Tíminn - 22.03.1959, Síða 3

Tíminn - 22.03.1959, Síða 3
/ T í iVI INN, sumimudaginn 22. marz 1959. N I RÆÐ: Þórunn Björnsdóttir frá Seli Austast i Grímsnesinu er fjallið Mosfell. Það lætur lítið yfir séi í fjarska, en er nær dregur ei það fagurt og vinalegt. Víða dreg ur það lyng og graábrekkur upi til efstu brúna. Efra er það vaxii mosabreiðum og grösúgum, smá dölum. Landgott «r fyrir fénað í f.lallinu og börnin viö fjallið elski berjabrekkiurnar. Góðbýliin eru hringsett um fjafiið. Á fyrstu tug um þessarar aldar var þar marg menni á hverjum -bæ. Hundgá oj hó, vinnuköll og hlátrasköll fr: þessum býlum bergmáluðu í fjall inu. Að austanverðu er fjallið af líðandi, þar undír er bærinn Sel Húsfreyjan frá Seli, Þórunn Björns dóttir, Baldursgötu 16, hér í bæ. er níræð í dag. Þórunn Bjömsdóttir er fædd að Helludal í Biskupstungum 22. marz 1869, dóttir hjónanna -þar, Margrétar Guðmundsdóttur og Björns Björnssonar. Þegar Þór- unn var þriggja kra, þá komin að Galtalæk í sömu. sveit, dó móðir hennar. Síðar giftist faðir hennar Herdísi Halldórsdóttur frá Mið- dalskoti i Laugardal, alsyslur Sig urðar á Brú í Grímsnesi. Með Mar gréti eignaðist Björn 4 syni og tvær dætur og með Herdisi 3 syni. Eftir sjö ára sambúð dó Her dís. Eftir það bjó Björn með ráðskonu, Þorbjörgu Þorsteins- dóttur, í 14 ár. Sum systkmanna dóu i bernsku, en hin ólust upp ssman. Þórunni ieið vel á ung- dómsárunum. Faðlir Jhennfjr viar dugnaðarbóndj og komst vel af, og hún átti þvt staka láni að fagna að bæði stjúpan og ráðs- konan voru henni og hin.um börn- unum mjög góðar. Þær voru báð- ar glaðlyndar og því oft kátt og skemmtiiegt í bænum. Þórunn lærði lestuf og nauð- synlegan trúarlærdóm til slaðfest- ingar, í þeirrar-tíðar anda, auk þess hagnýta handavinnu. Heim- \ iliskennari var á Galtalæk til að kenna drengjunum. Sá hafði mjög góða rithönd og lagði mikla á- • 'hcrzlu á skriftarkennsluna. Þór-| iinn var vel greind, fluglæs og hafði gaman af bó'kum. Hún leið af löngun eftLr að fá að læra að skrifa, en skriftarkennslan var henní alveg forboðin. ,.Það tjóaði lítið að í'ara að kenna telpunni að pára“, sagði fólkið. En morg- unljómi hins íslenzka kvenfrelsis roðaði kinnar ungu stúlkunnar á Caltaíæk, og húrt ákvað með sjáflri sér, að 'hún skyldi læra að skrifa, eins og strákarnir. Hún reyndi að fara ofan í skrift þeirra og tðkst að læra stafina. Var hún siskrifandi á hrímið á rúðunum, eða gvellalög, sem þunnur snjór lá á. Þegar kennarinn sá, hversiu Þórunn hafði af sjáifsdáðum náð leikní í að skrifa, sagði hann að það »mætti til að -gefa telpunni forskrift. Gaf haim Þórunni, um lcið og hann fór, tvær forskrift- arbækur, sem hún lærði mikið af. Á sóellinu æfði hún sig í að skrifd sendibréf. Þegar Þórunn var fulltíða stúlli^, dó faðir hennar. Réðst hún þá að Bræðratungu og var þar í eitt ár. Þar eignaðist hún sitt fyrsta barn, Guðrúnu Guð- jónsdóttur. í næstu fardögum réð- ist hún að Spóastöðum til ágætis- hjónímna Páls Guðmundssonar og Önnu Pálsdóur. Það var Þórunni engin ofraun að hafa litlu dótt- urina með sór. Þórunu var dug- leg og hraust, iáfið ekkert annað en gleði og starf, og lítla dóttirin jók yndi hvers einasta dags. Þar var á bænum ungur og efnilegur uppeldissonur, Kjartan Vigfússon, ættað'ur úr Þingeyjarsýslu. Þau Þórunn og Kjartan felldu hugi saman, giftu sig 1901 og settust að í Laugarási. Þar kunnu ungu hjónin vel við sig. Víðsýnið mikið og vellandi hverirnii- við túnfót- inn. í liveraholunum eldaði unga konari allan