Tíminn - 17.06.1959, Síða 6
6
TÍMINN, miðvikndagim 17 jiiní 1959.
Útgefandl: FRAMSÖKNARFLOKKURINK
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur í Edduhúsinu við Llndargðta
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18308, 18 304.
(skrifstofur, ritstjórnin og blaOamenn)
Auglýsingasími 19 523. • Afgreiðslan 12333
Frentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948
Sjálfstæðisbaráttan
í DAG eru liðin 15 ár frá
stofnun íslenzka lýðveldisins.
Með stofnun þess var náð
stórum áfanga í sjálfstæðis-
baráttu þjóðaðrinnar. Það
væri hins vegar rangt að á-
líta, að þar hafi nokkru loka
takmarki verið náð. Sjálf-
stæðisbaráttan heldur stöð-
ugt áfr.am. Það gildir ekki
sízt.um hana, að oft er erf-
iðara að gæta fengins fjár
en afla þess.
íslenzka þjóðin stendnr
lika í dag í erfiðri sjálf-
stæðisbaráttu. Hún er háð á
sviði efnahagsmálanna. Hún
er háð á sviði menningar-
•málanna. Hún er háð í sam-
bandi við hersetuna. Og al-
veg sérstaklega er hún háð
um þessar mundir í sam-
bandi við landhelgismálið.
í EFNAHAGSMÁLUNUM
er sjálfstæðisbaráttan öðru
fremur fólgin í því að nógu
kappsamlega sé unnið að því
að byggja landið og efla
framleiðsluna. Án þess skap-
ast -hér kyrrstaða, atvinnu-
leysi kemur til sögunnar,
lífskjörin fara versnandi og
aðrar þjóðir fara fram úr okk
ur. Þess vegna má þjóðin
ekki láta stjórnast af þeim
barlómsröddum, sem nú tala
um nauðsyn þess að dregið
sé úr framförum og fjárfest
ingu. Þvert á móti ber að
herða framfarasóknina og
vinna að eflingu framleiðsl-
unnar á öllum sviðum. Þjóð
in hefur sótt glæsilega fram
á öllum sviðum hina síðari
áratugi og sennilega bætt
lífskjör sín meira á þeim
tíma en nokkur önnur þjóð
vegna þess, að hún hefur
verið stórhuga og bjartsýn.
Þeim eiginleikum má hún
ekki glata.
ÞAÐ er sameiginlegur
grundvöllur fyrir efnahags-
legt 'og meningarlegt sjálf-
stæði þjóðarinnar, aö hún
byggi land sitt allt og byggi
það vel. Þannig varðveitir
hún bezt tengslin við sög
una og iandið, tengir bezt
saman forna og nýja menn-
ingu og hagnýtir bezt auðæfi
landsins. í þessum þætti sj álf
stæðisbaráttunnar stendur
nú yfir örlagaglíma. Ef öll
núv. kjördæmi, nema Reykja
vík, verða að velli lögð, hef
ur verið höggvið á fornhelg
tengsli við söguna og landið
og réttur landsbyggðarinn-
ar stórlega veiktur. Afleið-
ing .þess yrði samdráttur í
framförum landsbyggðarinn
ar, minnkandi framiag henn
ar 'til menningar þjóðarinn-
ar, lélegri nýting landsgæð-
anna og vaxandi ósamræmi
í byggð landsins. Þess vegna
verður þjóðin að hrinda þeim
hættulegu áformum, sem hér
eru á ferðinni.
Það er merkileg staðreynd,
að kjördæmabyltingarmenn
nota nú svipuð rök fyrir sam
einingu kjördæmanna og svo
kallaðir sambandsmenn not
uðu 1908 fyrir áframhald-
andi innlimun fslands í Dana
veldi. Þjóðin hafnaði þess-
um röksemdum 1908. Það er
jafn nauðsynlegt að hafna
þeim nú.
VEGNA uggvænlegs á-
stands í alþjóðamálum hefur
þjóðin leyft hér erlenda her-
setu um stund. Erlendri her
setu fylgja margar hættur,
og það alveg eins þótt her-
inn sé frá vinveittri þjóð.
