Tíminn - 07.02.1959, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.02.1959, Blaðsíða 8
T í M I N N, laugardagimi t. febrúar 1959. Minningarorð: Halhir Björnsson Akranesi F. 1«. des. 1913. — D. 1. febr. 1959. í dag verður til grafar borínn, að Görðum, Akranesi, Hallur Björnsson, Brekkubraut 13. Hann andaðist hinn 1. þessa mánaðar, eftir erfiða sjúkdómslegu. , v Halíur var fæddur 10. des. 1913 að.Reykjum í Mjóafirði. Foreldrar hans voru þau hjónin Sigurborg Gísladóttir, bónda að Meðalnesi í Felum Sigfússonar, og Björn Jónsson bóndi þar. Jón faðir Bj'örns bónda og afi Halls var sonur Einars, prófasts í Vallanesi Hjörleifssonar, prests að Hjalta- stað Þorsteinssonar, prests að Krossi í Landeyjum, Stefánssonar frá Hörgsdal á Síðu. Kona séra Þorsteins á Krossi var Margrét Hjörleifsdóttir prófasts að Val- þjófsstað Þórðarsonar. Hjörleifur pnófastur var skáld gott, bæði á latínu og íslenzku, þýddi t. d. á latinu Passíusálma séra Hallgríms Péturssonar. Þess má og geta, að Björn faðir Halls var 9. maður frá séra Einari Sigurðssyni sálma- skáldi í Eydölum. Að Halli lágu sérstaklega traustir stofnar, sem ekki Ieyndu sér við nánari kynni. Hallur ólst upp hjá foreldrum sínum að Reykjum ásamt stórum systíkinashóp. Árið 1936 brá Björn bóndi búi og fluttist þá með fjöl- skyldu sína til Akraness. Árið 1937 réðst Hallur vegna frændsemis við konu mína að Kálfafellsstað til okkar hjón-a og dvaldist lengstum fhjá okkur unz við fluttumst tO Reykjavíkur. Hallur kvæntist Guð- nýju Steíánsdóttur, hreppstjóra að Kálfafelli, Jónssonar, reistu þau bú á Akranesi og bjuggu þar æ síðan. — Er ég minnist Halls heit- ins og dvalar hans á mínu heimili, þá kemur mér í hug hve trúr og ítrausítur hann var, og hve gott var að vita heimilið í hans forsjá er við hjónin vorum að heiman. Hann var mjög vel verki farinn, kapp- samur svo af bar, ósérhlífinn og hygginn í hverju því starfi, er hann gekk að. Áð vísu var hann fremwr hlédrægur, en skýr í hugs- un og mimmgur vel svo sem hann áttf ætt til. Hann var maður orð- vandur og umtalsgóður og slíkur geðprýðísmaður, að ég minnist þessi ei að hafa séð Ihann skipta skapi. Hann var einkar barngóður, og «negum við hjónin minnast þess hve honum var annt um börnin okkar og þá tryggð, er harrn sýndi þeim æ síðar. — Þessir eiginleikar hans nutu sín að fullu í hans far- saala hjónabandi. Þau hjónin voru sajnhent í að vinna að heill og hamingju heimilisins, og segja má að hagur þeirra hafi blömgazt frá ári til árs, sem og sjá má á því, að þau höfðu reist sór myndarlegt hús að Brekkubraut 13. Hallur var einn hlnnu atulu 6Í- starfandi manna, sem fellur í val- inn fyrir aldur fram frá konu og þremur ungum börnum. Að slíkum mönnum er mikil eftirsjá, bæði fyr ir þjóðfélagið og þá ekki síður fyrir ekkjuna og börnin föður- lausu. Það er ætíð svo sárt að líta auða skarðið í ástvinahópnum. En sú er huggun harmi gegn, að eftir lifa Ijúfar minningar um mætan mann og góðan dreng. Svo þakka ég þér, góði vinur, liðnar samverustundir og