Tíminn - 26.08.1959, Page 2
o
TÍMINN, ír.iðvikuclagiun 26. ágúst 1959.
ta af Jóni Arasyni
júpuð að Munkaþverá
í leit atS friíi
(Framhald af 1. síðu)
að leggja til að landræma skyldi
■tengja V-iBerlín við V-Þýzkaland,
en vesturveldin í staðin að fara
•brott með hernámslið sitt úr borg
inni.
Nokkur skip fengu
góð köst í gærmorgun
Á sunnudaginn var afhjúp-
‘ð minnismerki' um Jón Ara-
on biskup að Munkaþverá í
Syjafirði, á rústum hins forna
-'laustúrs, þar sem Jón Ara-
-on lærði forðum til prests.
vfinnismerkið er líkneskja,
-teypt í brons, eftir Guð-
nund Einarsson frá Miðdal:
Ails er þessi minnisvarði upp
tndir fjóra metra á hæð með
stöplinum, sem er haglega
Tiaðmn af grjóti. Fjölmenni
/ár viðst.att athöfnina.
Fyrir 10 árum hófust Eyfirðing-
.r handa um að heiðra minningu
Tóns’Arasonar biskups. Frumkvæg
ð átti Guðmundur Jónsson garð-
•rkjamáður, sem nú dvelur á heim
Ji aldraðra á Blönduósi. Ákveðið
a,. að gera minningarlund að
Grýtu á æskustöðvum hans og
.íkyldi hann bera nafn hans. Ekkj-
tn Rósa Jónasdóttir að Grýtu gaf
/anri undir lundinn ásamt' myndar-
Legri peningagjöf til minningar
tim uiann sinn, Jón Þorleifsson,
■ 'yrruni bónda þar. Hinn nýstofn-.
iiði.i'élagsskapur, sem um málefni
úetta.mynadðist, plantaði svo trjá-
i'róðrr í lundinn í sjálfboðavinnu.
Stjórn hans skipuðu, auk Guð-
nundar, séra Benjamín Kristjáns-
;on, Garðar Halldórsson, oddviti,
itifkelsstöðum, Guðmundur Sigur-
geirsson bóndi, Klauf, og Gunnfríð
.ir Bjarnadóttir húsfrú, Björk.
í rústum klaustursins.
Næsti áfangi var svo minnis-
' uiérki, er setja átti í liHtdinn. Það
/érði listamaðurinn Guðmundur
Éinarsson frá iMiðdal. Er það
Steypt í brons. Ákveðið var, að þag
yrði sett á rústir hins forna klaust
■:irs að Munkaþverá. Þar st'endur
>að á haglega hlöðnum stöpli, fram
ah við bæinn og sunnan við kirkju
Larðinn.
" Á sunnudaginn var minnismerk-
'ð afhjúpað með viðhöfn, að við-
atöddu 'fjölmenni, að aflokinni há-
/íðaguðsþjónustu. Við þá messu-
• gj’örð þrédikaði séra Friðrik A.
' Friðriksson prófessor í Húsavík en
úérá Sigurður Stefánsson og séra
fPétur Sigurgeirsson þjónuðu fyrir
Jltari. Kirkjukórar safnaðarins og
'Ljögmannshlíðaröóknar sungu und
ír 'Stjórn Áskels Jónssonar.
100 manna vi.'Vstaddi?'.
Síðan var gengið að minnismerk
inu. Þar bauð form. minningar-
i undsnefndar gesti velkomna, en
síðan tók-u til máfe, séra Benjamín
iKris'tjánsson. séra Hákon Lofts-
:son og Garðar Halldórsson, hinn
kaþólski prestur Norðlendinga,
Páll Kolka héraðslæknir á Blöndu
■ási flufti kvæði, en frú Jónína
Björnsdóttir afhjúpaði minnis-
inerkið.
Öllum viðstöddum gestum, yfir
300 manns var nú boðið til kaffi-
Stytta Jóns Arasonar a3 Munkaþverá
drykkju að Freyvangi og var ekið
þangað og veitinga kvenfélaga og
ungmennafélaga sveitarinnar not-
ið. Hófinu stjórnaði Garðar Hall-
dórsson. Þar tóku til máls, Guð-
mundur Jónsson, Garðar Halldórs
son og Ketill Indriðason, sem
fiutti frumort Ijóð. — Þórarinn
Björnsson skólameistari þakkaði
fyrir hönd boðsgesta. Flestir prest
ar í Norðlendingafjórðungi voru
viðstaddi,. athöfn þessa og margir
hempuklæddir.