Menn falla oft fyrir gullinu,
er fylgir hersetunni, og
sumt fólk freistast til ó-
heppilegs samneytis við
hina útlendu hermenn. Tak-
mark okkar hlýtur því að
vera það, að hersetan vari
ekki lengur en ýtrasta nauð
syn krefur, en meðan hún er
talin nausynleg, verði búið
svo um hnútana, að hún
verði ekki óeölilegur þáttur í
efnahagskerfi þjóðarinnar
og útilokuð séu öll óþörf sam
skipti við hina útlendu gesti.
ÖRLAGARÍKASTA sjálf-
stæðisbaráttan, sem þjóðin
heyir út á við um þessar
mundir, er landhelgisdeilan
við Breta. Þar stendur bar
áttan um sjálfan efnahags-
grundvöll þjóðarinnar. Raun
ar hefur þegar áunnizt þar
svo mikið, að fullvíst má
telja um algeran sigur á
landhelgisráðstefnunni, sem
haldin verður á næsta ári.
'Eina hættan er sú, að íslend
ingar bogni fyrir hinu brezka
ofbeldi og semji um afslátt
við Breta áður en ráðstefnán
er haldin eða meðan hún
stendur yfir. Meira glapræði
væri ekki hægt að hugsa sér.
Ef eitthvað væri slakað til
við Breta nú, myndi það
vera sama og að gefa þeim
litla fingurinn og missa alla
hendina á eftir. Með því
væri sýnt, að það borgaði sig
að beita íslendinga ofbeldi.
Sú íslenzk stjórn, sem slíkt
gæti leyft sér, væri til hvers
konar landráða líkleg.
Þótt sigurvænlega horfi í
þessu máli nú, er full ástæða
til að vera hér vel á veröi.
Að kosningum loknum munu
Bretar láta gera nýjar til-
raunir til að knýja okkur
til undanhalds. Þar mun
jöfnum höndum beitt blíð-
mælum og hótunum. Þá
skiptir höfuðmáli, að hvergi
verði látið undan síga. Þær
upplýsingar Gunnars Thor-
oddsen, sem birtar eru á
öðrum stað í blaðinu, gefa vel
til kynna, að ekki eru allir
staðfastir og öruggir í þeirri
viðureign.
SJÁLFstæðisbaráttan, sem
þjóðin heyir í dag, er þann-
ig háð á breiðum grundvelli.
En þessa dagana er það þýð
ingarmest að standa vel
vörð gegn landeyðingar-
stefnu kjördæmabyltingar-
innar fyrirhugúðu.
Það þarf að sjást við kjör-
borðin 28. júní að andinn frá
1908 er enn vel vakandi hjá
þjóðinni.
Valur Gíslason í FöSurnum.
Leikflokkur frá ÞjóSleiIdiásinu í
leikfor nm Áuslur- og Norðurland
Sýna „FöcSurinn“ eftir Áugust Srindberg
Það hefur verið venja á undan-1 ínn‘‘ efíir August Strmdberg og er
förnum árum að Þjóðleikhúsið ^'Lárus Pálsson leikstjóri. Þetta
sendi einhverja af heztu sýning-1 öndvegisverk Strindbergs hlaut
um súium út á land. Þessar sýn- mjög lofsamlega dóma ,er bað var
ingar hafa alltaf verið mjög vel | sýnt í Þjóðleikhúsinu og þótti ein
sóttar og fólk komið langar leiðir j listfengasta sýning, sem hér hef-
til að sjá sýningarnar. Sýnir það j ur sézt, og má í því sambandi geta
bezt að leikhúsaðsókn í hinum' þess, að Valur Gíslason hlaut
dreifðu byggðum landsins er Silfurlampann á síðastliðnu ári
mjög mikil.
Ilef jast á Austfjörðum.
Á síðastliðnu ári vannst ekki
fyrir leik sinn í titilhlutverkinu.