votta ástvinum þínum innilegustu samúð mína, konu, börnum, systkinum og aldraðri móður, sem enn einu sinni á um sárt að binda vegna ástvinamissis. Megi ykkur öllum vera hugfast, að eftir lifir minning mæt þótt maðurinn devi. Jón Pétursson. Og enn bera þeir sjálfa sig sökum - NTB-Moskvu, 4. febr. — Fyrrv. aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna Maxim Saburoff bar sjálfan sig þeim sökum í dag, að hafa unnið með flokksfjandsam- legri klíku Malenkoffs og fé- laga hans. Kvaðst hann hafa gerzt sekur um margvísleg mistök og pólitískt staðfestuleysi. Hann kvað sér hafa Birting fjárfestingar- skýrslna Fram er komin á Alþingi till. til þingályktunar um birtingu skýrslna um fjárfestingu, flutn- ingsm. Ólafur Björnsson ög hljóð ar till. svo: ,,Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta seinja og birta sundurliðaða skýrslu um fjárfestingu fjögurra síðustu ára, hve miklum hluta þjóðarteknanna fjárfestingin hafi numið og hvern ig fjáröflun til hennar skiptist á milli skattaálagningar, sparifjár myndunar og verðbólgumyndandi fjáröflunar.“ Segir í grg.: „— — að varla ætti að vera um þaS ágreiningur, að mál þetta er fyllilega þess vert, að það sé rannsakað og um það birtar svo glöggar skýrslur sem föng eru á, þar sem telja má víst, að niðurstöður þeirra skipti miklu máli utn það, hversu taka beri á lausn efna-hagsvandamálanna á næstu misserum.“ Frá Sambandi (Framhald af 5. síðu) að mestu lokið námi sínu utan skóla. Eftir þeim upplýsingum, sem S.Í.B. hefir fengið, mun ekki hafa átt sér stað, að réttindalaus maður hafi orðið að víkja úr far- kennarastöðu fyrir manni með kennarapróf eftir tíu ára starf á sama stað, enda eru stöður, sem réttindalausir mienn gegna, ekki auglýstar'til umsóknar, nema þeim sé sagt lausum eða skólanefndin óski þess, að staðan verði auglýst. Samband íslenzkra barnakenn- ara lítur svo á, að flutningsmenn þessa frumvarps hafi ekki gert sér nægilega grein fyrir eðli máls ins og afleiðingum þess, ef frum- varpið yrði að lögum. Beinir sambandsstjórn þeim til- mælum til kennara, að þeir fylg- ist vel með málinu, ræði það í félögumi sínum og vinni að þvj, að frumvarpið verði fellt. Stjórn Sambands ísl. barnakcnnara verið fullKunnugt um tilraunir Malenkoffs og félaga hans til að vinna gegn ákvörðunum flokksins í landbúnaðarmálum. Saburoff, sem eitt sinn var yfirmaður skipu- lagsmála iðnaðarins í landinu, hvaðst nú vera forstjóri fyrir verk smiðju einni í Syzran, um 800 km fyrir austan Moskvu. Sagðist hann leggja sig fram í því starfi til þess að bæta fyrir fyrri yfirsjónir. Franskt Ieiklistarlif (Framhald af 7. síðu) leika, sem reynzt hafði 'tilrauna- starfsemi Copeau sVo frjótt og vænlegt áður fyrr. Hann beinir ljka leikferðum sinum til þeirra, sem ógjarnir eru á að hrevfa sig; sviðs- og Ijósabúnaður hans er allur færanlegur. I-Iefir hann bú- ið leik’uús sitt vagnalest líkt og stórsirkusarnir hafa. Um helgar fer hann iðulcga út í Suresnes eða Saint-Denis og leikur þar í- samkomusölum ráðhúsanna eða í