Tíminn - 17.03.1959, Síða 8

Tíminn - 17.03.1959, Síða 8
8 T í iVI IN N, þri'ðjudaginn 11. marz 1959. 3. síðan skyldi þegar hlnn 3. janúar s. L, þegar Eisenhower undirritaði plagg, sem skipar hinu norðlæga ríki jafnfætis sjálfu Texas og öðrum fylkjum bandarískum og •sagði um leið: „Þetta er söguleg ur atbiirður". 48 klukkutímum eft ir að þetta bar við voru flagga- framleiðendur komnir af stað með framleiðsluna á nýja flagginu. Saumað á Dýrustu bandarísku flöggin eru með ásaumuðum stjörnum og röndum. Elzta og virðulegasta fyr irtæki Bandaríkjanna í -þessari grein, Annin og Co. í New York, myndi ekki láta það út spyrjast, að einn einasti fáni frá þeim stað væri með áþrykktum stjörnum eða röndum. Þar er allt saumað á dúk inn. Og þetta gerir að verkum, eftir því sem forstjórinn segir, að ekki er hægt að auka framleiðsl una fyrirvaralaust. Hann heldur einnig áfram og segir: flaggasaum ur er list og það er erfitt að finna hinar réttu saumakonur, er 'hafa það í sér að geta saumað flögg. Viðbót einnar stjörnu í fánann hefir ‘kostað framleiðend ur mikið fé og mikla fyrirhöfn, og mörgum mótum hefir þurft að Breyta um mót En það sem verra er: Fastlega er búizt við, að flaggaframleiðend urnir þurfi að breyta um mót sín aftur strax og þeir eru svo til nýbyrjaðir að nota mótin með 49 stjörnunum. Ástæðan er sú, að þess er vænzt að þegar á næsta ári" muni Kyrrahafseyjan Hawai tekin up í Bandaríkin sem 50. rík ið, og þá 'bætist að sjálfsögðu 50. stjarnan í flaggið. ■t * •, OífUlMAao »HAT (Framhald af 6. síðu) gat lítið sagt annað en þetta: „Ég er mikið þreyttur, en ósköp var nú gaman.“ Það leyndi sér ekki, að þrátt fyrir þreytuna var fögn- uður sálarinnar svo djúpur og einlægur, að ég hef stundum velt því fyrir mér síðan, hvort hinum annars svo mjög fróma útlenda vini vonam hefði ekki orðið lótt- bærara að gera alvöru úr hótun sinni, ef þörf hefði krafið, heldur en verða af samfylgd Eyjólfs. — Larsen flutti síðar ágætt erindi um Eyjólf og lýsti honum mjög vel, og segir m.a.:.,,----augun í honum eru þau sem mér hefir •hlotnast að sjá glettnilegust. En minnisstæðastur var mér þó hlát- ur hans. Það var lúðurbláslur lífs gleðinnar.“ Hér hefir verið fjölyrt um einn þátt í fari Eyjólfs, þann sem mesta athygli hefir vakið, enda vissu- lcga sterkur. En þar með er ekki allt sagt. Hann hefir líka haft af ýmsu að segja öðru en glettni lífsins, eins og flestir alþýðumenn á hans aldri. Samferðamenn hans á lifsleiðinni sem kynntust honum vel, munu að vísu lengi minnast léttleika hans á góðum stundum, en þó getur verið að þeir verði •samt minnugri á hljóm frá öðr- urn streng, sem aðeins nánari kynn ing leiddi í ljós, hann átti sem sé næman skilning og samúð þegar á reyndi. Hann gætti ekki að því, hvar fjöldinn skipaði sér, þegar hann vildi leggja máli lið, og fróður var hann um margt, og það var gott að tala um margt anhað við hann en hesta. Margir vinir Eyjólfs munu sakna hér ýmislegs sem þeir hefðu ósk- að að tekið hefði verið fram. Svo hlýtur líka að vera í stuttri grein, þar se.ni nógu er af að taka. Þess ar línur hafa aðeins því hlutverki að gegna að færa honum árnaðar- óskir, svo og fjölskyldu hans, á sjötugsafmælinu, sem jafnframt er nálægt því að vera 40. ára bú- skaparafmæli hans í Sólheimum. — Ég efast ekki um að margir vinir hans munu nú minnast hans á þessum tímamótum. Megi 'hon- um svo endast lífsfjör og heilsa sem aldur. Jónas Benónýsson. Við mótmælum allir (Framhald af 5. síðu) Alþýðuílokkurinn á vissulega verk að vinna eigi síður en ,sam- bærilegir flokkar eriendir, sem margir eru heilsteyptir og mjög sterkir. En meðan giftuleysi hans er þvíhkt, að forkólfarnir telja sér bezt borgið undir stélfjöðrum. íhaldsflokksins, á hann sér engr- ar viðrcisnar von, hvernig svo sem kjördæmum verður breytt og bylt, Gísli Magnósson Frá Neytendasamtökunum SIEINÞÖRsj 32 frá 19. júní 1933 um tilbúning og verzlun með smjörlíki. Hún hljóðar þannig: „Á umbúðum alls innlends smjörlíkis skal standa skýru letri orðið Smjörlíki ásamt nafni smjörlíkisgerðar þeirrar, sem vöruna hefur framleitt.