mat og var það búsí- lag gott, en ekki kunni hún vel við að nota hveravatnið í kaffið. í Laugarási fæddist þeim fyrsti LEIKHÚSMÁL sonurinn. í næstu fardögum urðu þau að fara frá Laugarási, því jörðin hafði verið seld fyrirvara- laust. Fengu þau þá byggingu fyrir hálfu Sclinu og fluttu á vesturpartinn, en Guðmundur Bjarnason og Ingveldur Eyjólfs- dóttir, fluttu á austurpartinn frá Bjarnastöðum. Þegar þessi tvenn, ungu hjón komu að Seli var bærinn kom- inn að hruni og ekki íveruhæfur. Byggðu þeir Kjartan og Guðmund ur tvíbýlisbæ, af eigin ramleik. "Voru baðstofurnar bjartar, rúm- góðar og vel viðaðar í hólf og gólf. Var það mikið framtak og atorka á fyrsta ári. .Bjuggu þessi tvenn hjón á Seli í tvíbýli þrjá og.hálfan áraug við barnalán, bú- sæld og fádæma gott samkomu- lag. Ilélzt gestrisnin og greiða stmin í hendur í vestur- og aust- urbænum. Á Seli kunnu þau, Þórunn og Kjaran, fljótt vel við sig. Þar er vítt land og fagurt; skiptist þar á þurrlendi og mýrargróðuir, gott fyrir allar skepnur og slægjur á túni og engjum kostaríkar. Ungu hjónin höfðu ákveðið að helga sveitabúskapnum krafta sína og gengu nú ótrauð til verks. Nóg voru verkefnin framundan: stækka búið, bæta hús og rækta. Á Seli fæddust þeim 3 synir. Öll voru börnin hraust, uxu vel úr grasi og það stækkaði færikvíarn- ar og jók búhaginn, er lítil am- boð voru borin út og bættust við í teiginn. Því var við brugöið, hve börnin voru dugleg og prúð. Kæmi það fyrir, eftir að morgun stundin kallaði þau til lærdöms eða starfs, að kvöldfegurðin á Seli tefði fyrir þeim að komast í háttinn, þurfti mamma þeirra ekki annað en fara fram í dyrn- ar og kalla: ,,Þið munið eftir morgundeginum“. Oft munu þessi orð, eftir að Þórunn var hætt að kalla inn börnin sín, hafa hljórn- oð í eyrum þeirra að kvöldi dags og gefið þeim íarsælan komandi dag. Eins og flestar sveitakoiiur átti Þórunn langan og strangan erfiðis dag, einkum meðan börnin voru lítil, en oft mun hún hafa stytt sér stund og létt sína lund með því að hafa skemmilega bók með í störfum, þegar hún gat því við komið. Einu sinni u.n háannatím- ann, er vinkona hennar úr Reykja vík heimsótti hana árla, morguns, er fólk myndi varla komið á fæt- ur, var baðstofan tóm, en hús- freyjuna fann hún í eldhúsinu. Stóð hún þar við smjörstrokkinn, hugði að smjörgerð og las jafn- framt í Ijóðabók, sem lá þar við hliðina á gómlum hlóðarsteini. Þórunn er einlæg trúkona og las húslesturinn á Seli og oftast í Vídaiínspostillu á sunnudögum. Sátu börnin hennar jafnan prúð- ur.dir ies'trinum, en þegar fór að vora fannst þeim Vídalín JUng- orður. Þegar kirkjuklukkurnar á Mosfelli kölluðu til tíða, sáust Þór unn og Kjartan ævinlega koma heim túnið með prúðbúinn barna- hópinn sinn. Oft vorum við systkinin send í vesturbæinn að Seli með umburð arbréf, óskilafé eða rákum önn- ur erindi foreldra okkar. Gest- risnin var alltaf söm við sig og húsfreyjan laðaði að sér alla, sem henni kynntust með góðvild sinni giaðværð og kímni. Árið 1937 flutti Guðmundur og fjölskylda :hans af austurpartin- um að Hömrum í Grímsnesi, og hjuggu þau Þórunn og Kjartan þá á allri jörðinni með börnum sínum, unz þau brugðu búi 1939. Tóku þá við búinu Árni og Björn,1 sem keyptu alla jörðina. Fáum ár- um síðar hætti Björn búskap og fiutti til Reykjavíkur. Nú hefir; hann sell Sveini sinn hluta jarð-! arinnar. Þórunn missti mann simi 1943 og hefir síðan dvalið alfarið hjá börnum sínum, Guðrúnu og Birni, í húsi þeirra, Baldursgötu 36. Börn