Tíminn - 22.10.1959, Síða 3
T 1 M1 N N , fimmtudaginn 22. október 1959.
gtendur ^
r 5V.U »a n»“»\
L t ftbvggötr. >‘|
1 6fia a J
reistdr
i Feröai*
‘ ^eö \*'l
*■ hvar
raj^MMJirta L
vHR »'Uaí 81
í* "fjhirl.t' kol.
*Sjs\and sem^^y- I
érvitur skartkona sem gekk í ber-
högg við almenningsálit síns tíma
J*L.
Mae Vifest Hefur skrifað end-
urminningar sínar. Nefnast
þær Gcodness Had Nothing
To Do With !t. Titill bókarinn-
ar er skráður á saurblaðið, því
að á forsíðu er litmynd eða
glansmáfverk af fegurðardís-
inni í bióma lífsins, þar sem
hún kúrir í sæng sinni með
gullspegil í vinstri hönd. Hún
skoðar þar sinn mikla andlits-
farða ©g sína Ijósu lokka. Nátt-
kjóllirm hylur ekki nema hið
nauðsyrslegasta og það er
spegitl s loftinu.
Unga kynslóðin þekkir lítið til
hennar og margir á hennar aldri
þekkja hana ekki heldur. „Nú er
hún um það bil 65 ára. Á árunum
1925 tij 1940 var hún meðal hæst-
launuðu amerískra leikstjarna og
hafði taun, sem voru meiri en
tekjur William Randolph Hearsts,
og; var- umtöluð persóna á þeim
tíma. .
Sérvifyr skartkona
Mae West gekk í berhögg við
almenn'mgsálitið og hn’eykslaði
fólk í stórum s'tíl. Hún vissi ná-
kvæmléga hvað fólk vildi og millj-
ónir Englendinga og Baridaríkja-
manna' dáðúst að hugmyndaflugi
hennar, skörpum tilsvörum og
djörfum klæðaburði. Velgengni
sina átti hún bæði útliti sínu og
framkomu að þakka. Það er eng-
inn vafi að hún hefur skrifað bók-
ina sjáif. Hún skrifaði öll leikrit
og öll handrit kvikmynda, sem
hún lék í, söngtexta og fleira.
En sérvitur var hún, sýndi sig
helzt með fjórar fjaðrir á höttum
sinum og hrúgu af demöntum á
kjólum.
Slóst fyrir orðið
Hún skrifar á einum stað: ,,Það,
sem skiptir máli er ekki hvað þú
gerir, heldur hvernig þú gerir
það.“
Hún gerðist svo djörf, að setja
orðið „sex“ í titilinn á sínu fyrsta
leikriti og kom því í gegn að þar
var það látið standa, þótt blöðin
neituðu að taka auglýsingar henn-
ar með þessu voðalega orði. Þá
tók hún upp á því, að leigja fólk
til að bera auglýsingaspjöld um
göturnar og leikritið sló í gegn og
var sýnt 375 sinnum án blaðaaug-
lýsinga.
Hún hafði unnið sinn fyrsta sig-
ur. Á frumsýningu sátu foreldrar
hennar í stúku og voru stolt af
dóttur sinni. Faðirinn var fyrr-
verandi hnefaleikakappi og slags-
málahundur, John West. Hann var
af írskum og enskum ættum. Móð-
irin Mathilda var ættuð frá
Schwarzwald í Þýzkalandi.
Eiginmaðurinn vildi
skaðabætur
Árið 1921 var hún 17 ára gömul
og mátti ekki gifta sig samkvæmt
lögum Wisconsinríkis. Hún kynnt-
ist söngvaranum og dansaranum
Frank Wallace og lét sannfærast
af fortölum hans og gamallar
primadonnu sem s'agði: „Allir þess-
ir karlmenn, sem sveima í kring-
um þig. Þetta endar með skelf-
ir.gu — gifztu honum og haltu
sjálfsvirðingu þinni“. Hún skrökv-
aði að yfirvöldunum um aldur sinn
og bannaði Wallace að segja nokk-
urri manneskju að þau væru gift.
Þau bjuggu í sitt hvoru her-
ber-gi á hóleli fyrir listamenn.
■Við. fyrsta tækifæri, sem gafst,
losaði hún sig við hann. Það var
nokkrum vikum eftir brúðkaupið.
Þessi1 ima<ður kom fyrst fram í
dagsljósið nokkrum árum seinna,
þegar hann krafðist formlegs skiln-
aðar og einnar milljón dollara
skaðabóta.
