Tíminn - 13.01.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.01.1960, Blaðsíða 1
kvenréttindaspjall, bls. 7. Læknaði skallan, bls. 3 Sjávanitvegurinn 1959, bls. 5 ASstaða Nassers, bls. 6 íþróttir, bls. 10 44. árgangur. Reykjavík, miðvikudaginn 13. janúar 1960. 8. blað. Togarinn Úranus bundinn við bryggju í Reykjavík kkert heyrzt frá togar- anum Uranusi í tvo daga Mikið hvassviðri hefur verið undanfarið á Nýfundnalands- miðum og hefur þeim togur- um, sem eru á heimleið sótzt ferðin seint. enda er á móti að fara. Þá hefur gengið erfið- lega að hafa loftskeytasam- hand við skipin vegna slæmra hiustunarskilyrða. Tveir tog- arar voru á heimleið. þegar veðrið skall á, þeir Úranus og Þormóður goði, báðir gerðir út frá Reykjavík. Samkvæmi upplýsingum frá Bæjarútgerðinni, barst skeyli frá Þormóði goða í gær, þar sem segir að hann haidi í áttina heim en siglingin sækist seint vegna veð- urs, og að lokum, að alit sé í lagi um borð. Ekkert heyrzt Frá togaranum Úranusi hefur hins vegar ekkert heyrzt st'oan á sunnudags- kvöldið, er hann hafði sam- band við Þormóð goða. Þess- ir tveir,togarar iögðu um líkt leyti af stað heimleiðis af miðunum síðast liðinn laugardag. Þegar Úranus hafði samband við Þormóð goða á sunnudagskvöldið var allt í !agi um borð. Veðr- ið mun hafa verið einna verst á þessum slóðum að- faranótt mánudags. Fór að hvessa á sunnudagsmorgun- inn, og komið vont veður undir miðnætti, 10—12 vind stig. Veðrið færðist síðan vestar og á mánudaginn var snjókoma á Nýfundnalandi. Þá var veðrið farið að ganga niður á hafinu milli íslands og Nýfundnalands og í gær hafði því slotað niður í 6—7 vindstig, þar sem það hafði orðið harðast og komið skúra veður, en hægur vindur þeg- ar nær dró íslandi. Með tveggja tíma millibili Eins og áður er sagt lagði Úranus af stað heimleiðis kl. 19 á laugardag tveimur klukku- stundum á eftir Þormóði goða. Kom skipst.iórum saman um að s:gla fvrst 180 sjómílur í austur c.n beygja síðan til norðurs og heim. Ákváðu þeir einnig að hafa tc.lsamband milli skipanna. Kl. 22 á s'.innudagskvöld heyrði Þormóður goði í síðasta sinn frá úranusi og var þá allt með felldu um borð. Síðan hefur ekki spurzt ;il skipsins. Þormóður goði hélt áfram ferðinr.i og er væntanlegur til hafnar á morgun. Leit úr lofti Flugvélar írá Halifax leituðu í ajlan gærdag en árangurslaust. Lágskýjað var og munu þær hafa orðið að beita ratsjá við leitina. Skýrsla um leitina hafði ekki bor- ,?X seint í gærkvöldi. Bandarískar j flugvélar sem fara um þessar Framhald á 2. síðu. I ir færeyskir L!Ö hefur* láti® af samningaumleitunum, enda sðtur Flskimannafélag Færeyja sig á háan Isesf og hótar þeim fiskimönmim sektum og afarkestum, sm ráði sig hingaé Samningaumleitanir milli íslenzkra útgerðarmanna og íæreyskra sjómanna hafa nú alveg verið lagðar niður, og verða ekki teknar upp aftur, nema einhverjar tilslakanir verði gerðar af hálfu Færey- \ ** “n\ 'jlJI c fck. CjLt* Æa*.