anddyrum verksmiðjanna. Milli sýninga lætur hann mjög gjarna leika klassíska tónlist og jafnvel halda dansleik. Og í Suresnes og í Saint-Denis eru sýningargestirnir ekki endilega alþýðufólk eitt; svo- kallaða fína fólkið í París, bæði úr Passy og af Plaine Moneeau, kemur þangað akandi til að hlusta á Cid innanum verkamenn frá Renault-vcrksmiðjunum og starfs- menn frá Gas- og Rafmagnsveit- unni. Þannig skapar leikhúsið', þegar það hrífur háa og lága, hér nokkurs 'konar þjóðlega einingu. En forðumst allt þjóðarstolt. Hugsum líka um hið göfuga hlut- verk leikhússins, sem miðar að því að færa þjóðirnar nær hver annarri. Við gátum þess, að leik- arar okkar hafa flutt orðstír Frakklands langt út fyrir land- steinana. Við erum hróðug af þvi og megum líka vera það. En til Frumvarp (Framhald af 6. síðu) Barðastrandarsýslu, Vestur-Barða- strandarsýslu og Auðkúlu-, Þing- eyrar- og Mýrahrepp í Vestur-ísa- fjarðarsýslu. Fleiri tóku ekki til máls og var frumvarpið með 18 samhljóða atkvæðum afgreitt sem Iög. 4. Dragnótaveiðar í fiskiveiði- landhelgi. Flutningsmaður frv., Karl Guðjónsson, íylgdi því úr hlaði. Nú voru 38 ár siðan fyrst voru gerðar hér tilraunir með drag nót. Hefði nolkun þess veiðarfæris svo lagzt niður um sinn en upp úr 1930 hefði hún hafizt á ný. Á árunum 1940—1950 hefði verð- mæti flatfisksins vcrið 4—5 falt á við verðmæti þorsksíns. Mætti af því marka, hve þarna væri um þýðingarmikinn lið í þjóðarbú- skapnum að ræða. Bæri hér allt að einum brunni: Þjóðarbúið hagn aðist á því að leyfa þessar veiðar á þann hátt, sem í frv. væri gert ráð fyrir sjómenn og fiskvinnslu- stöðvar græddu einnig. Fleiri tóku ekki til máls og var frv. vísað til 2. umræðu með 24 samhljóða atkvæðum og til sjávar útvegsnefndar með 23 samhljóða atkvæðum. iuitumititittttutitntit HVAÐ KOSTAR INNBÚ YÐAR í DAG? Samkvæmt lauslegri áætlun, sem gerti hefir veriíí nýlega, mun meíal innbú hafa kostaí 50.000 krónur 1950, en sama innbú mundi kosta 100.000 krónur í dag. ViS viljum |>ví beina þeim tilmælum til allra heimila og einstaklinga aí kaupa fiegar tryggingu á innbúum sínum og hækka eldri tryggingar miSaS vií núverandi ver’ðlag. S lAíMTvn MMHJTT EY(G (B H Umbcð í næsta kaupféfagi. að taka af allan efa, skulum við að heldur bæta því við, að út- lendingahatarar erum við engir (á því bar nokkuð fyrir 1914, þrátt fyrir mótspyrnuna við Lugné Poe og Antoine). Nú til dags eru leik.ýn mörg' amerísk leikrit í París og enn fremur ítölsk spænsk, ensk og skandinavísk • (viðvíkjandi hinum síðastnefndu vantár okkur dáljtið hugmynda- ílug; það er alltaf Ibsen og Strind berg og einkum Strindberg og þá alltaf sömu leikritin eftir hann). Auk þess eigum við kost í Paris á nýstárlegum sýningum, sem fluttar eru af leikflokkum frá ýms um löndum og á ýmsum tungum. Þettía Leikhus þjóðanna eða Theéátre des Nations, sem aðset- ur heíir í Sarah Bernhardt-leik- húsinu, heldur uppi næstum lát- lausri leikhúshátíð í borginni. Fjöl menni stendur 'í biðröðum til að komast á Kinversku óperuna, Hebreska leikhúsið frá Jcrúsalem sýnir fyrir húsfylli á ári hverju. En andans forvitni er hór l.