Tíminn - 22.10.1959, Side 7
r í M I N N , fimmtudagimi 22. október 1959.
2
Listi Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi
BoSorS Hitlers
og Bjarni
Óli S. Jónsson Jón Pálmason
Jén Skaf tason áþing
í Reykjaneskjördæmi
Tíminn birtir í dag framboðslista Framsóknarflokksins
í Reykjaneskjördæmi og myndir af frambjóðendum.
Þar er valinn maður í hverju rúmi, fólk sem lifir og
starfar í þessum landshluta og flest hefur unnið ötul-
lega að framfaramálum fólksins þar hin síðar ár.
í efsta sætinu er Jón Skaftason, héraðsdómslögmað-
ur, ungur og glæsilegur fulltrúi, sem þegar hefur getið
sér hið bezta orð, -en þó eru enn meiri vonir tengdar
við hann í framtíðinni. Jón hefur að undanförnu tekið
mikinn þátt í bæjarmálefnum Kópavogskaupstaðar og
átt sæti í bæjarstjórn hans. í kosningunum í vor var
hann frambjóðandi Framsóknarflokksins í Gullbringu-
og Kjósarsýslu og vann þá svo glæsilegan kosninga-
sigur, að óskipta athygli vakti um allt land.
Ungt og framsækið fólk í Reykjaneskjördæmi fylkir
sér nú einhuga umJtosningu Jóns Skaftasonar.
í öðru sætinu er Valtýr Guðjónsson, fyrrverandi
bæjarstjóri í Keflavík. Fáir menn þekkja betur atvinnu
hætti fólksins á Suðurnesjum og framfaraþarfir þess.
Valtýr á óskorað tfáust allra þeirra, er kynnzt hafa
opinberum störfuip. hans, og menn vita, að leiðsögn
hans er óhætt að treysta.
í þriðja sætinu er Guðmundur Þorláksson, loftskeyta-
maður í Hafnarfirði. Hann hefur tekið mikinn þátt í
félagsmálum Framsóknarmanna í Hafnarfirði og þekkir
málefni fólks í kaupstaðnum mjög náið, enda glöggur
maður og gegn í ídla staði.
Sigurður Jónsson Guðsteinn Einarsson
Aðeíns herzlumunurinn
í kosningunum í vor vann Framsóknarflokkurinn svo
glæsilegan sigur í Gullbringu- og Kjósarsýslu, að hann
hefur nú miklar líkur til að fá þingmann kjörinn í
hinu nýja Reykjaneskjördæmi. í vor fékk hann 1519
atkvæði, og þarf því að bæta mjög iitlu við sig til
þess að Jón Skaftason verði kjörinn. Þessi herzlumun-
ur ætti hiklaust að vinnast, ef vel er unnið.
Baráttan í þessum kosningum í Reykjaneskjördæmi
stendur milli þeirra Jóns Skaftasonar og Alfreðs Gísla-
sonar, 3. manns á lista íhaldsins. Samkvæmt úrslit-
unum í vor hefur Alfreð um 1620 atkv. og sést því,
að Framsóknarflokkurinn þarf ekki að bæta miklu við
sig til þess að fella hann.
íhaldsandstæðíngar, fellum íhaldsmanninn, kjósum
Jón Skaftason á þing.
KJÖRSEÐLI
SYNISHORN AF
í ReYkjaneskjördæmi við Alþingiskosningarnar 25. og 26. október 1959.
Á sínum tíma í Þýzkalar.di
gaf Hitler fyrirmæli á þessa
leið: Miðum áróðurinn við fá-
fróðasta manninn í Þýzkalandi
og notum ákæruvaldið sem
tæki í Sbiaráttunni g'egn and-
stæðingunum.
Þessi heilræði Hitlers til
þeirra sem stjórnuðu áróðurs-
tækni Nazismans koma í hug
margra, sem lesa Morgunblað-
ið þegar kosningar eru fyrir
dyrum. Áróður þess byggist
ekki á tillögum eða fyrirheit-
um um lausn vandamálanna né
upplýsingum um höfuðatriði
þjóðmálanna, heldu.r innan-
tómu sjálfshóli og monti sjálf-
stæðismanna ásamt níði um
andstæðingana. Ekki .eru heii-
indin þó meiri, þegar- réttar<
farsmálin eru rædd. Þar virð-
ist boðorð Hitlers i f(ramkvæmd,
en það alvarlegasta. í þeim efn-
um er þó það atriðl, að þáð er
fyrrverandi dómsmálaráðherra,
Bjarni Benediktsson, sem
stjórnar þeim penna. Hann er
aðalritstjóri blaðs síns og allt
sem blaðið flytur. um réttar-
farsmál og meðferð .slikra mála
er á hans ábyrgð ef ænginni
höfundur er tilgreindur.
f fullkominni alvöru ræða
menn sín á milli uni það at-
riði, að fyrrverandi vprður laga
og réttar í þessu lándi skuli
boða meðferð réttarfarsmála á
þann hátt, sem aðalritstjóri
Morgunblaðsins gerir. Menn
spyrja. Getur hann Bjarni
orðið dómsmálaráðherra aftur?
