Tíminn - 17.02.1959, Síða 1

Tíminn - 17.02.1959, Síða 1
Guy Mollet — bls. 6 41 árgangur. fmfw Reykjavík, þriðjudaginn 17. febrúar 1959. Óhappasæli stjórnmálam., bls. 6 Garöar og qróður, bls. 4. Yul Brynner, bls. 3. Heimsókn í húsmæðraskóla, bls. 7. 39. blað. Slepptu björgunarbátunum í sjóinn, stóðu við íshögg á þriðja sólarhring Banaslys á Þingeyrum Blönduósi í gær. Hér var af- akaveður í gær af suðvestri en íkki hefir orðið teljandi eignatjón vo frétzt hafi. Á Þingeyrum varð 'iias vegar dauðaslys. Þeíta gerðist um miðjan dag. /eðrið tók upp heývagn og varð ungur danskur maður, sem þar hef r unnið í vetur, fyrir honum - og beið hann þegar bana. Um nánari ildrög slyssins eru ekki glöggar fréttir. Járn t'ók af húsum á nokkrúm stöðum en ekki til stórskaða SA. ðSaunó- Þessar tvær myndir voru teknar i gær um borð í Þorkeli mána, þar sem hann íá við bryggju í Reykjavík- urhöfn. Á efri myndinni sést hvar járnsmiðir eru að hefja viðgerð. Örin bendir á hinar sundurskornu bátaugl- ur. Neðri myndin sýnir hin- ar logskornu bátauglur, og má greinilega sjá, hve þykkt stál er i þeim. Ljósm.: JHM. | I I Rætt vicJ Martein Jónasson, skipstjóra á Þorkeli mána Þýzkalandsmálin í heild verði rædd á fundi utanríkisráðherra í vor Svör vesturveldanna afhent í Moskvn NTB-Washington. 16. febr. — Vesturveldin leggja til að haldin verði fjórveldaráðstefna með vorinu um Þýzkalands- málin og mæti þar utanríkisráðherrar viðkomandi stórveída, en þýzku ríkin sendi áheyrnarfulltrúa. Stað og stund ráö- stefnunnar skal ákveðin með viðræðum sendiherra. Vestur- yeldin staðfesta þá einbeittu ákvörðun, að láta ékki hrekja sig með valdi eða hótunum írá V-Berlín. . Alriði þessi koma fram í svör- um vesturveldanna þriggja, sem afhcnt voru í Moskva í dag. Eru þau svör við orðsendingu Rússa um sama eíni frá 10. jah. s. I. Fundur í apríl—maí 'Samkvæmt áreiðanlegum heim- ií'dúm í Washington er sagt, að fyrir ýesturveldunum vaki að ráð stefna utanríkisráðherranna verði háldin í apríl eða snemma í maí. Sovétrikin hafa sem kunugl or lýst yi'ir, að þau muni afhenda austur-þýzku stjórninni öll völd í Berlín. þau er Sovétríkin fara þar nú með sem hernámsveldi. ef ekki haí'a tekizt samningar fyrir 25. iriaí n. k. í orðsendingum sínum taka vest urveldin fram, að þau vilji að rætt sé um allar hliðar Þýzkalands málsins og hafi ekkert í’íkjanna rétt til neitunarvalds' að því er varðar umræðu einslakra þátta Jiiálsins. Þá er og' upplýst, að vest ui'veldin vilji að ráðstefnan verði (Framhald á 2. íðu). I Allt á f!otiu í Eyjum Þær fregnir berast uú frá Vest- mannaeyjum, að vertíðarfólk ger- ist svo uppvöðslusamt, eftir þriggja vikna landlegu, að liejma- menn fái ekki notið svefns, vegna hávaðiisanilegs framferðis drukk- inna aðkomumanna og kvenna. — Sagt er, að vín séu óspart teyguð i verstöðinni Togarinn Þorkell máni, sem fékk harðá útreið í fár- viðrinu á Nýfundnalandsmið um, kom til hafnar í Reykja- vík á laugardagskvöldið. Skipverjar urðu að losa íog- arann við báða björgunarbát ana og standa hvíldarlaust við íshögg á þriðja sólar- hring. Má með nokkrum rétti segja, að þeir hafi kom izt til heljar og heim, aftur. Fréttamenn ræddu í gær við Martein Jónasson, skipstjól'a á Þor keli mána, en hann hefur stýrt skip inu frá því hann tók til starfa hjá Bæjarútgerðinni í marz 1956 og jafnan við góðan orðstír. 