Tíminn - 13.01.1960, Page 12
Klóruðu í lakkið og buðu
250 þúsund kr. á borðið
í gærdag fór fram sala á
notuðum emkabílum varnar-
liðsmanna á vegum Sölunefnd
ar setuliðseigna. Fréttamaður
frá blaðinu brá sér á staðinn
og fylgdist með. Á boðstól-
um voru siö fólksbílar mis-
jafnlega vel meðfarnir, og
sinn af hvorri árgerð.
Eftirtaldir bílar voru til sölu:
Cadillac af 1954 árgerð, Plymou'th
’54, Oldsmobile ’56, Mercury ’55
óg Chevrole; ’54, ’57 og ’59. Mik-
ill mannfjöldi kom á staðinn og
skoðaði bílana, er þeir voru
sýndir milli kl. 1 og 3. Smáhópar
söfnuðust hér og hvar á planinu
og menn ræddu um hve mikið
mætti „bjóða í“ eða hvort „drusl-
an væri ainars svona mikils
virði“. Sumir s'kriðu undir bílana,
slógu í aurbrettin, athuguðu hurð-
ir og læsingar, klóruðu í lakkið
cg höfðu allskyns tilburði í
frammi „aðeins til að vita hvern-
ig skrjóðurinn væri.“
Mörg tilboð,
háar upphæðir
i Klukkan fimm sama dag voru
tilboðin opnuð í skrifstofu sölu-
nefndarinnar. Tilboðin í hvern
bíl skiptu tugum. Hæsta boð var
250 þúsund kr. en það lægsta
30 þúsund. Á skrifstofunni voru
eaman komnir milli 30 og 40 for-
Framhald á 2. síðu.
Stjómmála-
námskeiö FOF
Stjórnmálanámskeið Félags
ungra Framsóknarmanna í
Reykjavík mun væntanlega
hefjast 17 janúar n. k. Leið-
beinandi og stjórnandi nám-
skeiðsins verður Magnús
Gíslason.
Væntanlegir þátttakendur
eru vinsamlega beðnir að til-
kjmna þáttröku sína sem allra
fyrst í síma 16066 eða 19613.
Benzínjsjófar teknir fastir
Tveir rannsóknarlögreglumenn
voru á eftiriitsferð í bænum í
•fyrrinótt og sáu þá til ferðar
þriggja unglinga, sem löbbuðu
með brúsa inn Sundlaugaveg. —
Lögreglumennirnir fylgdu þeim
eftir inn í Efstasund, en þar bætt
ust tveir í hópinn. Logreglumenn
irnir gáfu sig á tal við piltana og
inntu eftir hvað væri í brúsunum
og ’kom í Ijós, ag það var s'tolið
benzín. Þeir höfðu náð öðrum við
bílaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar í Skúlatúni en
siöngutekið benzínið á hinn af
bifreið sem stóð vig áhaldahús
bæjarins.
12 þúsund urðu
heimilislausir
Sformur og sfsrhrs® um gprvaðla ^esiur
Evrópu síSusfu dægrisi
NTB—London, 12. jan.
Mikil illviðri hafa gengið
>fir Vestur-Evrópu síðustu
dægrin allt frá Spáni norður
til Kirjálabotna. í Grikklandi
hefur rignt mikið og lengi og
þar brast stíflugarður í dag.
Talið er að um 12 þúsundir
manna hafi misst heimili
sín.
60 kaupför lágu í dag í land-
vari við' austurströnd Svíþjóðar
en á Eystrasalti hefur geisað mik
iil stormur og stórhríð. Yfir 100
fKkiiskip leituðu vars í Rönne á
Borgundarhólmi og hafa aldrei
fyrr verið jafnmörg skip saman-
komin í þeirri höfn.
Á Spáni eru vegir víða illfær-
i'r vegna snjóa og sex manns urðu
úti í bæ einum þar í gær.
Há'l'ka hefur verig mikil á göt-
um ýmissa borga í Vestur-Evrópu.
í Berlín hefur orðið 141 bifreiða-
árekstur síðustu dægur og fjöldi'
manns slasast við byltu.
