Tíminn - 14.01.1960, Síða 2
T í MI N N, fimmtudaginn 14. janúar 1960.
Evrópa skipi sjálf
f járhagsmálum sínum
Áður en ríkin gleypi vift stórfelldum áætlun-
um Baadaríkjanna. Tillaga frá Sviss
NTB—París, 13. jan Utan-
líkisráðherra Sviss, Max Petit
pierre, bar fram þá tillögu 1
dag á ráðherrafundi Efna-
liagssamvinnustofnunar Evr-
ópu í París að Evrópuríkin
isjálf reynáu að finna skyn-
samlegar leiðir til að skipa
efnahagsmálum sínum, áður
en þau hlvpu til og féllust á
víðtæka endurskipulagningu
V-Evrópu á fjármálasviðinu,
sem Bandaríkjamenn háfa á
prjónunum og Dillon aðstoðar
ntanríkisráðherra hefur að
nokkru leytx lagt fram.
Petitpierre sagði, að leita yrði
eftir því að koma á samvinnu
markaðsbandalagsríkjanna sex og
„ytri sjö“, og eftir þeim leiðum
auka hjálpina til vanþróaðra
landa og draga úr viðskiptahöml-
um ríkjanna.
'Fulitrúi Breía lagði fram til-
lögu um, ag skipuð skyldi 13
manna nefnd frá öltum aðildar- í
ríkjunum til þess að leysa deiluna 1
milli viðskiptablokkanna tveggja.
Þá bar Dillon aðstoðarutanríkis
ráoherra Bandaríkjanna einnig
Bíía aígeroanna
Framhald af 1. síðu.
mesi. Fyrir Al.þýðusamband Norð-
turlands, Tryggvi Helgason Akur-
eyri. Fyrir Alþýðusamband Aust-
urlands og félögin við Breiðafjörð
Snorri Jónsson, starfsmaður A-S-í.
Ekki tímabært
Samninganefndin felur ekki
tímabært, eins og sakir standa nú,
að semja um fastbundið fiskverð
(skiptaverð) til ákveðins tíma
tfyrir kflahlut sjómanna á vélbáta
tflotanum, þar sem af hálfu stjórn
arváldanna hefur verið' boðað, að
von sé á meiriháttar aðgerðum
í efnahagsmálum innan skamms
tíma, en nefndinni hilns vegar ó-
kunnugt um hverjar þær aðgerðir
verða og hvaða áhrif þær myridu
hafa á söluverð fiskaflans og al-
mennt neyzluvöruverð þ.á.m. á
verð þeirra rekstursvara bátaút-
vegsins sem sjómenn taka þátt í
að greiða af hlut sínum.
Lögskráð á bátana
Nefndin legg-ur því til við fé-
lögin sem aðiid eiga að samning-
um um 'kaup og kjör bátasjó-
manna, ag þau heimili að lögskráð
sé á bátana, samkvæmt grldandi'
kjarasamningum félaganna, þótt
ekki hafi verið igerður heildar-
samningur um fiskverð o.tfl. eins
og venja hefur verið til um hver
áramót.
Viðurkennt iágmarksverð
Fyrst um sinn verði það fisk-
verð sem gilti! fyrir áramótin,
viðurkennt sem lágmarksverð
fyrir alla bátasjómenn, þ.e. fram
að þeim tíma að væntanlegar efna
hagsmálaaðgerðir taka giidi og
tfært verður að gera fasta samn-
inga 'Um fiskverð o.fl. Takist ekki
samningar þá við samtök útgerðar
manna um ákveðið verg fyrir afla
hlut bátasjómanna, skal gi'lda
6ama verð og útgerðarmenn fá
greitt fyrir si'nn hlut aflans, þ.m.
taldar uppbætur í hvaða mynd sem
væri.
Nefndin kölluð saman aftur
Nefndin óskar þess að stjórn
A.S.Í. kalli nefndina samam að
nýju, þegar hinar boðuðu etfna-
hagsaðgerðir verða kunnar og
flmabært verður að taka upp viff-
ræður við' Vélbátadeild L.Í.U. i»m
nýja saflwingagerð um ÉisfcverS".
fram tillögu. Er þar gert ráð fyr-
ir því, að verul.eg viðskiptasam-
keppni haldi áfram milli rikj-
anna 13, þar til ECCE hefur verið
endurskipulögg og myndi ramma
fyrir nýjan sameinaðan viðskipta
heim vesturlanda, og yrðu Banda
ríkin og ICanada með í þessari
nýju, stóru samsteypu.