íka gerð skil; sjá má leikflokkinn frá Marokkó flytja á arabísku og í frjálslegri túlkun Hrekkjabrögð Scapins og daginn eftir má sjá, hvernig Aurasálin, lika eftir Mol- iére, er skilin og túlkuð í Héls- inki. Það var Ijka skrýtið að heyra hvernig dönsk lcikkona, mjög töfrandi, bar fram nafnið á Chiméne úr Cid. Næsta ár stend- ur til að leika Shakespeare á ein- um tíu málumt París ein gat lagt fram sýning- argesti í þetta óvenjulega leikhús. Tilvera þess má teljast ótrúleg, en þó nauðsynleg um leið. Mér finnst Lcikhús þjóðanna á okkar grund vera sönnun um nýja leik- listarvakningu i Frakklandi. Það eru ekki nema nokkrir uppþornað ir einstaklingar meðal eldra fólks- ins, sem fást við hina deyjandi list og óttast umfram allt ao hrófla við venjunum. En lítið í kringum yður, ef þér komið til Frakklands; það vantar ekki leiklistarköllun- ina. Vitið þér, hve margir leikar- ar búa í Paris? Fimm þúsund. Og þar af er margt mjög góðra lista- manna og eigi óverulegur fjöldi ágætra og jafnvel framúrskar- andi góðra leikara. En við gefum verið viss um, að allir hinir déyja ekki úr hungri; útvarpið, sjón- varpið og kvikmyndirnar íryggja þeim vinnu, ýmist að öllu eða hálfu lcyti. Og margir þeirra gegna um leið aukastórfum, sem þeir geta bjargazt á, þegar þeir eru á flæðiskeri staddir. En um allan þennan sæg hæfra leikara, um allt þetta m.annhaf, geta svo leikstjórarnir látið greipar sópa og valið í hvert hlutverk þánri leikara, sem við á. í hvcrt skipti sem leikstjóri skipar niður í hlut verk bjóða leikararnir sig ffam unnvörpum og leiks'tjórinn þarf aðeins að hafa vandann af því að velja. Það cru kvikmyndirnar sem hafa gert okkur vandlát; leik- urinn er nú orðinn hreinni og fágaðri en hann hefir nokkurn tíma verið. . Öll þessi leikstarfsemi ætti við lítið að styðjast, að sjálfsögðu, ef ekki væri á hinn bóginn um gróskuskcið að ræða í leik-bók- menntunum. Fjörugt leikhúslíf byggist öðru fremur á tilkomu nýrra leikritaltöíunda. Það er ekki unnt að endurtaka endalaust leik á sömu verkum. í þessu sambandi megum við vel við una, því að enginn skortur er á leikritaskáld- um hjá okkur. En ekki eru alli'r þessir höfundar auðskildir. Að vísu eigum við líka gamahhöf- unda, enda þarf þeirra með. Stór- gatan skiptir við André Roussin, sem byrjaði sem leikari. Hann hefir góða aðstöðu til að reikna vel út áhrif orða sinna. Hann er sjálfur Marseillebúi, æítaður úr Provence-héraðinu, og fyrrum hvatamaður lííil leikhúss í Mar- seille, Ridcau Gris. Hann kom til Parisar með vini sínum Ducreux og hafði i vasahorninu lítið leikr rit, Ani.Stramgram, sem á þákkir skilið fyrir að hafa komið okkur til að brosa, meðan á hernáminu stóð. Leikrit hans, Litli kofinn cðs la Petitc Hutte er af þeirri ger@, sem allir leikhúsahöldar láta sig nú dreyma um: hlutverkin eni aðeins fjögur, ein leiktjöld, fimfn þúsund leiksýningar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.