Tíminn - 23.09.1959, Síða 7

Tíminn - 23.09.1959, Síða 7
TÍMINN, miðvikudaginn 23. sept 1959. B Fréttabréf til Tímans frá Hvammstanga, 19. sept. 1959. Ekki er hægt annað að segja, en að vel hafi vorað hér í sýslu. Sum- arhlýindin komu um sumarmál, og mátti heita samfelld hlýindi fram í byrjun júnímánaðar. Þá gerði kuldakast í nokkra daga, en að- faranótt 17. júní kólnaði skyndi- lega í veðri og gerði töluverða hríð um nóttina, svo snjó festi um all'a jörð. Mest mun snjókoman hafa verið við Vatnsnesfjall. Fennti fé sums staðar, og urðu af því nokkrir fjárskaðar, enda var búið að sleppa sauðfé fyrir löngu, og hafði sauð- burður igengið yfírleitt ágætlega um vorið. í þessu sama veðri urðu miklar skemmdir á síma- og raflín- um. Á Hrútafjarðarhálsi brotnuðu um 20 símastaurar, svo erfitt var með símasamband milli umdæmis- stöðvarinnar í Hrútafirði og norð- ur um allt land. Rafmagnslínur slitnuðu niður á nokkrum stöðum, svo vestursýslubúar voru rafmagns- lausir á þjóðhátíðardaginn. Mikill heyfengur. Grasspretta varð ágæt í sumar og nýting fyrstu heyja góð. En með byrjun ágúst-mánaðar og fram um viku af þessum mánuði, mátti heita að væri næstum samfelldur vot- viðrakafli, svo allmikið af heyfeng bænda hraktist og varð illa verk- aður en mun samt hafa orðið all- mikill að vöxtum. Garðrækt er frek- ar lítið stunduð hér í sýslu, en garð ávextir munu hafa náð sæmilegum þroska. Vegabætur. Nokkuð hefur verið unnið að samgöngubótum í sý'slunni, bæði við viðhald og nýbyggingar vega. Byggð var brú í Vesturárdal og í ráði mun vera að byggja aðra í Vesturhópi yfir Reyðarlæk skammt frá Urðarbaki. Fyrir nokkrum ár- um var lokið við að gera akfær- an veg umhverfis Vátnshes: Hefur Séð til Hvammstanga Mjólkurstöð, bamaskóli og sjúkra- heimili í byggingu á Hvammstanga * Islenzk stúlka hlýtur verðlaun danskra gagn- rýnenda Khöfn 21 sept. — Samtök tónlistargagnrýnenaa uthlut- uðu 1 gær listverölaunum til klarinettleikarans Elísabetar Sigurðsson og söngvarans Ib Hansens. Verðlaunaafhendingin fór fram á tsunnudagshljómleikum i Ráðhús inu í Kaupmannahöfn, þar sem Ib Hansen og Elísabet komu fram. El,tabet lék einleik i klarinett- konsert Mozarts og var leik henn ar tekið með mikilli hrifningu. Elísabet er dóttir Haraldar Sig- urðssonar píanóleikara, sem er prófessor við Konunglega Tón- listarskólann í Kaupmannahöfn. Aðils. það aukizt síðustu árin, að ferða- fólk legði leið sína kringum Vatns- nes, enda fagurt útsýni í björtuj veðri að sjá norður yfir Húnaflóaj og líta Strandafjöll í vestri en Skagastrandarfjöfl til austurs. Töluvert hefur verið um bygg- ! ingaframkvæmdir í sýslunni. Byrj- að var á byggingu tveggja íbúðar- húsa í sveitum, auk þess sem nokkr ir bændur hafa byggt gripaluis og heygeymslur. Einnig er Búnaðar- samband sýslunnar að byggja véla- geymslu að Laugarbakka. Byggingar á Hvammstanga. Á Hvammstanga er senn að verða lokið við byggin.gu mjólkur- vinnslustöðvarinnar. En eins og áður hefur verið skýrt frá, tók stöðin til starfa snemma í júlímán-! uði. Líka er kaupfélagið að láta vinna við byggingu verzlunar og skrifstofuhúss. Standa vonir til, að það verði fulltilbúið um miðjan vetur. Byggingu sjúkra- og elli- heimilisins er nú mjög langt kom- ið, og verður hún væntanlega til- búin til afnota í vetur. Þá er hafin bygging á barnaskóla. Er ráð gert að ganga frá grunni og kjallara á þessu ári. Ekki hefur fiskazt hér frekar en undan farin ár. Þó varð vart lítils- háttar fiskgöngu inn á Miðfjörð, fyrir fáum dögum, en það varaði aðeins fáa daga. Svo virðist sem fiskur komi ekki á innanverðan Húnaflóa. Slátrun sauðfjár er nú byrjuð