-- - J»' 0 S.ND A SHN* Æ - Jr /v 8000 tækniorð r í einni bók í dag kemur í bókaverzl- anir Tækmorðasafn eftir Síg- urð heitinn Guðmundsson arkitekt, en dr. Halldór Hall- dórsson hefur búið bókina til prentunar. Menntamálaráðu- neytið gefur orðasafnið út undir yfirumsjón orðabókar- nefndar Háskólans. Próf. Alexander Jóhannesson. formaður nefndarinnar, ekýrði blaðamönnum frá tilurð bókarinn ar og útkomu hennar í -gær. Fimmta bók í flokki Sagði prófessorinn að orðasafn þetta væri gefið út i fra-mhaldi af nýyrðasöfnunu-m þeirri sem ný- yrðanefnd hefur gefið út og væri 5. bókin í þeirri röð'. Áður hefur komið út nýyrðasöfn um eðlis- fræði, raftækni og efnafræði, sem dr. Sveinn Bergsveinsson sá um árið 1953, nýyrði um sjó- mennsku og landbúnað 1954 og viðauki um landbúnað 1955, hvorttv-eggja búið' -til prentunar af dr. Halldóri Halldórssyni, og loks nýyrði viðvíkjandi flugi og flug- tæ-kni árið 1956 ,einnig -undir 'umsjón dr. Halldóns. 8000 orð Dr. Alexander kvað Tækniorða safnið því 5. bó-kina í þessum flokki en frábru-gðna hinum fyrri að því leyti að hún he-fði ekki eingöngu að' geyma -nýyrði heldur öll þau íslenzk orð er að hvers- konar smíði og tæ-kni lúta. Hann kvað höfundihn hafa lengi unnið að safni þessu áður en hann and- a-ði.st í desember árið 1958. Undir búning-ur að útgáfu hennar hófs-t fyrir mörgum árum og hafa þeir próf. Einar Ól. Svein-sson og Þorkell Jóhajinesson re-ktor átt Fra-mhald á 2. síðu. Kortið sýnlr togaramiðin við Nýfundnaland, þar sem óveðrið hefur geysað siðan á sunnudagsmorgun. inga. Er því allt útlit fyrir, að mikil mannekla muni verða á togurunum á næstunni. Aðalágreiningsefni milli þeirra >'-,r það, að Færeyingar krefjast sxilyrðislausrar niðurfellingar út- svara hér, hvar se-m vera -kann á landinu, en það hafðist ekki í fyrra. Þá neituðu nokkrir bæir að fella niður útsvörin, og ekkert bendir til, aó þeir hafi breytt um £fstöðu í þessu máli. Óskert kjör Þá hafa Færeyingar einnig gert það að ófrávikjanlegu skilyrði, að þeim yrðu tryggð óskert kjör, þótt til gengisskerðingar kæmi á íslandi, en við það eru þeir mjög hræddir, og kannske að vonum. Kom fyrir ekki, þótt þeim væri tiyggt það, að ef til gengisskerð- ingar kæmi, skyldu þeir fá yfir- færslu á því, sem -þeir hefðu þá unnið fyrir á því gengi, sem gilti fyrir gengisfellingu. L.ausir samningar Þá kröfðust þeir þess. að þeir samningar gengju úr gildi, ef til gengisfellingar kæmi. Það þótti LÍÚ mjög óaðgengilogt, þar sem til gengisfeilingar getur komið ekki síður eftir fyrsta 'túr en eftir Lann 20., og skammgóður vermir Framhaid á 2. slöu. Rannsóknar- Iögregían npplýsir 13 innbrot Rann-sóknarlögreglan hef-ur nú upplýst 13 innbrot og þjófnaði -framda fyrir og eftir áramótin. Fjórír piltar, allir i-nnan við tví- -tu-gt, hafa játað á si-g innbrotin. Tveir þeirra hafa -einkum -s-taðið fyrir verkum, en þeir eru báðir átján ára gamli'r. Hinir tveir sem eru nokkr-u yngri, hafa veri-ð' með á nótunum í sit-t hvort skiptið. Þeir hafa áður -komið við sögu lögreglunnar. Þessir piltar hafa ekki' verið riðnir við þau stórinnbrot, sem hér hafa verið framin undan- farið. Gronchi til Moskvu NTB—RÓM, 12. jan. — Giovannt Gronchi forseti ítaHu f-er i opin bera heimsókn til Sovétrí-kjannai 6. febrúar n.k. Forsetinn imin dveljast í Sovétríkjunum í tæpa vi-ku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.