E.D.
Verra en 1955
Framhald af 12. síðu).
fannaceutiske Hojskole og þar er
námið þrjú ár til kandidatsprófs,
eðá alls fimm ár.
Fj-rir miliigöngu Apótekarafé-
lags íslands og danska Apótekara
félágsins hafa tekizt samningar við
Lyfjafræði háskólann í Kaup-
mannahöfn (Danmarks farmaceut
iske Hojskole) um að nemendur
sem stunda vilja nám í lyfjafræði,
.geti stundað undirbúningsnámið
hér heima fyrra árið, en á dönsku
apóteki síðara árið. Að því loknu
taka nemendur próf inn á lyfja
fræði háskólann og l.iúka þar kand
idatsprófi á þrem árum svo sem
íyrr er sagt.
Er þessu námi því ha.gað á
sama hátt og í Danmörku. Lang
flestir ísienzkir lyfjafræðingar
hafa lokið cand. pharm. prófi frá
Lyfjafræði háskólanum í Kaup-
mannahöfn, sem telj.a má einn
bezta lyfjafræði háskóla í Evrópu.
Hjálp til fátækra þjóða.
Þá kvaðst Eisenhower í för
sinni til Evrópu myndu ræða það
við bandamenn sína, hvaða ráð
stafanír frjálsar þjóðir gætu gert,
hver einstök eða sameiginlega, til
þess að veita fátækum þjóðum að
.toð til að byggja upp efnahags
iíf sitt. Hér væri mikið verk að
vinna. Milljarðar manna í lítt þró
uðum löndum Asíu og Afríku
lifðu við bág kjör og bæri brýna
nauðsyn til að rétta þeim hjálpar
hönd.
Bandaríkin í klípu
r ramnaiQ ai 12. *iOu?
dregizt á langinn í Alsír og vildi
eindregið vinna að friðsamlegri
lausn.
Sannleikurinn er sá, að Banda-
ríkjastjórn er í verstu klípu
vegna málsins. Þess er skemmst
að minnast, að 15 öldungadeild-
arþingmenn kröfðust þess í yfir-
lýsingu, að stjórnin styddi ákveð
ig málstað Serkja á komandi alls
herjarþingi S.þ. Á málstaður
þeirra miklu fylgi að fagna meðal
rá’ðamanna vestra.
Hins vegar er þetta eitt viðkvæm
asta mál Frakka og þeir hót'a öllu
illu ,ef bandamenn þeirra istyðja
þá ekki í gegnum þykkt og þunnt
í deilunni. Þykir þeim sú lið-
veizla raunar hafa verig slæleg
og tvíbent undanfarið. Mál þetta
verður vafalaust' eitt helzta um-
ræðuefni þeirra de Gaulle og
Eisenhowers er þeir hittasf iseinna
í vikunni og mun reynast þeim
óþægilegt, ef að líkum lætur.
Danirog Norðmenn
tí'ramhald af 1. siðuj
legt sjálfstæði landsins, segir
blaðið. 'Bæði skynsemi og siðferði
er íslands megin í þessu máli.
Ekstrabladet vísar til þeirra um-
mæla hins mikilvirta brezka blaðs
Economist á dögunum, ag hinn
konunglegi brezki floti sé hér að
aðgerðum sem engum kæmi til
hugar að beita gegn fjölmennari
þjóð en 165 þúsund manna smá-
þjóð. 'Kveðst blaðið vera sömu
skoðunar og bendir á 12 mílna
landhelgi Sovétríkjanna til saman
burðar.
Stuðningur innan Nato
Að lokiim segir Ekstrabladet', að
■sá istuðningur ;sem Danmörk og
Noregur hafi veitt íslandi í málinu
sé lítill sem enginn. Það er ekki
nóg að horfa til rausnarlundar
Breta, jafnvel hin heztu stórveldi
sýna sjaldan meiri rausn en þeim
verður þr'öúgvað til. ísland er eins
og Bretland aðili að Atlantshafs-
bandalaginu, og innan þess gætu
bæði Danmörk og Noregur beitt'
áhrifum sínum til stuðnings þjóð,
sem vér erum náskyldir bæði sögu
lega og menningarlega. -
— Aðils.