Þórhallur og
Þórhallur
í blaðinu í gær misritaðist
föðurnafn ein.s mannsins, sem
kjörinn var í framkvæmdastjórn
Þjóðvarnarfl.okksins. Stóð í blað-
i;nu ag Þórhallur Vilmundarson
hefði verið kjörinn í stjórnina,
en átti að vera Þórhallur Hall-
dórsson.
Brátt mun brezkt
tungl á loft
NTB—LONDON, 12. janúar. —
Duncan Sandys flugmálaráðherra
Breta, sagði í dag, að með sam-
byggingu nokkurra tegunda
brezkra eldflauga væri unt að fram
leiða nægjanlegt afl þess ag senda
gerfitungl, sem væri eitt tonn á
þyngd á braut umhverfis jörðina.
Sandys sagði, að enn væri ekki
tímabært að kveða á um það,
hvort Brelar kæm>u á fót sér-
stakri áætlun um geimrannsókn-
ir. Bretar geta ekki sett á loft
sitt eigið gerfiungl, nema með
brezkum eldflaugum og sambygg
ing nægilera öflugra eldflaugna
stendur nú yfir.
Jólin á Grund
Sunnudaginn 1,0. janúar s.l. lauk
jólastörfum á Grund með því, að
haidið var barnabarnaskemmtun
vistfólksins í Sjálfstæðishúsinu.
Börnin voru um 350 en fullorðnir
nálægt 200. — Árlega, um langt
árabil, hefur forstjóri og stjórn
Sjálfstæðishússins boðið til þessa
jólafagnaðar.
Ömmu og afa, öllu heldur lang-
ömmu og la.'igafa, sem hjá okkur
eru, þykir mjög vænt um að
geta boðið litlu börnunum á
þessa jólatrésskemmtun, og færi
ég fyrir þeirra hönd og stofnunar-
innar hugheilar þakkir öllum,
sem að þessu stóðu, hljómsveit
inni, jólasveminum og öllu starfs-
fólkinu — og síðast en ekki sízt
forstjóra og stjórn Sjálfstæðishúss-
ins.
Um jólin bárust vistfólkinu
margar jóiakveðjur og gjafir.
heimsóknir og heimboð. Ýmis fé-
lög sendu að vanda margar gjafir.
i Varnarliðið færði tvo hjólastóla,
j sælgæti og spil að gjöf. Allar
þessar gjafir, sem og ýmsar aðrar,
er ljúft og skylt að þakka.
Börn úr Tónlistarskólanum,
undir stjórn frú Hermínu Sigur-
geirsdóttur héldu jólatónleika
fyrir heimilisfólkið. Lúcíurnar
komu nú eins og svo oft áður.
Skátarnir skemmtu, og ýmsa aðra
góða gesti bar að garði. Færi ég
þeim öllum innilegustu þakkir
fyrir komuna, skemmtunina og
hugulsemina að muna eftir okkur
hér á Grund
Á hverju ári gefur einn borgari
bæjarins 50 vistmönnum veglega
peningagjöf. Þessum ágæta vini
vistfólksins þakka ég enn einu
sinni fyrir jólagjöfina. —
Gísli Sigurbjörnsson
Sæmilegur afli
í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn, 13. des. — Vertíðin
er hafin. Fyrsti báturinn fór í
róður s.l. laugardag, og nú eru
þrír byrjaðir. Afli er sæmilegur,
5—8 lestir í róðri á bát. Átta bát
ar verða gerðir út héðan í vetur,
þar af einn aðkomubátur. Sjö
þeirra verða komnir af stað upp
úr næstu helgi, en verið er að
fá menn á þann áttunda í stað
Færeyinga, sem voru ráðnir á
hann.
AidútS
(Framhald af 12. síðu).
Sjálfur segist sendiherrann hafa
fengið mörg hótunarbréf.
Ferðalögum aflýst
Hann segir ennfremur, að Þjóð
verjum hafi verið >sýnd móðgun
á götum úti i Bretlandi og' kastað
að þei'm óvirðingarorðum. Þá eru
sögusagnir í blöðunum um það,
að ferð'askrifstofur hafi orðið að
hætta við ráðgerðar hópferðir til
Bretiands á næstunni vegna
skorts á fyrirgreiðslu í Bretlandi'.
