Tíminn - 29.11.1958, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.11.1958, Blaðsíða 3
T í M I N N, laugardaginn 29. nóveinber 1958. 3 Spyrjið karimann hvort hantm álíti að hann falli kven fólki vel í geð. Fremur en að svara þessari spurningu játandi, muin hver maður skipta um umræðuefni, og fara t.d. að taia um veðrið — rtema þá að hann bein- línis þjáist af sjálfselsku og monti. Spyrjið svo beztu vini sama manns sömu spiirningar — þeir munu svara játandi. En leggið svo spurninguna fyrir verstu óvini hans, og þeir munu draga fram í dagsljósið allt sem viðkemur mann- inum af hinti mesta vægðarleysi. Spyrjið fyrrverandi kærustu hans. Spyrjið núverandi kærustu. Spyrj- ið einkaritarann hans, móður hans, konu 'hans, eða bara hvern sem er, — svörin munu verða_ eins misjöfn og þau eru inörg'. . Vitanlega er einhvers staðar djúpt í hverjum manni grafin sú fullvissa að i raunir.ni sé hann bein- línis ómótstæðilegur, hvað sem öðrum kann að finnast. Hann segir við sjálfan sig: Það hlýtur að vera þannig. En er það nú alveg víst? Nú skuluð þér skera úr því sjálfur, kæri herra, nieð því að svara eftir- farandi spurningabálki. Kvæntir menn taki eftir: til þess að varð- veita heimilisfriðinn, höfum við yður innan sviga og í þátíð). ■J Ef strætisvagn æki yfir yður á morgun. hve margar grát- andi konur — að fjölskyld- unni undanskilinni — mýndu verða viðstaddar jarðarförina: a) Ein? b) Tvær til tíu? c) Fleiri en tíu? 2 Hverjar eru (voru) óskir þeirra kvenna, sem þeir eigið (átluð) vingott við: a) Stofna heimiii og gæta yðar vel? b) Stofna hermili og láta yður gæta sin vel? c) Halda áfram að eiga við yður stefnumót? 0 Eru (voru) flestar vinstúlkur yðai-: a) Á sama aldri og þér? b) Tíu árum yngri (ef þér er- uð um þrítugt)? c) Fimmtán árum yngrí (ef þér eruð um fertugt? ^ Hvaða eig'inleikar kvenfólks þess, sem þér þekkið (þekkt- uð) virðast (virtust) ríkjandi: a) Makaleit? b) Auðæfasöfnun? 1 c) Móðurumhyggja? d) Sjálfstæði? g Hvor aðferðin reynist (reynd- ist) yður heppilegri? a) Símahringingar, heimboð, blómasendingar — látlaus sókn? b) Hæg sókn, dálítið undan- hald, l'áta hana ekki vera of örugga — eða með öðrum orðum kattaraðferðin? g Hvora mynduð þér heldur vilja (hafa viljað) tak,a með í samkvænii? a) Glæsilega stúlku, sem fær alla karlmennina til að líta aftur og stingandi augnaráð allra kvennanna? b) Látlausa stúlku, sem beinir sviðsljósinu fremur að yður en að sj'álfri sér? Hvers vegna fellur kona fyr- ir karlmanni? I ★ Ef þér eruð ókvæntur, er hér tæki- færið að komast að því ★ Séuð þér kvæntur, getið þér nú gengið úr skugga um hvers vegna konan yðar naði í yður ■J Eftir ,alla reynslu yðar í kvennamálum, eruð (voruð) þér: a )Fastir á fótunum, og látið , 1 8 enga stúlku komast nær yð- ur en þér sjálfir kjósið? þ) Alltaf í sömu baráttunni við síðustu vinstúlkuna, sem er óðum að færa sig upp á skaftið? 3 Þegar þér skoðið andlit yðar í speglinum: a) Setjið þér á yður heiðar- leikasvipinn, einarðlega augnaráðið og óttalausu ó- sjónuna? b) Eða kannske svefnlierherg- issvipinn — dálítið harð- soðinn, glottið út i annað munnvikið, dálítið hæðnis- iega? g Hvort álítið þér konur kjósa fremur: a) Öryggi? b) Glæsimennsku? 10 Hvort mynduð þér heldur vilja gegna: a) Venjulegu starfi? b) Forsetaembætti? 11 Hafi'ð þér nokkurn tíma þráð konu, en ekki fengið: a) Já. b) Nei. 12 Þegar einu ástarævintýri yðar lýkur (Iauk), og annað liefst (hófst) er (var) þá gamla kærastan: a) Fljót að finna nýjan vin? b) Lengi í sárum? _ c) Eins og grár köttur ó eftir yður — með tárin í augun- 13 Hvaða kvikmyndir ffllla yður betur? a) Kúrekamyndir? b) Stríðsmyndir? 14 Hvers konar málverkum geðj- ast yður bezt að? a) Mannamyndum? b) Landslagi? c) Sjávarmyndum? d) Borgarmyndum? e) Abstrakt — en skipulega málað? f) Skærum og fjölskrúðugum litasamsetningum? 