UAPPDRÆTTI FlAHSÓIíNAÍÍJrLOK'KSINS
FRÍKIRK'JUVÍQI 7. RVK.
SÍMI 24714
'Umboðsmenn í Snæfetlsnes- og Hnappadalssýslu:
Kolbeinsstaðahreppur: Sveinbjörn Jónsson, Snorrastöðum
Eyjahreppur: Guðmundur Guðniundsson, Dalsmynni
Miklaholtshreppur: Einar Guðbjartsson, Vegamótum
Staðarsvelt: Kristján Guðbjartsson, Hólkoti
Breiðuvíkurhreppur: Jón Sigmundsson, Syðri-Tungu
Hellisandur: Matliías Pétursson, kaupfélagsstjóri
Ólafsvík: Stefán Kristjánsson, verkstjóri
Fróðarhreppur: Þorgils Þorgilsson, Þorgilsstöðum
Eyrarsveit: Pétur Sigurðsson, útibússtjóri Grafarnesi
Síykkishólmur: Gunnar Jónatansson, ráðunautur
Helgafellssveit: Guðmundur Guðjónsson, Sauruin
Skógarstrandarhreppur: Jón B. Jónsson, Langadal
í happdrætti Framsóknarflokksins eru 100 úrvals-
vinningar, þar á meðal tveggja herbergja fokheld Ibúð
á Laugarásnum f Reykjavík.
Kaupið miða hjá næsta umboðsmanni.
Friírik
framnald af l. sfðuj
hefur komizt í. Eins og kunnugt
er tryggði hann sér þátttöku í
kandídatamótinu, úrslitamótinu
um réttinn til þess að skora á
heimsmeisiarann, með frábærum
, árangri á mótinu í fyrra.
Fjórföid umferð
' Á þessu úrslitamót'i ganga átta
skákmenn til leiks, kannske át'ta
sterkustu skákmenn heimsins í
dag. Þeir tefla f jórar umferðir, eða
alls 28 skákir. Fjórt'án fyrstu skák
irnar, eða ivær umferðir, verða
tefldar í Bled, en síðan verður hlé,
og rnótið verður flutt til annars
staðar í Júgóslavíu.
íslendingar munu fylgjast með
Friðrik á móti þe'ssu sem einn
maður og áreiðanlega fylgja lion-
um liugheilar óskir allra um gott
gemgi í þessari mestu raun, sem
liann hefur komizt í til þessa.
6Ö—70 skip enn á mitiunum fyrir austan
Síldin er nú óðuin að hverfa,
og' skipin lialda lieim hvert á
eftir öðru. Þó munu um 60—
70 skip vera fyrir austan ennþá.
Reytingsafli var á síldarmiðun-
um austanlands í fyrrinótt og:
gærmorgun, aðallega 30—40 míl-
ur út af Norðfjarðarhorni. Nokk
ur skip fengu þar allgóð köst,
mun Snæfell hafa fengið hvað
mest, eða 1000 mál. ÁskeU og
Keilir fengu sín 800 málin hvor.
Mörg skipanna koma við á
Raufarhöfn á suðurleið og taka
beitusíld til Faxaflóahafna.
Bretar hyggjast
kæra N-Vietnam
Eisenhðwer og MacSVSillan munn ræða ástandið
í Laos —
NTB—London 21. ágúst. —
Bretar munu ef til vill kæra
Norður-Vietnam fyrir óbeina
nrás, ef ástandið í Laos versn-
ar og Sameinuðu þjóðirnar
neyðast til að grípa í taum-
ana.
Þetta er haft eftir sæmilega á-
leiðanlegum heimildum í London
í dag, en samtímis var það til-
kynnt, að málið yrði án efa rætt
0 væntanlegum fundum Macmill-
ans og Eiser.howers forseta í lok
mánaðarins.
Þá er það liaft eftir fróðum
mönnum í höfuðstað Englands, að
trúlegt sé að Sovétríkin hafi jafn-
óðum fengið vitneskju um fyrir-
stlanir brezku stjórnarinnar i
þessu máli, en þeir voru ásamt
Bretum í forsæti á ráðstefnunni
um Indókína. sem haldin var í
Genf 1954. Brezka stjórnin er
sögð hafa fengið gnægð sannana
fyrir því, að Norður-Vietnam
hafi gerzt sekt um óbeina árás á
Laos.