Talsmenn Bonn-stjórnar sögðu í
dag, að þessar fregnir allar væru
yfirdrifnar og ýktar. Blöðin segja
hins vegar, að stjórnin geri sér
al.ls ekki' ljóst, hversu alvarleg
þessi andúð Breta er og hver.su
hættuleg húp geti reynzt Þjóð-
verjum.
Uranus
Framna.a af 1. síðu
í auisturátt ,áður en þau breyttu
um stefnu til norðausturs til að
forðast rekís og ísingu. Klukkan
tíu á sunnudagskvöldið hafði Þor
•móður igoði svo samband við
Úranus. Varla munu þá hafa
verið meira en tuttugu sjómílur
á milli skipanna. Síðan heyrðist
ekkert til Úranusar, en Þormóður
goði hélt ferð sinni áfram til
Reykjavíkur og er væntanlegur
hingað í kvöld milli klukkan 10
og 12. Úranús er væntanlegur um
miðjan dag á morgun.
Afburíagott sjóskip
Úranus er talinn afburða gott
sjóskip. Hefur togarinn einu sinni
orðið fyrir svo öflugum sjóhnút,
ag hann lagðist á hliðina, svo brú-
in fór í kaf. En skipið rétti sig
strax við af slíkum krafti, að
björgunarbátur á bátadekki, full
ur af sjó, slitnaði úr gálgum og
týndist.
Nýtt skip
(Framhald af 12. síðu).
GóSar móttökur
B.
Indælt veður var þegar skipið
lagðist að bryggju en þar var
samankominn Karlakór Ólafsfjarð
ar og fagnaði skipinu með söng.
Guðm. Kr. Jónasson stjórnaði
söngnum. Þá flutti Ásgrímur Hart
mannsson bæjarstjóri ræðu og
bauð skinið velkomið, en sr. Krist
jén Búason sóknarprestur flutti
bæn og bað fyrir skipi og skip-
verjum.
Magnús Gamalíelsson þakkaði
móttökur af skipsfjöl, en hann er
annar aðalelgandi skipsins. Bauð
hann bæjarbúum að skoða skipið.
Fullkomin tæki
j Guðbjörg er byggð í Sunde í
Noregi, í Grafdals Skibsbyggeri,
sem er elzta skipasmíðastöð Nor-
egs. Hún er smíðuð úr stáli, 100
smálestir að stærð, knúin 400 ha
Mannheim-vél og 38 ha hjálpar-
véi. Ganghraði á reynsluferð var
11 mílur en hraðinn á heimleið
var að jafnaði 10 mílur. Skipið
er allt hið vandaðasta og hefur
öil fullkomnustu hjálpartæki. Þar
n>.á nefna Elac-fiskileitartæki,
dýptarmæli, Decca-ratsjá, miðun-
arstöð, talstöð o. fl.
Skipið er búið sjálfstýriútbún-
aði, rafmagnsupphitun, rafsuðu-
tækjum og heitt vatn er í öllum
hönum.
Pinay
(Framhald af 12. síðu).
hnfi verið sambúðin við Þjóðverja.
Hafi Pinay verið andvígur þeirri
nanu samvinnu, sem tekzt hefur
núlli ríkjanna upp á síðkastið og
talið að Frakkiandi stafaði af
henni hætta.
Óbreytt stefna
Baumgartner, sem nú verðrn*
fjármálaráðiierra, er 57 ára að
aidri. Hann kvaðst hafa fallizt á
að taka að sér embætti fjármála-
íáðherra vegna þess að hann teldi
það skyldu sína. Fór hann lofs-
orðum um stefnu fyrirrennara
sins og kvaðst myndi fylgja henni
í öllum atriðum. Bendir þetta ó-
neitanlega tii þess að ágreiningur-
inn við Pinay hafi stafað af öðr-
wn ástæðum en stefnunni í fjár-
málum.
Samkeppni
Skipuleg leit
I fyrradag var farið að' undir-
búa skipulega leit að Úranusi, en
veður á þessum slóðum var ekki
hagstætt til leitar fyrr en í gær.
Slysavarnafélag íslands sendi út
l beiðnir um aðstoð og stjórnaði
1 Henry Hálfdánarson, skrifstofu-
' stjóri aðgerðum félagsins varð-
andi leitina. Samkvæmt fréttum
frá Halifax hófu tvær bandarísk-
ar flu'gvélar, ein kanadísk vél og
einn strandgæzlubátur 'leit að tog
aranum í morgun, aúk þeirra
skipa, sem fyrir voru. Flugvélar
þessar höfðu bækistöð í flotahöfn
inni Argenta á Nýfundnalandi.