13 Hvað álítið þér vera vænleg- ast til meiri. kvenhylli? a) Meiri peninga? b) Æsku og vöðvastyrk? - c) Meiri frístundir? d) Áberandi starf? 16 Hvaða dýrum geðjast yður bezt að? a) Filum? b) Öpum? c) Ljónum? d) Gíröffum? e) Björnum? f) Skriðdýrum? g) Fuglum? h) Fiskum? 17 IJinnst yður konur yfirleitt vera: a) Peningasugur? b) Ágætar — en yfirborðs- manneskjur? c) Dásamlegar verur? d) Hundleiðinlegar? Hver þessara þátta í fari kon- unnar finnst yður mestu varða? a) Röddin? b) Útlitið? c) Lundarfarið? d) Gáfurnar? e) Þjóðfélagsaðstaða eða/og peningar hennar? 19 Hvaða skemmtiatriði í hring- leikahúsum ffllla yður bezt? a) Hættulegustu atriðin — loftfimleikar, dýratamning? b) Tækniiegu atriðin — akró batík o. s. frv.? c) Dýrasýningar? 2Q Á hve mör-gum eftirtalinna hluta hafið þér upphafsstafi yðar? Skyrtum, náttfötum, skartgrip- um (skyrtuhnöppum o. s. frv)), vasakl'útum, bréfakörfu, bif- reið, farangurstösku. bókum, eldspýtum? Áður en þér lesið lengra, skulið þér merkja við hvern i þánn lið, sem við yður á — og munið að gera það af fullri hreinskilni, Síðan höld um við áfram, og hér kem- ur einkunnagjöfin fyrir hvern lið. Hún er sem hér segir: 1. a=0, b=5, c=10 2. a = 10„ b=5, c=0 3. a=5, b=0 4. a=10, b=0, c=5, d=0 5. a=5, b=10 6. a=10, b=0 7. a=0, b=10 8. a=0, b=5 9. a=5, b=0 10. a=5, b=0 11. a=0, b=5 12. a=0, b=5, c=10 13. a=10, b=0 14. a=5, b=3, c=2, d=l, e=0, f=4 15. a=2, b=0, c=10, d=5 16. a=2, b=0, c=l, d=2, e=2, f=0, g=2, h=l 17. a=0, b=3, c=10, d=0 18. a=3, b=3, c=2, d=2, e=0 19. a=l, b=3, c=2, d=0 20. einn til þrír 5, enginn eða fleiri en þrír 0 Nú er rétt að þér teljið saman púnktana, sem þér hafið fengið, og hér eru svo nokkur orð til þeirra, sem hafa fengið heildartöl- una: 120 EDA MEIRA Það hefir áður heyrzt getið um sjálfselskufulla montrassa, en þó gengur þetta úr hófi fram. Þaðget- ur alls ekki átt sér stað að þér hafið kosið rétt, svona maður er ekki til. Þér hljótið að vera í útliti eins og hráðið súkkulaði með þeytt- um rjóma eða eitthvað ennþá mýkra og kvoðukenndara — ef hægt er að líkja mannlegri veru við það. Þér cruð of góður til að geta verið sannur. 90 TIL 119 1 Hvernig sem á því stendur, þá eruð þér gæddur því sem t'il þarí. Konur elska yður og geta ekki staðizt yður. (Þær reyna heldur ekki að standast yður. Þær stilla sér upp í raðir til að fá að sairma hnappana á jakkann yðar, flykkj- ast að með ávexti þegar þér liggið í rúminu, geyma í huga sér hvert orð sem þér látið út úr yður, og spyrja yður jafnvel ráða, og er þá langt gengið. 90 EÐA MINNA Það er í rauninni ekkert atbuga- vert við yður, en þér eruð bara ekki meira hrífandi en hnausþykk- ar ullarhosur í jólapakkanum. IJin- hver getur kannske viljað yður, einhver getur þarfnazt yðar, en það er greinilegt að þér þurfið ekki að nota DDT til þess að flæma burt kvennahópana. Það væri viturlegt af yður að fara að gefa yður að einhverju öðru en konum, t. d. fuglaskoðun eða frímerkjasöfnun. Heimsmet í kvikmyndagerð? Fjalfar um manninn, sem skapaði sjóher Bandaríkjanna, John Paul Jones BETTE DAVIS — stjarna enn Eftir 12 ára undirbúning og nærfellt 5 mánaða upp- tökur, aS sumu leyti í Evr- ópu og öðru leyti í Holly- wood, eru þeir Samuel Bronston framleiðandi og John Farrow í þann veginn að leggia síðustu hönd á stór myndina „John Paul Jones", söguna um manninn sem skapaði sjóher Bandaríkj- anna. Margir kvikmyndaframleiðendur hafa haft áhuga á því að kvik- mynda þessa miklu sögu, sem kemur við allt frá Virginíu til Volgu, hjá evrópisku kóngafólki á 18. öld og til Afríku stranda! Þetta hefur verið svo ótæmandi verkefni, að allir hafa gefizl upp, en nú hafa þeir Bror-ston og Farrow sem sagt (Frarah. á 8. síðu.)' ROBERTSTACK scm John Paul Jones

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.