Þórunnar eru fimm, sem fvrr getur, og eru þau eftir aldri: Guðrún Guðjónsdóttir, sem nær óslitið hefir dvalið með rnóður í sinni og vorVð henni stoð og stytta. Ólafur Kjartansson, að Seli, Björn Kjartansson, verkam. i Reykjavík, Árni Kjartansson, bóndi að Seli, tvígiftur, síðari kona Elinora, velmenntuð, þýzk kona af góðum ættum, og Sveinn bóndi að Seli. Þórunni hefir liðið vel síðan liún kom til borgarinnar og elsk- ar borgina sína. Hún kom með fullar ferðaskrínur, ckki af dýr- gripum eða gersemum, en fögru lífsstarfi í fagurri; sveit, og er yfir er iitið er erfiðið orðið að manndómis'sögu, sem hún hefir gaman af að blaða í á Baldurs- gölunni. Frá því að hún flutti til borgarinnar ‘hefir hún verið si- vinnandi, aðallega með prjónana siria, og þá gleymir hún ekki að iáta bókina liggja fyrir framan sig á borðinu. Margur ullarsokk- urinn og vettlingurinn hefir lagt leið sína austur yfir fjall að Seli og hlýjað sonum hennar við kul- söm vetrarstörf. Til mömmu á Baldursgötunni hafa þeh' oft hugsað með hlýja vettlinga á 'hönd unum, þegar ‘þorri hefir bitið í á leiðinni á beitarhúsin við Brú- ará. Þórunn er mjög helsugóð og les og vinnur gleraugnalaust og sjái hún í blaði eða tímariti vísu eða ljóð, sem ‘O'inhver lífsspeiki er í, skrifar hún það niður hjá sér, nreð sinni ágætu skrift, sem hún hefir engu þurft við að bæta síðan hún skrifaði á svellin að Galtalæk, Þórunn hefir alltaf verið einlæg trúkona og trúir á íramhaldslífið og óstudd labbar hún ennþá tii kirkju á sunnudög- um. Þórunn á Seli er níræð í dag. Iiún iítur yfir liðinn starfsdag og gleðst yfir því að ekki brást henni makavalið á Spóastöðum. Hjá börnum sínum á Baldursgötunni býr luin við ágætustu aðbúð, og ef vinir hennar dást að hennar glaða og unglega yfirbragði hefir hún svarið á vörunum: „Mér er gefið góð heilsa, rólyndi og glað- lyndi, og börnin hafa öll alltaf verið mér svo góð, þæg og dug- leg og eins er tengdadóttirin þýzka og barnabörnin mér svo góð.‘ Þá er það einnig gleði henn- ar í dag, að á Seli eru reist ris- mikil hús fyrir menn og skepnur, búsmalinn stór, og túnin þenja sig lit yfir móa og mýrar, og kart- öfluræktin ein sú mesta í upp- sveitumi Árnessýslu. Yfir bæ og hjörð að Seli blasir menning þjóð arinnar á þessum merkisdegi Þór- unnar. Við systkinin frá Mosfelli þökk um afmælisbarninu órofa tryggð við foreldra okkar og okkur frá fyrstu kynnum og óskum henni heilla og blessunar á ókomnum ævidögum. „Guð í hjarta guð í stafni* gefi henni nú, sem fyrr fararheill, er 'hún leggur upp á tíumfá áratug ævi sinnar. Gísli Gíslason írá Mosfelli. Eugéne Ionesco Ef ég ætti að nafna þá leikrita. höfunda, sem á undanförnum árum hafa ráðið ríkjum i frönskum til. raunaleikhúsum og öðrum fjörmikl um leikhúsum Parísar. koma mér fyrst í hug írinn Samuel Beckett, höfundur En attendant Godot, Belginn Michel de Ghelderode, höfundur Ecorial og fjölda ann- arra hér óþekktra leikrita. Kákas. íumaðurinn Arthur Adamov, höf- undur La Parodie, Tous contre Tous, Le Ping.Pong og nokkurra fleiri leikrita. Frakkinn Georges Schéhadé, en einkum þó rúmenski rithöíundurinn Eugéne Ionesco. Sá síðast taldi er fæddur í borginni Stlatina í Rúmeníu fyrir um það bil 48 árum. Ungur varð hann gagntekinn útþrá og löngun til að sjá meira af heiminum. Haon sett. ist að í heimsborginni miklu við Signubakka, en hún hefur löngum heillað þá, sem leitað hafa að vett- vangi til að koma á framfæri ný. stárlegum hugmyndum eða frum- legu tjáningarformi í listinni. Ionesco