Forráðamenn Loftleiða buðu
mili.ilandavél sína fram til leitar,
en hún var þá á leig heim frá
New York. Rússneska sendiráðið'
í Reykjavík hafði einnilg verið
| beðið að koma þeim skilaboðum
I til sovéskra togara á Nýfundna-
Gerð út frá Keflavík
Enn fremur er skipið búið tog-
úlbúnaði og kraftblökk sem er ný-
lunda í íslenzkum fiskibátum. Þá
er á skipinu lítill vélbátur sem
notaður er við síldveiðar til að
halda nótinni frá skipinu. Innrétt-
ingar allar eru úr harðviði en
lestin þiljuð innan með alúmíni.
Eigendur eru Magnús Gamalíels-
son og kona hans Guðfinna Páls-
dóttir. Skipstjóri á bátnum er Ól-
aí'ur Jóakimsson en 1. vélstjóri
Aðalbjörn Sigurlaugsson. Guðbjörg
verður gerð út frá Keflavík í vet-
ur og fer suður eftir nokkra daga.
(Framhald al 12. síðu>.
Þessi samgöngumál eru á undir
búningsstígi svo ekkert verður
sagt um endanlegar ákvarðanir,
en á undangengnum mánuðum
hefur þag orðið æ ljósara, hve
mikið fjármagn þarf til að' Ieysa
það.
Grænlandsflugið verður að reka
með ríkisstyrk eða ríkisábyrgð og
með samstarfi vig Grænlandsverzl
unina, segir blaðið, og þarf engai*
smásummur til.
— Aðils'
Krustjofí kemur
við í Burma
NTB—MOSKVA, 12. janúar. —
Nikita Krustjoff forsætisráðherra
Sovétríkjanna, itilkynnti sendiráði
Burma í Moskvu í dag, að honum
myndi væntanlega kleift að heim
sækja Burma á ferð sinni til
Indónesíu í febrúarmánuði'.
' Sendiherra Burma í Moskvu af
henti fyrir skömmu boð stjórnar
innar í Burma til Krustjofs um
að koma í opinbera heim>sókn til
landsins.
Jörð á Snæfellsnesi
Til leigu er jörð á sunnanverðu Snæfellsnesi. Vel
byggt. Rafstöð. í þjóðbraut. Upplýsingar í síma
18285.
m
,'X*X*X*WV'V»V
Auaísœ i TIMANUM
landsmiðum að svipast um eftir
Úranusi, en fátt var um skip anm
arra þjóða þar um slóð’ir. Þá lagði
veðurathugunarskipið Charles af
stað að leita 'togarans. Skipið var
| þá fjögur hundruð mílur frá
þeim stað, þar sem síðast hafði
heyrzt frá Uranusi.
En leitinni lauk skyndilega þeg
ar þeir í leitarflugvélinni frá
Keflavíkurflugvelii komu auga á
Úranús, hvar hann sigldi heim,
ag vísu sambandslaus við um-
heiminn vegna bilaðra loftskeyta
tækja, eai óbugaður af Ægisdætr-
um, sem svo oft hafa orðið ís-
lendingum þungar í skaiítá.
Hjartans þakkir öllum þeim, er glöddu mig sex-
tuga, og hugsuðu hlýtt til mín
Lifið heil.
Ingibjörg Gísladóttir
Skúfslæk.
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim mörgit
vinum og vandamönnum, sem heimsóttu mig og
fluttu mér gjafir og sendu mér skeyti á 60 ára af-
mæli mínu. Einnig kvenfélögum innan breiðfirzka
sambandsins og í Skagafirði, sem ég geymi ógleym-
anlegar 'minningar frá gegnum liðið samstarf.
Guð blessi ykkur öll á ófarinni ævibraut.
Hjartans kveðja.
Theodóra Guðlaugsdóttir.
mm
Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem á einn eða annan hátt
vottuðu samúð sína og vináttu við andlát og jarðarför
Sigurðar Bjarnasonar
Hraunsási.
Vandamenn.
Hiartkær eiginkona mín, móðir okkar og mágkona,
Sveinbjörg G. Jónsdóttir,
frá Svínafelli í Öræfum, Ásvallagötu 17,
andaðist að 9t. Jösefsspitala þann 12. þessa mánaðar.
Þórhallur Jónsson,
Ftegnar Þórhalisson,
Jón Þórhallsson,
Jón Bjarnason.