hjá Kaupfélaginu. Gizka menn á að kjötþungi dilka verði tæplega meiri en í fyrra. Á. Nýtt togskip kom- ið til Hðlmavíkur Á fimmtudaginn var kom til Hólmavíkur nýtt togskip, 250 lestir að stærð. Er það eitt hinna 12 togskipa sem smíðuð eru í Austur-Þýzka- landi fyrir íslendinga. Skip- inu, sem nefnist Steingrímur Trölli, var vel fagnað bæði á Ilólmavík og Drangsnesi, en Fjölsóttar skemmtanir á Akureyri og Húsavík | Framsóknarmenn í Eyja- firði héldu skemmtisamkomu í Hótel KF.A á Akureyri á laugardagskvöldið. Ingvar Gíslason, lögfræðingur, setti samkomuna en ræðumaður j kvöldsins var Karl Kristjáns- I son, alþingismaður. neskir tónar Um sama leyti og farfglarnir hætta sumarsöng sínum og búast til ferða suður í heim, koma nýir tónlistarflytjendur tii að leysa hina af hólmi. Þeirra á meðal eru 6 tékkneskir tónlistarménn, sem héldu tvenna íónleika á vegum tónlistarfélagsins í siðustu viku. Þetta eru neniendur frá Tónlistár- skólanum í Praha, en hánn hefur um langa tíð verið öndvegisstofn- un í sinni mennt. Á efriisskránni var eingögu tékknesk tónlist éftir 6 höfunda, þeirra á meðal Smet- ana og Dvorák, en flytjendurnir voru klarineltleikari, fiðluleikari, píanóleikari, tveir sóngvarar . og undirleikari. Öll skiluðu þau verk- efnum sínum mjög vel, ekki sízt þegar þess er gætt, að þetta fólk er enn ungt að árum, hins vegar voru viðfangsefnin þannig, að tæp ast var hægt að gera sér fulla grein fyrir, hve langt hæfileikar þeirra náðu, en vissulega gáfu þau hin fegurstu fyrirheit, sérstaklega ber að nefna fiöluleikarann Petr Vanek. Vald hans á hljóðfærinu og túlkun hans ú viðfangsefnunum \ar svo stórkostleg, að þeir, sem ekki sáu, hefðu áreiðanlega látið segja sér tvisvar, áður en þeir trúðu, að þessi Paganini hefði enn ekki sbtið barnsskónum að fullu. — A. Spiluð var Framsóknarvist og Karl Guðmundsson leikari, skemmti. Fór samkoman fram mefí miklum ágætum. Á sunnu- dagskvöldið var haldin skemmti- samkoma Framsóknarmanna á Húsavík. Gisli Guðmundsson al- þingismaður og Ingvar Gíslason lögfræðingur, fluttu ræður. Sam komunni stjórnaði Karl Kristjáns son, alþ.m. Fjölmenni var. Rássar ágengir við Færeyinga Kaupmannahöfn, 21. sept. — Dönsk flotayfirvóld hafa sent freigátuna Thetis á síldanmöin um 250 sjómílur norður af Fær eyjum, eftir beiðni færeyskra fiskimanna, sem kvarta yfir, að rússnesk fiskiskip hindri veiðar þeirra. Færeyski floíinn, se?n telur um 60 skip, hefur átt í erfíðleik um við veiðarnar vegna ágengni rússneskra skipa á miðunum og hafa Rússarnir lagt beinar Tiindranir í veg fynr netavenf ar Færeyfnga. — Aðils. það' mun leggja upp afla sinn á þessum stöðum í framtíð- inni. Skipið kom til Hólmavíkur um miðjan dag á fimmtudag, en lagð ist að bryggju klukkan 6. Var þar allmikill mannsöfnuður fyrir, og fagnaði oddviti Hólmavíkur- hrepps, Hannes Sigurðsson, því með ræðu, en síðan var heima- mönnum boðið um borð að skoða skipið. Daginn eftir var siglt til Drangsness, og var þar einnig sam koma um borð. Steingrímur trölli er 250 lestir að stærð, smíðaður í Stralsund í Austur-Þýzkalandi, og sams konar að öllum búnaði og hin austur- þýzku togskip sem áður eru kom in til landsins. Eigandi skipsins er hlutafélagið Steingrímur, en helztu aðilar sem að því standa eru Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavíkurhreppur og Kaldrana neshreppur. Skipstjóri á Slein grími trölla er Guðmundur Hall dórsson frá Bæ í Steingrímsfirði. Unnið er nú að því að búa skip ið á veiðar, og fer það á veiðar í næstu viku. Ekki sigit tii Grænlands frá |>ví í júlí til febrúar Einkaskeyti frá Khöfn. Græn- landsmálaráð hefur lagt