mun upphaflega hafa ætl. að sér að verða listmálari. Hann segir að það hafi valdið sér sárum kvölum að sækja leiksýningar og horfa á leikarana reyna að stæla manniífið með hinum raunsæja leikstíl sínum. Allt slíkt þótti hon. um fals eitt og sjónhverfingar. Hann forðaðist því leikhúsin það mest hann mátti, en svo varð óbeit hans á hinu hefðbundna leikformi að lokum svo mikil, að hann mátti til með að láta í ljós óbeit sína og í því skyni samdi hann háðleikinn La cantarice chauve (Sköllótta sýngmærin). Við þennan þátt gæti átt við undirtitill sá, sem hann lét fylgja einum af síðari þáttum sín- um, en hann hljóðar svo: „Auð. mjúk tilraun min til þess að eyði- leggja hinn forna leikstíl og mál.“ Það mun hala verið áxið 1950 að leikurinn var sýndur í Théatre des Noctambules, en í því leikhúsi hafa gerzt 'margir sögulegir leikvið. burðir, enda hafa fá tilraunaleik. hús komizt lengra i að hneyksla áhorfendur sína með djörfu vali viðfangsefna. Leikurinn vakti mikla athygli meðai Parísarbúa. Þeir þyrptust í leikhúsið og margir urðu til þess að skrifa langar og liáfleygar blaðagi'einar um höfundinn og verkið. En sagt er að Ionesco brosi að eins að þessum heilabrot. um og þegar hann er sjálfur spurð- ur, 'segist hann aðeins skrifa leik_ rit sjálfum sér til ánægju. Inesco hefur skrifað allmörg leikrit, en fæst þeirra hafa komizt á leiksvið. Leikir hans eru að vissu marki mjög leikrænir. Hann veitir leik. stjóra og leikendum óvenjulegt frjálsræði til að túlka verkin og slundum eru setningamar næát því að vera bending til leikstjórans. Það má ekki binda hugarfl-ug skáldsins með holdi og blóði leik. aranna, segir Ionesco, og það er fjarri því, að hann sé sá fyrsti, sem haldið hefur slíku á loft. Margar kenningar hafa komið fram á undanförnum áratugum í því skyni að brjóta reglur hins raunsæja drama og tilraunir hafa verið gerðar til þess að skapa ný form leikrita, og sennilega hefur engur núlifandi höfundi tekizt að komast jafn langt í þessum efnum eins og hinum lávaxna, sköllótta og dökkeygða Rúmena. í leiknum Les Chaises (Stól- arnir) eru til dæmis tvær persónur. Það er 95 ára maður og 94 ára •gömul kona hans. Aðrar persónur koma ekki fram á sviðið, en samt fá þessi gömlu hjón heimsókn margra annarra persóna, sem eru ósýnilegar leikhúsgestum. Við kynnumst þeim aðeins eftir þeim viðbrögðum, sem leikararnir tveir sýna. Af framkomu þeirra, viðmóti öllu og viðræðum við gestina, verða áhorfendur að dæma gest. ina. Bregðist leikurunum listin, er hætt við að kynnin verði bragð. dauf og fáum til ánægju. í öðrum leik sínum „Vietimes du devoir“ (Fórnardýr skyldunnar) lætur hann til dæmis eina persómina ganga í gegnum hljóðvegginn og síðan í gegnum annan vegg, sem, gerir hann ósýnilegan fyrir aðrar persónur leiðsins. í leiknum „Amé- dée“ eða „Comment s’en débarr. asser?“ (Hvernig er hægast að að losna við það?“ kynnumst við hjónum, sem í fjölda ára hafa ver. ið lokuð inni hjá líkinu af fyíra eiginmanni konunnar. Það eru Rð. in fimmtán ár frá því, að síðari eiginmaðurinn myrti hinn fyrri, og í hvert sinn og naf.n hins myrta er nefnt, vex líkið og að síðustu riim- ast það ekki lengur í herberginu. Hér er það hin slæma samvizka hjónanna, sem Ionesco lætur birt- ast á þennan óhugnanlega hátt. Stólarnir eru venjulega talinn bezti leikur höfundarins, en næst honum „La Lecon“ (Kennsiustundin) og (Framhald á 8. síðu). / ' - . * ) % . v, wmmm ,. ít/'VVív, ■ : y;

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.