Auk Vals leika þessir leikarar í
,,Föðurnum“: Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir, Haraldur iBjörnsson, Jón
tími til að sýna nema á Norður- Aðils, Arndis Björnsdóttú, Krist-
landi og Vestfjörðum og verður björg Kjéld, Erlingur Gíslason og
því byrjað að sýna á Austurlandi
núna. Fyrst verður sýnt í 'Mána-
garði í Hornafirði, næstk. fimmtu
dag, svo Breiðdalsvík, Reyðar-
firði, Eskifirði, Norðfirði, Seýðis-
firði, Vopnafirði, Húsavik og end-
að á Akureyri 30. júní.
| „Faðiriim“ efíir Síriiulberg
I Leikritið, sem Þ.jóðleikhús'ið
sýnir að þessu sinni, er „Faðir-
Landsprófi lokið
í Reykjavík
Gagnfræðaskólanum við Vonar-
stræti var slitið 10. júní. í skól-
anum voru eins og undanfarin ár
eingöngu nemendur, sem bjuggu
sig undir landspróf miðskóla. —
Ástráður Sigursteindórsson skóla-
stjóri lýsti skólastarfinu og úr-
slitum prófsins. Prófinu hafa lok
ið 160 nemendur, en nokkrir eiga
enn eftir að ljúka prófi vegna
veikinda. Af þeim stóðust 151
■nemandi prófið og 109 nemendur
fengu framhaldseinkunn eða yfir
6,00 í landsprófsgreinum. Eru
það rúm 68% þeirra, sem próf-
inu hafa lokið.
Einkunnir skiptast að öðru leyti
þannig: I. ágætiseinkunn hlaut 1
nemandi, I. einkunn hlutu 36 nem
endur, II. einkunn 72 nemendur
og III. einkumi 42 nemendur: —
Þrír utanskólanemendur gengu
undir próf við skólann, en hefur
einn lokið prófinu og hlaut hann
framhaldseinkunn.
Hæstu einkunn í skólanum hlaut
Gísli H. Friðgeirsson I. ág. eink.
9.00. — Að lokum afhenti skóla-
stjóri bókaverðlaun fyrir góða
frammistöðu í prófinu svo og
hringjurum skólans og umsjónar
mönnum. Þá þakkaði hann kenn
urum og nemendum skólans á-
nægjulegt samstarf og árnaði
þeim heilla.
Klemenz Jónsson, en hann er einn
ig fararstjóri í þessari ferð.
Bílstjórinn fann
drenginn sinn
Eins og skýr-t var frá í blað-
inu á sunnudag, hafði leigubíl-
stjóri hér í bænum ekki haft
spurnir af syni sínum cg velti
því fyrir sér hvar hann mundi
niðurkominn. Bílstj. leit inn til
blaðsins í gær og skýrði þá frá
því, að hann hefði fer.gið upplýs-
ingar um, að drengurinn væri nú
norður í Skagafirði. Þá vildi bíl-
stjórinn koma á framfæri leið-
, róttingum við fréttina í blaðinu
' á sunnudaginn. Sagði hann að
í móðir drengsins hefði farið • ein
norður til að sækja drenginn. Þá
: sagði hann að það hefði verið
yngri drengurinn, sem hann hefði
komið fyrir hjá bróður sínum.
Björgunar-
beltið
íhaldið stynur þungan —
stærsta vandamál þess er
„kjörsonurinn“ — Alþýðuflokk-
urinn. — Abraham ætlaði að
fórna syni sínum, ísak, guði
til dýrðar. — íhaldið verður.
að fórna, en ekkert kjördæmi
vill kasta út bjarghringnum.
í upphafi voru fjögur kjör-
dæmi valin til að varðveita að_
stoðina: Reykjavík, Hafnar-
fjörður, Siglufjörður og Seyð-
isfjör'ður. Ólafur vill fórna
Reykjavík, en Bjarni segir nei.
Báðir vilja fórna flafnar-
firði, en Hafnfirðingar segja
nei.
Siglfirðingar neita að kjósa
Áka.