'2 þúsund heimilislaus
í norðaustur Grikklandi hefur
verið stanzlaust úrfeili síðustu
dægur og í dag brast stíflugarður
undan vatnsþunga og flóðig hefur
valdið gífurlegúm skemmdum í
mörgum sveitaþorpum, svo að
talið er að 12 þúsund manns hafi'
misst heimiii sín. Hjálparsveitir
hafa verið sendar á vet’tvang og
Solon Ghikhe, atvinnumálaráð-
herra Grikk’lands er kominn á
vettvang til að stjórna björgunar
starfinu.
eýeazisla
NTB—Vestur-Berlín, 12. jan.
Bæjarráð og löggjafarsam-
kunda 1 Vestur-Berlín hafa
bannað þjóðlega stúdenta-
sambandið og þjóðlega æsku-
týðssambandið.
Hið fyrra var stofnað í Heidel-
bcrg 1959 og hið síðara í Vestur-
Berlín í sumar. Bæði tvö voru
stofnuð fyrir forgöngu háttsettra
manna í Ríkisflokknum. Telja á-
byrgir aðilar. að nazistar ráði lög-
um og lofum í þessum félagssam-
tökum og æsi félagsmenn til gyð-
ingahaturs.
Leikfélagiö frum-
sýnir gamanleik
„Gestur til miídegisveríai“ frumsýnt á
fimmtudagskvöldið
Annað kvöld frumsýnir
Leikfélag Reykjavíkur gaman
leikinn „Gestur til miðdegis-
verðar“ (The man who came
io dinner) eftir Bandaríkja-
mennina George Kafmann og
Moss Hart. Leikstjóri er Gísli
Halldórsson, leiktjöld málaði
Magnús Pálsson. Leikarar eru
33 að tölu, en það er allt
starfslið félagsins ásamt tveim
ur frá Hafnarfirði.
Leikritið var þýtt og lei'kið af
„menntskælingum“ á Akureyri
fyrir ’tveim árum. Leikfélagið fer
eftir þeirri þýðingu, liema hvað
leikstjórinn, Gísli Halldórsson,
hefur gert á því breytilnigar. —
Gamanleikurinn er í þrem þátt-
um og gerist í smábæ í Banda-
ríkjunum fyrir síðustu heims-
styrjöld. Einnig má geta þess að
kvikmyndin var sýnd í Tjarnar-
bíó fyrir nokkrum árum.
252 viðfangsefni,
63 leikár
Þetta er 252 viðfangsefni Leik-
félags Reykjavikur á 63 -starfs-
á.rum. Næista leikrit sem sýint
verður í Iðnó er „Beðið eftir
Godot“ ef’tir Samúel Beckett í
þýðingu Indriða G. Þorsteinsson-
ar. Með aðalhlutverk í því leik-
riti' fara þeir .Brynjólfur Jóhann
esson og ÁrnL Tryggvason.
33 leikarar
í leikritinu „Gestur til miðdegis
verðar“ koma fram eins og fyrr
getur 33 leikara. En með aðal-
hlutverk fara Brynjólfur Jóhann
esson, Siigríð'ur Hagalín, Helga
Bachmann, Helga Valtýrsdóttir,
Guðmundur Pálsson, Árni Tryggva
son, Eiríkur Jóhannsson og Sig-
urður Kristinsson (tveir síðastn.
eoju úr Hafnarfirði).
Soukarno
þrengir aS
stjórnmála-
flokkunum
NTB—Jakarta, 12. jan. —
Soukarno, forseti, tók 1 dag
upp strangt. eftirlit með öll-
um stjórnmálaflolckum í Indó
nesíu og heimilaði sér vald til
?ð leysa þá upp, ef honum
sýndist það nauðsynlegt.
Hann tilkynnti um leið stofnuu
nýrra stjóremálasamtaka, sem
kallast „Þjóðfylkingin" og verður
forsetinn sjálfur leiðtogi samtak
anna. Einnig verður komið á fót
nýrri löggjafarsamkomu — þjóð-
þlnginu — og verður forsetinn
ábyrgur gagnvart því. Fulltrúar
þjóðþingsins verða kjörnir innan
hinna einstöku ríkja í sambands-
ríkjinu.
Núverandi fulltrúar á þingi
Indónesíu eru útnefndir af for-
seta landsins.