12 vindstig. Sagði Marteinn að þeir hefðu komið á Nýfundnalandsmið í all sæmilegu veðri þann íjórða febrú ar og stundað'veiðarnar við góðar astæður í þrjá daga. Það slóðst nokkurn veginn á, að búið var að fylla lestarnar þegar veðrið skall á mjög snögglega síðari hluta dags þann sjöunda febrúar. Skipið var þá statt syðst á Ritubánka 50 gráður og 20 mínútur norður og 51 gráðu vestur. Brciddargráðan fellur um suðurströnd Englands. Dýpi 155—185 faðmar. Maður .gat ímyndað sér, vegna stöðu ■ loftvogar, að óveður færi í hönd, sagði skipstjórinn. Veðrið skall á að norðvestan og jókst stöðugt, þegar á kvöldið leið, 12 vindstig að minns'ta kosti með stórsjó og frosti og bil um mið- nætti. Björgunarbátum sleppt. Andæft var, og þegar kom fram yfir miðnætti jókst frostið til muna. Skipið yfirísaðist mjög ört og lagðist þá á bakborðshliðina með miklum halla. Hver ínaður var kallaður út til að berja klaka og í þann mund var bakborðsbátnum sleppt í sjóinn. Róttist skipið þá um stund, en litlu seinna virtist það ætla að leggjast á hina hliðina en þá var stjórnborðsbáturinn skor inn frá. Skipshöfnin barði klak- ann hvíldarlaust í reiða, á stjórn- palli og hvalbak með öllum tiltæk um áhöldum alla þá nótt og var unnið af mikilli hörku, en þi'átt fyrir það fékk skipið hvað eftir annað mikinn halla á bak og stjórn/ Logskurður. Þá voru bátsuglurnar logskorn ar í sundur. Verkið var fram- kvæmt af fyrsta vélstjóra, Þórði Guðlaugssyni, og leitaði hann lags þegar hallinn var minnstur á skipinu, en var ekki bundinn. Þá kom til orða milli skipstjóra og fyrsta vélstjóra að skera aftur- mastrið frá skipinu, en til þess kom þó ekki. Skipshöfnin náöi klakanum úr Vöntunum, af stjórn palli og hvalbak að miklu leyti, en hver sjávarsletta fraus á skipinu svo við ramman reip var að draga. Til marks um klakamyndunina sagði skipstjórinn að stag úr poka bómunni eins og fingúr manns að gildleika varð eins og tunnubotn í þvermál. Slasaðist. Sigurður Kolbeinsson, II. stýri- (Framhald á 2. síðu). Marteinn Jónasson skipstjóri Myndin er tekin á blaðamannafundi í gær. (Ljósm.: Tíminn). Háskálaráð vítir níðgrein í Stúdenta- blaðinu um menntamálaráðherra ,,Gerræði við sjálf BlaÖinu barst í gær eftir- í'arandi bréf frá Háskólaráði: „Hér nieð sendist yður, herra ritstjóri, til birtingai' í blaði yðar svofelld ályktun, gerð á fundi Ilá skólaráðs í dag: í 1. tölublaði Stúdentablaðs, ! sem út kom 7. þ. m. birtist greitt með fyrirsögninni Pcreat. Grein in er nafnlaus. Ber því ritnefnd blaðsins og útgefandi, sem er Stúdentaráð Háskólans, ábyrgð á í’itsmíð þessari, en hún er ómak Ieg persónuleg árás á mennta-'j málaráðherra, dr. G.vlfa I>. Gísla son, og' að ritluetti og allri gerð' fullkomlega ósæmileg. lláskóla- ráð telur Háskólanum og stúderit um almennt inikla hneisu gerða j með birtingu þvilíkrar ritsmíðar og lýsir inegnuslu vanþóknun á sliku athæfi. Iláskólaráð telur, að ritnefnd hafi gerzt sek um brot á 24. gr. laga um Háskóla íslands nr. 60/1957, sbr. rcglugerð fyrir Há- skóla íslands 35. gr., þar sem kveðið er á uin það, að „háskóla ráð getur veitt stúdent ániinn- ingu eða vikið stúdent úr skóla uin tiltekinn tíina eða að fullu, ef hann hefur gerzt sekur um brot á lögum og öðrum reglum Háskólans eða reynzt sekur um háttsemi, sem er ósamboðin liá skólaborgara." lláskólaráð vildi ekki að þessu sinni grípa til brottvikningar, en áminnir Stúdentaráð eindreg'ið og alvarlega um að gæta betur sóma lláskólans og' sjálfs sín í blað'aút gál'u sinni.“ stæði héraðanna 99 Áskorun frá hreppsnefnd Bartiastrandarhrepps til Alþingis vegna kiördæmamálsins Hreppsnefnd Barðastrand- arhrepps í V-Barðastrandar- sýslu hefir sent Alþingi eí'tir- íarandi áskorun vegna fyrir- hugaðra breytinga á kjör- dæmaskipun landsins: | „Hreppsnefndin lýsir yfir því, að hún telur það gerræði við sjálfstæði héraða lands- ins, ef Alþingi samþykkir að lögð skuli niður öll núver- andi kjördæmi landsins ut- an Reykjavíkur og tekin skuli upp stór kjördæmi með hlutfallskosningum. Skorar hreppsnefndin á hið háa Alþingi að fella hverja þá tillögu, er að þessu stefn- ir". Virðingarfyllst. Hvammi. 31. jan. 1959. í hreppsnefnd Barðastrandar- hrepps. Karl Sveinsson, Gunnar Guðmundsson, Sttíingrimur Friðlaugsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.