Þá er síðasti möguleikinn,
hin gamla höfuðborg Austur-
Iands. Þegar Jónas hafði lesið
úr rúnum pýramidans, sá'hann,
að Alþýðuflokkurinn átti þar
áðeins 17 atkvæði, en ílialdið
80. — Nú er sú hugmynd uppi,
að Jónas skuli gleypa hvalinn
— þ. e. íhaldið dragi sig til
baka á síðustu stundu og af-
hendi honum lið sitt. —
Kartagó skal sem sagt unniu
hvað sem það kostar.
Mikil hátíðahöld í Stokkhólmi á
150 ára afmæli stjórnarskrárinnar
í síðastl. mánuði voru 150 og nokkrum fleiri gestum til mið
ár liðin síðan stjórnarskrá degisverðar í höll ríkisarfans.
Svía frá árinu 1809 var sett. forscti anfarr,c’!r cieilciar sænskn
r , . ,., , , , . þmgsins, Patrik Svenson, bauð
Á þessan stjornarskia hafa gesti velkomna. Af gestum talaði
síðan verið gerðar ýmsar fyrstur K.A. Fagerholm, forseti
breytingar, en hiin er enn í finnska þingsins. Þá flutti Jóhann
gildi að meginstofni til. Þessi
stjórnarskrá er nú elzta rituð
stjórnarskrá 1 Evrópu og tal-
ið er, að í öllum heiminum
sé aðeins ein stjórnarskrá
eldri, þ. e. stjórnarskrá
Bandaríkja Norður-Ameríku.
Svíar minntust þessa 150 ára
afmælis grundvallarlaganna með
hátí'5 í Stokkhólmi 30. f. m.
Sænska ríkisþingið bauð for-
seta isameinaðs Alþingis ásamt
þremur fulltrúum þingsins að
sækja þessa hátíð. Ákveðið var,
að þessir fulltrúar tækju boðinu
af hálfu þingsins:
Jóhann Þ. Jósefsson aldursfor
seti í stað Jóns Pálmasonar, Al-
freð Gíslason 2. varaforseti Ed. og
Friðjón Sigurösson skrifstofustj.
Alþingis.
Hátíðin hófst með hátiðlegri
athöfn í konungshöllinni í Stokk
hólmi kl. 10,30 árdegis. Alls voru
gestir þar um 850, þar á meðal
ambassador íslands í Stokkhólmi
og fulltrúar Alþingis. Ræður
fluttu John Bergvall, forseti
fyrstu deildar sænska þingsins,
Tage Erlander forsætisráðherra,
og Gustaf Adolf konungur.
Forsetar sænska þingsins buðu
fulltrúum norrænu þinganna,
sendiherrum Norðurlandaríkjanna
Þ. Jósefsson ávarp Alþingis Is-
lendinga til sænska þingsins. Jafn
framt afhenti hann sænska þing
inu málverk eftir Jóhannes S.
Kjarval :sem gjöf frá Alþingi. Síð
an töluðu N. Hönsvald, vara-
forseti norska stórþingsins og G.
Pedersen forseti danska þjóðþings
ins. Að lokum talaði John Berg-
vall. Þakkaði hann sérstaklega
málverkið og gat þess, að því
mundi verða valinn virðulegur
‘Staður í ríkisþinghúsinu.
U-m kvöldið höfðu konungshjón
in boð inni fyrir um 850 gesti 1
■konungshöllinni Drottningholm,
og var amhassador íslands og full
trúum íslands einnig boðið þang
að.
Fulltrúar Alþingis nutu ágætr
ar fyrirgreiðslu Magnúsar V.
Magnússonar ambassadors íslands
í Stokkhólmi og frábærrar gest-
risni sendiherrabjónanna-
MIG-ÞOTUR með rauðu stjörnu-
merki, réðust í gær á bandaríska
flotaflugvél á alþjóðlegri flug-
leið undan Kóreuströnd. Ekki
vita Bandaríkjamenn, hverjLr eru
eigendur árásarflugvélanna. Flug
vélin komst nauðulega til flug-
hafnar.