Loffleiðir nota sætin
Nýlega hefur borizt skýrsla
um fai'þegaflug yfir Norður-
Atlantshaf árið 1958, þar sem
gerður er samanburður á
flutningum þeirra félaga, sem
halda uppi föstum áætlunar-
ferðum á þeirri leið.
Hér er um að ræða 15 flugfé-
lög víðs vegar að, þar af er eitt
íslenzkt, Loftleiðir. Hundraðs-
hluti Loftleiða var að vísu ekki
áberandi, eða 1,94% af fluttum
farþegum á þessari leið, 1,63%
af boðnum sætum og 0,97% a£
förnum flugferðum. En það ter
hins vegar athyglisvert, að sæta-
nýting Loftleiða er langmest, eða
71,96%. Það flugfélag. sem næst
kemst, er BOAC, með 68,12%
sætanýtingu
Fjögur félög af þessum 15 eru
lægri en Loftleiðir að öllu leyti,
það eru E1 Al, Ibena, Irish og
Quantas.
Patterson og Inge Drengjameistara
mar berjast aftur
NTB—Stokkhóimi, 25. ág.
Ingemar Jchansson heims-
meistarinn í þungavigt og
Patterson fyrrverandi meist-
ari hittast aftur í hringnum
í marzbyrjun 1960.
Sem kunnugt er sigraði Svíinn
Bandaríkjamanninn Patterson í
New York í vor og kom sá sigur
mönnum á óvart, einkum veiS'tra.
Að venju á fyrrverandi heims-
meistari rétt á því að skora á
heimsmeistarann til einvígis aft'-
ur og það hefur hann þegar gert.
Hafa staðið yfir samningar um
bardaga þeirra og er þeim lokið.
Verður einvígið liáð í Los'Angeles.
Nálgast höfuð-
borgina í Laos
LUNDÚNUM, 25. ágúst. — Iler-
sveitir kommúnista . Laos sækja
f? am og virðast komnar í nánd
við liöfuðborg ríkisins.
Fregnir eru þó mjög óljósar,
enda gefur ríkisstjórnin lítið upp
um hernaðarstöðuna í landinu. í
sumum fregnum er því haldið
fram, að hersvéitir uppreisnar-
manna séu aðeins um 40 km. frá
höfúðbörginni. Stjórnmálamenn á
vestui'löndum eru mjög áhyggju-
fullir yfir gangi mála í Laos og
sums staðar hafa heyrzt raddir
um, að atburðir þar eystra kunni
að leiða t'il þess að heimsókn
Krustjoffs til Bandaríkjanna farizt
‘fyrir.
mótíStykkish.
Drengjameistaramót íslands í
frjálsum íþróttum fer fram í ná
grenni Stykkishólms, sunnudaginn
6. september n. k. Þátttaka er
heimil öllum drengjum innan vé
banda ÍSÍ, sem fæddir eru 1943
og síðar. Keppt verður í þessurn
greinum:
80, 200, 800 m. hlaupi, 80 m.
grindahlaupi, 4x100 m. boðhlaupi
hástökki, langstökki stangar-
stökki, kúluvarpi og kringlukasti.
Þátttöku skal tilkynna fram-
kvæmdastjóra mótsins Sigurði
Helgasyni í síðasta lagi miðviku
daginn 2. september. Keppendum
verður séð fyrir fæði og gistingu
meðan á mótinu stendur og verð
ur að panta það um leið og þátt
taka er tilkynnt. Áætlunarferðir
eru frá Reykjavík til Stykkis-
hólms 5. sept kl. 1 og frá Stykkis-
hólmi 7. sept. kl. 1.
- Gengið verður frá timaseðli móts
ins laugardaginn 5. sept kl. 9 síð
degis, og þuría þá fyrirliðar að
vera mættir.
Fundur og samkoma
í V-Hún.
Aðalfundur Framsóknarfélags
V-Húnvetninga verður í sam-
komuhúsinu á Laugabökkunj
sunnudaginn 30. ágúst kL 4 síð-
degis. Skemmtisamkoma verður
á sama stað um kvöldið. Nánar
síðar.