Menn vita, að flestuin getur
yfirsézt og of margir eru háðir
mannlegum breiskleika. Tæki-
færin fyrir dómsmálaráðlierra
eru því mörg. Hann ákveður
málshöfðanir, velur um kærur
og ákveður, livaða atriði í mál-
um skuli rannsökuð og liver
ekki. Einnig ákveður hann,
livort starfapdi dómarar í opin-
berum embættum fara með
rannsóknir mála eða hvort þau
eru fengin í hendur reynslu-
litlum lögfræðingum, jarnvel
til að tefja rannsóknir áð
óþörfu og skapa sér atvinnu
lengur en þörf er a.
Hugur margra béinist að þvt
sem koma skal í þessum efn-
um hjá þeim flokki sem líður
sínurn fyrrverandi dóinsmála-
ráðherra að birta stöðugar
dylgjur um andstæðinga sina í
sambandi við mál, sem eru í
Irannsókn. Samanbér liið s\o-
kallaða olíumál á 'Keflavikur-
flugvelli, sem er á því rann-
sóknarstigi að með öiiia er
óupplýst, hverir sekir eru, ef
um sök er að ræða. 'Allir vita,
að ef ekki er fylgt Hitlersboð-
orðinu, ber að bíða feftir niður-
stöðu rannsóknarinnar.
Gegnum „miðla“ sína í rikis-
stjórninni rekur Sjálfsiæðis-
flokkurinn nú sitt réttariur.
í Húsnæðismálastjórn eru
andstæðingarnir reknir tyrir
meintar pólitískar lánveiting-
ar en samherjarnir látnír sitja
áfram meðan málið er i rann-
sókn þótt vitað sé, áð aliir eru
samsekir ef um sök: er að ræða,
enda engin lán veitt nema allir
sjóðstjórnarmenn sampykki
þau. 1
Þótt sannað sé, svo ekki
verði um deilt, að niðurjöfu-
(Framhald á 11. síðu)
A Listi Alþýðuflokksins XB Listi Framsóknarflokksins , D Listi Sjálfstæðisflokksins F Listi Þjóðvarnarflokksins G Listi Alþýðubandalagsins
1. Emil Jóns-son. 2. Guðm. í. Guðmundsson. 3. Ragnar Guðleifsson. 4. Stefán Júlíusson. 5. Ólafur Hreiðar Jónsson. 6. Ólafur Thordersen 7. Svavar Árnason. 8. Ólafur Viihjálmsson. 9. Ólafur Gunnlaugsson. 10. Guðm. G. Hagalín. 1. Jón Skaftason. 2. Valtýr Guðjónsson. 3. Guðm. Þorláksson. 4. Guðm. Magnússon. 5. Óli S. Jónsson. 6. Jón Pálmason. 7. Hilmar Pétursson. 8. Jóhanna Jónasdóttir. 9. Sigurður Jónsson. 10. Guðsteinn Einarsson. 1. Ólafur Thors. 2. Matthías Á. Matthiesen. 3. Alfreð Gíslason. 4. Sveinn Einarsson. 5. Bjarni Sigurðsson. 6. Stefán Jónsson. 7. Karvel Ögmundsson. 8. Einar Halldórsson. 9. Axel Jónsson. 10. Guðm. Guðmundsson. 1. Sigmar Ingvarsson. 2. Kári Arnórsson. 3. Jón Jónsson úr Vör. 4. Kristján Gunnarsson. 5. Ari Einarsson. 6. Jafet Sigurðsson. 7. Jón Ólafur Bjarnason. 8. Bjarni F. Halldórsson. 9. Ilafsteinn Guðmundsson. 10. Eiríkur Eiríksson. 1. Finnbogi R. Valdimarsson. 2. Geir Gunnarsson. 3. Vilborg Auðunsdóttir. 4. Sigurbjörn Ketilsson. 5. Magnús Bergmann. 6. Ólafur Jónsson. 7. Lárus Halldórsson. 8. Ester Kláusdóttir. 9. Konráð Gíslason. 10. Hjörtur B. Heigason.
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar listi Framsóknarflokksins hefur verið kosinn