“ Virðist hér um beina hliðstæðu að ræða og koma til álita að beita lögjöfnun um sölu á smjöri. Að ýmsu leyti er ríkari ástæða til þess að þessi regla gildi um smjör en smjörlíki. Með hliðsjón af frainansögðu, væntir stjórn Neytendasamtakanna þess fastlega, að Osta- og smjörsal- an s/f verði við tilmælum Neyt- endasamtakamia, og óskar ákveðins svars fyrir 20. marz n.k. GaflSabuxur A fundi sínnm 7. marz 1959 sam- þykkti stjórn Neytendasamtakanna 'eftirfarandi: „Þar sem Osta- og smjörsalan s/f hefur ekki svarað tilmælum Neyt- endasamtakanna, er fram komu í álitsgerð þeirra 18. febrúar s.l. þyk- ir rétt að ítreka þau og óska svars. j Stjórn Neytendasamtakanna álít- ur, að Osta -og smjörsölunni beri lögum samkvæmt að geta fram- leiðslustaðar eða framleiðenda á umbúðum smjörs og enn fremur að fella niður nafnið „gæðasmjör". Skal í því efni skírskotáð til laga nr. 84 frá 19. júní 1933 um varnir gegn óréttmætum verzlunarhátt- um. 1. málsgrein 1. greinar þeirra laga hljóðar svo: „Óheimilt er hverjum þeim, sem selur vöru eða hefur hana á boðstólum, að gefa út villandi upplýsingar um vöruna til að hafa áhrif á eftirspurn hennar eða sölu.“ Enn fremur segir svo í sömu grein: „Sérstaklega er bann- að að setja villandi auðkenni á vör una sjálfa, umbúðir hennar eða ein- kennismiða, á auglýsingaspjöld, reikninga, vörusfcrár eða önnur verzlunarskjöl. Villandi teljast: a) auðkenni, sem gefa rangar upplýs- ingar eða geta vakið rangar hug- myndir um framleiðslustað (land) vörunnar, um tegund hennar, til- búning, efni, samsetning, gerð, eig- inleika, áhrif eða verðlag. b) auð- kenni, sem komið geta kaupandan- um til þess að halda það, áð allur sá mismunandi varningur, sem í verzlun er á boðstólum, stafi frá sama framleiðslustað(la.ndi), eða sé búinn til á sama hátt, þótt þessu sé ekki svo varið nema að sumu leyti.“ ' Þá þykir stjórn Neytendasamták- anna rétt að benda á 9. gr. laga nr. ■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiTiKuifFiminiiiiiiiiiiiiiiiiMiinnmiifUUirBS mvju? *®w&B&sua m &o. . UMBOOO- * HdkOVIRUun - NVIIIKiaTVII llMI ItlDI Ms.Reykjafoss íer frá Eeykjavik föstudaginn 29. þ. m. til Vestur- og Norðurlands: Viðkonuistaðii': Patreksfjörður ísafjörður Siglufjörður Akureyri Húsavík Vörumóttaka á miðvikudag og fimmtudag til hádegxs. Il.f. Eimskipafclag íslands. muuiuiiiiininBiHiuuiiuiiHDnuiiiiiiiiiiiiiiiii Húsgagnasalan tilkynnír Við viljum bsnda fólki utan af landi á, er það kemur í bæinn í verzlunarerindum, þá höfum við til sölu alls konar húsgögn á mjög lágu verði, og höfum einnig aðstöðu til að útvega alls konar notaða og vel með farna húsmuni, mjög ódýra. HÚSGAGNASALAN, Klapparstíg 17, sími 19557. Geymið auglýsinguna. Vélbáturinn Guðbjörg Th. 160 er til sölu — Fullnægir öllum nýtízku kröfum. Smíðaár 1957. Stærð 9 til 10 tonn. Búdda-diesel- vél. Atlas-dýptarmælir. Talstöð og gúmmíbjörgun- arbátur. Enfremur 30 þorskanet og 40 láðir. — Tilboðum sé skilað til blaðsins fyrir næsta laugar- dag 21. þ. m. eða væntanlegir kaupendur setji sig í samband við Jón Árnason, kaupfélagsstjóra, Raufarhöfn, sem gefur allar nánari upplýsingar. Allur réttur áskilinn. ------..---------------------------------------------.... —....................... >..w- Frá Íslenzk-ameríska félaginu í Reykjavík Leikritaflutningnum, sem átti að fara fram í kvöld (þriðjudag), verður að fresta þangað til annað kvöld, miðvikudag 18. marz kl. 8,30 e. h. 1 ameríska bókasafninu, Laugaveg 13. Þá verður flutt af hljómplötum leikritið „Our Town“ eftir Thornton Wilder með amerískum leikurum. i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.