kerfi, kallara, lalsíma o. fl. Tveir björgunarbátar, sem hvor um sig rúmar 39 manns, eru á skipinu, og er annar þeirra vélknúinn. Eftirlit með smíði skipsins a£ hendi félagsins undanfarna 6—7 mánuði hafa haft þeir Jón Eiríks son skipstjóri og Jón Aðalsteinn Sveinsson með smíði vélarinnar. Ennfremur hefir Viggó E. Maack, skipaverkfræðingur félagsins haft aðaleftirlit með smíðinni. Vorð Skipið mun kosta rúmlega 14 millj. danskar krónur með öllum útbúnaði og verður það í íslenzk um krónum um 33,5 millj. og að viðbættu 55% yfirfærslugjaldi, 18.5 millj. kr. verður heildarverð skipsins um 52 milljónir króna. Allt andvirði skipsins varð Eim- skipafélagið að taka að láni. Skipstjóri á m. s. Selfossi er Jónas Böðvarsson, 1. stýrimaðúr er Magnús Þorsteinsson, 1. vél- stjóri Jón Aðalsteinn Sveinsson, loftskeytamaður Ilaukur Hólm Kristjánsson og bryti Jón Bjarna son. ierlmarmálið (Framh. af 1 síðu.) ur en svo toatnað við tillögu þá, sem Sovétríkin hefðu nú endan lega lagt fram. Tími myndi þó gef ast til að athuga málið gaúmgæfi lega, þar eð Rússar hefðu ságt, að þeir myndu toíða í sex mánuði með að framkvæma toótanir sínar. Sérstakur ráðherrafundur Bandaríkjastjórn tilkynnti í dag í orðsendingu, að hún vísaði á bug tillögum Sovétríkjanna. Seí vvyn Lloyd utanríkisráðherra Breta lýsti yfir hinti sama í dag í ræðu í Liverpool. Hann kvað tillöguna stefna að því, að koma af stað illdeilum milli Vesturveld anna. Báðar ríkisstjórnirnar segj ast muni standa við allar skuld- bindingar sínar í Berlín, neita að viðurkenna réttmæti þeirrar á- kvörðunar Rússa að leggja niður skyldur sínar sem hernámsaðili í Berlín og fá þær í hendur a-þýzku stjórninni. Miklar viðræður fara fram milli vesturveldanna um málið. Er tal ið hugsanlegt, að boðaður verði sérstakur ráðherrafundur riíkjamia um mál iþetta. Sennilega verður Rússum ekki svarað formlega fyrr en eftir fund utanríkisráðherra Ahandalagsins 17.—19. des. n. k. Landhelgismálið (Framh. af 1. síðu.) hefir ekki verið opið fyrir Austur- lc.ndi síðan 8. þessa mánaðar þar t,l nú. Af vestursvæðinu er það hins vegar að segja, að það hefir verið minnkað nokkuð með tilkomu austursvæðisins, enda hafa marg- i>- togaranna, sem þar stunduðu veiðar, haidið til Austurlandsmið anna. (Frá landhelgisgæzlunni). Aíhyglisverð bók Einhver fyrirí'erðaminnsta nýja bókin á bókamarkaðinum heitii' Byiiing á ílrlandi og er eftir Jónas frá Hriflu. Bókin er aðeins rúmar 30 bls. og kostar ekki nema tíu krónur. í henvii rekur J. J. á sluttan en mjög greinilegan hátt upptök Framsóknarflokksins og þeirrar miklu framfaraöldu. sem þá hófst í þjóðlífinu, einkum á árúnum um 1916—17. í bók þessari er margskonar naúðsynlegur fróðleikur framsett ur með liinni alkunnu ritsnilld höf ufidar, sem einkum yngra fólki er nauðsynlegt að lesa, «em nú er að byrja að láta sig landsmál ein- hverju skipta. Og einnig okkur þeim eldri er ánægjulegt að rifja upþ. Hvað seii; sagan segir síðan um okkur 20. aldar mennina á íslandi. þá er víst að 2—3 áratugum frani an af öldinni gnæfir þar hæst sem víðsýnn og stórhuga umbótafröm uðu/r, höfundur þessarar fýrir- ferðalitlu, en athyglisverðu bókar, sem hér er minnst á. Og þessi bók varpar skæru Ijósi yfir niorg un þins mesta framfaratímabils í sögu okkar lands, V.G.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.