til aö ekki verði iialdið uppi sigling- um til Grænlands frá því í j júlí íil febrúar. i Ráðið fjallaði um tillögur Ved el-nefndarinnar, þar sem bornar eru fram ýmsar tillögur varðandi vetrarsiglingar til Grænlands. Ráð ið skoraði á Grænlandsmálaráð- herrann, að banna siglingar frá því í júlí til febrúarbyrjunar. Þeg ar siglingar hefjast í febrúar skuli þó farþegaflutningar þegar heim ilir. —AðiLs Blaðafrétt af bæjarstjórnarfimíli Það er sjálfsagt erfitt hlut- verk að vera blaðamaður á bæj arstjórnaríundi, þegar tíunda skal það dyggiiega, helzt méð fínni fyrirsögn, sem upp úr andstæðingi kynni að hrökkva og nota mætti flokknum til framdráttar, en þegja jafnframt um allt, sem andstæðingurinn hefði annars lagt til mála. Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur s. 1. fimmtudag sat ungur maður uppi á svöL- um í háu húsi við Skúlatún og kepptist við að skrifa, fallegi grein i Morgnblaðið, um þáð hversu vel 10—15 manna'riíeid hluta í bæjarstjórn Reykjávík- ur færist að ráða málefnún bæjarins. Hann vandaði sig syo mikið, að greinin birtist ekki fyrr en á laugardag. En hlutverki því trúr, setn honum var falið, gerðíi blaða- maður þessi mjög lítið úr þyí, sem ég sagði, þegar rætt var um útsvarsálagningu niðurj öro. unarnefndar Reykjavíkur, var andi þá nauðsyn, sem það væri fyrir allan almenning, að vita nánari deili á þeini regl- um, sém giltu hjá nefndinni um frádráttarbæra liði, svo að útsvarsgreiðendur gætu hagnýtt sér rétt sinn til framtals á 'slík um liðum, ef fyrir hendi væru. Þetta var aðalatriði þeirra orða, sem ég lét falla í málinu, þar sem það snerti alla útsvars greiðendur. ,, Hitt var smávægilegt aukaat- riði, að ég nefndi ómerkileg viðskipti mín við niðurjöfnupar nefnd, þegar ég gagnrýndi handahófsleg vinnubrögð riénn ar. En þarna fann blaðamádur- inn loks eitthvað fréttnæmt í máli mínu og semur í skyndi kafla í fréttagrein sinni, usm hann nefnir: Hún fékk lemiéíÞ ingu. Á „hún“ að bera liærra át- svar en Ólafur Thors? En þegar það er orðið rilaða- frétt hvernig niðurjöfnuiiar- nefnd tekur mér, ef ég urr á fund hennar, er bezt aö, skýra rétt frá fyrst blaðamanni i.Iorg- unblaðsins tókst það ekki. Gag- an er sú: Framtali mínu riafði verið breytt í skatfstóf.Lini. Ekki nægði það til þess aö riá?? yrði tekið til sérathiigu.iar, heldur möluðu vélar rriér út- svar af tekjum, sem þar vo.t. færðar, án minnar vituaúar og að eigin dómi ekki á ... im forsendum. Skattstofan tók til . .iiu munnlega athugasemd og breytti framtalinu efiir :ia kæru. Fulltrúi skattstjórn ibl- ur sennilegt, að niðurjöin vi r- nefnd fallist á að gera siikí í.ð sama og iagfæri augljósa viiiu. En vinnubrögð niðurjöi..uair- nefndar eru ekki alltax na einföld. Kurteis maður úr nefndinni hlýddi að vísa á :ál mitt, leit á lagfæringu . stofunnar á framtalinu oj aagði svo, að ég mætti senda rie m skriflega kæru. Það var uvo. Þetta var næstum það vriia, sem ég vissi, að ég haíöi í'trila heimild til að gera og heííii þvi ekki þurft að eyða dýrmætum tíma í biðröð til að heyra riað. En ég hélt í fávísi murai, að hér væri um að ræða einfilt mál, sem ekki þyrfti aö vyða meiri pappír til að útkljá. Og málin standa því svo, þrátt fyrir fyrirsögn Morgun- blaðsins, að „hún“ hefuv tuga leiðréttingu fengið. Það er ekki búið að skera úr því enn. Iivort ég eða Ólafur Thors skuii riera hærra utsvar. En li.aega myndu þeir fáir utan niðurjöfn- unarnefndar Reykjavikur. , ,:em teldu að efni hans og áðrisöur hefðu verið mínum lak.;>', ‘að sem af er ævi beggja. 19. sept. 1959. Valborg Bentsi.. ;«y.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.