I Ilún giftist aldrei aftur og neit-
aði að hafa verið nokkurn tíma
gift.
I Hún kynnti djarfasta dans þeirra
' tíma, Shimmy shawobble. Fyrir
þetta tiltæki var hún sektuð. Eitt
sinn átti hún að leika á móti hnefa-
leikakappanum Jack Dempsey.
Eitt sinn er mynda átti ástarsenu,
sagði hún við hinn sterka mann:
Heyrðu karl, ég brotna ekki í sund-
ur. Haltu fastar utan um mig.
Mae West ritar endurminningar sínar
Lék og hneykslaði
„Sex“ var hennar fyrsta leikrit, ■
sem sló í gegn. „The Drag“ var
næsta. Það fjallaði um vandamál
kynvillinga og var skrifað af mikl-
um skilningi á þeim málum. Það
hlaut mikla aðsókn i smáborgun-
um en það var aldrei sýnt í New
York, þar sem menn höfðu sagt
henni að það myndi æsa upp fólk-
ið í borginni. í staðinn lét hún
færa upp „Sex“ í endurbættri út-
gáfu, þar sem hún dansaði maga-
dans. Það vakti hneyksli og henni
var s'tefnt og hún dæmd í tíu daga
fangelsi eftir að lögregluþjónn
hafði borið eftirfarandi fyrir rétt-
inum:
„Ungfrú West hreyfði nafla sinn
upp og niður og frá hægri til
vinstri.“
„Sáuð þcr virkilega naflann á
henni?“ spurði dómarinn.
„Nei, en ég $á eitthvað í miðj-
unni hrevfast frá austri til vest-
urs.“
Skellihlátur glumdi í salnum, en
hún var dæmd í sekt og fangelsi
Hennar frægasta verk var „Dia-
mond Lil“, sem hún skrifaði fyrst
sem leikrit og síða/i sem kvik-
myndahandrit.
Sendiráðsmaður
sakaður um
njosnir
NTB—MOSKVU og WASHING-
TON, 19. okt. — Langelle, starfs
maður sá í bandaríska sendi-
ráðinu í Moskvu, sem vísaff hef
ur veriff úr landi, fór heim í dag.
Mál þetta hefur vakið stór-
kostlega athygli og jafnvel talið
geta haft mjög skaðleg áhrif á
fyrirhugaöar stjórnmálaviðræð-
ur æðstu manna. Rússar saka
Langelle, sem er yfirmaður ör-
yggisþjónustu í bandaríska
sendiráðinu, um njósnir. Hann
og Bandaríkjastjórn mótmæla
harðlega. Langelle var handtek
inn af óeinkennisklæddum mönn
um í Moskvu í gær, dreginn á
lögreglustöð og yfirheyrður
klukkustundum saman. Segir
Langelle, að sér hafi verið boðið
stórfé fyrir að taka að sér njósn
ir fyrir Rússa.
Damiy Kay
í Höfn
Mae West sem Diamond Lil í samnefndri kvikmynd áriS 1933.
Marilyn Monroe í kvikmyndinni „Enginn er fullkominn". Bak við hana
eru þelr Tony Curtis (með saxofoninn) og Jack Lemmon (með bassa).
Eitt stykki af nýreyktum ál,
eitt stykki af reyktum lax,
heimsókn í Tívoli og einn dag-
ur í ró og næði voru á dag-
skránni hjá Danny Kay, þeg-
ar hann kom til Kaupmanna-
hafnar.
Hann fékk þrjár óskir sínar upp-
fýlltar. Tvær á Sölleröd Kro þar
sem hann snæddi morgunmat með
umboðsmanni Paramount, J. Aar-
höj. Hin þriðja rættist á Hotel
d’Angleterre, þar sem hann lokaði
sig inni í herbergi sínu.
Þá fjórðu gat hann af góðum
og gildum ástæðum ekki fengið
uppfyllta, en varla hefur nokkur
maður nokurn tíma orðið svo leið-
ur yfir því, að koma til Kaup-
mannahafnar eftir að búið var að
loka Tivoli.
'Ilinn frægi grínleikari kvik-
myndanna kom til Kaupmanna-
hafnar frá Berlín, þar sem hann
söng inn ó plötu þýzku lögin úr
sinni síðustu mynd „Five Penny“.
Þar áður söng hann lögin á
frönsku í París.