Tíminn - 07.02.1959, Side 3

Tíminn - 07.02.1959, Side 3
F.í I N N, laugardaginn 7. febrúar 1959. Burt meö Empire og pokann Afturhvarf tií náttúrunn- ar eru slagorð dagsins í tízkuheimi Parísarborgar um þessar mundir, og bera sniðin sem daglega sjá dags- ins Ijós þar, þess glögg merki, sagði tízkukóngurinn Yves St. Laurent, arftaki Díors, fyrir nokkrum dögum þegar hann svipti hulunni af tízkusniðum Díors-hússins. St. Laurent braut allar venjur Díors með því að sýna fréttamönn um oé nokkrum gestum kjólana og annað sem fram kemur hjá honum í ár, heilum sólarhring áður en húsið var opnað. Náitúran sækir rétt sinn ... Barmurinn verður aftur eins og honum er eðlilegt að vera og í fyrsta sinn í áraraðir lítur konan út eins og hún er sköpuð. sagði hinn 22ja ára gamli arftaki Díors við þetta tækifæri, sem með snið- um sínum knésetur nú allt það sem fram hefir komið til þessa hjá öðrum tízkuhúsum Parísar. En nátturan skal vera „ele- gant", og konan á að skreyta sig með öllu hví sem tízkuheimurinn getur boðið lienni upp á. Línur hennar verða langar og grannar og án þeírra stíla i sniði sem koma i veg fvrir að hún líti út eins og hún er sköpuð frá náttúrunnar hendi. „Við erum alveg hættir við Em- pire- og pokakjóiana, sagði St. Laurent. — Konan skai loks verða frjáls!“ St. Laurent braut aliar reglur og af- hjúpaði leyndardóma Ðíors 24 klst. áður en kjólasýningin hófst - Beltis- lausu kjólarnir virðast algjörlega úr sögunni en nýjar línur komnar fram ★ Allir mitti — sumir belti St. Laurent hvíslaði því að fréttamönnum — líkt og maður sem óttast tízkunjósnara á bak við hverjar dvr — að allir kjólar frá Díor í ár séu með mitti, en hafi hins vegar ekki allir belti. Axl- irnar eru ávalar, pilsið hefir eðl- legt snið og lengd þess fer eftir gerð kjólsins. — Hattarnir hafa mikla þýðingu í ár, sagði hinn ungi tízkukóngur. Um kvöldkjóla Díors er það að segja að nýstárlegt litaval prý’ðir þá, og sama er að segja um sam- kvæmiskjólana. Griffe: Hjarðkonustíll Jacques Griffe, sem fyrir nokkr- um dögum opnaði hjá sér, lagði aðaláherzluna á skjörtin. Sýning- arstúlkur hans báru flestar hverj- ar skjört af ýmsu tag'i, en ekki hefir verið mikið um þau í hin- um tízkuhúsunum til þessa. Skjörtin frá Griffe eru klukku- laga með alls kyns krús'indúllum, og sjálfur heldur hann því fram að þetta sé slórt skref í áttina tii aíturhvarfs til náttúrunnar, og þau endurveki hinn rómantíska ihjarðkonustíl. Annars var fátt markvert að sjá hjá Griffe — kjólaxnir flesth' með belti, eins og verið hefir hjá hinum tízku- húsunum í ár. Annars var hjarðkonustillinn ekki það eina sem vakti athygli hjá Griffe. Meðal annars má nefna öklasítt skjört með rósum og alls kyns pírumpári, sem vakti mikla athygli. Bætt um! Þ.ið lítu. ur ry.ir að París œtli að gefa kvenfólkinu mittið aftur. Sagt er að flestir ef ekki allir kjólar í ár, séu með belti, sem situr á hinu eiginlega mitti konunar, og þessi kvöldkjó.il, sem að vísu er frá London, virðist fylgja þessu 'ngmáli ársins ót í yztu æsar. Hann er úr rauðu satini, og bryddaður d-apEruðw sjali, sem fest er með rauðum efnisrósum. Það er engu líkara en forvígismenn hattagerðar og hárgreiðslu sé i stríðl hver gegn öðrum um þessar mundir. Hattarnir eru látnir Ifkjast hárkollum og hárið, samkvæmt nýjustu tízku, á að greiðast þannig- að það líkist einna helzt hatti. Hér sézt nýtízku hárgrelðsla frá New York og hún minnir óneit- anlega talsvert á túrbanhatta þá, sem austurlenzkir sjeikar bera. I næstu viku verður mikið um að vera á París, en þá sýnir Haute Cou- ture vortizku sína. Ekki verður hægt að birta myndir aí kjólum frá Cou- ture fyrr en í fyrsta lagi 25. febrúar, vegna þess að bannað er að taka myndir af þeim. ... Engu að siður þykir oss fíklegt eí dæma má eftir þvi sem komið hefur fram í París að undanförnu, að kjóllinn á þessari mynd sé ekki alls ólíkur kjólum Couture. Breitt belti, sem komið er fyrir á hinu eiginlega mitti, vh'ðist sem sé vera komið í tízku á ný. Plliln :i vi.f ekki allu styttu en sést hér á mvndinni — það nær vart í hná. ' - ;:-i ur.ga stúlka er sýningardama í London, Fyrir nokkru síðan vann hún fy-sta sætið í fegurðarsamkeppni einni, og var þá þessi mynd tekin f henní fyrlr utan he'mlli hennar. Hún er t stuttri kápu og pilsi úr leupard rklrtni, sem vart nær í hné og að rjálfsögðu svörium sokkum og brúnum skóm!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.